Fréttir
29. júní 2011
Jónsmessuferð LSFR 2011

Útsýnisstopp á Nesjavallaleið.
Árleg sumarferð Lífeyrisdeildar á Jónsmessu var farin 21. júní sl. í blíðskaparveðri. Lagt var af stað frá Grettisgötunni kl. 8:30, en að venju voru þrjár rútur og um 140 þátttakendur.

Hópurinn gekk niður almannagjá.
Að þessu sinni var farið á Þingvelli um Nesjavallaleið, framhjá Vinaskógi og komið á Hakið. Stoppað var á Þingvöllum og gengu flestir niður Almannagjá og nutu blíðunnar á þessum sögufræga og fagra stað.


Síðan var ekið nýja veginn til Laugarvatns og austur með hlíðum að Efri-Reykjum og þaðan í Skálholt þar sem Séra Egill sagði frá sögu staðarins.

Þá var ekið til baka um Reykholt að Bræðratungu, yfir nýju brúna á Hvítá að Flúðum og stoppað við golfskálann í Efra-Seli þar sem ferðalangar gátu tillt sér og borðað nestið sitt eða keypt sér hressingu.

Þjóðveldisbærinn.

Stöng.


Eftir hádegishressinguna var ekið áleiðis í Þjórsárdal þar sem stoppað var við Hjálparfoss, Stöng og Þjóðveldisbæinn.




Síðan var ekið í Árnes þar sem kvöldverður var borinn fram og dagurinn endaði með því að stiginn var dans við harmonikkuundirspil.


Garðar Olgeirsson harmonikkuspilari.

