Fréttir
19. ágúst 2009
Námskeið hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt
Þessa dagana standa yfir skráningar í námskeið á vegum Fræðslusetursins Starfsmenntar og Námsvísir haustannar verður borinn út næstu dagana. Starfsmenn og stjórnendur geta valið úr afar fjölbreyttu námsframboði sem ýmist er ætlað einstaka starfsstéttum, stofnunum eða opið öllum. Í Veffréttabréfi Starfsmenntar og á heimasíðu þeirra má sjá lýsingar á námskeiðum haustsins.
Að venju er námið félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu en aðrir greiða þátttökugjöld. Við viljum hvetja alla viðtakendur til að huga að eigin starfsþróun og velja nám sem henta þeirra einstöku leið. Starfskonur Starfsmenntar veita fúslega alla aðstoð og senda námsvísi haustsins í stærri upplögum til stofnana og stéttarfélaga ef eftir því er óskað.