4. Mars 2010
Ráðstefnuröð SFR um jafnrétti - skráning hafin
SFR - stéttarfélag hefur lagt mikla áherslu á launajafnrétti kynjanna og jafnréttismál í starfi sínu. Á síðustu misserum hafa ýmsir haldið því fram að jafnréttismálin séu síður á dagskrá vegna þeirra erfiðleika í efnahagsmálum sem íslenska þjóðin er að ganga í gegnum. Það er skoðun SFR að ef einhverju sinni hafi verið þörf á að huga sérstaklega að jafnréttismálum, þá sé það nú. Jafnrétti má ekki verða afgangsstærð í uppbyggingu og endurnýjun samfélagsins. Þvert á móti. Jafnrétti kynjanna er mikilvægara en nokkru sinni. Endurreisa þarf íslenskt samfélag þar sem velferð þegnanna, réttsýni og jafnrétti verða þau gildi sem skipað verður í öndvegi.
Í okkar huga er jöfn staða kynjanna ein af forsendum farsældar. Þess vegna stendur SFR fyrir ráðstefnuröð um jafnrétti á komandi vikum og verður ráðstefna haldin í öllum landsfjórðungum. Við byrjum leikinn á Akureyri þann 8. mars næstkomandi, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Síðan höldum við til Egilsstaða þann 14. apríl, til Ísafjarðar 20. apríl og við endum í Reykjavík þann 28. apríl.
Markmiðið með ráðstefnuröðinni er að vekja upp umræður og spurningar um jafna stöðu kynjanna. Við viljum gera tilraun til að varpa nýju eða öðru ljósi á umræðuna um jafnréttismál. Fyrirkomulag ráðstefnanna verður með nýstárlegum hætti. Á hverri ráðstefnu eru tveir fyrirlesarar sem tala um ólík efni. SFR gengur út frá góðri og virkri þátttöku ráðstefnugesta og verða niðurstöður ráðstefnunnar notaðar sem efniviður inn í jafnréttisáherslur félagsins til næstu missera. Munum að jöfn staða kynjanna er forsenda farsældar í íslensku samfélagi á næstu misserum.
Ráðstefnan er opin öllum og við hvetjum félagsmenn SFR, sem og alla aðra áhugasama, til að koma og taka virkan þátt í umræðum um jafna stöðu kynjanna. Jafnrétti verður ekki náð án nýrra viðhorfa og þátttöku allra.




















