Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

10. desember 2009

Vafasamar breytingar á rekstri Landbúnaðarháskólans

LHÍ

Í uppsiglingu deilur milli SFR og Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri vegna aðgerða  sem SFR telur að skólinn hafi staðið ólöglega að. Breytingarnar hafa m.a. haft í för með sér uppsagnir SFR félaga en þannig er að Landbúnaðarháskólinn hefur m.a. sinnt þeim skyldum að reka hefðbundin býli til að skapa skilyrði fyrir verklegri kennslu bústarfa við skólann. Nú hefur skólinn tekið sér það vald að færa þann búrekstur út úr hefðbundnum rekstri og stofna um hann sérstakt einkahlutafélag. Í kjölfar þessa var öllum starfsmönnum sem komu að búrekstrinum sagt upp og einungis hluti þeirra var endurráðinn og þá á allt öðrum og lakari starfskjörum.

SFR lítur þetta mál mjög alvarlegum augum því ekki verður séð að stjórnendur LBHÍ hafi lagalega heimild til formbreytinga á ríkisstofnun af þessu tagi. Ennfremur gengu stjórnendur mjög harkalega fram gagnvart starfsmönnum og höfnuðu því algerlega að aðilaskiptalögin ættu við gagnvart starfsmönnum eins og SFR hefur haldið fram. Með þessum ákvörðunum sínum eru stjórnendur skólans að brjóta lög með sérstaklega óskammfeilnum hætti að mati SFR. Félagið undirbýr nú erindi til Umboðsmanns Alþingis fyrir hönd eins af fyrrverandi starfsmanns Landbúnaðarháskólans sem sagt var upp. Framhald málsins mun ráðast af niðurstöðu embættis hans, en SFR mun fylgja málinu eftir af fullri einurð.


Slóðin þín:

Fréttir
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti