Fréttir
24. nóvember 2009
Afmælishátíð SFR í Háskólabíói
Síðastliðinn laugardag hélt SFR afmælisháíð í Háskólabíói. Dagskrá hátíðarinnar var fyrst og fremst hugsuð fyrir fjölskylduna, börnin, foreldrana, afana og ömmurnar. Enda spannaði aldursbil gestahópsins um 90 ár! Boðið var upp á mjög fjölbreytta dagskrá sem leidd var veislustjórunum Ólafíu Hrönn Jónsdóttur og Halldóru Geirharðsdóttur, sem brugðu sér í allra kvikinda líki. Í anddyri tóku trúðar á móti gestum og blöðrulistamenn útbjuggu blöðrudýr og fleira fyrir börnin. Annars var boðið upp á söngatriði Voces Masculorum, Skoppa og Skrítla komu í heimsókn ásamt ræningjunum úr Kardimommubæ, Sirkus Íslands sýndi ótrúleg fimleika- og loftfimleikaatriði, Arnar Jónsson leikari flutti sögu eftir Jónas Hallgrímsson, Raggi Bjarna og Guðrún Gunnars sungu nokkur lög ásamt þremur röddum og Beatur, og botninn í dagskrána slóu svo Ingó og Veðurguðirnir. Um 900 gestir sóttu hátíðina og skemmtu sér hið besta.



