Til félagsmanna
16. desember 2009
Jólaball SFR
Hið árlega jólaball SFR og St.Rv. verður haldið þriðjudaginn 29. desember kl. 16 í Súlnasal Hótel Sögu. Hægt er að kaupa miða á skrifstofu SFR. Miðinn kostar 600 kr., sem er sama verð og í fyrra.
9. nóvember 2009
Afmælishátíð SFR
SFR býður félagsmönnum sínum og fölskyldum þeirra á glæsilega afmælishátíð í Háskólabíói laugardaginn 21. nóvember næstkomandi kl. 15:00, í tilefni af 70 ár afmæli félagsins. Á dagskránni verða fjölbreytt atriði fyrir alla fjölskylduna. Miða þarf að sækja á skrifstofu félagsins fyrir 19. nóvember.
25. september 2009
SFR blaðið
14. september 2009
Sumarferð LSFR
Þetta sumar var ferðinni heitið á Reykjanesið. Þátttakendur voru 107 LSFR-félagar, auk fararstjóranna Harðar Gíslasonar og Gylfa Guðmundssonar og einnig voru þær Guðlaug Hreinsdóttir, Elín Brimdís Einarsdóttir og Sigrún Geirsdóttir með í för, sem fulltrúar SFR. Ekið var um Reykjanes og margt skoðað. Meðal annars var komið við hjá útsýnishólunum í Innri Njarðvík, í Duus-húsi og bátasafninu, í glerverksmiðju og kertagerð, Reykjanesvita Útskálakirkju og Strandarkirkju svo fátt eitt sé nefnt. Ferðin þótti takast með eindæmum vel en henni lauk með kvöldverði í Skíðaskálanum í Hveradölum.
7. maí 2009
Kórstarf BSRB kórsins frestast fram á haust
1. maí 2009
Tilurð 1. maí
Fyrsti maí er alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins. Árið 1889 hittust fulltrúar (annarra) alþjóðasamtaka kommúnista á ráðstefnu í París, í tilefni af því að hundrað ár væru liðin frá því að Parísarbúar tóku Bastilluna. Þar var ákveðið að gera fyrsta maí að baráttudegi hreyfingarinnar. Þessi tiltekni dagur var valinn meðal annars til að minnast blóðbaðsins á Haymarket í Chicago í Bandaríkjunum þremur árum áður. Á Íslandi var fyrsta kröfugangan á fyrsta maí gengin 1923.
21. apríl 2009
MUNUM 1. MAÍ
Dagskrá 1. maí í Reykjavík
Safnast saman á Hlemmi frá kl. 13.00 – 13.30. Sigtryggur Baldursson og Parabólurnar verða með slagverkskonsert þar til gangan leggur af stað. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur hefja göngu niður Laugarveginn kl. 13.30. Á leið göngunnar niður Laugarveginn verða örræður fluttar. Ræðumenn leggja út af ávarpi dagsins.
Göngunni lýkur á Austurvelli þar sem baráttufundurinn verður haldinn.
20. mars 2009
Ársskýrsla SFR komin út
2. mars 2009
Félagsskírteini - villa í útsendingu
21. janúar 2009
Hvaða rétt á starfsmaður?
Síminn er 525-8340 og netfangið sfr@sfr.is


