Fréttir
23. mars 2012
Fjölmenni á aðalfundi SFR
Sérstaklega fjölmennt var á aðalfundi SFR sem haldinn var í gær 22. mars. Á dagskrá fundarins voru venjuleg aðalfundarstörf. Formaður og framkvæmdastjóri fóru yfir ársskýrslu stjórnar og ársreikninga. Nýir fulltrúar voru kosnir í stjórn SFR og stjórnir sjóða.
Nýja stjórn SFR skipa þau Jóhanna Vihjálmsdóttir, Jóhanna Sóley Gunnarsdóttir, Olga Gunnarsdóttir, Ólafur Hallgrímsdóttir, Salóme Berglind Guðmundsdóttir, Sigurður H. Helgason, Védís Guðjónsdóttir, Bryndís Theódórsdóttir, Óskar Þór Vilhjálmsson og Hildur Kristín Ásmundsdóttir. Þrjú hin síðastnefndu eru ný í stjórninni.
Ekki barst mótframboð gegn sitjandi formanni og varð því Árni Stefán Jónsson sjálfkjörinn sem formaður SFR til næstu tveggja ára. Á fundinum var Ína Jónasdóttir kvödd eftir margra ára setu í stjórn SFR og voru henni færð blóm af því tilefni. Eyjólfi Magnússyni skoðunarmanni var einnig þökkuð góð störf í þágu félagsins síðast liðin ár og Guðlaugar Sigurðardóttur, fyrrum starfsmanns SFR var minnst, en hún lést fyrr á þessu ári. Þá var Þórey Einarsdóttir valinn trúnaðarmaður ársins og henni var veitt viðurkenning á fundinum.
Á fundinum var þétt setið.

Árni Stefán Jónsson formaður SFR þakkaði Ínu Jónasdóttur, fyrrum stjórnarkonu SFR gott samstarf.

Það borgar sig að vera vel með á nótunum. Jóhanna Sóley stjórnarkona rýnir í fundargögnin.

Eyjólfur Magnússon skoðunarmaður félagsins til margra ára þakkaði fyrir sig.

Þórey Einarsdóttir er trúnaðarmaður ársins.

Hvert sæti í salnum var skipað og rétt rúmlega það.

Það er alltaf stemmning að koma á aðalfund.

