Beint á leiđarkerfi vefsins

Til félagsmanna

28. desember 2011

Jólaball SFR 29. desember

jolasveinnjolaball
Jólaball SFR verður haldið í samstarfi við St.Rv. fim. 29. des. 2011, kl. 17 í Gullhömrum, Grafarholti. Miðar eru seldir á skrifstofu félagsins, Grettisgötu 89, opið 9-16. Miðaverð er 700 kr.

20. desember 2011

Langar ţig í kyrrđ yfir hátíđirnar? Laus orlofshús

Kjarnaskógur_vetur
Nú er laust í orlofshúsum SFR í Kjarnabyggð og Hamratúni á Akureyri um jólin. Þá er Ólafsfjörður, Vestmannaeyjar og Danmörk laust um jól og áramót.  Hægt er að bóka hér á orlofsvef.

12. desember 2011

OPIĐ FRAM Á VOR - Ný íbúđ í Kaupmannahöfn

útsýni
SFR hefur tekið á leigu nýja íbúð í Kaupmannahöfn, en hætt var að leigja út íbúðina sem við höfðum í  Hollænderdypet í lok nóvember. Nýja íbúin er staðsett Ved Volden sem er í Christianshavn. Búið er að opna fyrir bókanir til loka apríl á  Orlofsvefnum.

28. nóvember 2011

Jólafundur LSFR

kerti mynd

Árlegur hátíðar jólafundur Lífeyrisþega-deildar verður haldinn föstudaginn 9. desember og hefst kl. 15 að Grettisgötu 89, 1. hæð. Að venju verða jólaveitingar; heitt súkkulaði, meðlæti og kaffi. Þá verður upplestur, happdrætti og hljóðfæraleikur. Verð kr.1200,- pr. mann og er félögum í LSFR velkomið að taka með gesti. Tilkynna þarf þátttöku á skrifstofu SFR 525-8340 fyrir 7. desember.

 

3. nóvember 2011

Nokkur laus pláss á fyrirlestur um einstaklings markmiđasetningu

Enn eru nokkur pláss laus á fyrirlesturinn Einstaklingsmarkmiðasetning sem Frímann Sigurðsson heldur 23. nóv. kl. 17-18 á Grettisgötu 89, 1. hæð. Skráning hér.

31. október 2011

Fyrirlesturinn Umhverfismál í daglegu lífi fellur niđur

Því miður fellur niður fyrirlestur sem vera átti þann 16. nóv. þar sem þátttaka var ekki næg. Það var Stefán Gíslason sem ætlaði að halda fyrirlestur um umhverfisvernd í daglegu lífi á venjulegu heimili, hvers vegna við þurfum að velta þessum málum fyrir okkur, hverju sé auðveldlega hægt að breyta og hvað sé mikilvægast að hafa í huga þegar fyrstu skrefin eru tekin. Rætt verður um ævisögu hluta, mikilvægi fyrirmyndanna og mátt neytandans og fleira.

20. október 2011

Skráning stendur yfir á fyrirlesturinn Eiturefna-úrgangsruslaskrímsliđ 10.nóv.

Skráning stendur yfir á fyrirlestur Eddu Björgvinsdóttur sem haldinn er í BSRB húsinu 10. nóv. kl. 17-18:30. Þar mun hún fjalla um hvernigmanneskja með lítinn sjálfsaga getur breytt mataræði sínu úr ruslmat í vítamínríkt fæði? Hvernig getur lélegur kokkur búið til gómsæta heilsurétti? Hvaða eiturefni erum við að innbyrða daglega í svokölluðum “hollustu”mat? og fleira... Fyrirlesturinn er sendur út í fjarfundi til Ísafjarðar, skráning á fjarfund hér.

5. október 2011

Ferđ til fjár - nokkur pláss laus á námskeiđ um fjármálalćsi

Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi, heldur námskeið 17. og 24. okt. kl. 17-190 um fjármálalæsi þar sem hann fer í saumana á fjármálum einstaklinga og fjallar um peninga, sparnað og eyðslu á mannamáli. Tekin verða raunveruleg dæmi og þátttakendum kynnt tól og tæki til efla fjárhagslegt öryggi sitt. Skrá mig hér til þátttöku.

28. september 2011

Enskunámskeiđiđ „Speaking up“

Skráning stendur yfir á námskeiðið „Public Speaking and Delivering Presentations in English“ sem hefst 5. okt. nk. Um er að ræða 12 klst. námskeið sem hún Mica Allan kennir og er kennt 2 klst. í senn alls 6 skipti. Mjög mikil ánægja hefur verið meðal þátttakenda á námskeiðunum hennar sem haldin hafa verið undir merkjum Gott að vita.

22. september 2011

Skáning á Gott ađ vita námskeiđ hafin

SFR býður félagsmönnum upp á fjölmörg námskeið nú á haustönn undir heitinu "Gott að vita". Dagskránna er að finna hér á síðunni en auk þess er Blað stéttarfélaganna SFR og STRV í dreifingu til félagsmanna. Opnað hefur verið fyrir skráningu og eru félagsmenn hvattir til þess að skrá sig sem fyrst til þess að tryggja sér pláss. Sjá nánar hér.

19. september 2011

Félagsráđ fundar 23.sept.

Fyrsti fundur Félagsráðs SFR verður haldinn 23. sept. Í félagsráði eiga sæti stjórn SFR, formenn fagfélaga og deilda og 15 trúnaðarmenn sem voru kosnir á fundi trúnaðarmanna 1. sept. sl. Fundir félagsráðs eru opnir félagsmönnum SFR og hafa þeir málfrelsi og tillögurétt, en ekki atkvæðisrétt. Hafi félagsmaður áhuga á að sitja fundinn verður hann að tilkynna þátttöku fyrir kl. 16 þann 21. sept. í síma 525-8340 eða senda póst á alma@sfr.is. Sjá dagskrá hér.

12. september 2011

Stafgöngunámskeiđ - nokkur laus pláss

Námskeiðið hefst 15. sept. og verður fjallað um stafgöngu, sem hefur farið eins og eldur í sinu um Evrópu, og hvaða tækni er best að beita við slíka göngu. Námskeiðið er þannig uppsett að fyrsti tíminn er fyrirlestur og næstu 4 tímar eru gönguæfingar. Gengið verður í Laugardalnum (hist við Skautahöllina). Skráning og nánari upplýsingar hér.

8. september 2011

Fundi Starfsmenntunar-sjóđs frestađ

Vegna veikinda þarf að fresta fundi Starfsmenntunarsjóðs SFR um viku og verður hann því haldinn 15. september nk.

6. september 2011

Forystufrćđsla BSRB

Á vef BSRB kemur fram að Forystufræðsla BSRB í samvinnu Fræðslusetrið Starfsmennt hefst í næsta mánuði og er skráning í námskeiðið hafin. Fræðslan er ætluð fyrir stjórnir og starfsmenn aðildarfélaga BSRB. Markmið námsins er að efla þekkingu og fagmennsku þátttakenda en áhersla er lögð á lýðræðislega virkni, upplýsingamiðlun og liðsheild. Ætlunin er að styrkja almenna starfs- og stjórnendahæfni til að geta mætt fjölbreyttum verkefnum og nýjum áherslum í þjónustu við félagsmenn. Sjá nánar hér.

26. ágúst 2011

Ljósmyndasamkeppni - skilafrestur til 30. sept.

Ákveðið hefur verið að framlengja skilafrest ljósmyndasamkeppni Blaðs stéttarfélaganna sem hrint var af stað í vor til að gefa fleirum kost á að senda inn myndir. Allir félagsmenn SFR og St.Rv. geta sent inn myndir í keppnina.

19. ágúst 2011

Íbúđ á Akureyri laus í dag og nćstu viku

Íbúð félagsins í Skálatúni á Akureyri var að losna af óviðráðanlegum ástæðum frá og með deginum í dag og fram til 26. september. Hægt er að bóka íbúðina hér.

18. ágúst 2011

Allir kjarasamningar komnir á netiđ

Hér má nálgast nýja kjarasamn-inga sem SFR gerði frá maí til júlí. Launatöflu fyrir ríkisstarfsmenn má nálgast hér en launatöflur þeirra sem vinna hjá öðrum en ríkinu má finna inni í viðkomandi kjarasamaningi. Verið er að uppfæra Spurningar og svör um kjaramál.

6. júlí 2011

Síđsumarnámskeiđ - Sveppir og Stafganga

SFR og St.Rv. bjóða félagsmönnum upp á síðsumarnámskeið. Um er að ræða tvö námskeið þar sem verður frætt um svepparíkið og eitt námskeið í stafgöngu. Skráning og nánari upplýsingar hér.

5. júlí 2011

Skrifstofuskólinn - Umsóknafrestur til 23. ágúst

Umsóknarfrestur til skráningar í Skrifstofuskólann hjá Framvegis er til 23. ágúst. Skrifstofuskólinn er ætlaður fólki á vinnumarkaði sem er 20 ára eða eldra og vill auka færni sína til að takast á við almenn skrifstofustörf, en námið er 240 kennslustundir. Námið er skipulagt þannig að það hentar að stunda það meðfram starfi. Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Sjá nánar á hér.

30. júní 2011

Fjallganga á Fimmvörđuháls blásin af vegna veđurs

Því miður er veðurspáin slæm fyrir laugardaginn og því verður að blása af fyrirhugaða fjallgöngu á Fimmvörðuháls sem átti að fara í 2. júlí.

16. júní 2011

Námstilbođ síđsumars og hausts hjá Framvegis

Framvegis kynnir þrjár nýjar námsleiðir sem standa til boða á næstunni. Námsleiðirnar eru sérstaklega hannaðar fyrir fólk á vinnumarkaði sem hefur ekki setið á skólabekk í langan tíma. Um er að ræða skrifstofuskólann, grunnnám skólaliða og skref til sjálfshjálpar í lestri og skrift. 

 

14. júní 2011

Örfá sćti laus í Jónsmessuferđ LSFR

Þann 21. júní 2011 verður farin hin árlega sumarferð Lífeyrisþegadeildar á jónsmessu. Að þessu sinni verður farið á Þingvelli, síðan ekið til Laugarvatns og í Skálholt þar sem verður fræðsla um staðinn. Þaðan um Reykholt yfir að Flúðum og í Árnes þar sem snæða á kvöldverð. Ferðin kostar kr. 3.500 pr. einstakling. Skráning í s. 525-8340 eða rafrænt hér.

7. júní 2011

Afmćlis- og menningar- hátiđ BSRB 11. júní

Afmælis- og menningarhátíð BSRB verður haldin í þjónustumiðstöðinni Munaðarnesi laugardaginn 11. júní  n.k. Árlega er haldin menningarhátíð bandalagsins í Munaðarnesi en í ár fagna orlofsbyggðirnar í Munaðarnesi einnig 40 ára afmæli.

23. maí 2011

Lokađ vegna flutninga hjá Starfsmennt

Vegna flutninga verður Fræðslusetrið Starfsmennt lokað mið. 25. maí. Öll síma- og tölvusamskipti munu einnig liggja niðri þann dag. Starfsmennt opnar aftur fim. 26. maí, í nýju húsnæði, á 5. hæð í Ofanleiti 2. Nýtt símanúmer, 550-5060, verður tekið í notkun en gamla númerið, 525-8395, verður virkt fram á haust.

16. maí 2011

Fjallganga á Fimmvörđuháls 2. júlí

SFR-félögum stendur til boða að ganga þessa mögnuðu leið í sumar með fararstjóra. Um er að ræða dagsferð þann 2. júlí. Gangan tekur 10-11 klukkustundir og er við hæfi allra sem eru sæmilega hraustir. Hér er hægt að lesa meira um ferðina og skrá sig.

9. maí 2011

Fjölmenningardagur og fjölmenningarganga

Fjolmenningardagur2011

Þann 14. maí nk. verður Fjöl-menningardagur Reykjavík-urborgar og fjölmenningardagur. Gangan leggur af stað frá Hallgrímskirkju kl. 13 og ýmsar uppákomur og markaður verða í ráðhúsinu og Iðnó. Hér má sjá myndband frá fyrstu Fjölþjóða-göngunni í maí 2009...

2. maí 2011

Ekki hćgt ađ opna á íbúđ í Kaupmannahöfn í september

Ekki hefur náðst samkomulag um framlengingu á leigusamning varðandi íbúðina í Kaupmanna-höfn. Því er ekki hægt að opna fyrir leigu fyrir septembermánuð að svo stöddu. Auglýst verður á vefnum með fyrirvara þegar niðurstaða næst í málið.

28. apríl 2011

Akureyri og 1. maí

- Kröfuganga og hátíðardagskrá
Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið kl. 13.30 og gangan leggur af stað kl. 14. Að lokinni göngu verður hátíðardagskrá í HOFI með ræðuhöldum, skemmtidagskrá, kaffiveitingum ásamt því að dregið verður í happdrættinu, en happdrættismiðum verður dreift í göngunni. Sjá nánar hér.

19. apríl 2011

Muniđ afsláttarkjör!

Félagsmenn SFR geta fengið afslátt á margs konar vörum og þjónustu og nýlega bættist Prentlausnir.is við listann en þar er hægt að kaupa rekstrarvörur í prentara og ljósritunarvélar meðal annars umhverfisvænu tónerhylkin Grænagerðin.

14. apríl 2011

10 heppnir vinningshafar - Stofnun ársins 2011

Dregnir voru út 10 vinningar sem eru gjafabréf hjá Icelandair að andvirði 50 þúsund krónur hver, og komu vinningar á eftirfarandi númer; 3355,  5543,  9232,  13778,  13780,  32551,  52082,  64379,  64666,  69496.

13. apríl 2011

Hádegisfróđleikur - Sveiflast međ tíđarandanum: Auglýsingar og jafnrétti

Skráning stendur yfir á hádegisfróðleik sem verður haldinn 28. apríl kl. 12-12:50 á Grettisgötu 89, 1. hæð.

12. apríl 2011

Vinnuferđ í Vađnes

Á þessu vori verður SFR með vinnuferð í Vaðnes þann 13.-15. maí. Þar koma saman félagsmenn til að endurnýja ýmislegt og dytta að í húsunum, klippa tré, tína rusl á svæðinu o.fl. Skráning hjá Önnu Dóru, á netfanginu dora@sfr.is, sem allra fyrst.

11. apríl 2011

Ađ lesa úr launaseđli

Enn er hægt að skrá sig á námskeiðið að lesa úr launaseðli sem haldið verður á morgun, 12. apríl, kl. 17-18.

31. mars 2011

Verkefnastjórnun - Vinnulag sem virkar - Bođiđ upp á fjarnám: Akureyri/Egilsstađir/Ísafjörđur

Skráning á Verkefnastjórnun - Vinnulag sem virkar er nú í fullum gangi en námskeiðið hefst 26. apríl. Stefnt er að því að bjóða upp á fjarnám á Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði, ef næg þátttaka fæst (3-4 á hverjum stað). Verkefnastjórnun er vinnulag sem nýtist á hvaða starfsvettvangi sem er, ekki síst nú þegar störf okkar og starfsumhverfi taka örum breytingum í takt við almenna samfélagslega þróun.

24. mars 2011

Hamingjan í fjarfundi til Akureyrar 6. apríl

Skráning stendur yfirá fyrirlestur í fjarfundi um hamingjuna sem haldinn verður 6. apríl kl. 17-18:30. Fjarfundurinn fer fram í Háskólanum á Akureyri, stofu M202 á Sólborg, en er haldinn í BSRB húsinu í Reykjavík, en þar er kominn biðlisti.

22. mars 2011

Sćkja um orlofshús - Frestur til og međ 23. mars

Minnum félagsmenn á að frestur til að sækja um orlofshús / orlofsávísun rennur út á miðnætti 23. mars. Smella hér til að fylla út umsókn.

21. mars 2011

LOKAFRESTUR 23. MARS - Stofnun ársins og Launakönn SFR

Búið er að framlengja lokafresti til að velja Stofnun ársins og svara launkönnun fram til 23. mars. Þeim sem ekki hafa skilað inn svörum gefst því enn tækifæri til að senda inn svör sín.

18. mars 2011

Skattframtal - frádráttur vegna símenntunar og líkamsrćktar

Búið er að opna fyrir skattframtöl einstaklinga á vef Ríkis-skattstjóra. SFR vekur sérstaka athygli á því að styrkir úr starfsmenntunarsjóði og styrkur fyrir líkamsrækt úr styrktar- og sjúkrasjóði eru frádráttarbærir. Ef þú hefur fengið slíka styrki þá eru þeir forskráðir á framtalinu en þú verður að færa inn frádráttinn.

17. mars 2011

Frestur framlengdur til 18. mars - Stofnun ársins og Launakönnun SFR

Yfir helmingur SFR félaga hefur nú valið Stofnun árs og svarað launakönnuninni, en betur má ef duga skal því áreiðanleiki og gæði könnunarinnar eykst með hverjum þátttakanda. Þeim sem ekki hafa skilað inn svörum er bent á að fresturinn til að senda inn svar hefur verið framlengdur til 18. mars.

7. mars 2011

Stofnun ársins frestur famlengdur til 15. mars

Frestur til að skila inn spurningalistanum fyrir Stofnun ársins og launakönnun framlengdur til 15. mars. Miklu skiptir að sem flestir svari, þannig eykst áreiðanleiki og gæði könnunarinnar.

24. febrúar 2011

Stofnun ársins - hvetjum félagsmenn til ađ svara

Nú ætti spurningalistinn fyrir Stofnun ársins og launakönnun SFR að hafa borist félagsmönnum. Þeir sem ekki hafa fengið könnunina senda er bent á að hafa samband við Jóhönnu á johanna@sfr.is eða í s. 525-8344.  Við hvetjum ykkur félagsmenn til þess að taka þátt í könnuninni þar sem þátttaka sem flestra eykur gæði og áreiðanleika könnunarinnar.

24. febrúar 2011

Sumarúthlutun - umsóknarfrestur til og međ 23. mars

Orlofsblað SFR er í vinnslu og er stefnt að því að það berist félagsmönnum fyrir lok næstu viku. Umsóknir verða komnar inn á vefinn um leið og orlofsblaðið berst inn um póstlúguna, en hægt verður að sækja um til og með 23. mars. Opnað verður fyrir bókanir í útlöndum 11. mars og fyrir dagleigu 1. apríl.

14. febrúar 2011

Afslćttir til félagsmanna 2011-2013 og nýtt félagsskírteini

SFR félagar njóta afsláttarkjara hjá fjölmörgum fyrirtækjum gegn framvísun félagsskírteinis sem ætti að hafa borist í síðustu viku. Hér má nálgast yfirlit yfir afslætti 2011-2013. En á tveggja ára fresti semur félagið við viðkomandi fyrirtæki fyrir hönd félagsmanna.

10. febrúar 2011

Kryddjurtir í fjarfundi til Akureyrar

Námskeið um kryddjurtir sem haldið verður 16. febrúar verður sent í fjarfundi til Akureyrar. Skráning hér.

4. febrúar 2011

Könnunin Stofnun ársins send út á nćstu dögum

Félagsmenn eiga næstu daga að fá senda könnunina Stofnun ársins og Launakönnun SFR. Undanfarið hefur verið hringt í félagsmenn og þeir spurðir hvort að þeir vilji fá könnunina senda á tölvupósti eða heim til sín á pappírsformi. Ef félagsmaður hefur ekki fengið könnunina fyrir 15. febrúar þá er um að gera að láta vita í s. 525-8340 eða senda póst á johanna@sfr.is.

1. febrúar 2011

Námskeiđ á Dalvík

Námskeiðið „Vellíðan í vinnu og leik“ fyrir félagsmenn KJALAR og SFR verður haldið 3. feb. kl. 17-20 á Dalvík.
Skráning hér.  Markmiðið með námskeiðinu er að kynna leið til að láta sér líða vel í vinnunni og lífinu almennt  þrátt fyrir erfiðar ytri kringumstæður. Að auka bjartsýni þátttakenda með því að þeir sjái að þeir hafi meiri stjórn á eigin lífi og eigin.

31. janúar 2011

Breytt úthlutunartímabil orlofshúsa

Breyting verður á úthlutunartímabila orlofshúsa í sumar. Úthlutað verður frá 27. maí til 2. sep., en það er 2 vikum skemur en áður. Breytingin er vegna þess að tvær fyrstu vikur sumars voru ekkert sérstaklega vinsælar. Þriðjudaginn 1. feb. mun orlofsvefurinn opna fyrir bókanir fyrir tímabilið fram til 27. maí og þá gildir reglan, fyrstur bókar fyrstur fær. Dagarnir í kringum páska (20.-27. apríl) eru þó undanskyldir, því þeim er úthlutað í sérstakri páskaúthlutun sem kynnt er í SFR blaðinu sem berst félagsmönnum á næstu dögum.

14. janúar 2011

Fjölbreytt úrval námskeiđa

Starfsmennt-fiskar
Nýr námsvísir Fræðslusetursins Starfsmenntar er kominn út. Þar er að finna námsleiðir sem í boði eru vorið 2011.

6. janúar 2011

Starfslokanámskeiđ

Næsta starfslokanámskeið BSRB á höfuðborgarsvæðinu verður haldið 31. jan. til 2. feb. og er það Félagsmálaskóli alþýðu sem stendur fyrir námskeiðinu. Skráning og nánari upplýsingar hér á www.bsrb.is.

5. janúar 2011

Náms- og starfsráđgjöf fyrir alla félagsmenn hjá Starfsmennt

Fræðslusetrið Starfsmennt býður félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun.


Slóđin ţín:

Fréttir » Til félagsmanna