Fréttir
1. febrúar 2012
Trúnaðarmenn á námskeiði
Í morgun hófst 3ja daga námskeið fyrir trúnaðarmenn, en námskeiðið er samstarfsverkefni SFR og St.Rv. Námskeiðið er ætlað nýjum trúnaðarmönnum og er góður grunnur fyrir starf trúnaðarmannsins. Á námskeiðinu verður farið yfir starfssemi stéttarfélaganna, kjarasamningana og lífeyrismál. Auk þess er lögð áhersla á leiðtogaþjálfun þar sem Þórkatla Aðalsteinsdóttir og Einar Gylfi Jónsson sálfræðingar leiðbeina og þjálfa fulltrúa. Næsta grunnnámskeið verður haldið 13., 29. og 30. mars 2012. Hægt er að skrá sig hér.




Þórkatla Aðalsteinsdóttir undirbýr trúnaðarmenn undir hlutverk sitt.

