Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

1. september 2010

FRS krefst þess að mannréttindi séu virt

Stjórn FRS, Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa fundaði í gær um  yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Félagsmenn FRS eru áhyggjufullir vegna stöðu mála, en mikil óvissa ríkir um starfsöryggi og áframhaldandi stéttarfélagsaðild þeirra sem starfa hjá svæðisskrifstofum málefna fatlaðra. Þrátt fyrir að yfirfærsla málaflokksins eigi að fara fram nú um áramótin hefur ekki náðst samkomulag á milli samningsaðila. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sett sig upp á móti því að starfsmenn haldi stéttarfélagsaðildinni og vinnur þannig þvert á vilja þeirra. Skýr vilji félagsmanna SFR liggur þegar fyrir en þeir vilja vera áfram félagar í SFR og krefjast þess að njóta sömu réttinda og starfsmenn héldu við yfirfærslu heilbrigðisstofnana frá sveitarfélögum til ríkis árið 1989-90, en þá fengu starfsmenn að velja hvort þeir héldu aðild sinni í þáverandi stéttarfélagi eða flyttu sig.

Árið 1990 var gerð breyting á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna frá árinu 1986 sem gerði þetta kleift. Lagabreytingin var þess efnis að þeir starfsmenn sem voru félagar í hlutaðeigandi bæjarstarfsmannafélagi og urðu ríkisstarfsmenn vegna laga um breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, skyldu eiga þess kost að vera áfram í sama stéttarfélagi og viðkomandi stéttarfélag skyldi halda samningsumboði þeirra gagnvart ríkinu. Þá var einnig lögfest að nýir starfsmenn sem réðu sig til ríkisins eftir gildistöku laganna, skyldu eiga val um hvort þeir tilheyrðu viðkomandi bæjarstarfsmannafélagi eða félagi ríkistarfsmanna sem hefði samningsumboð fyrir viðkomandi starfsmenn. Þetta var gert til þess að tryggt yrði að sem minnst félagsleg röskun yrði við tilflutning starfsmanna milli sveitarfélaga og ríkisins, sem að mati FRS er ein meginforsenda þess áfram sé unnið faglega innan málaflokksins.

FRS hyggst beita sér fyrir því að mannréttindi starfsmanna verði virt og telur að lögin frá árinu 1990 eigi við með öfugum formerkjum. Afstaða BSRB er sú sama, en bandalagið leggst gegn því að félagsmenn séu þvingaðir til þess að skipta um stéttarfélag, eins og  tillögur Sambands íslenskra sveitarfélaga ganga út á.

Það er því eðlileg krafa FRS og SFR að samsvarandi breyting verði nú gerð á samningsréttarlögunum og gerð var 1990 og að starfsmenn við málefni fatlaðra geti átt áframhaldandi aðild að SFR, þrátt fyrir yfirfærslu málaflokksins, og að nýir starfsmenn geti valið sér stéttarfélag.


Slóðin þín:

Fréttir
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti