Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

24. febrúar 2010

Heimsókn frá Noregi

Stafoheimsókn
Alma Jóhannsdóttir, umboðsmaður trúnaðarmanna SFR, Jóhanna Þórdórsdóttir, fræðslustjóri SFR, Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, Tor Egelien, varaformaður STAFO, Liv Stokke, fræðslustjóri STAFO og Ingerid Bjerke, formaður STAFO.

Í dag komu góðir gestir í heimsókn til SFR, en það eru þau Ingerid Bjercke, formaður STAFO í Noregi,  Tor Egelien, varaformaður og  Liv Stokke fræðslustjóri. Þau verða hér á landi í 3 daga og munu kynna sér starfsemi SFR og BSRB. Dagskrá þeirra er þéttskipuð en þau munu m.a. kíkja inn á námskeið hjá SFR og eiga fundi með formanni og starfsfólki SFR auk framkvæmdastjóra BSRB. STAFO er systrafélag SFR í Noregi og starfar á landsvísu í Noregi.  Það telur uþ.þb. 7500 meðlimir sem eru í 41 félagi. Félögin innan STAFO starfar bæði á opinberum og almennum markaði. Það er þverpólitískt félag og er innan YS heildarsamtakanna norsku, sem eru systrasamtök BSRB.


Slóðin þín:

Fréttir
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti