Fréttir
29. mars 2012
Stórframkvæmdir í Munaðarnesi
Nú standa yfir stórframkvæmdir í Munaðarnesi. Verið er að breyta og endurbyggja þrjú hús í Vörðuási og hús nr 10 í Bjarkarási. Húsin verða stækkuð um 20 fm og skipt um þak, klæðningar og glugga auk þess sem pallar verða stækkaðir, eins og meðfylgjandi mynd sýnir.

