Fréttir
20. mars 2012
Skattaskýrslan - styrkir frá SFR
Styrkir vegna líkamsræktar og námsskeiða eða námskostnaðar birtist nú sjálfkrafa á skattaskýrslum þeirra félagsmanna sem fengið hafa slíka styrki. Mikilvægt er að skrá kostnaðinn á móti, Í reit nr. 149 skráist frádráttur á móti náms-, rannsóknar- og vísindastyrkjum og í reit nr. 157 skráist frádráttur frá öðrum styrkjum, þar á að setja kostnað til frádráttar líkamsræktarstyrk. Aðrir styrkir styrktar- og sjúkrasjóðs eru skattskyldir.

