Fréttir
1. september 2010
Sneisafullt SFR blað í vinnslu
Fyrsta SFR blað haustsins kemur út rétt um miðjan september, en blaðið er sneisafullt af efni að venju. Í því má finna m.a. niðurstöður úr launakönnun SFR, en SFR ásamt VR standa fyrir einni stærstu vinnumarkaðskönnun landsins ár hvert, þar sem fylgjast má með þróun launamála hjá félögunum ásamt fleiru. Þá verður í blaðinu dagskrá Gott að vita, en þar verða kynnt fjölmörg spennandi námskeið sem standa félagsmönnum SFR til boða nú í haust og í vetur, þeim að kostnaðarlausu. Þess má geta að skráning í Gott að vita námskeiðin hefst ekki fyrr en 13. september um það leyti sem blaðið kemur út. Að lokum eru ljósmyndir úr ljósmyndasamkeppni SFR birtar í blaðinu og greint verður frá hverjir hlutu vinningana góðu, en þátttaka í keppninni var mjög góð og margar myndirnar glæsilegar.



