Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

9. október 2009

Vinnuverndarvika 19.-23. október

Vinnuverndarvika Evrópsku vinnuverndarstofnunarinnar árið 2009 verður 19.-23. október næstkomandi. Hún mun fjalla um áhættumat eins og vinnuverndarvikan seinasta ár. Í vinnuverndarátakinu verður sjónum beint að mikilvægi þess að gert sé áhættumat fyrir alla vinnustaði. Engin vinnustaður er í raun undanskilinn. Áhættumatið á að styrkja vinnuverndarstarfið innan fyrirtækjanna og stofnana með skýrri ábyrgð og virkni atvinnurekenda, stjórnenda og kerfisbundinni þátttöku starfsmannanna sjálfra með hjálp öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða. Í tengslum við vinnuverndarvikuna 2009 verða veitta viðurkenningar til fyrirtækja og stofnana sem hafa gert vandað áhættumat. Einnig verða veittar viðurkenningar í ljósmyndasamkeppni Vinnueftirlitsins. Sjá nánar á heimasíðu Vinnueftirlitsins.


Slóðin þín:

Fréttir
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti