Til félagsmanna
27. janúar 2010
Komdu í kór!
Maí kórinn er kór BSRB félaga og er opinn öllum félögum í aðildarfélögum BSRB, vinum þeirra og vandamönnum. Kórfélagar hittast einu sinni í viku á þriðjudagskvöldum kl. 20:15 í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og syngja saman fjölbreytt lög undir styrkri stjórn Svövu Kristínar Ingólfsdóttur. Í hópnum er vant söngfólk og óvant, bæði karlar og konur. - Allir eru velkomnir.
15. janúar 2010
Útlhlutun orlofshúsa - páskar, sumar
Páskaúthlutun orlofshúsa verður kynnt í næsta SFR blaði sem kemur út um mánaðarmótin jan./feb. Áætlað er að úthlutun fari fram seinnihluta febrúar. Þá kemur út orlofsblað í lok febrúar...
14. janúar 2010
Lyfta óvirk í BSRB húsi
Þessa dagana er verið að endurnýja lyftuna í BSRB húsinu. Áætluð verklok eru 29. janúar.

