Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

30. september 2011

Móta ţarf heildarstefnu í mannauđsmálum ríkisins

Rikisendurskodun_MannaudsmaÍ nýútkominni skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis er fjallað um stefnu stjórnvalda og stöðu mannauðsmála ríkisins. Í frétt á vef Ríkisendurskoðunar kemur fram að mannauðsstjórnun hjá ríkinu er almennt ekki eins öflug og hjá einkafyrirtækjum. Ríkisendurskoðun telur að stjórnvöld þurfi að meta veikleika í mannauðsmálum ríkisins og ákveða hvernig bregðast skuli við þeim.

Þá eigi að fela starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins aukið hlutverk á þessu sviði. Mannauðsstjórnun felst m.a. í því að beita markvissum aðferðum til að efla starfsmenn og bæta frammistöðu þeirra.

27. september 2011

Orlofshús um helgina

Hus-og-BaulaNokkur hús á Eiðum, í Munaðarnesi og í Húsafelli eru laus um næstu helgi. Svo þeir sem huga á haustlitaferð út í náttúruna ættu að kíkja á Orlofsvef félagsins sem fyrst.

26. september 2011

Hugleiđing um launaleynd

Hugrun2011Eftirfarandi grein birtist í 4. tbl. Blaðs stéttarfélaganna.

Á Jafnréttisstofu fáum við símtöl frá konum sem uppgötva  að eftir áralangt starf hjá vinnuveitanda hefur karl á næstu skrifstofu allt að helmingi hærri laun en þær, fyrir sama starf.  Baráttan fyrir sömu launum fyrir sama starf hefur staðið í yfir 100 ár og undanfarna áratugi hefur árangurinn látið bíða eftir sér. Lög um sömu laun fyrir sömu störf voru samþykkt á Alþingi 1961 og þá var talið að það yrði frekar létt verk að jafna launin. Í dag vitum við betur.

Hér má lesa greinina í heild sinni.

23. september 2011

Fyrsti fundur Félagsráđs

Felagsrad-hopmyndNú stendur yfir fyrsti fundur Félagsráðs sem kosið var 1. september síðast liðinn. Á fundinum í dag er fjallað um starfsemi og starfsáætlun SFR og Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Talnakönnunar flytur erindi um hlutverk lífeyrissjóðanna í velferðarkerfinu. Auk þess sem kosið verður í laganefnd, uppstillingarnefnd og fulltrúa í jafnréttisnefnd. Hlutverk Félagsráðs er m.a.að taka fyrir og afgreiða mál sem eru þess eðlis að ekki þurfi afgreiðslu félagsfundar eða stjórnar SFR.

21. september 2011

Afnema óverđtryggđ lán verđtrygginguna?

Hilmar Ögmundssson, hagfræðingur BSRBHilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRB, skrifar grein í Fréttablaðið í dag undir yfirskriftinni: Afnema óverðtryggð lán verðtrygginguna? Þar segir hann m.a. að mikilvægt sé að tryggt verði að fjármálastofnanir geti ekki endurskoðað vexti einhliða að ákveðnum árafjölda liðnum. Á meðan fjármálastofnun geti sjö sinnum á 40 ára lánstíma endurskoðað vextina er í raun ekki verið að fjarlægja verðtrygginguna að fullu. Þannig sé lántakanda áfram haldið í óvissu um hvað hann sé í raun að fara að greiða af láninu sem er andstætt höfuðtilgangi óverðtryggðra lána sem er sá að vera að gera lántakanda algerlega ljóst hvað hann er að fara að borga mikið hverju sinni. Greinina má lesa á vef BSRB eða hér í greinasafninu.

20. september 2011

Velferđarráđherra deilir áhyggjum af launamun kynjanna

Velferðarráðherra ásamt framkvæmdanefnd BSRB og starfsmönnumÁ vef BSRB er sagt frá því að Guðbjartur Hannesson, ráðherra velferðarmála, hafi komið á fund framkvæmdanefndar BSRB í gær. Á fundinum var m.a. rætt um um kynbundin launamun, fæðingarorlof, velferðarkerfið og fjárlagagerðina sem framundan er.

Framkvæmdanefnd BSRB mun m.a. hafa lýst áhyggjum sínum af óútskýrðum launamun kynjanna sem m.a. birtist í nýrri launakönnun sem gerð var á vegum SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Ráðherra deildi þessum áhyggjum og rætt var um hugsanlegar ástæður fyrir þessum óútskýra launamun og hvað mætti gera til að uppræta hann.

17. september 2011

Launakönnun SFR stéttarfélags í almannaţjónustu

SFR stéttarfélag í almannaþjónustu birtir nú niðurstöður nýrrar launakönnunar sem unnin er samhliða launakönnun VR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.  Hér er um að ræða eina viðamesta könnun landsins á vinnuumhverfi í íslenskum stofnunum og fyrirtækjum, sem framkvæmd er í febrúar árlega. . 

Niðurstöður launakönnunarinnar sýna m.a. að yfir 60% starfsmanna eru óánægðir með laun sín, launamunur kynjanna eykst, laun starfsfólks á almennum markaði hækka meir en opinberra starfsmanna auk þess sem fjárhagsleg staða heimila þeirra síðarnefndu er  mun lakari en annarra. Könnunina má skoða hér á heimasíðunni auk þess sem henni er ítarlega gerð skil í  Blaði stéttarfélaganna sem dreift verður á mánudag.

16. september 2011

Launakönnun - Gott ađ vita

SFR-StRv-september-2011-LOKBlað stéttarfélaganna er nú í prentun og verður dreift til félagsmanna SFR og St.Rv. strax eftir helgi. Í blaðinu er að finna niðurstöður glænýrrar launakönnunar félaganna og ítarlegum upplýsingum um hana. Þá er þar einnig dagskrá Gott að vita námskeiðanna ásamt spennandi greinum um jafnréttis- og símenntunarmál svo eitthvað sé nefnt. Blaðinu er dreift í yfir 13 þúsund eintökum til félagsmanna SFR og St.Rv. um land allt ásamt og til fjölda stofnana og fyrirtækja.

14. september 2011

Trúnađarmannafrćđsla

Fyrsta trúnaðarmannanámskeið vetrarins verður haldið í næstu viku, dagana 21. - 23. september. Námskeiðið er haldið af Félagsmálaskóla alþýðu og er það fyrsta af sjö fyrir alla talsmenn stéttarfélaga og eru nýir trúnaðarmenn sérstaklegahvattir til að nýta sér námskeiðið.

6. september 2011

Skrifađ undir átakiđ „Nám er vinnandi vegur“

Nam-er-vinnandi-vegur-2011_1004728528Á vef BSRB kemur fram að ráðherrar velferðar- og menntamála ásamt fulltrúum háskóla og Vinnumálastofnunar skrifuðu í dag undir samkomulag um átakið „Nám er vinnandi vegur" við formlega athöfn í HÍ. Fjármögnun átaksins var tryggð með samráði ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins í tengslum við gerð kjarasamninga síðastliðið vor.  Árangur átaksins fram til þessa var einnig kynntur fyrir viðstöddum og þar kom m.a. fram í máli Svandísar Svavarsdóttur, starfandi menntamálaráðherra, að meira en 1000 manns sem áður höfðu verið án atvinnu hefðu nú hafið nám á hinum ýmsu stigum.

1. september 2011

Kosiđ í félagsráđ

trunmannasept-2011-2Nú stendur yfir trúnaðarmannaráðsfundur SFR, Á fundinum hélt Eyþór Eðvarðsson frá Þekkingarmiðlun erindi um hlutverk trúnaðarmanna, samskipta- og leiðtogafærni, samvinnu og traust. Þá verður farið stuttlega yfir kjarasamninga og Sigurlaug Gröndal frá Félagsmálaskóli alþýðu kynnir trúnaðarmannafræðsluna í vetur. Á fundinum verður einnig kosið í félagsráð.


Slóđin ţín:

Fréttir