Beint á leiđarkerfi vefsins

Til félagsmanna

21. desember 2010

Villa í nýútkominni vinnutímadagbók

Þau leiðu mistök urðu við framleiðslu vinnutímadagbókar SFR að villa er í ágústmánuð-inum, en hann byrjar á sunnudegi í stað mánudags eins og reyndin er á komandi ári. Þá eru einnig vikurnar rangt uppsettar, en 1. vika ársins byrjar 2. janúar 2011, en ekki 1. janúar eins og stendur í dagbókinni. 

14. desember 2010

Farsćlt starfsár og fjölgun verkefna

Hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt er nú að ljúka afar farsælu starfsári sem hefur einkennst af góðri þátttöku í almenn þverfagleg námskeið og vel nýttum og margvíslegum úrræðum fyrir atvinnuleitendur...

14. desember 2010

Kjarasamningsviđrćđur

Kjarasamningur SFR og ríkisins rann út 30. nóv. sl. Hér er hægt að skoða hugmyndavinnu fyrir viðræð-urnar og kröfugerð ásamt því að fylgjast með framgangi kjaraviðræðna.

30. nóvember 2010

Frćđslumorgunn trúnađarmanna

SKRÁ MIG! Skráning stendur yfir á fræðslumorgun trún-aðarmanna, Ánægja í vinnu og vinnugleði, sem er mán. 6. des. kl. 9:15-12:15.

23. nóvember 2010

Vellíđan í vinnunni - námskeiđ í Borgarnesi

Skráning stendur yfir á námskeiðið Vellíðan í vinnunni sem haldið verður 30. nóv. í Borgarnesi.

17. nóvember 2010

Gagnrýnin hugsun í hádegisfróđleik 25. nóv.

Skráning stendur yfir á fyrirlesturinn Hvað er svona merkilegt við gagnrýna hugsun sem verður haldinn á Akureyri og sendur til Reykjavíkur í fjarfundi 25. nóv. kl. 12-12:50.

9. nóvember 2010

Lífiđ eftir ţjóđ-fundinn...og hvađ svo!

Skráning stendur yfir á fyrirlesturinn Lífið eftir þjóðfundinn sem verður 16. nóv. kl. 17-18:30. Þar mun Lárus Ýmir Óskarsson fjalla um hvað er að gerast í samfélaginu eftir hrunið svokallaða  og hverju þjóðfundurinn er að skila okkur.  Ýmsir frjóangar dafna um þessar mundir og skapa vaxtarskilyrði fyrir íslenskt samfélag sem getur leitt okkur inn í óhemju spennandi tíma ef rétt er á haldið.

4. nóvember 2010

Fréttir frá Frćđslu-setrinu Starfsmennt

Í nýju fréttabréfi Starfs-menntar kemur fram að nú er rétti tíminn til að huga að námi næsta árs, skoða framboðið og skrá sig. Á næstu vikum mun fjölbreytt námsframboð vorannar birtast á www.smennt.is, allt frá stuttum fyrirlestrum til lengri námsleiða sem sérhannaðar eru fyrir starfshópa og stofnanir, bæði í fjarnámi og staðnámi.

26. október 2010

Áfram stelpur - grein eftir Elínu Björgu formann BSRB

"Kynbundinn launamunur er meinsemd sem ekki á að sjást í siðuðu samfélagi. Það er engin afsökun til fyrir því að nú, 35 árum eftir að konur lögðu niður störf á kvennafrídaginn 1975 og sýndu þar með fram á mikilvægi sitt í þjóðlífinu, skuli sú meinsemd enn vera við lýði. Það að greiða mismunandi laun fyrir sömu störf eftir kynferði er einfaldlega mannréttindabrot og skammarblettur á íslensku þjóðfélagi."


Lesa má grein Elínar Bjargar Jónsdóttur, formanns BSRB, sem birtist í Morgunblaðinu í dag á vef BSRB.

21. október 2010

Opinberir starfsmenn sćkja námskeiđ Starfs-menntar ţrátt fyrir álag

Skráning á námskeið haust-annar stendur nú sem hæst og þrátt fyrir mikið álag á vinnustöðum nýta opinberir starfsmenn þjónustu Starfsmenntar vel.

21. október 2010

Er einhver ungur í atvinnleit nálćgt ţér?

Sé svo þá er kjörið tækifæri að skrá sig á hádegisfróðleik 28. okt. kl. 12-12:50 þar sem kynning verður á "Vítamín" námskeiðum hjá Hinu Húsinu - sem er tækifæri fyrir unga atvinnuleitendur á aldrinum 18-24 ára. 

21. október 2010

Undirbúningur funda í fjarfundi til Akureyrar

Skráning stendur yfir á námskeiðið Undirbúningur funda, fundarstjórn og ritun fundargerða sem haldið verður 26. okt. kl. 17-20 í Reykjavík og sent í fjarfundi til Akureyrar.

12. október 2010

Upphitun fyrir kvennafrí

Kvennafrídagurinn nálgast og af því tilefni hafa Skotturnar og Listasafn Reykjavíkur tekið höndum saman og skipulagt dagskrárveislu í aðdraganda stóra dagsins 25. október!

12. október 2010

Bókmenntaganga 20. okt.

Skráning stendur yfir í bók-menntagöngu sem verður farin 20.okt. kl. 17 og er yfirskriftin "Sunnudagskvöld til mánudagsmorgun - kráarrölt í miðbænum". 

28. september 2010

Bókmenntaganga - 5.okt.

Skráning stendur yfir í bókmenntagöngur, en sú fyrri verður farin 5.okt. og er yfirskriftin Fornsagna-ganga í Norðurmýrinni.

21. september 2010

Nýtt veffréttabréf Starfsmenntar

Í nýútkomnu veffréttabréfi Fræðslusetursins Starfs-menntar kemur fram að nú skiptir öllu máli að efla og halda við starfshæfni, starfsanda og stuðningi. Fjölbreytt námskeið Starfsmenntar standa öllum opin sem sjálfsagður hluti starfa og eru þau án endurgjalds fyrir flesta félagsmenn SFR.

3. september 2010

Náms- og starfsráđgjöf fyrir alla félagsmenn

Fræðslusetrið Starfsmennt býður félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun. Sjá nánar HÉR.

8. júní 2010

Frćđsla um svepparíkiđ

Skráning hafin á námskeið um svepparíkið sem haldið verður síðsumar 2. og 4. september...

12. maí 2010

Jónsmessuferđ Lífeyrisţegadeildar SFR

Uppbókað er í Jóns-messuferð LSFR, en að þessu sinni verður farið til Stykkishólms og í siglingu...

4. maí 2010

Samráđsfundur LSR

Líkt og undanfarin ár boðar Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins til kynningar- og samráðsfundar þann 12. maí kl. 14 með sjóðfélögum og mökum sem fá greiðslur frá sjóðnum.

26. apríl 2010

Ánćgđ međ stafgöngu

Stafganga_utskrift_21_4_10
Enn einn hópur félagsmanna SFR og St.Rv. sem klárar námskeið í stafgöngu.

18. mars 2010

Ársskýrsla SFR komin út

SFR ársskýrsla 2009

Ársskýrsla SFR fyrir árið 2009 er komin út. Í henni er tæpt á starfsemi SFR síðast liðið starfsár, en henni verður dreift til félagsmanna næstu daga. Auk þess sem eintak af henni mun liggja frammi á aðalfundi SFR, fimmtudaginn 25. mars næstkomandi.

17. mars 2010

Starfsmenn SFR styđja Mottumars

Í marsmánuði stendur Krabbameinsfélag Íslands fyrir söfnunarátakinu KARLMENN OG KRABBAMEIN. Formaður og framkvæmda-stjóri SFR taka þátt í átakinu og láta sér vaxa mottu.

11. mars 2010

Sumarúthlutun, umsókn-arfrestur til 25. MARS

orlofsblad-SFR-2010_l
Orlofsblað SFR ætti að berast inn á heimili félags-manna á morgun. Í blaðinu, sem er sérstaklega veglegt að þessu sinni, er kynning á orlofsmöguleikum SFR-félaga, auk kynningar á orlofskerfi félagsins og réttindum til orlofstöku. Mikilvægt er að félagsmenn sendi inn umsóknir um orlofshúsin í tíma og passi upp á að velja nokkra möguleika til þess að auka líkur á að fá úthlutað.

 

2. mars 2010

Stađreyndir um hamingju - glćrur

Hér má nálgast glærur af vel sóttum fyrirlestri Páls Matthíassonar geðlæknis þar sem hann sagði frá nokkrum staðreyndum um hamingjuna.

1. mars 2010

Orlofsblađ SFR í vinnslu

Starfsmenn SFR leggja nú nótt við dag að klára orlofs-blað SFR. Stefnt er að því að blaðið berist félagsmönn-um í annarri viku mars en umsóknarfrestur fyrir sumar-úthlutun er til 25. mars.

27. janúar 2010

Komdu í kór!

Maí kórinn er kór BSRB félaga og er opinn öllum félögum í aðildarfélögum BSRB, vinum þeirra og vandamönnum. Kórfélagar hittast einu sinni í viku á þriðjudagskvöldum kl. 20:15 í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og syngja saman fjölbreytt lög undir styrkri stjórn Svövu Kristínar Ingólfsdóttur. Í hópnum er vant söngfólk og óvant, bæði karlar og konur. - Allir eru velkomnir.

15. janúar 2010

Útlhlutun orlofshúsa - páskar, sumar

Páskaúthlutun orlofshúsa verður kynnt í næsta SFR blaði sem kemur út um mánaðarmótin jan./feb. Áætlað er að úthlutun fari fram seinnihluta febrúar. Þá kemur út orlofsblað í lok febrúar...

14. janúar 2010

Lyfta óvirk í BSRB húsi

Þessa dagana er verið að endurnýja lyftuna í BSRB húsinu. Áætluð verklok eru 29. janúar.

Slóđin ţín:

Fréttir » Til félagsmanna