Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

24. mars 2011

Beitum ekki lífeyrisþega óréttlæti

LSFR_adalfundur_4

Lífeyrisþegadeild SFR hélt aðalfund sinn í gær og sendir frá sér eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundinum.

Aðalfundur Lífeyrisþegadeildar SFR mótmælir harðlega því óréttlæti að lífeyrir sé að mestu leyti tekinn frá þeim lífeyrisþegum sem verða að dvelja á dvalar- eða hjúkrunarheimilum.

Vísar fundurinn þar í mál er hefur verið til umræðu í fjölmiðlum núna nýlega.

Fundurinn skorar á Guðbjart Hannesson velferðarráðherra að sjá til þess að lífeyrisþegar verði ekki fyrir slíkri meðferð, þurfi þeir að nýta heilbrigðisþjónustu á dvalar- eða hjúkrunarheimilum.

Fundurinn bendir á að lífeyrisþegar hafa ekki greitt minna til samfélagsins en aðrir þegnar þessa lands. Það er óásættanlegt að þeir þurfi að greiða hærri upphæð en aðrir vistmenn, þurfi þeir að nýta sér þá dvalar eða sjúkraþjónustu, sem ríki eða sveitarfélög bjóða fyrir þegna sína. Slíkt er siðlaust fjárnám.

LSFR_adalfundur_1

LSFR_adalfundur_2


Slóðin þín:

Fréttir