Fréttir
3. september 2010
Starfsmenn verða ekki þvingaðir
Í Fréttablaðinu í gær var haft eftir Halldóri Halldórssyni, formanni Sambands sveitarfélaga að ekki komi til greina að félagsmenn SFR haldi aðild sinni að félaginu við yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga þar sem SFR sé einungis félag ríkisstarfsmanna, og því myndi aðkoma þess gjörbreyta kjarasamningsumhverfi sveitastjórnarstigsins. Þessi fullyrðing Halldórs er algjörlega úr lausu lofti gripin, SFR hefur um árabil gert kjarasamninga við sjálfseignarstofnanir, hlutafélög á opinberum markaði og Reykjavíkurborg, auk samninga við ríki og þjónar því sannarlega öðrum og stærri hópum en ríkisstarfsmönnum, eins og flestir vita. Þessi rök Halldórs eru því alls ekki haldbær í umræðunni um þann sjálfsagða rétt starfsmanna að halda stéttarfélagsaðild sinni. Lagabreyting hefur áður verið gerð til að tryggja réttindi starfsfólk við yfirfærslu málaflokka milli ríkis og sveitarfélaga þegar yfirfærslu heilbrigðisstofnana frá sveitarfélögum til ríkis árið 1989-90 var gerð. Þá fengu starfsmenn að velja hvort þeir héldu aðild sinni í þáverandi stéttarfélagi eða flyttu sig. Lagabreytingu þarf til en réttindi fólks eru í húfi, því án hennar er einfaldlega verið að iðka gamaldags vinnubrögð með því að flytja fólk nauðungarflutningum milli félaga.



