Fréttir
2. september 2010
Úttekt á lífeyrissjóðunum hafin
Á vef BSRB kemur fram að úttektarnefnd Landsamtaka lífeyrissjóðanna sé nú tekin til starfa. Nefndinni er ætlað að gera útekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins í nóvember 2008. Formaður nefndarinnar er Hrafn Bragason lögfræðingur og fyrrum hæstaréttardómari, en auk hans sitja þau Guðmundur Heiðar Frímannsson, siðfræðingur og prófessor við Háskólann á Akureyri, og Katrín Ólafsdóttir, hagfræðingur og lektor við Háskólann í Reykjavík, í nefndinni. Í fréttinni kemur fram að starfsmaður nefndarinnar, Kristján Geir Pétursson lögfræðingur muni á næstu dögum setja sig í samband við lífeyrissjóðina og safna gögnum.



