Fréttir
17. júní 2011
SFR stéttarfélag semur við Reykjavíkurborg
SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu og samninganefnd Reykjavíkurborgar skrifuðu undir kjarasamning rétt fyrir miðnættið þann16. júní síðast liðinn. Samningurinn er á svipuðum nótum varðandi innihald og áherslur og samningurinn sem SFR gerði við ríkið nýverið. Stærsti hópurinn sem samningurinn nær til eru stuðningsfulltrúar og félagsliðar, sem vinna við málefni fatlaðra. Sá hópur flutti frá ríkinu yfir til Reykjavíkurborgar um síðustu áramót þegar málefni fatlaðra var flutt yfir frá ríki yfir til sveitarfélaga.
Prósentur og krónur
Kjarasamningur SFR við borgina gildir frá 1. maí 2011 til 31. mars 2014. Launahækkanir verða krónutöluhækkun eða prósentuhækkun eftir því hvor leiðin skilar félagsmönnum hagstæðari niðurstöðu. Þannig er félagsmönnum tryggðar 12.000 kr. eða að lágmarki 4,6% hækkun þann 1. júní 2011, 11.000 kr. eða að lágmarki 3,50% hækkun þann 1. mars 2012 og 11.000 kr. eða að lágmarki 3,50% þann 1. mars 2013.
Samningurinn gerir einnig ráð fyrir 50.000.- eingreiðslu ef hann verður samþykktur, sem og álagsgreiðslum upp á 25.000.- þann 1. febrúar 2012. Einnig er gert ráð fyrir hækkunum á orlofs- og desemberuppbætur.
Nýtt launakerfi
Félagsmenn SFR sem samningurinn nær til munu falla undir starfsmats launakerfi, sem er nýlunda fyrir viðkomandi starfsmannahópa. Hjá fyrri vinnuveitanda, þ.e.a.s. ríkinu, hefur starfsmat ekki verið notað en slíkt launakerfi hefur verið í notkun hjá Reykjavíkurborg um árabil.
Kynningar á kjarasamningnum verða haldnar á næstunni og verða auglýstar sérstaklega á heimasíðu félagsins og í fjölmiðlum.

