Fréttir
10. júlí 2012
Endurbætur í Munaðarnesi
Eins og kunnugt er standa nú yfir miklar breytingar á þremur húsum félagsins í Vörðuási og á húsi nr. 10 í Bjarkarási. Smiðir og fleiri iðnaðarmenn hafa unnið þar baki brotnu síðustu vikur og mánuði og er sú vinna nú að skila sér í endurbyggðum og glæsilegum húsum eins og sjá má á myndinni hér að ofan. Breytingum að utan er að mestu lokið og næst verður farið í að setja upp innréttingar innanhúss. Vonast er til að húsin fari í útleigu til félagsmanna upp úr miðjum ágúst, en nákvæm dagsetning mun verða tilkynnt síðar í sumar.
4. júlí 2012
Húsnæðismál - könnun BSRB

BSRB kynnti nýverið niðurstöður nýrrar könnunar þar sem fram kom m.a. 85,3% félagsmanna BSRB búa í eigin húsnæði, 84% á höfuðborgarsvæðinu og 87% á landsbyggðinni. Þá búa 11,3% félagsmanna í leiguhúsnæði, 12% á höfuðborgarsvæðinu og 11% á landsbyggðinni, en 3% félagsmanna BSRB búa í foreldrahúsum. Niðurstöður könnunarinnar sýna að það eru aðallega yngri félagsmenn sem búa í leiguhúsnæði, en 27-39% aðspurðra 35 ára og yngri búa í leiguhúsnæði. Þá búa 90-94% af félagsmönnum eldri en 45 ára í eigin húsnæði. Athygli vakti athygli að 27% félagsmanna BSRB taldi það líklegt að leigja húsnæði til frambúðar frekar heldur en að kaupa eigið húsnæði ef búsetuöryggi á leigumarkaði væri tryggt. Nánari umfjöllun um niðurstöður könnunarinnar má sjá á vef BSRB.
4. júlí 2012
Góð nýting orlofshúsa í sumar

Félagsmenn hafa verið afar duglegir að nýta sér orlofsmöguleika SFR nú í sumar. Síðustu vikurnar í júlí er þó laust á Grandavegi í Reykjavík og á Eskifirði. Um og eftir miðjan ágúst eru síðan laus hús á Eiðum, Blönduósi, Aðaldal, á Eskifrði og víðar. Framundan eru margvíslegar bæjarhátíðir um land allt og því er ekki úr vegi að kanna gistimöguleikana í tíma. Á orlofsvefnum er einnig hægt að kaupa afsláttarmiða á Foss- og Edduhótel sem verða í sölu framyfir verslunarmannahelgi, gjafabréf í flug hjá Icelandair, WOW og Iceland Epress auk veiði- og útilegukorta. Vonandi geta allir félagsmenn fundið þar eitthvað skemmtilegt við sitt hæfi.

