Greinar
14. febrúar 2012
Við berum öll ábyrgð á starfsumhverfi okkar
Grein eftir Ölmu Lísu Jóhannsdóttur sem birtist í janúarblaði Blaðs stéttarfélaganna.
Stefna stjórnvalda í mannauðsmálum birtist helst í lögum, reglum, kjarasamningum og aðgerðum þeirra hverju sinni. Fjármálaráðuneytið fer með málefni starfsmanna ríkisins en velferðarráðuneytið hefur umsjón með vinnumarkaðsmálum og hefur því mikil áhrif þar á. Hvert einstakt sveitarfélag fer með málefni starfsmanna sinna og mótar stefnu sveitarfélagsins í þeim efnum. Hjá ríkinu fer slíkt starf fram innan stofnana.
24. janúar 2012
Gagnrýnir vinnumiðlun stéttarfélaga
Eftirfarandi samantekt birtist á mbl.is 23. jan. 2012
Formaður SFR, Árni Stefán Jónsson, telur að ekki sé rétt staðið að verkefni sem miðar að því að stéttarfélög taki að sér vinnumiðlun fyrir atvinnuleitendur.
Aðilar vinnumarkaðarins (ASÍ og SA) hafa gert með sér samkomulag þess efnis að stéttarfélög taki að sér vinnumiðlun fyrir atvinnuleitendur. Um er að ræða tilraunaverkefni til þriggja ára með þátttöku nokkurra félaga innan ASÍ á Suðurnesjum og Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.
26. september 2011
Hugleiðing um launaleynd
Eftirfarandi grein birtist í 4. tbl. Blaðs stéttarfélaganna.
Á Jafnréttisstofu fáum við símtöl frá konum sem uppgötva að eftir áralangt starf hjá vinnuveitanda hefur karl á næstu skrifstofu allt að helmingi hærri laun en þær, fyrir sama starf. Baráttan fyrir sömu launum fyrir sama starf hefur staðið í yfir 100 ár og undanfarna áratugi hefur árangurinn látið bíða eftir sér. Lög um sömu laun fyrir sömu störf voru samþykkt á Alþingi 1961 og þá var talið að það yrði frekar létt verk að jafna launin. Í dag vitum við betur.
21. september 2011
Afnema óverðtryggð lán verðtrygginguna?
Eftirfarandi grein eftir Hilmar Ögmundsson, hagfræðing BSRB, birtist í Fréttablaðinu 21. september 2011.
Á Íslandi hefur lengi verið litið svo á að húsnæðisöryggi sé einn af hornsteinum samfélagsins. Það að eiga öruggt húsaskjól á ekki að falla undir forréttindi heldur sjálfsögð mannréttindi. Efnahagsþrengingar síðustu missera hafa hins vegar valdið því að húsnæðisöryggi Íslendinga er í dag ógnað.
BSRB hefur áður talað fyrir því að auka verði valkosti þegar kemur að því að velja sér búsetuform. Fram til þessa hefur aðeins tvennt staðið til boða - annars vegar séreignarstefna með verðtryggðum lánum frá fjármálastofnunum og hins vegar ófullkominn leigumarkaður. Frá efnahagshruni hefur það bersýnilega komið í ljós hversu ófullkomin bæði búsetuformin eru. Höfuðstólar verðtryggðra lána hafa tekið stökk upp á við og leiguverð á þeim fáu leiguíbúðum sem á markaðnum eru hefur hækkað upp úr öllu valdi.
2. maí 2011
Ávarp Árna Stefáns Jónsson, formaður SFR á 1. maí 2011 í Borgarnesi
Ágætu félagar!
Mig langar til að lýsa yfir ánægju minni með að hafa fengið þetta tækifæri til að vera hér með ykkur á baráttudegi launafólks, þann 1. maí.
Fyrir okkur sem hér erum samankomin er 1. maí mikilvægur dagur á almanakinu – hann er rauður og á að vera það í hugum okkur og hjörtum.
Upprunaleg merking rauða fánans er fyrst og fremst krafa um breytingar og réttlátara þjóðfélag. Rauði liturinn á fána verkalýðshreyfingarinnar táknar uppreisn gegn ranglæti. Hann þýðir að nú sé nóg komið, auk þess sem hann táknar dagrenninguna – tákn nýrra tíma. Og slíka tíma viljum við boða í dag; tíma samstöðu,tíma uppbyggingar, tíma heiðarleika, tíma jafnréttis, tíma skynsemi og tíma réttlætis.
2. maí 2011
Fyrsti maí – dagur samstöðu
Fyrsti maí – alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins. Í raun þarf ekki að segja mikið meira um þennan dag en bara þetta; mikilvægi hans og hlutverk liggur í þessum orðum. Um þennan dag liggur órofa þráður allt frá frönsku byltingunni til launafólks nútímans. Það var á hundrað ára afmæli byltingarinnar, árið 1889, þegar ákveðið var að þessi dagur skyldi helgaður baráttu verkafólks um allan heim. Hingað barst hefðin árið 1923 þegar fyrsta kröfugangan var farin. Og á morgun göngum við enn.
24. mars 2011
Virðum réttindi
Eftirfarandi grein eftir Elínu Björgu Jónasóttur, formann BSRB, Guðlaugu Kristjánsdóttur formann BHM og Eirík Jónsson formann KÍ birtist í Fréttablaðinu 24. mars 2011.
Um nokkurt skeið hefur verið starfræktur vinnuhópur á grundvelli stöðugleikasáttmála, með það að markmiði að þróa nýtt, sameiginlegt lífeyriskerfi fyrir landsmenn. Þar hafa átt sæti fulltrúar launafólks jafnt á almennum sem opinberum vinnumarkaði, atvinnurekendur, stjórnvöld og sveitarfélög. Starf hópsins hefur gengið vel og svo virðist sem aðilar séu í fyrsta skipti tilbúnir til viðræðna um framtíðarkerfi. Slíkar viðræður geta þó aðeins snúist um framtíðina, ekki áunnin kjarasamningsbundin réttindi.
7. mars 2011
Kynleg kynjuð fjárlagagerð
Eftirfarandi grein eftir Þórveigu Þormóðsdóttur, formann jafnréttisnefndar BSRB birtist í Fréttablaðinu 1. mars sl.
Í samstarfsyfirlýsingu sinni 2009 lagði ríkisstjórn Íslands mikla áherslu á jafnrétti kynjanna. Meðal þess sem átti að hafa áhrif á útgjaldaramma fjárlaga var verndun starfa og kynjajafnrétti. Einnig átti að hafa kynjaða hagstjórn að leiðarljósi við fjárlagagerð og efnahagsstjórnun.
24. febrúar 2011
Allir þurfa húsnæði
"Fréttablaðið greindi frá því á forsíðu sinni á þriðjudag að samráðshópur velferðarráðuneytisins vildi efla leigumarkað í landinu með því að setja íbúðir í eigu lífeyrissjóða, banka og annarra lánastofnana á leigumarkað. Þetta eru góðar fréttir og í fullkomnu samræmi við áherslur sem BSRB hefur lagt í málinu."

Eftirfarandi grein eftir Jórunni Rothenborg birtist í Fréttablaðinu 9. feb. síðast liðinn:

