Til félagsmanna
25. september 2009
SFR blaðið
Septemberhefti SFR blaðsins hefur nú verið dreift til félagsmanna. Meðal efnis að þessu sinni er niðurstöður launakönnunar SFR 2009, dagskrá Gott að vita námskeiðanna, kjarasamningur félagsins, fréttir af orlofsmálum, svo eitthvað sé nefnt. SFR blaðið er einnig á rafrænu formi hér á síðunni.
14. september 2009
Sumarferð LSFR
Þetta sumar var ferðinni heitið á Reykjanesið. Þátttakendur voru 107 LSFR-félagar, auk fararstjóranna Harðar Gíslasonar og Gylfa Guðmundssonar og einnig voru þær Guðlaug Hreinsdóttir, Elín Brimdís Einarsdóttir og Sigrún Geirsdóttir með í för, sem fulltrúar SFR. Ekið var um Reykjanes og margt skoðað. Meðal annars var komið við hjá útsýnishólunum í Innri Njarðvík, í Duus-húsi og bátasafninu, í glerverksmiðju og kertagerð, Reykjanesvita Útskálakirkju og Strandarkirkju svo fátt eitt sé nefnt. Ferðin þótti takast með eindæmum vel en henni lauk með kvöldverði í Skíðaskálanum í Hveradölum.

