Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

9. mars 2010

Kynjasjónarhorn á umhverfismál og kreppuna rætt á Akureyri

Akureyri_gestir 

Fyrsta ráðstefnan í ráðstefnuröð SFR um jafnrétti var haldin á Akureyri í gær, þann 8. mars á baráttudegi kvenna.
Fyrirlesarar voru þau Kristín Ástgeirsdóttir og Tryggvi Hallgrímsson frá jafnréttisstofu og fluttu þau afar áhugaverð erindi.

Akureyri_Kristin

Kristin talaði um kynjasjónarhorn á lofslags- og umhverfismálum og fræddi þátttakendur m.a. um að kynin eru mismundi þegar kemur að umhverfismálum. Þannig væru það t.d. karlarnir sem keyrðu bílana og ætu kjötið sem hvort tveggja ýtir undir neikvæðar loftslagsbreytingar en það væru hins vegar konurnar sem stýrðu neyslu heimilanna, og keyptu fötin og snyrtivörunar, made in China sem fluttar væru hingað til lands um langan veg. Hún brýndi fyrir fólki að hver og einn getur tekið virkan þátt í að snúa neikvæðri þróun við. Við þurfum helst að skoða okkur nær.

Akureyri_TryggviTryggvi fræddi þátttakendur um það hvernig kreppan hefði mismunandi áhrif á kynin, hvernig atvinnuleysi væri að þróast og síðast en ekki síst hvernig kynin bregðist mismunandi við atvinnuleysi. Einnig fjallaði hann um áhrif kreppunnar á kynbunið ofbeldi. Erindin voru eins og áður sagði afar fróðleg og umræðurnar sem sköpuðust í framhaldi af þeim ekki síður.

Næsta ráðstefna í ráðstefnuröðinni verður haldin á Egilsstöðum þann 14. apríl og þar mun Þórdís Þórðardóttir tala um Kynjamyndir á vinnumarkaði og Stefanía G. Kristinsdóttir um Kvenrembur og karlrembur - munurinn á lagalegu og menningarlegu jafnrétti. Við hvetjum alla félagsmenn SFR sem og aðra að skrá sig sem fyrst hér.


Slóðin þín:

Fréttir
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti