Fréttir
20. desember 2000
Nýtt samkomulag um lífeyrissparnað
Í dag var skrifað undir samkomulag um viðbótarframlag til lífeyrissparnaðar. Samningurinn var gerður af BSRB, BHM og KÍ annars vegar og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs hins vegar. Um er að ræða valfrjálsan séreignasparnað sem kemur til framkvæmdar í tveimur þrepum:
- Frá 1. janúar 2001 skal mótframlag vinnuveitenda vera 1% gegn 2% framlagi starfsmanns.
- Frá 1. janúar 2002 skal mótframlag vinnuveitenda nema 2% gegn 2% framlagi starfsmanns.
SAMKOMULAG
Bandalags háskólamanna, BSRB og Kennarasambands Íslands
og
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs
um viðbótarframlag til lífeyrissparnaðar
1. kafli: Um viðbótarframlög til lífeyrissparnaðar
1.1 Nýr kafli um viðbótaframlög til lífeyrissparnaðar orðist svo:
1.1.1 Í þeim tilvikum sem starfsmaður leggur til viðbótarframlag í séreignarsjóð greiðir vinnuveitandi framlag á móti með eftirfarandi hætti:
Frá 1. janúar 2001 skal mótframlag vinnuveitenda vera 1% gegn 2% framlagi starfsmanns.
Frá 1. janúar 2002 skal mótframlag vinnuveitenda nema 2% gegn 2% framlagi starfsmanns.
1.2 Gildistaka
1.2.1 Samkomulag þetta tekur gildi hinn 1. janúar 2001 fyrir öll aðildarfélög hlutaðeigandi samtaka auk Félags íslenskra leikskólakennara og verður hluti af kjarasamningum hlutaðeigandi stéttarfélaga.
Reykjavík, 20. desember 2000
F. h. fjármálaráðherra
(sign.)
F. h. aðildarfélaga BSRB og Félags íslenskra leikskólakennara skv. umboði
(sign.)
F. h. aðildarfélaga Bandalags háskólakennara
(sign.)
F. h. Kennarasambands Íslands
(sign.)

