Fréttir
31. janúar 2012
Ögmundur biðst afsökunar
Eins og kunnugt er fór Ögmundur Jónasson mikinn í ræðustól alþingis í síðast liðinni viku, þar sem hann segist segist m.a. hafa áhyggjur af því að stofnanaveldið, eins og hann orðaði það, hafi ánetjast Evrópusambandinu. Opinberir starfsmenn tóku orðum hans ekki vel, eins og eðlilegt er, og tjáðu bæði Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri og Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB auk fulltrúa frá BHM sig um málið.
Í Fréttablaðinu í dag biður Ögmundur Jónasson hlutaðeigendur afsökunar á orðum sínum. Þar segir hann m.a."Mörgum sem sækja þurfa fundi milli landa þykir það án efa leiðigjarnt og vildu heldur sleppa við langa fjarveru frá heimili sínu. Þetta er fólkið sem mér þykir miður að hafa sært þegar ég ræddi þá tilhneigingu sem við höfum séð í öðrum Evrópuríkjum að stofnanaveldið eigi til að ánetjast Evrópusambandinu. Með þessu gerði ég einstaklingum það upp að eiga sér þann draum helstan að halda til á hótelum á kostnað skattgreiðenda. Þetta var ómaklegt og ósanngjarnt og bið ég þetta fólk afsökunar. Sjálfur er ég nýlega búinn að halda uppi stífum vörnum og útskýringum á eðli dagpeninga; að þeir séu hugsaðir til að greiða útlagðan kostnað og ekki annað. Síðan er það hin hliðin að það kemur úr hörðustu átt þegar stjórnmálamaður sem er ábyrgur fyrir því að senda fólk til verka á erlendri grundu talar til þess með þeim hætti sem ég gerði."

