Fréttir
10. mars 2010
Styrkur til Haiti
Stjórn SFR styrkti nýlega starfsemi húmanista á Haiti um 200 þúsund, en þeir eru mjög virkir á svæðinu og hafa tekið myndarlega til við uppbyggingarstarfsins í kjölfar jarðskjálftanna fyrr á árinu. Á Grand Anse svæðinu er Húmanistahreyfingin fjölmenn og þar af leiðindi voru því miður margir úr þeirra röðum sem létust í jarðskjálftanum, eða 369 manns. Pétur Guðjónsson, sem hefur verið með þróunarstarf á Haiti s.l. 15 ár, veitti fénu viðtöku fyrir hönd húmanista í Samhygð, en það verður notað til ýmissa brýnna verkefna í sveitum Haiti. Féð mun m.a. verða notað til kaupa á brýnustu nauðsynjar s.s. mat, drykkjarvatni, vítamínum og lyfjum og lágmarksskýlum til að verjast vindi og vatni. Þá mun einnig verða stutt við starfsemi “Cruz Blanca Humanista”, sem eru samtök 10 húmanískra heilsugæslustöðva í Dóminíska Lýðveldinu, en þaðan fer teymi til Haiti til aðstoðar við brýnustu heilsufarsmál.
Húmanistar á Haiti hafa m.a. tekið að sér umönnun fyrir munaðarlaus börn, sem misstu foreldra sína í jarðskjálftanum. Það þarf að sjá þeim fyrir öllu, það vantar allt frá rúmum og fötum til læknishjálpar og bólusetninga, en stutt er í að regntíminn skelli á og þá er mikil hætta á því að faraldur breiðist út.
Húmanistar eru virkir á mörgum stöðum á Haiti og sérstaklega út í sveitum landsins. Pétur segir þá styrki sem berast vera senda beint til Haiti í þau verkefni sem eru í gangi, af því er hvergi klipið til reksturs skrifstofu eða jeppa. Því miður hafa alþjóðlegar hjálparstofnanir ekki ennþá byrjað starfssemi út á landsbyggðinni, en þar er neyðin mjög mikil. Sem dæmi þá þarf að aðstoða 500 fjölskyldur með mat í norð-vesturhlutanum, sem heitir La Grande Anse og þar munum við einbeita okkur að uppbyggingu. Við þurfum að styðja við það fólk sem hefur yfirgefið höfuðborgina, Port-au-Prince og leitað útá landsbyggðina, segir Pétur. Skólarnir á svæðinu hafa margir hrunið og það er mikil þörf á uppbyggingu.
.



