Fréttir
21. maí 2012
Ertu búin/n að skipuleggja sumarfríið?
SFR býður félagsmönnum sínum að leigja skemmtilegt parhús á Blönduósi í sumar. Í húsinu eru öll venjuleg þægindi og svefnpláss fyrir 6 manns. Um Blönduós rennur ein af bestu veiðiám landsins og þar eru einnig aðrar fengsælan veiðiár í næsta nágreni. Í bænum má finna ýmislegt til afþreyingar m.a. ný og glæsileg sundlaug, hestaleiga, golfvöllur, heimilisiðnararsafn, sela- og fuglaskoðun o.fl. Til að bóka húsið þarf að fara á bókunarvefinn.
21. maí 2012
Menningarhátíð í Munaðarnesi
Árleg menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi fer fram á laugardaginn kemur, þann 26. maí kl. 14:00. Opnuð verður sýning á verkum listamannsins Ella, Sigríður Thorlacius flytur nokkur lög við undirleik Guðmundar Óskars Guðmundssonar og Rannveig Thoroddsen líffræðingur fjallar um gróður og flóru í Munaðarnesi og nágrenni.
15. maí 2012
Morgunverðarfundur
Síðasti morgunverðarfundur SFR í fundaröð vetrarins var í morgun og ræddu félagsmenn ýmis brýn mál við fulltrúa félagsins. Meðal annars var rætt um starfsemi félagsins, blaðaútgáfu og fleira. Fulltrúar SFR munu halda áfram að boða félagsmenn til skrafs og ráðagerðar á morgunverðarfundi næsta vetur enda eru þessi fundir félaginu afar mikilvægir og nauðsynlegt starfsemi skrifstofunnar að vera í góðum tengslum við félagsmenn.
14. maí 2012
Stofnun ársins - myndir
Niðurstöður könnunarinnar um Stofnun ársins voru kynntar við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica síðastliðinn föstudag. Vinningshafar stilltu sér upp fyrir myndatöku, en hér má líta nokkrar myndir frá hátíðinni.
11. maí 2012
Stofnun ársins 2012

Niðurstöður könnunarinnar um Stofnun ársins voru kynntar við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica nú fyrir stundu. Í ár er það Sérstakur saksóknari sem er Stofnun ársins í flokki stórra stofnana, annað árið í röð. Landmælingar Íslands eru Stofnun ársins í flokki meðalstórra stofnana og Persónuvernd í flokki lítilla stofnana. Hástökkvarinn í ár er Sýslumaðurinn í Borgarnesi, en þann titil hlýtur sú stofnun sem hækkar sig mest á milli ára. Ítarlegar niðurstöður könnunarinnar má lesa hér.
11. maí 2012
Aukin ánægja með flest nema launakjörin
Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar um Stofnun ársins sem kynntar voru nú siðdegis má greina örlítið meiri ánægju hjá starfsmönnum hins opinbera bæði með starfsöryggi og sveigjanleika. Ánægja með laun og trúverðugleiki stjórnenda er hins vegar enn mun minni. Þegar bornar eru saman niðurstöður opinberra starfsmanna og þeirra sem starfa á almennum markaði á þessum þáttum má sjá mikinn mun, opinberum starfsmönnum í óhag.
11. maí 2012
Stofnun ársins - niðurstöður birtar síðdegis
Niðurstöður úr könnuninni Stofnun ársins sem birtar verða á vef SFR nú síðdegis eru hluti einnar stærstu vinnumarkaðskönnunar landsins. Könnunin er samstarfsverkefni VR og SFR stéttarfélags í almannaþjónustu með þátttöku ríkisins og nú í ár er Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar (St.Rv.) einnig með.
8. maí 2012
Morgunverðarfundur í Reykjavík
Hópur SFR félaga var boðaður á morgunverðarfund í húsnæði Félagamiðstöðvarinnar Grettisgötu 89 í morgun og ræddi þar m.a. þjónustu og starfsemi félagsins. Góðar umræður urðu á fundinum en á honum voru þau Árni Stefán Jónsson, formaður auk Þórarins framkvæmdastjóra og Ölmu Lísa Jóhannsdóttur.
4. maí 2012
Samræmdur stofnanasamningur undirritaður
Í morgun var skrifað undir nýjan sameiginlegan stofnanasamning við SFH, samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu sem eru ÁS, Grund, Mörk, Hrafnistu Reykjavík, Hrafnistu Hafnarfirði, Hrafnistu Boðaþingi, Sunnuhlíð, Krabbameinsfélagi Íslands, Sjálfsbjörg, Skógarbæ, SÁÁ, Eir, Skjól og Heilsustofnun Náttúrulækningafélagi Íslands. Að lokinni undirskrift var boðið upp á vöfflur að hætti sáttasemjara á skrifstofu SFR en þar fór undirskriftin fram.
3. maí 2012
1 maí á Akureyri
Mjög góð þátttaka var í kröfugöngu sem stéttarfélögin við Eyjafjörð stóðu fyrir á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks, 1. maí. Kjörorð dagsins voru; „Vinna er velferð" Gengið var frá Alþýðuhúsinu í mjög góðu veðri, gegnum miðbæinn og að Hofi, þar sem fram fór dagskrá í tilefni dagsins.
3. maí 2012
Könnun um líðan starfsmanna
Í dag var send út rafræn könnun til félagsmanna SFR um líðan starfsmanna.Um er að ræða könnun sem lögð er fyrir breiðan hóp á almennum vinnumarkaði þar sem ASÍ og BHM taka einnig þátt.
3. maí 2012
Sumarhúsaáskrift
SFR og rekstrarfélag orlofshúsa í Munaðarnesi hefur gert samning við 365 miðla um sumarhúsaáskrift. Áskriftin felur í sér að í hverju húsi í eigu SFR verður myndlykill sem dvalargestir í húsunum geta keypt sér aðgang að með einu símtali.
3. maí 2012
Launamunurinn er mannanna verk
Árni Stefán Jónsson formaður SFR ræddi launamun kynjanna í viðtali við Morgunútvarp Rásar 2 í morgun. Launamunur kynjanna var fyrir hrun rúmlega 17% samkvæmt könnunum SFR en í krepppunni dróst saman með kynjunnum. Síðasta haust kom hins vegar í ljós að launamunum væri aftur að aukast og því er brýnt að bregðast við sem fyrst.
3. maí 2012
Morgunverðarfundur
Nú stendur yfir morgunverðarfundur SFR og félagsmanna. Þar eru rædd ýmis mál félagsins en fundinum stýra þau Alma Lísa og Árni Stefán formaður. Til morgunverðarfundar er boðað tilviljanaúrtak úr félagaskrá auk þess sem áhugasamir félagsmenn geta óskað eftir að sitja fundina.
3. maí 2012
Er sumarið komið?
Orlofshús SFR á Eiðum, Akureyri og Ólafsfirði eru laus um helgina fyrir þá sem vilja taka forskot á sumarið. Bókanir og nánari upplýsingar eru á Orlofsvefnum.
2. maí 2012
Fjölmenni í 1. maí göngu
Mikið fjölmenni var í 1. maí göngu í Reykjavík í ár. Gangan var með aðeins öðru sniði en venjulega en gengið var niður Laugaveginn þar sem fulltrúar ýmissa stéttarfélaga stóðu og héldu örræður fyrir göngufólk og síðan var baráttufundur á Ingólfstorgi. SFR konurnar Olga Gunnarsdóttir, Jóhanna Vilhjálmsdóttir og Védís Guðjónsdóttir varaformaður SFR voru fulltrúar SFR í hópi örræðufólks.
27. apríl 2012
1. maí um land allt
Þann fyrsta maí fjölmennir launafólk um land allt í kröfugöngur til að krefjast réttlátara samfélags. Hér á vefnum má finna dagskrá 1. maí í Reykjavík og á Akureyri en á báðum stöðum verður gengið undir fánum SFR. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna í göngur um land allt því sýnileikinn eykur styrk okkar og samstöðu.
27. apríl 2012
Raddaður fræðslumorgunn
Trúnaðarmenn SFR nutu leiðsagnar Ingveldar Ýrar á fræðslumorgni. Hún leiddi þá í gegnum leyndardóma góðrar raddbeitingar og að sjálfsögðu fylgdu verklegar æfingar.
27. apríl 2012
Trúnaðarmenn funda
Trúnaðarmenn SFR funduðu í dag. Rætt var m.a. um og farið yfir skipulag vegna 1. maí og BSRB þings sem haldið verður í haust. Gestur fundarins var Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, stjórnsýslufræðingur sem hélt erindi sem hún kallaði "Að starfa í þjónustu hins opinbera".
26. apríl 2012
Hrós og uppbyggileg gagnrýni á morgunverðarfundi
Morgunverðarfundur var haldinn í Félagamiðstöðinni á Grettisgötu í morgun. Þar ræddu félagsmenn ásamt formanni, framkvæmdastjóra og fulltrúa félagsins um ýmis mál sem snerta starfsemi félagsins. Þar kom m.a. fram ánægja með starfsmenntunarsjóð félagsins auk þess sem félagsmönnum fannst þjónustan góð hjá félaginu.
25. apríl 2012
Blað stéttarfélaganna 1. maí
24. apríl 2012
Upplýsingamál á morgunverðarfundi
Áhugasamir félagsmenn komu saman á morgunverðarfundi í morgun og ræddu ýmis mál félagsins. Þar var m.a. rætt um upplýsingaflæði og mikilvægi þess að félagsmönnum sé gert kleift að fylgjast með því sem er á döfinni hjá félaginu.
17. apríl 2012
Opnað fyrir bókanir í orlofshús sem eru laus 23. apríl kl. 9
Nú er endurúthlutun orlofshúsa að ljúka þessa dagana. Opnað verður fyrir bókanir á orlofsvef SFR mánudaginn 23. april kl 9:00. Öll hús sem ekki hafa gengið út verða boðin á vefnum í vikuleigu en eftir 3 vikur verður þeim eignum sem SFR á breytt í dagleiguhús það sem eftir er sumars. Allar leigur kosta punkta eins og í úthlutun en mismikið eftir því hvað fólk er langan tíma í húsunum. Það er allt frá 5 á sólarhring upp í 40 punkta fyrir vikuna.
17. apríl 2012
Morgunverðarfundir víða um land
Fulltrúar skrifstofu SFR hafa síðustu daga boðað félagsmenn á morgunverðarfundi til skrafs og ráðagerða. Síðustu fundir voru á Selfossi á mánudag og í Reykjavík í morgun. Umræður á fundunum hafa verið mjög góðar og líflegar, en afar mikilvægt er fyrir starfsfólk og stjórn SFR að eiga slíka fundi með félagsmönnum.
16. apríl 2012
Búið að draga í happdrættinu - Stofnun ársins
Nú er búið að draga í happdrættinu sem þátttakendur í Stofnun ársins könnuninni eru með í, en happdrættismiði eða númer fylgdi gögnum hvers og eins og hafa vonandi sem flestir varðveitt hann vel, enda mikið í húfi. Dregnir voru út 15 ferðavinningar sem eru gjafabréf hjá Icelandair og komu vinningar á eftirfarandi númer; 70.138 - 91.661 - 100.977 - 110.047 - 114.163 - 117.853 - 121.381 - 122.587 - 151.207 - 201.961 - 203.828 - 300.444 - 603.267 - 610.340 - 610.728
16. apríl 2012
Konur, kynjajafnrétti og efnahagskreppan
Alþjóðleg ráðstefna um konur, kynjajafnrétti og kreppuna fer fram við Háskóla Íslands 21. og 22. apríl 2012. Þar verður mörgum spurningum velt upp s.s. hver staða íslenskra kvenna sé í kreppunni og hvernig er hún í samanburði við stöðu kvenna í öðrum löndum? Á ráðstefnunni koma saman margir helstu sérfræðingar heims á sviði kynja- og vinnumarkaðsmála. Ráðstefnan verður haldin í stofu 105 og 101 á Háskólatorgi og fer fram á ensku. Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast hér.
13. apríl 2012
Morgunverðarfundur á Reykjanesi
Afar góður morgunverðarfundur var haldinn með félagsmönnum á Reykjanesi í morgun. Þar var ýmislegt rætt, s.s. þjónustu félagsins og væntingar félagsmanna til SFR. Það voru þau Alma Lísa Jóhannsdóttir og Þórarinn Eyfjörð sem voru fulltrúar SFR á fundinum en þangað komu m.a. starfsmenn frá Vinnumálastofnun, Landhelgisgæslunni, málefnum fatlaðra, Isavía, Keflavíkurflugvelli og víðar.
12. apríl 2012
Ársfundur Virk
Ársfundur VIRK var haldinn í morgun í Hörpu. Á fundinum talaði m.a. Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra og Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK, en hún fór yfir starfsemi VIRK á síðastliðnu ári. Auk þess hélt Ingibjörg Jónsdóttir prófessor við Institute of Stress Medicine í Gautaborg erindi um reynslu og niðurstöður nýjustu rannsókna varðandi forvarnir og starfsendurhæfingu vegna kulnunar og síþreytu á vinnustöðum. Að loknum erindunum voru síðan hefðbundin ársfundarstörf.
12. apríl 2012
Fundi Starfsmenntunarsjóðs frestað
Fundi Starfsmenntunarsjóðs SFR sem vera átti í dag hefur verið frestað til þriðjudagsins 17. apríl næstkomandi.
10. apríl 2012
Slæm staða barnafjölskyldna
Á heimasíðu BSRB er vitnað til orða Elínar Bjargar Jónsdóttur, formanns BSRB í RÚV í gær. Þar segir hún það hafa komið sér á óvart að ekki hafi tekist betur til að tryggja kjarabætur eins og fram kemur í nýrri skýrslu um stöðu heimilanna sem verið er að vinna fyrir stjórnvöld. Elín Björg segir mikilvægt að tryggja að fólk með meðaltekjur og þar fyrir neðan lendi ekki í skerðingu, heldur fái fullar barnabætur.
3. apríl 2012
Félagsmenn funda hjá SFR um þjónustu félagsins
Í morgun var haldinn fyrsti morgunverðarfundur af 10 sem SFR býður félagsmönnum upp á nú á vorönn. Á fundinn mættu um 20 félagsmenn, en boðið er á fundina samkvæmt tilviljanakenndu úrtaki úr félagatali SFR. Einnig geta áhugasamir sent skráningu á alma@sfr.is. Félagsmenn ræddu um orlofsmál, sjóði SFR, sýnileika félagsins og þjónustu gagnvart félagsmönnum. Mjög áhugaverðar og nytsamlegar umræður.
2. apríl 2012
Greiðslur fyrir úthlutun - frestur til og með 3. apríl
Þeim sem fengu úthlutað orlofshúsi í sumar er bent á að ganga þarf frá greiðslu í síðasta lagi á morgun 3. apríl (þriðjudag). Greitt er á orlofsvefnum.
29. mars 2012
Stórframkvæmdir í Munaðarnesi
Nú standa yfir stórframkvæmdir í Munaðarnesi. Verið er að breyta og endurbyggja þrjú hús í Vörðuási og hús nr 10 í Bjarkarási. Húsin verða stækkuð um 20 fm ogkipt verður um þak, klæðningar og glugga auk þess sem pallar verða stækkaðir, eins og meðfylgjandi mynd sýnir.
26. mars 2012
Aðalfundur SFR ályktar
Á aðalfundi SFR 22. mars síðast liðinn voru samþykktar ályktanir um lífeyrismál, kjara- og efnahagsmál, jafnréttismál og skattamál. Fundurinn lýsti m.a. yfir þungum áhyggjum af stöðu opinberra starfsmanna, en laun þeirra hafa enn dregist aftur úr launum á almennum markaði og ráðstöfunartekjur rýrnað.
23. mars 2012
Umsóknarfrestur fyrir orlofshús er útrunninn. Verið er að vinna að úthlutun en henni verður lokið eftir lokun skrifstofu á morgun 27. mars. Umsækjendur munu fá svar í það netfang sem notað var við innskráningu á orlofsvefinn þegar sótt var um. Dagleiguhús verða sett á vefinn á fimmtudagsmorgunn 29. mars kl 9:00. Þar gildir reglan fyrstur bókar fyrstur fær.
23. mars 2012
Trúnaðarmaður ársins

Á aðalfundi félagsins hefur verið vani undanfarin ár að veita trúnaðarmanni ársins viðurkenningu. Að þessu sinni var Þóreyju Einarsdóttur trúnaðarmanni veitt viðurkenning fyrir gott starf í þágu félagsins. Þórey starfar á Sjálfsbjargarheimilinu og hefur verið trúnaðarmaður í fjölmörg ár. Hún á sæti í samninganefnd og hefur að mati stjórnar SFR staðið sig afar vel. SFR óskar Þóreyju til hamingju til titilinn og viðurkenninguna.
23. mars 2012
Fjölmenni á aðalfundi SFR
Sérstaklega fjölmennt var á aðalfundi SFR sem haldinn var í gær 22. mars. Á dagskrá fundarins voru venjuleg aðalfundarstörf. Formaður og framkvæmdastjóri fóru yfir ársskýrslu stjórnar og ársreikninga. Nýir fulltrúar voru kosnir í stjórn SFR og stjórnir sjóða.
22. mars 2012
Hægt að fylgjast með aðalfundi SFR á netinu
Aðalfundur SFR er sendur út í gegnum netið í beinni útsendingu. Slóðin á beina útsendingu er ...
21. mars 2012
Aðalfundur Lífeyrisdeildar SFR
Aðalfundur Lífeyrisdeildar SFR var haldinn í gær, en svo heitir Lífeyrisþegadeildin eftir fundinn í gær. Fundurinn var vel sóttur og stemmningin meðal fundarmanna var góð. Á fundinum var m.a. kosin ný stjórn. Guðmundur Eiríksson fráfarandi formaður LSFR gaf ekki kost á sér og var Kristrún B. Jónsdóttir kosinn formaður.
20. mars 2012
Skattaskýrslan - styrkir frá SFR
Styrkir vegna líkamsræktar og námsskeiða eða námskostnaðar birtist nú sjálfkrafa á skattaskýrslum þeirra félagsmanna sem fengið hafa slíka styrki. Mikilvægt er að skrá kostnaðinn á móti, Í reit nr. 149 skráist frádráttur á móti náms-, rannsóknar- og vísindastyrkjum og í reit nr. 157 skráist frádráttur frá öðrum styrkjum, þar á að setja kostnað til frádráttar líkamsræktarstyrk.
19. mars 2012
Páskaegg út um allt!
Yfir hundrað manns tóku þátt í páskaeggjabingói Menningar- og skemmtinefnda SFR og St.Rv. á laugardag. Margir fóru út með hin girnilegustu páskaegg, en ekkert barn fór þó tómhent heim því bingóstjórarnir gáfu lítil egg til þeirra sem ekki höfðu dottið í lukkupottinn. Þarna skemmtu sér saman félagsmenn á öllum aldri og stemmningin var afar góð eins og myndirnar sýna.
19. mars 2012
Lúðrasveit verkalýðsins
Lúðrasveit verkalýðsins heldur sína árlegu vortónleika þann 31. mars nk. í Fella og Hólakirkju kl 14:00. Þema tónleikanna að þessu sinni er suðrænt og seiðandi (mambo,salsa ofl.) Sem sagt léttir og skemmtilegir tónleikar fyrir alla fjöldskylduna. Við viljum hvetja alla til að mæta, enginn aðgangseyrir.
16. mars 2012
Nýr stofnanasamningur við Vinnumálastofnun
Gengið hefur verið frá stofnanasamningi við Vinnumálastofnun, en hann nær til allra félagsmanna þar. Samningurinn gildir frá 1. janúar til 31. desember 2012. Með samningum sem nú er aðgengilegur á netinu er m.a. bókum um endurskoðun starfaflokka og röðun í flokka.
16. mars 2012
Á skíðum skemmti ég mér ...
Orlofsíbúð SFR á Ólafsfirði er laus um helgina og næstu daga. Í kringum Ólafsfjörð er mikið og gott skíðasvæði og tilvalið fyrir skíðaáhugafólk að kynna sér orlofsíbúðina þar. Þá er einnig laust á Eiðum og í Vestmannaeyjum.
Á Orlofsvef SFR má nú kaupa Veiðikort og Útilegukort fyrir sumarið 2012, auk þess sem gjafabréfin vinsælu í flug eru komin, bæði hjá Icelandair og Iceland Express.
16. mars 2012
Stofnun ársins - Nú fer hver að verða síðastur að svara!
Skilafrestur í könnuninni Stofnun ársins og launakönnun SFR hefur verið framlengdur til 20. mars. Við hvetjum félagsmenn til að svara könnuninni, því hærra sem svarhlutfallið er því áreiðanlegri verður könnunin. Auk þess getur heppinn þátttakandi átt von á ferðavinningi.
15. mars 2012
Fundarstjórar framtíðarinnar
Nú stendur yfir námskeið um fundartækni og fundarsköp sem mun eflaust koma sér vel í félagsstarfinu. Þar kynnast þátttakendur hlutverki fundarstjórans, fundarritarans og hins almenna þátttakenda. Leiðbenandi er Gunnar Jónatansson frá IBT.
15. mars 2012
Nýr bæklingur fyrir vinnustaði um kynferðislega áreitni
Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar og MARK - miðstöð margbreytileika og kynjarannsókna við Háskóla Íslands hafa nýverið gefið út bækling sem nefnist Klámvæðing er kynferðisleg áreitni.
Bæklingurinn varpar ljósi á það hvernig konur upplifa klám á vinnustöðum og umræðu um útlit sitt í stað frammistöðu og er ætlað að láta fólk í té hugtök og orð svo það geti skilgreint klám og kynferðislega áreitni. Bæklingurinn er aðgengilegur hér á vef Reykjavíkurborgar.
12. mars 2012
LSR sjóðfélagafundur
LSR boðar til fundar með sjóðfélögum á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, miðvikudaginn 14. mars, næstkomandi kl. 16:30 . Fundarefnið er nýleg skýrsla um úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins. Allir sjóðfélagar velkomnir meðan húsrúm leyfir. Skýrslu úttektarnefndar má nálgast hér.
9. mars 2012
Launamunur milli almenna markaðar og hins opinbera eykst
Á vefsíðu Hagstofu Íslands í dag eru birtar nýjar tölum um laun og launavísitölu. Þar kemur m.a. fram að laun hækkuðu um 1,6% frá fyrri ársfjórðungi. Frá fyrra ári hækkuðu laun hins vegar um 8,7% að meðaltali. Það er sláandi að sjá hve mikill munur er á hækkun launa á almennum markaði og hjá opinberum starfsmönnum milli ára. Laun starfsmanna á almennum markaði hækkuðu að meðaltali um 9,4%, á meðan hækkunin hjá opinberum starfsmönnum varð einungis 7,4%.
9. mars 2012
SFR á Atvinnumessu
Mikið fjölmenni var á Atvinnumessunni sem haldin var í Laugardalshöll 8. mars. SFR stéttarfélag var að sjálfsögðu á staðnum og deildi þar bás með BSRB, Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar og Sjúkraliðafélagi Íslands. Mjög margir atvinnuleitendur lögðu leið sína til fulltrúa félaganna til að fá upplýsingar um þjónustu félaganna og fleira.
9. mars 2012
ORLOFSVEFURINN ER OPINN - nú er rétti tíminn til að sækja um fyrir sumarið!
Nú sem endranær leggur SFR áherslu á fjölbreytta orlofsmöguleika fyrir félagsmenn. Lögð var áhersla á að útvega hús víðsvegar um landið. Nýjungar að þessu sinni eru m.a. íbúð á Blönduósi, Stykkishólmi og á Eskifirði og orlofshús í Öndverðarnesi og á Hólum í Hjaltadal svo eitthvað sé nefnt. Nú er opið fyrir umsóknir hér á orlofsvefnum, en umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2012.
9. mars 2012
Einbeittur brotavilji ríkisins?
Í grein sinni í Fréttablaðinu á alþjóðlegum baráttudegi kvenna bendir Védís Guðjónsdóttir, varaformaður SFR á það að launamunur kynjanna sé mannréttindabrot eins og réttilega er bent á í skýrslu Sameinuðu þjóðanna . Hún spyr hvort launamunur kynjanna hjá ríkinu sé orsök einbeitts brotavilja hjá ríkinu eða hvað þurfi eiginlega til að ríkið gangi á undan með góðu fordæmi og leiðrétti launamuninn í eitt skipti fyrir öll. Greinina í heild sinni má lesa hér.
7. mars 2012
Orlofsblaðið - sumarúthlutun
SFR gefur út sérstakt orlofsblað sem er að berast félagsmönnum um þessar mundir. Um er að ræða 44 síðna blað þar sem orlofsmöguleikar SFR félaga eru ítarlega kynntir. Þar má einnig finna leiðbeiningar varðandi úthlutun húsa, bókanir og orlofspunkta. Blaðinu er ætlað að svara sem flestum spurningum félagsmanna um orlofsmál og leiðbeina þeim við val á orlofsmöguleikum. Umsóknarfrestur um orlofshús í sumar er til og með 25. mars (á miðnætti), en opið er fyrir umsóknir á Orlofsvefnum.
7. mars 2012
Gjafabréf Iceland Express komin í sölu
Eins og undanfarin ár geta félagsmenn SFR keypt gjafabréf í flug sem gefur þeim þó nokkurn afslátt á millilandaflugi. Í ár verða í boði bréf frá Iceland Express, Icelandair og WOW air. Bréf Iceland Express eru komin í sölu á vefnum og kosta 18.000 en andvirði þeirra er 28.000. Hver félagsmaður getur keypt að hámarki 7 bréf. Gjafabréf hinna flugfélaganna koma í sölu næstu daga og viku.
6. mars 2012
Stofnun ársins og launakönnun - frestur til 16. mars
Nú stendur yfir launakönnun SFR og val á Stofnun ársins en allir ríkisstarfsmenn fá senda könnunina að þessu sinni. Margir félagsmenn hafa þegar fengið könnunina senda en kannski ekki alllir. Ástæða þess er sú að könnunin er send út í "slumpum" þ.e. ekki fá allir senda könnunina samtímis. Fresturinn til að svara könnuninni er 16. mars og viljum við hvetja alla til að svara könnuninni skilmerkilega því fleiri sem svara, því áreiðanlegri verða svörin. Auk þess getur heppinn þátttakandi átt von á ferðavinningi.
5. mars 2012
Dagskrá alþjóðlegs baráttudags kvenna fyrir friði og jafnrétti
Að venju er boðið upp á spennandi dagskrá þann 8. mars næstkomandi í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna fyrir friði og jafnrétti. Menningar- og friðarsamtök kvenna verða að þessu sinni með opinn fund í Iðnó - Vorið kallar - sem hefst kl. 17. Þá blæs hreyfing launamanna til fundar í hádeginu á Grand Hótel og hefst fundur þar kl. 11:45 og er yfirskrift hans STARFSLOK - Endastöð eða nýtt upphaf? Konur á barmi starfsloka.
29. febrúar 2012
Atvinnuleitendur á kynningarfundi
Í gær héldu SFR og St.Rv. sameiginlegan fund fyrir atvinnuleitendur innan félaganna, en þeir eru nú samtals rúmlega 300 talsins. Kynnt voru réttindi innan félaganna ásamt því að Ásdís Olsen fjallaði um núvitund og gaf hópnum 10 hamingjuráð. Þá kynnti Runólfur Ágústsson atvinnumessu sem haldin verður 8. mars nk. í Laugardalshöll.
24. febrúar 2012
Framkvæmdanefnd BSRB fundaði með forsætis-, fjármála- og velferðarráðherra
Í frétt á vef BSRB kemur fram að framkvæmda-nefnd BSRB fundaði í fyrradag með forsætis-, fjármála- og velferðarráðherra. Tilefni fundarins voru ýmis mál er varða kjaramál opinberra starfsmanna.
22. febrúar 2012
Páskaúthlutun lokið
Páskaúthlutun er nú lokið og þeir sem sóttu um hafa fengið tölvupóst þess efnis. Umsóknir voru 87 sem eru heldur fleiri umsóknir heldur en í fyrra og fengu 24 úthlutað að þessu sinni. Ennþá eru laus hús á Eiðum um páskana, auk íbúðarinnar í Danmörku .
22. febrúar 2012
Félagsaðild atvinnuleitenda
Atvinnuleitendum innan SFR eins og annars staðar hefur fjölgað mjög undanfarin ár og það er algengara nú en áður að atvinnuleitendur leiti réttar síns til stéttarfélagsins. Það er vel enda hefur SFR lagt áherslu á það við félagsmenn sem missa vinnuna að þeir séu áfram skráðir í félagið svo þeir megi halda réttindum á við aðra félagsmenn. Einhver brögð hafa hins vegar verið á því að atvinnuleitendur sem hafa ekki greitt til félagsins árum saman eða jafnvel aldrei skrái sig þar við atvinnumissi.
21. febrúar 2012
Páskaúthllutun ljós eftir lokun 22. feb.
Þeir sem sóttu um að fá úthlutað orlofshúsi í páskavikunni munu fá bréf í tölvupósti eftir kl. 16 á morgun, 22. feb. Ekki er ljóst fyrr hver hefur fengið úthlutað.
20. febrúar 2012
Páskaúthlutun - opið fyrir umsóknir til miðnættis í dag, mánudag
16. febrúar 2012
Nýtt útlit orlofsvefsins
Eins og glöggir félagsmenn hafa eflaust tekið eftir er komið nýtt útlit á orlofsvef SFR. Það er von okkar að þetta nýja útlit auðveldi félagsmönnum að nota vefinn. Búast má við að einhverjir hnökrar verði á vefnum þessa allra fyrstu daga og biðjum við fólk um að sýna okkur þolinmæði og reyna aftur.
15. febrúar 2012
Stofnun ársins og launakönnun
Eins og félagsmenn hafa eflaust orðið varir við þá hafa starfsmenn Capacent verið að hringja út til félagsmanna vegna launakönnunar og Stofnunar ársins undanfarna daga. Um miðja næstu viku munu félagsmenn síðan fá senda könnunina og viljum við hvetja alla til að taka þátt í könnuninni. Með góðri þátttöku skapast betri grunnur að niðurstöðum auk þess sem þátttakendur verða sjálfkrafa með í happdrætti þar sem vinningurinn hljóðar upp á gjafabréf frá Icelandair.
14. febrúar 2012
Hvað verður eftir í launaumslaginu?
Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRB hélt erindi á trúnaðarmannaráðsfundi SFR í síðast liðinni viku um þróun launa og ráðstöfunartekna. Þar rakti hann m.a. rýrnun kaupmáttar og mismunandi kaupmátt ákveðinna hópa.
9. febrúar 2012
Lífeyrissjóðsmálin í brennidepli
Erindi Hauks Hafsteinssonar, framkvæmdastjóra LSR, vakti miklar og heitar umræður á fundi trúnaðarmanna SFR í gærdag. Í erindinu leitaðist hann við að útskýra úttektarskýrslu lífeyrissjóðanna og tap lífeyrissjóðanna, en heildartap lífeyrissjóðs LSR og LH er samkvæmt skýrslunni rúmlega 101 milljarður á árunum 2008-2010. Haukur lagði áherslu á að hann væri einungis þarna til að útskýra en ekki að verja. Hann sagði að þarna væri mikilvægt að huga að því hvaða tímabil væri skoðað. Umræðan væri góð og gagnleg en mikilvægt væri að hún væri á réttum forsendum.
9. febrúar 2012
Trúnaðarmannaráð SFR ályktar
Fjölmennur fundur trúnaðarmannaráðs SFR hlustaði á erindi Hauks Hafsteinssonar framkvæmdastjóra LSR þar sem hann leitaðist við að útskýra úttektarskýrslu lífeyrissjóðanna í gærdag. Í kjölfar erindis hans spunnust heitar og miklar umræður og var mörgum fundarmanninum mikið niðri fyrir. Enda er málið hitamál og trúnaðarmönnum SFR var umhugað um að fá sem gleggsta mynd af efni skýrslunnar og útskýringum Hauks á tapi lífeyrissjóðanna en heildartap lífeyrissjóða LSR og LH er samkvæmt skýrslunni rúmlega 101 milljarðar á árunum 2008-2010.
7. febrúar 2012
Málefni lífeyrissjóðanna á trúnaðarmannaráðsfundi
Á trúnaðarmannafundi SFR á morgun (8. feb.) mun Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri LSR fjalla um rannsóknarskýrslu um lífeyrissjóðanna sem kom út fyrir helgi. Skýrslan hefur vakið mikla athygli og var Haukur m.a. gestur Kastljóss í gærkvöld. Auk hans mun Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRB fjalla um þróun launa og ráðstöfunartekna, eða með öðrum orðum - Hvað verður eftir í launaumslaginu? Fundurinn hefst kl. 13:00 á Grettisgötu 89 og eru trúnaðarmenn SFR hvattir til að koma á fundinn og kynna sér málin.
3. febrúar 2012
Lokað eftir hádegi á mánudag vegna jarðarfarar
Skrifstofa SFR verður lokuð frá kl. 12 mánudaginn 6. febrúar vegna jarðarfarar Guðlaugar Sigurðardóttur, fyrrum starfsmanns SFR.
2. febrúar 2012
Fékkst þú eingreiðslu 1. feb.?
SFR vekur athygli á því að samkvæmt kjarasamningum SFR við Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga eiga félagsmenn SFR sem starfa hjá borginni eða sveitarfélögum að hafa fengið 25 þúsund kr. eingreiðslu nú 1. feb. "Starfsmenn sem eru við störf þann 1. febrúar 2012 fá greidda sérstaka eingreiðslu, kr. 25.000,- miðað við fullt starf. Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall 1. febrúar 2012."
1. febrúar 2012
Tómstundafræðinemar í heimsókn
Nemar við Tómstunda- og félagsmálabraut nutu fræðslu um stéttarfélög, uppbyggingu þeirra og hlutverk hjá Þórarni Eyfjörð framkvæmdastjóra í salarkynnum Félagamiðstöðvarinnar í morgun. Miklar og góðar umræður spunnust um hlutverk stéttarfélaga, velferðarkerfið og samtryggingu yfirleitt og voru nemarnir afar áhugasamir. Með þeim í för var kennari þeirra, Árni Guðmundsson lektor og fyrrverandi formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar.
1. febrúar 2012
Trúnaðarmenn á námskeiði
Í morgun hófst 3ja daga námskeið fyrir trúnaðarmenn, en námskeiðið er samstarfsverkefni SFR og St.Rv. Námskeiðið er ætlað nýjum trúnaðarmönnum og er góður grunnur fyrir starf trúnaðarmannsins. Á námskeiðinu verður farið yfir starfssemi stéttarfélaganna, kjarasamningana og lífeyrismál. Auk þess er lögð áhersla á leiðtogaþjálfun þar sem Þórkatla Aðalsteinsdóttir og Einar Gylfi Jónsson sálfræðingar leiðbeina og þjálfa fulltrúa. Næsta grunnnámskeið verður haldið 13., 29. og 30. mars 2012. Hægt er að skrá sig hér.
31. janúar 2012
Færeyska velferðarkerfið í hættu
Frændur okkar og frænkur í Færeyjum hafa staðið í ströngu undanfarnar vikur og mánuði og hafa mótmæli verkalýðsfélaga og almennings á götum úti í Þórshöfn m.a. verið í fréttum. Ástæðan er sú að í október síðast liðnum tók þar við völdum hægri stjórn sem hefur m.a. lagt til breytingar á skatta- og lífeyrissjóðskerfinu. Anna Johannesen frá Starvsmannafélaginu í Þórshöfn var hér á ferð í síðast liðinni viku á fundi framkvæmdastjóra NSO og gaf sér tíma fyrir stutt spjall, en hún telur aðgerðir stjórnarinnar vera harða aðför gegn færeyska velferðarkerfinu. Síðustu daga hefur verið útlit fyrir langt og strangt verkfall Starvsmannafélagsins og fleiri félaga í Færeyjum, en í dag, 31. janúar bárust loks þær fréttir að Starvsmannafélagið muni skrifa undir samkomulag til eins árs. Ekki er enn ljóst hvað samningurinn felur í sér fyrir opinbera starfsmenn í Færeyjum.
31. janúar 2012
Ögmundur biðst afsökunar
Eins og kunnugt er fór Ögmundur Jónasson mikinn í ræðustól alþingis í síðast liðinni viku, þar sem hann sagðist m.a. hafa áhyggjur af því að stofnanaveldið, eins og hann orðaði það, hafi ánetjast Evrópusambandinu. Opinberir starfsmenn tóku orðum hans ekki vel, eins og eðlilegt er, og tjáðu bæði Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri og Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB auk fulltrúa frá BHM sig um málið. Í Fréttablaðinu í dag biður Ögmundur Jónasson hlutaðeigendur afsökunar á orðum sínum.
27. janúar 2012
Verðandi heilbrigðisritarar í heimsókn hjá SFR
Verðandi heilbrigðisritarar í námi í FA komu í heimsókn á skrifstofu SFR í dag og fengu þar fræðslu um stéttarfélög og vinnumarkaðinn. Nemarnir eru í áfanganum Vinnan og vinnumarkaðurinn og voru að því virtist bara nokkuð ánægðar með heimsóknina. Það var Guðrún Halldóra sérfræðingur á kjarasviði sem sá um fræðsluna, en með nemunum var kennari þeirra hún Kristrún Sigurðardóttir.
27. janúar 2012
Framkvæmdastjórar funda
Norrænir framkvæmdastjórar aðildarfélaga NSO funduðu á Grettisgötunni á skrifstofu SFR í gær, og létu veðrið lítið hafa áhrif á ferðir sínar. Þar voru mættar þær Hanne Johannessen frá OAO (Offentligt Ansattes Organisationer) í Danmörku Karin Brunzell frá Fackförbundet ST í Svíþjóð, Ingunn Bråten frá YS Stat í Noregi og Anna Johannesen frá Starvsmannafelaginu Færeyjum. Meðal þess sem rætt var á fundinum var fyrirhuguð ráðstefna NSO sem haldin verður í Kaupmannahöfn í haust.
26. janúar 2012
Ólga meðal starfsmanna Vinnumálastofnunar
Á félagsfundi SFR stéttarfélags sem haldinn var í gær að frumkvæði starfsmanna Vinnumálastofnunar kom fram mikil óánægja meðal fundarmanna vegna fyrirhugaðs tilraunaverkefnis sem felur í sér að hluti starfsemi stofnunar muni færist yfir á skrifstofur stéttarfélaga. Starfsmenn hafa þungar áhyggjur af fyrirhugaðri framkvæmd og segja m.a. í ályktun sem fundurinn sendi frá sér með öllu óskiljanlegt hvernig hægt er að setja aukafjármuni upp á 300 milljónir í slíkt tilraunaverkefni í stað þess að efla starf stofnunarinnar og starfsfólk hennar.
25. janúar 2012
Opinberir starfsmenn að ánetjast ESB?
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagðist á alþingi í gær hafa áhyggjur af því að stofnanaveldið, eins og hann orðaði það, hafi ánetjast Evrópusambandinu. Opinberir starfsmenn harma þessi ummæli, enda eru þau forkastanleg í ljósi stöðu Ögmundar. Á vef BSRB er haft eftir Helgu Jónsdóttur framkvæmdastjóra BSRB að bandalaginu þyki miður hvernig Ögmundur tali um opinbera starfsmenn úr ræðustóli Alþingis. "Að halda því fram að embættismenn hins opinbera séu að ánetjast ferðalögum og sæki það hart að komast sem oftast út fyrir landssteinana til þess eins að fá greidda dagpeninga er mjög ómaklegt," segir Helga Jónsdóttir.
25. janúar 2012
Blað stéttarfélaganna
Blað stéttarfélaganna er nú á lokastigi vinnslunnar og geta félagsmenn SFR og St.Rv. átt von á því inn um lúgurnar hjá sér í byrjun næstu viku. Í blaðinu nú má m.a. finna dagskrá Gott að vita námskeiðanna sem standa félagsmönnum til boða á vorönn. Þar er einnig fjallað um skrifstofunám og framhaldsnám lyfjatækna, grein um breytingar á séreignarsparnaði og félagsstarfi í Reykjavíkurborg o.fl.
24. janúar 2012
Félög opinberra starfsmanna andvíg tilraunaverkefni
Ummæli Árna Stefán Jónssonar formanns SFR og Elínu Bjargar Jónsdóttur formanns BSRB í fjölmiðlum í gær og um helgina hafa vakið mikla athygli. En þar lýsti þau m.a. þeirri skoðun sinni að tilraunaverkefni SA, ASÍ og Vinnumálastofnunar um tilfærslu þjónustu við atvinnuleitendur frá Vinnumálastofnun til stéttarfélaga væri illa ígrundað og ekki til þess fallið að styrkja stöðu atvinnuleitendur.
23. janúar 2012
Ráðgjafar í atvinnuleit?
Aðilar vinnumarkaðarins (ASÍ og SA) hafa gert með sér samkomulag þess efnis að stéttarfélög taki að sér vinnumiðlun fyrir atvinnuleitendur. Um er að ræða tilraunaverkefni til þriggja ára með þátttöku nokkurra félaga innan ASÍ á Suðurnesjum og Austurlandi og á Höfuðborgarsvæðinu. Vinnumiðlun og ráðgjöf við félagsmenn færi þá fram á skrifstofum stéttarfélaganna í samstarfi við atvinnurekendur en ekki hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar eins og nú er. Samtök opinberra starfsmanna taka undir þá kröfu að bæta eigi þjónustu við atvinnuleitendur, en leggja áherslu á að það verði gert með því að styrkja rekstur Vinnumálastofnunar í stað þess að setja yfir 300 milljónir í sérverkefni af þessu tagi, en 113 milljónum króna mun verða veitt til tilraunaverkefnisins á ársgrundvelli.
23. janúar 2012
Vel sótt málþing um lífeyrismál
Málþing BSRB, KÍ og BHM fór fram á Grand hótel sem haldið var í síðustu viku var afar fjölmennt. Svo virðist sem umræðan um lífeyrismál sé ofarlega í hugum landsmanna en yfir 400 manns sóttu málþingið. Erindi á málþinginu héldu m.a. Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar, Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra og Benedikt Jóhannessonar, en hann sagði frá niðurstöðum skýrslu um samspil lífeyrisgreiðslna frá lífeyrissjóðum, almannatryggina og skatta sem vakti mikla athygli.
19. janúar 2012
Félagsráð fundar
Fulltrúar í Félagsráði SFR áttu saman góðan fund í gær. Á dagskránni var stefnumótunarvinna þar sem m.a. var rætt um þjóðfélagsmál, umhverfismál, hlutverk og þjónustu SFR og lífeyris- og skattamál. Miklar umræður sköpuðust og margar hugmyndir voru á lofti, en unnið verður nánar úr þeim fyrir aðalfund SFR sem haldinn verður 22. mars næstkomandi.
18. janúar 2012
Uppsagnir - Vínbúðin á Akureyri
SFR stéttarfélag hefur boðið forsvarsmenn ÁTVR á sinn fund í næstu viku vegna óánægju félagsmanna með uppsagnir hjá fyrirtækinu. Fjórir starfsmenn vínbúðarinnar á Akureyri hafa leitað til félagsins vegna uppsagnanna en öllum var þeim sagt upp í síðustu viku án skýringa.
16. janúar 2012
Samspil lífeyris og almannatrygginga - málþing
BSRB, KÍ og BHM standa sameiginlega að málþingi um samspil lífeyrisgreiðslna og almannatrygginga á Grand hótel Reykjavík þann 19. janúar næstkomandi, kl. 13:00. Þar mun Benedikt Jóhannesson frá Talnakönnun hf kynna efni nýrrar skýrslu sem hann hefur unnið um ofangreint málefni með sérstaka áherslu á lífeyrissjóði opinberra starfsmanna. Auk þess mun Sigríður Lillý Baldursdóttir fjalla um víxlverkun lífeyrisgreiðslna og almannatrygginga og Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra kynnir sýn stjórnvalda á verkefnin sem framundan eru í lífeyrismálu.
Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis. SFR hvetur félagsmenn sína til að mæta og kynna sér málin.
Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Þótt svo sé er fólk beðið um að skrá sig til þátttöku og er það gert hér.
12. janúar 2012
Helgarferð til Köben?
Íbúðin í Christianshavn sem félagið hefur nýlega tekið á leigu er laus næstu vikur og helgar. Um er að ræða bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð á fimmtu hæð í gömlu sjarmerandi húsi (lyfta). Svefnaðstaða er fyrir allt að átta manns. Almenningssamgöngur eru rétt handan við hornið en einungis er um fimm mínútna gangur yfir í Metro, þaðan sem örstutt er til Kongens Nytorv.
11. janúar 2012
Málþing um lífeyrismál
Fram kemur á heimasíðu BSRB að bandalagið mun í samvinnu við KÍ og BHM efna til málþings um lífeyrismál, 19. janúar næstkomandi. Á málþinginu verður fjallað um samspil lífeyrisgreiðslna frá lífeyrissjóðum og Tryggingastofnunar ríkisins fer fram á Grand hóteli í Reykjavík. Þar mun Benedikt Jóhannesson m.a. kynna efni nýrrar skýrslu sem hann hefur unnið um ofangreint málefni með sérstaka áherslu á lífeyrissjóði opinberra starfsmanna.
3. janúar 2012
Viðhorfskönnun - vinningshafar
Í desember stóð SFR fyrir viðhorfskönnun meðal félagsmanna um þjónustu SFR, blað félagsins, vefinn og fleira. Alls fengu 4205 félagsmenn senda tölvupóstkönnun og 1663 svöruðu, sem er 40% svarhlutfall. Það þykir okkur mjög gott og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Niðurstöður könnunarinnar sem nú er verið að vinna úr munu nýtast félaginu vel í áframhaldandi starfi.
2. janúar 2012
Jólaballið vel sótt að venju
Jólaball SFR og St.Rv. sem haldið var 29. desember síðast liðinn var þrátt fyrir slæma færð vel sótt. Rúmlega 200 manns sungu og dönsuðu í kringum jólatré að Gullhömrum svo undir tók í sköflunum. Auðvitað kíktu jólasveinarnir við og skemmtu börnum og fullorðnum eins og meðfylgjandi myndir sýna.
2. janúar 2012
Áramótapistill Elín Bjargar Jónsdóttur formanns BSRB
"Á nýju ári verðum við að snúa vörn í sókn, hugsa til framtíðar og byggja upp réttlát þjóðfélag þar sem samábyrgð og jöfnuður er hafður að leiðarljósi. Við verðum að verja velferðina enda skilar öflugt velferðarkerfi meiru en það tekur. Öflugt velferðarkerfi er allra hagur."



