Fréttir
15. apríl 2011
Orlofsmál-laust hús í Vaðnesi og íbúð í Eyjum komin í leigu
Sumarúhlutun orlofshúsa fór fram 23. mars sl. Þessa dagana er unnið úr biðlistum jafnóðum og eitthvað losnar. Hætt verður að vinna úr biðlistum fljótlega eftir páska og þá verður það sem er laust sett á vefinn, þar með talið þau hús sem var úthlutað og ekki hefur verið greitt fyrir.
Enn eru hús laus á Eiðum og í Munaðarnesi um páskana og einnig er íbúðin í Vestmannaeyjum komin í leigu og er laus yfir páskana.
Af gegnu tilefni er minnt á að SFR er með tvö "hundahús", eitt á Grenivík og hitt er Þúfukot í Biskupstungum. Óheimilt er að vera með dýr í öðrum húsum á vegum SFR.

