Beint á leiðarkerfi vefsins

SFR.is

SFR.is

7. Júlí 2010

Málaflokkur fatlaðra flyst frá ríki til sveitarfélaga

Samkomulag hefur nú tekist milli ríkis og sveitarfélaga, um fjárhagslegar forsendur fyrir flutningi málefna fatlaðra til sveitarfélaganna 1. janúar 2011. Samkvæmt ráðherrum ríkisstjórnarinnar er hér um að ræða viðamestu endurskipulagning á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga frá flutningi grunnskólanna árið 1996. Tekjustofnar sem nema 10,7 milljörðum króna flytjast til sveitarfélaganna á næsta ári samhliða yfirfærslu málaflokksins.

Málið varðar um 2.500 manns sem þurfa þjónustu vegna fötlunar sinnar og um 1.500 starfsmenn í 1000 stöðugildum, sem flestir eru félagsmenn í SFR - stéttarfélagi.

Ráðamenn segja að í hönd fari nú vinna við undirbúning nauðsynlegra lagabreytinga vegna yfirfærslunnar og gerð heildarsamnings við sveitarfélögin. Gert er ráð fyrir að slíkur samningur liggi fyrir um miðjan september næst komandi. Í samningnum verða skilgreind heildarmarkmið og tekið á útfærslu einstakra efnisþátta, svo sem stöðu og réttindum starfsmanna auk útfærslu þjónustu við notendur. 

Fram að þessu hefur töluverð vinna farið fram varðandi réttindi starfsmanna við yfirflutninginn og hafa félagsmenn SFR lagt áherslu að réttindi þeirra séu tryggð í komandi lagasetningu. Meðal þeirra ber þar hæst trygging kjarabundinna réttinda, lífeyrissjóðsmál, stéttarfélagsaðild og möguleikar á fagmennsku í starfi. Ríkið og sveitarfélögin hafa lýst yfir þeirri áherslu sinni að yfirfærslan komist farsællega til framkvæmda um næstu áramót og ber að fagna þeirri yfirlýsingu. Mikilvægt er að aðilar vinni nú vel saman og komist að þeirri niðurstöðu sem horfir til framfara fyrir allan málaflokkinn og fleyti verkefninu vel áfram.


Á döfinni

Til félagsmanna

3. September 2010

Náms- og starfsráðgjöf fyrir alla félagsmenn

Fræðslusetrið Starfsmennt býður félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun. Sjá nánar HÉR.

8. Júní 2010

Fræðsla um svepparíkið

Skráning hafin á námskeið um svepparíkið sem haldið verður síðsumar 2. og 4. september...

12. Maí 2010

Jónsmessuferð Lífeyrisþegadeildar SFR

Uppbókað er í Jóns-messuferð LSFR, en að þessu sinni verður farið til Stykkishólms og í siglingu...

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English