Beint á leiðarkerfi vefsins

Greinar

24. janúar 2012

Gagnrýnir vinnumiðlun stéttarfélaga

Eftirfarandi samantekt birtist á mbl.is  23. jan. 2012

ArniStJonsson_2006Formaður SFR, Árni Stefán Jónsson, telur að ekki sé rétt staðið að verkefni sem miðar að því að stéttarfélög taki að sér vinnumiðlun fyrir atvinnuleitendur.

Aðilar vinnumarkaðarins (ASÍ og SA) hafa gert með sér samkomulag þess efnis að stéttarfélög taki að sér vinnumiðlun fyrir atvinnuleitendur. Um er að ræða tilraunaverkefni til þriggja ára með þátttöku nokkurra félaga innan ASÍ á Suðurnesjum og Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.

Vinnumiðlun og ráðgjöf við félagsmenn færi þá fram á skrifstofum stéttarfélaganna í samstarfi við atvinnurekendur en ekki hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar eins og nú er.

„Samtök opinberra starfsmanna taka undir þá kröfu að bæta eigi þjónustu við atvinnuleitendur, en leggja áherslu á að það verði gert með því að styrkja rekstur Vinnumálastofnunar í stað þess að setja yfir 300 milljónir í sérverkefni af þessu tagi, en 113 milljónum króna mun verða veitt til tilraunaverkefnisins á ársgrundvelli,“ segir á vef SFR.

Framkvæmdin er að mati formanns SFR meingölluð því varla verði hjá því komist að hagsmunaárekstrar verði þegar stéttarfélög eru í fleiru en einu hlutverki gagnvart félagsmönnum sínum eins og þarna er lagt til.

„Nær hefði verið að bæta þessum fjármunum við rekstur Vinnumálastofnunar og gera hana öflugri,“ segir Árni Stefán Jónsson, formaður SFR. „Hvað á að gera við þá þekkingu sem skapast hefur undanfarin ár? Hvað á að gera við ráðgjafana sem sinnt hafa þessum störfum hingað til? Samkomulagið mun væntanlega færa þessum félagsmönnum SFR uppsagnir, eða hvað? Það hlýtur að teljast harla góð byrjun á átaki fyrir atvinnuleitendur – eða hitt þó heldur!“ segir Árni Stefán á vef SFR.

Hann bætir því við að með þessu sé verið að rýra þá góðu vinnu sem unnin hefur verið í uppbyggingu hjá Vinnumálastofnun undanfarin misseri. Markmið tilraunaverkefnisins séu harla óljós og hjá mörgum hafi vaknað grunsemdir um raunverulega fyrirætlan SA og ASÍ. „Miðað við fyrri áherslur þeirra,“ segir Árni Stefán, „er ekki úr vegi að ætla að þessi gjörningur sé hluti af áætlun þeirri að ná til sín meginstarfsemi Vinnumálastofnunar og  atvinnuleysistryggingarsjóðs.“

Myndi nýtast betur hjá Vinnumálastofnun

„Það er mat okkar hjá BSRB að þessar rúmu 330 milljónir myndu nýtast betur til að styrkja  Vinnumálastofnun. Þar hefur vantað fjármagn til að  auka þjónustu við atvinnuleitendur. Áhersla VMST fram til þessa hefur aðallega verið á skráningu og átaksverkefni en  því miður hefur áhersla á þjónustu við atvinnuleitendur ekki getað verið í forgangi,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, á vef sambandsins.

Ljóst þykir að Vinnumálastofnun muni þurfa að segja upp starfsfólki á ákveðnum svæðum í kjölfar þessa einmitt þegar mest þörf er fyrir eflingu þeirrar stofnunar, segir ennfremur á vef BSRB.

„Atvinnuleysi er í hámarki og þess vegna er það sérlega sárt ef þetta tilraunaverkefni leiðir til uppsagna þar sem um leið verður til þess að skerða bolmagn Vinnumálastofnunar til að sinna starfi sínu. Vinnumálastofnun hefur fram til þessa verið sá aðili sem veitt hefur atvinnuleitendum þjónustu. Slík þjónusta á að vera opinbert velferðarverkefni í höndum opinberra aðila sem geta þá haft heildaryfirsýn yfir málaflokkinn þar sem allir eiga að standa jafnir. Með því að færa málaflokkinn til stéttarfélaganna með þessum hætti er þetta jafnræði ekki lengur fyrir hendi,“ segir Elín Björg.

Elín Björg segir BSRB hafa komið andstöðu sinni við þetta fyrirkomulag ítrekað á framfæri en ekkert samráð hafi verið haft við nein stéttarfélög opinberra starfsmanna.

„Það sem stóð í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar á sínum tíma var að endurskoða ætti lög um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir í samráði við alla aðila vinnumarkaðarins. Velferðarráðuneytið hefur hins vegar haldið okkur alfarið utan við vinnuna á endurskoðun þessa málaflokks og nú hefur þetta verið samþykkt og mun koma til framkvæmda án nokkurs samráðs við okkur. BSRB er þeirrar skoðunar að þjónusta við atvinnuleitendur sé málefni sem snertir alla á vinnumarkaði en ekki eingöngu félagsmenn tiltekinna stéttarfélaga eða heildarsamtaka,“ segir Elín Björg.


Slóðin þín:

Fréttir » Greinar