Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30. mars 2011

Aðalfundur SFR átelur harðlega stöðuna í kjarasamningum

AdalfundurSFR_2011-2netÁ fjölmennum aðalfundi SFR sem var haldinn í gær, 29. mars, fóru formaður og framkvæmdastjóri yfir ársskýrslu stjórnar og ársreikninga. Þá voru samþykktar fyrirliggjandi lagabreytingar og fimm ályktanir sem sjá má hér að neðan og fjalla um fráleitar kröfur Samtaka atvinnulífsins, kjara- og efnahagsmál, húsnæðismál, lífeyrismál og umhverfismál.

Lagabreytingar

Meginbreytingar á lögunum fólust í því að trúnaðarmannaráð tók við hlutverki launamálaráðs varðandi kjarasamninga og launamálaráð var lagt niður. Samþykkt var að stofna félagsráð SFR en í því sitja stjórn félagsins, formenn fagfélaga/deilda og 15 trúnaðarmenn, en tryggt skal að 7 þeirra séu frá mismunandi landshlutum.  Félagsráðið skal hittast að lágmarki tvisvar á ári og vinna m.a. að stefnumótun fyrir félagið og annast undirbúning fyrir aðalfund. Þá var samþykkt að kjósa trúnaðarmenn í maí í stað september/október eins og hefur verið. Þetta er gert til þess að hægt sé að keyra vetrarstarfið af stað strax á haustin, en það hefur dregist það ár sem trúnaðarmenn eru kosnir. Sjá  nýsamþykkt lög hér.

AdalfundurSFR_2011-4net

Vésteinn Valgarðsson trúnaðarmaður ársins

Kynntur var trúnaðarmaður ársins sem að þessu sinni var valinn Vésteinn Valgarðsson, trúnaðarmaður á Landspítala. Vésteini var þakkað fyrir ötult og óeigingjarnt starf í þágu félagsins og fyrir að standa í eldlínunni, sem formaður Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa, við yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Þá hefur Vésteinn gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir félagið og situr nú í samninganefnd félagsins.

 

Árni Stefán formaður SFR óskar Vésteini til hamingju.

Ályktun aðalfundar SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu um fráleitar kröfur Samtaka atvinnulífsins

Aðalafundur SFR átelur harðlega þá stöðu sem komin er upp í kjarasamningum. SA hefur sett fram þá fráleitu kröfu að gengið verði frá fyrirkomulagi um stjórn fiskveiða áður en kjarasamningar verði gerðir við launafólk. Ábyrgð SA er rík. Samtökin láta undan hagsmunagæslumönnum útvegsmanna og kæra sig kollótta um hag fyrirtækja í öðrum greinum, hvað þá launafólks í landinu. Eigi að koma efnahagslífinu á rétt ról er runninn upp  tími samstilltra aðgerða, ekki sértækrar hagsmunagæslu.  Sem betur fer virðast einstakir forystumenn ASÍ loks hafa gert sér grein fyrir því.

Sú afleita staða er einnig komin upp að SA neitar að halda áfram fyrr en niðurstaða er komin í kröfu samtakanna um skerðingu á lífeyrisréttindum ríkisstarfsmanna. Það er mikill ábyrgðarhluti hjá viðsemjendum á almenna vinnumarkaðnum að taka undir með hagsmunasamtökum atvinnurekenda og styðja kröfur um kjaraskerðingar hjá öðrum hópum launamanna.

Aðalfundur SFR mótmælir einnig harðlega eftirgjöf stjórnvalda gagnvart Samtökum atvinnulífsins. Það er fráleitt að opinberir starfsmenn þurfi að bíða átekta á meðan gengið er frá kröfum sérhagsmunahópa, sem eru opinberum starfsmönnum algjörlega óviðkomandi. Stjórn sem kennir sig við jöfnuð og félagslegt réttlæti á ekki að bíða eftir forskrift og leyfi frá atvinnurekendum á almennum markaði, heldur sýna frumkvæði í samningum við eigin viðsemjendur.

AdalfundurSFR_2011-1net

Ályktun aðalfundar SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu um kjara- og efnahagsmál

Aðalfundur SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu, haldinn 29. mars 2011, lýsir yfir þungum áhyggjum vegna núverandi stöðu á vinnumarkaði. Í mars 2011 er Ísland með mesta atvinnuleysi allra Norðurlandanna. Nauðsynlegt er að bregðast skjótt við með markvissum úrræðum í atvinnu- og menntamálum. Gæta þarf vel að því að langtímaatvinnuleysi nái ekki að festa rætur á Íslandi. Leggja þarf ríka áherslu á fjölgun starfa og huga þarf sérstaklega að málefnum vaxandi atvinnugreina og nýsköpunar með það að markmiði að auðga fjölbreytni atvinnumarkaðarins. Finna þarf leiðir til nýsköpunar í atvinnumálum þar sem tillit verði tekið til þarfa og hagsmuna beggja kynja.

Aðalfundur SFR hafnar öllum tilraunum stjórnvalda til að nota efnahagsástandið til að þrengja frekar að samfélagsþjónustunni en þegar er orðið. Víða hefur verið gengið of langt í niðurskurði á almannaþjónustu og álag á starfsfólk orðið óhóflegt. Þjónusta við börn, unglinga og aðra íbúa sveitarfélaga hefur dregist saman. Niðurskurður og fækkun starfa innan almannaþjónustunnar er kostnaðarsöm aðgerð og mun að sama skapi leiða til aukins atvinnuleysis. Aðalfundur SFR minnir á að það fer einnig fram verðmætasköpun þar eins og í annarri atvinnustarfsemi.

Nauðsynlegt er að tryggja að launabil breikki ekki á milli þeirra lægst og hæst launuðu. Þrepaskipting í skattkerfinu stuðlar að kjarajöfnuði. Því þarf að ganga lengra á þeirri braut en stjórnvöld hafa gert hingað til. 

Aðalfundur SFR krefst þess að viðræður um kjarasamninga hefjist af alvöru hið fyrsta. Þar verði lögð áhersla á að hækka lægstu launin jafnframt því að hækkunin nái til allra hópa. SFR hefur lagt til að samið verði um sérstakan jafnréttispott, sem notaður yrði til að bæta kjör kvennahópanna sem lægstu launin hafa.  Á þann hátt er mögulegt að stuðla að minnkandi launamun kynjanna sem enn er alltof mikill og íslensku samfélagi til háborinnar skammar. Tryggja þarf starfsöryggi á vinnustað og að faglega sé staðið að ráðningum starfsfólks. SFR leggur áherslu á að heimildir forstöðumanna til tímabundinna ráðningasamninga verði verulega þrengdar og þannig unnið á því óeðlilega ráðningarformi innan stofnana ríkisins sem tímabundnir ráðningarsamningar eru.

AdalfundurSFR_2011-3net

Ályktun aðalfundar SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu um húsnæðismál

Aðalfundur SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu, haldinn 29. mars 2011, lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu mála á húsnæðismarkaði. Þörfin fyrir skipulagðan leigumarkað hefur aukist til muna eftir bankahrunið og eiga margir í erfiðleikum með tryggja sér öruggt húsnæði af fjárhagslegum ástæðum. Aðalfundur vill benda á mikilvægi þess að tekið verði upp kerfi á leigumarkaðnum sem tryggir að almennir borgarar, óháð efnahag, þurfi ekki að flytjast reglulega búferlum vegna stöðu mála á leigumarkaði. Því skal beint til stjórnvalda að landsmönnum sé tryggt öryggi í húsnæðismálum, bæði á almenna húsnæðis- og leigumarkaðnum auk þess í fasteignakaupum, og farið verði í sértækar  aðgerðir þar að lútandi. 

Aðalfundur vill einnig leggja áherslu á að ríkið komi á einhverju aðhaldi vegna húsaleigu hérlendis en samkvæmt húsaleigulögum á Íslandi er aðilum frjálst að semja um upphæð leiguverðsins og er því í raun hvorki gólf eða þak á leiguupphæðinni. Margir hópar samfélagsins eiga því erfitt með að standa undir húsaleigu á almennum markaði. Aðalfundur SFR skorar á ríkið að setja á legg opinbert húsnæðiskerfi og tryggja þannig almenningi húsaskjól á kostnaðarverði.

Fundurinn hvetur samráðshóp velferðarráðuneytisins, sem vinnur því að móta heildstæða húsnæðisstefnu til framtíðar og stuðla að jöfnuði á milli búsetuforma, að hraða þeirri vinnu eins og kostur er. Ljóst er að þörfin er mikil og nú er tækifæri til að byggja upp öflugt og réttlátt leigukerfi eins og þekkist annars staðar á Norðurlöndunum.

AdalfundurSFR_2011-5net

Ályktun aðalfundar SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu um lífeyrismál

Aðalfundur SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu, haldinn 29. mars 2011,  krefst þess að staðinn verði vörður um lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna. Aðalfundurinn mótmælir harðlega kröfum ASÍ og SA um skerðingu réttinda félaga í öðrum samtökum launafólks og minnir á hlutverk stéttarfélaga sem lýtur að því að standa vörð um kjör og vinna að bótum fyrir félagsmenn sína en ekki að höggva í áunninn réttindi annarra hópa launafólks . Mikilvægt er að friður ríki um þessi mikilvægu réttindamál alls launafólks á vinnumarkaði.

Lífeyrisréttindi eru hluti samningsbundinna réttinda, líkt og laun. Aðalfundur SFR skorar á lífeyrissjóði félagsmanna til að koma að leigumarkaði á húsnæði.

Aðalfundur SFR krefst þess að ríkisstjórnin muni ekki standa að skerðingu á núverandi réttindum opinberra starfsmanna. Aðalfundur fer einnig fram á að ríkisstjórnin staðfesti að hún muni ekki standa að skerðingu á lífeyrisréttindum ríkisstarfsmanna.

AdalfundurSFR_2011-6net

Ályktun aðalfundar SFR-stéttarfélags í almannaþjónustu um umhverfismál

Aðalfundur SFR- stéttarfélags í almannaþjónustu, haldinn 29. mars 2011, hvetur stjórnvöld  til að starfa í anda sjálfbærrar þróunar og stuðla þannig að efnahagslegri, félagslegri og vistfræðilegri velferð. Í þeirri uppbyggingu sem nú á sér stað í samfélaginu og við nýtingu auðlinda okkar er afar mikilvægt að þetta sé leiðarljós og forsenda þeirra ákvarðana sem eru teknar. Hafa ber í huga að auðlindir okkar eru ekki óþrjótandi, skipulag um nýtingu þeirra á að byggja á faglegum forsendum með sjálfbærni að leiðarljósi. Sátt þarf að ríkja meðal þjóðarinnar um nýtingu auðlinda landsins, hvort heldur er á láði, lofti eða legi. Aðalfundur SFR krefst þess að auðlindir þjóðarinnar, til lands, loftlags og  sjávar, verði í almannaeigu og nýttar í almannaþágu.

Aðalfundur SFR hvetur til aukinnar notkunar á innlendu vistvænu eldsneyti og hraðari útskipta á hefðbundnu jarðefnaeldsneyti fyrir orku frá endurnýjanlegum orkulindum. Gera þarf aðra valkosti en einkabílinn aðgengilegri almenningi á aðhaldstímum sem þessum, og leggja áherslu á gerð reiðhjóla- og göngustíga og  almenningssamgöngur og draga þannig úr notkun einkabíla.  Aðalfundur SFR – stéttarfélags gagnrýnir harðlega þann niðurskurð sem hefur átt sér stað á almenningssamgöngum en þær þarf að stórefla. Í þeim efnum verður ríkið að styðja sveitarfélögin.

Stefna ber að umhverfisvænna samfélagi fyrir okkur öll. Náttúra Íslands er auðlind okkar allra og okkur ber því að nýta hana í þágu almennings.

AdalfundurSFR_2011-7net
Fundargestir gæddu sér á kjúklingasúpu með kókos og karrý.

AdalfundurSFR_2011-8net

AdalfundurSFR_2011-9net
Í eftirmat var síðan gómsæt marsipanterta.


Slóðin þín:

Fréttir