1. Mars 2010
Skilafrestur framlengdur til 8. mars í Stofnun ársins 2010
Eitthvað hefur verið um það að póstsíur þjónustuaðila hafi stoppað pósta frá Capacent með könnuninni Stofnun ársins 2010. Capacent hefur verið í sambandi við nokkrar stofnanir og fyrirtæki útaf þessu og einnig við þjónustufyrirtækin, þannig að ítrekun frá Capacent á að vera að berast félagsmönnum í dag. Svarfrestur hefur því verið framlengdur til 8. mars.
SFR hvetur félagsmenn til að taka þátt í könnuninni til að hún verði sem best úr garði gerð. Þátttaka sem flestra eykur gæði og áreiðanleika könnunarinnar.
Jafnframt minnum við á að þeir sem svara verða sjálfkrafa þátttakendur í happdrætti. Þeir sem svara könnuninni rafrænt fá happdrættisnúmer sent með staðfestingarpósti eftir að hafa sent inn svar og er mikilvægt að geyma þann tölvupóst. Þeir sem fá könnun senda heim til sín fá einnig happdrættismiða sem þeir verða að varðveita, enda mikið í húfi. Dregnir verða út 10 vinningar sem eru gjafabréf hjá Icelandair að andvirði 50 þúsund krónur hver.
Svörin í könnuninni eru ekki persónugreinanleg. Ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi könnunina eða framkvæmd hennar vinsamlegast hafið samband við Capacent Gallup í síma 540 1000, þar sem Tómas Bjarnason og Þórhallur Ólafsson og veita nánari upplýsingar.




















