Fréttir
17. maí 2009
Málþing um flutning þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga, samgönguráðuneytið og félags- og tryggingamálaráðuneytið standa að málþingi um flutning þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga miðvikudaginn 20. maí 2009. Fundarstaður er Hilton Hótel Nordica og fundartími er frá kl. 10:00 til kl. 15:30. Markmið málþingsins er að leiða saman faghópa, sveitarstjórnarmenn, aðra hagsmunaaðila og áhugafólk um þjónustu við fatlaða og félagsþjónustu almennt og skapa vettvang til skoðanaskipta um framkvæmd tilfærslu á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga í samræmi við viljayfirlýsingu aðila frá 13. mars. 2009.
Málþingið hefst með stuttum ávörpum og almennir kynningu. Málþingið starfar í fimm málstofum og lýkur með pallborðsumræðu. Málstofur fjalla um eftirtalda efnisflokka: Aðferð við tilfærsluna - framtíðarsýn félagsþjónustu - myndun þjónustusvæða - starfsmannamál - mat á þörf fatlaðra fyrir þjónustu. Þátttökugjald er 5.000 kr. fyrir manninn. Hádegisverður og aðrar veitingar eru innifaldar í þátttökugjaldi. Skráning þátttöku er á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga - http://www.samband.is/.
DAGSKRÁ:
10:00 - 10:10 Samgönguráðherra setur málþingið.
10:10 - 10:25 Ávarp félags- og tryggingamálaráðherra.
10:25 - 10:40 Ávarp formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga.
10:40 - 11:00 Sigurður Helgason ráðgjafi kynnir verkefnaflutninginn.
11:00 - 11:10 Kaffihlé.
11:10 – 12: 30 MÁLSTOFUR/VINNUHÓPAR
MÁLSTOFA A Aðferð við tilfærslu málaflokksins
• Hvaða aðferð á að beita við tilfærslu þjónustu við fatlaða til sveitarfélaga?
• Hver eru helstu úrlausnarefni?
• Hvernig skal fara með einstök mjög kostnaðarsöm tilvik?
• Hverjar eru faglegar og fjárhagslegar forsendur sveitarfélaga til að taka að sér þjónustu við fatlaða?
• Hvernig ætti að standa að fjármögnun og jöfnunaraðgerðum?
• Hvernig er hægt að endurskoða jöfnunarkerfið?
MÁLSTOFA B Framtíðarsýn félagsþjónustu
• Hvaða framtíðarsýn hafa sveitarfélög, starfsmenn og notendur um félagsþjónustu við íbúa? Hvernig verður hún raungerð?
• Hvaða tækifæri og ógnanir felast í tilflutningi verkefna?
• Hvernig er hægt að standa að samþættingu félagsþjónustu og endurmótun þjónustu?
• Hvernig er hægt að bæta þjónustu við notendur?
• Hvernig verður eftirliti háttað?
• Hversu ríkt sjálfræði eiga sveitarfélögin að hafa um framkvæmd?
• Hvert verður hlutverk ráðuneytis eftir tilfærsluna?
Stjórnandi málþingsins er Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri.
Allar nánari upplýsingar er að finna á netinu hjá:
Sambandi ísl. sveitarfélaga - http://www.samband.is/,
félags- og tryggingamálaráðuneyti - http://www.felagsmalaraduneyti.is/,
samgönguráðuneyti - http://www.samgonguraduneyti.is/

