Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

16. maí 2008

Ríkisskattstjóri og Skattrannsóknarstjóri ríkisins

Stof_fyrirm_2008.gifÍ flokki stærri stofnana, þar sem starfsmenn eru 50 eða fleiri, er Ríkisskattstjóri efstur á lista yfir stofnun ársins en Skattrannsóknarstjóri ríkisins er efstur í flokki minni stofnana. Þetta er þriðja árið sem Skattrannsóknarstjóri ríkisins lendir í fyrsta sæti. Í öðru sæti í hópi stærri stofnana er Umferðarstofa og í því þriðja Sjálfbjargarheimilið. Í hópi minni stofnana er Sýslumaðurinn í Vík í öðru sæti og Skattstofa Austurlands í því þriðja. Sýslumaður Snæfellinga bætti sig mest á milli ára og er því hástökkvari ársins.

Sigurvegarinn frá fyrri árum hefur ekki látið deigan síga þetta árið því Skattrannsóknarstjóri ríkisins hlýtur titilinn Stofnun ársins þriðja árið í röð og er að þessu sinni í hópi minni stofnana. Þetta er frábær árangur og sterk vísbending um að mikil áhersla sé lögð á gott innra starf hjá stofnuninni. Einnig er athyglisvert að Ríkisskattstjóri vermir efsta sætið í hópi stærri stofnana, en þess má geta að fyrrum skattrannsóknarstjóri ríkisins, Skúli Eggert Þórðarson, er einmitt í dag ríkisskattstjóri.

SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu stendur nú í þriðja sinn að vali á Stofnun ársins. Könnunin náði til félagsmanna SFR á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað. Ennfremur var öllum stofnunum ríkisins gefinn kostur á því að allir starfsmenn, óháð því í hvað stéttarfélögum þeir eru, gætu tekið þátt. Bent var á að slíkt myndi gagnast stofnunum betur í mati þeirra á frammistöðu sinni. Í ár nýttu 35 stofnanir sér þennan möguleika, miðað við 19 stofnanir árið 2007 og eru þær merktar með * í töflunum yfir stofnanir. Er þetta töluverð fjölgun frá fyrra ári og vonandi nýta enn fleiri stofnanir sér þetta góða tækifæri í könnuninni á næsta ári.

Að þessu sinni var ákveðið að skipta stofnunum upp í stærri (50 eða fleiri starfsmenn) og minni stofnanir (færri en 50 starfsmenn). Helstu rök fyrir þessari skiptingu hafa verið þau að erfitt sé að ná marktækum samanburði milli fámennra stofnana og fjölmennra. Þetta má nokkuð örugglega til sanns vegar færa.

Hástökkvari ársins er Sýslumaður Snæfellinga sem hækkar sig úr raðeinkunn 4 upp í raðeinkunn 72, eða um heil 68 sæti. Má sá árangur teljast afar góður og það er ánægjulegt að sjá hversu mikið stökk Sýslumaður Snæfellinga, og reyndar fleiri, taka á milli ára.

Könnunin Stofnun ársins er samvinnuverkefni SFR og VR, en VR hefur útnefnt Fyrirtæki ársins í 12 ár. Um 30 þúsund starfsmenn á almennum og opinberum vinnumarkaði fengu könnunina senda. Stofnunum, sjálfseignarstofnunum og fyrirtækjum þar sem félagsmenn SFR vinna, bauðst að bjóða öllum starfsmönnum sínum þátttöku, óháð stéttarfélagsaðild og ákváðu 35 aðilar að nota tækifærið, eins og fyrr segir.

Endanlegt úrtak samanstóð af 5599 starfsmönnum í stofnunum, sjálfseignarstofnunum og fyrirtækjum. Fullnægjandi svör bárust frá 3256 einstaklingum og er svarhlutfall því 58%. Til að vera með í greiningunni á stofnun ársins þarf svarhlutfall innan hennar að vera a.m.k. 35%. Auk þess þurfa fjögur eða fleiri svör að berast frá stofnunum þar sem 50 eða færri starfa, en ef starfsmenn eru fleiri þurfa svörin að vera a.m.k. tíu. 97 stofnanir uppfylltu þessi skilyrði og frá þeim bárust 2572 svör.

Nánar um Fyrirmyndarstofnanir 2008.

Töflur og nánari niðurstöður má nálgast HÉR.


Slóðin þín:

Fréttir