Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

22. febrúar 2010

Stofnun ársins 2010

Vinna við könnunina Stofnun ársins 2010 er komin í fullan gang og þessa dagana er verið að senda spurningalistann út. Hann fer rafrænt til þeirra sem hafa uppgefin netföng og í pósti til annarra. Skilafrestur er til 1. mars og við hvetjum ykkur félagsmenn til þess að taka þátt í könnuninni en til að könnunin verði sem best úr garði gerð þurfum við á þátttöku félagsmanna að halda.

Þátttaka sem flestra eykur gæði og áreiðanleika könnunarinnar. Svörin í könnuninni eru ekki persónugreinanleg en þeir taka þátt verða sjálfkrafa þátttakendur í happdrætti þar sem glæsilegur ferðavinningur er í boði. Ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi könnunina eða framkvæmd hennar vinsamlegast hafið samband  við Capacent Gallup í síma 540 1000, þar sem Tómas Bjarnason og Þórhallur Ólafsson og veita nánari upplýsingar.


Slóðin þín:

Fréttir
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti