Til félagsmanna
23. maí 2013
Skráning stendur yfir á kynningarfund fyrir sjóđfélaga LSR
Nú í lok maí heldur LSR kynningarfundi fyrir sjóðfélaga sem vilja fræðast um lífeyrismál; um uppbyggingu réttindakerfisins, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur. Hægt er að velja um tvær dagsetningar; þann 28. maí eða 29. maí. Fundir eru haldnir bæði að morgni til eða síðdegis: 8:30 – 10 eða 16:30 – 18. Nauðsynlegt er að skrá sig...
8. maí 2013
Afsláttarkjör og félagsskírteini

Ný félagsskírteini eru nú loks í pósti á leið til félagsmanna en nokkur töf hefur verið á vinnslu þeirra. Á sama tíma tekur SFR upp nýtt afsláttarfyrirkomulag og eru skírteinin m.a. nauðsynlegt að hafa til að nýta sér þau. Samið hefur verið við ýmsar verslanir um land allt um afslátt á vörum og þjónustu sem félagsmenn geta nýtt sér með því að framvísa félagsskírteinum við upphaf viðskiptanna.
4. maí 2013
Ráđstefna um stafrćn gögn - Ókeypis en nauđsynlegt ađ skrá sig!
Þann 8. maí blása Nýherji og IBM til ráðstefnu um tölvuöryggi í Borgartúni 37. Sprenging í vexti stafrænna gagna og kröfur um að hægt sé að nálgast gögn hvar og hvenær sem er, veldur fyrirtækjum stöðugum áhyggjum og auknum kostnaði. Tölvuárásir gera fyrirtækjum erfiðara um vik að geyma gögn í öruggu skjóli frá óprúttnum aðilum og að halda uppi eðlilegri starfsemi. Á ráðstefnunni verður farið...
30. apríl 2013
Afslćttir fyrir félagsmenn
Verið er að prenta ný félagsskírteini fyrir SFR félaga og verða þau send félagsmönnum von bráðar. Afslættirnir verða kynntir hér á síðunni um svipað leyti og skírteinin berast félagsmönnum.
22. apríl 2013
BSRB ályktar um jafnlaunaátak

Stjórn BSRB samþykkti nýverið ályktun varðandi jafnlaunaátak ríkisstjórnarinnar. Í ályktuninni sem birtist í vefmiðlum í dag, er m.a. lögð áhersla á að átakið verði jafnt að ná til starfsstétta innan BSRB sem háskólamenntaðra stétta.
19. apríl 2013
Lausar vikur í sumar - opnađ fyrir bókanir 23. apríl kl. 9!
Opnað verður fyrir lausar vikur í sumar þriðjudaginn 23. apríl kl 9:00 á vefnum. Þá verða húsin boðin í vikuleigu fyrir félagsmenn. Ef eitthvað verður eftir af lausum vikum í orlofshúsum í eigu SFR þann 10. maí verður þeim breytt í dagleiguhús og þá veður hægt að bóka færri daga í senn. Ekki er hægt að bóka sig inn eða út úr húsi á laugardögum frekar enn á veturna.
17. apríl 2013
Gjafabréf WOW air
Gjafabréf WOW air eru til sölu hér á orlofsvef undir liðnum ávísanir. Gjafabréfið kostar kr. 18.000 en raunvirði þess er kr. 25.000. Gjafabréfin gilda í 2 ár frá útgáfudegi og verða að notast inna þess tíma. Til að bóka ferð þarf að fara inn á www.wowair.is og þegar kemur að greiðslu þá er möguleikinn "greiða með gjafabréfi" valinn.
3. apríl 2013
Dagleiguhús - opnađ fyrir bókanir 15. apríl kl. 9
Opnað verður fyrir bókanir í dagleiguhús í sumar 15. apríl kl. 9. Um er að ræða íbúðirnar í Reykjavík, á Akureyri, Stykkishólmi, Vestmannaeyjum, ásamt orlofshúsum í Vaðnesi og á Eiðum.
26. mars 2013
Unađsdagar í Hólminum - Tilbođsdagar eldri borgara - Hótel Stykkishólmur
Hér er á ferðinni freistandi tilboð til eldri borgara. Næstu Unaðsdagar verða 8.-12. apríl, 15. - 19. apríl og 22.-26. apríl 2013. Verð fyrir dvöl frá mánudegi til föstudags er aðeins 35.000 kr. og innifalið er ...
22. mars 2013
Langar ţig ađ fara eitthvađ um páskana? Laust hús í Öndverđarnesi

Öndverðarnes stendur félagsmönnum til boða af húseiganda frá 27.03 – 02 04. Þessi tími kostar 50.000 kr. en enga punkta. Þetta er ekki niðurgreitt af SFR þar sem við erum ekki með samning við hann fyrr en í sumar. Athugið að húsið er eingöngu bókanlegt á netinu. Hundar eru velkomnir í þetta hús.

