Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

29. desember 2011

Lćkkun á iđgjaldi í séreignarlífeyrissparnađ

Logo LSRFrá og með næstu áramótum mun frádráttarbært iðgjald launþega í séreignarlífeyrissparnað lækka úr 4% í 2% af heildarlaunum.  Launþegar munu ekki þurfa að breyta núgildandi samningum um séreignarsparnað heldur ber launagreiðendum að tryggja að iðgjaldið lækki niður í 2%.

28. desember 2011

Áramót í sveitinni

1336210_sparkler_1Ert þú ein/n af þeim sem gætu hugsað sér að flýja lætin í borg og bæjum yfir áramót? Enn eru nokkur orlofshús laus, m.a. á Eiðum, Ólafsfirði, Munaðarnesi og í Vestmannaeyjum. Þeim sem vilja fara enn lengra má benda á að nýja íbúðin í Kaupmannahöfn er einnig laus um áramót. Kíktu inn á bókunarvefinn.

27. desember 2011

BSRB krefst sambćrilegra leiđréttinga á launum

Á vef BSRB kemur fram að Bandalag starfsmanna ríkis og bæja telur þá ákvörðun kjararáðs að draga til baka launalækkanir hjá ráðherrum, þingmönnum og embættismönnum einnig hljóta að vera fordæmisgefandi fyrir félagsmenn BSRB.

21. desember 2011

Rafrćnar jólakveđjur

Kort2011_piparkokurSFR ákvað í ár að senda engin jólakort heldur einungis rafrænar jólakveðjur. Þess í stað hefur SFR hins vegar stutt nokkur góð málefni í tilefni hátíðanna.

19. desember 2011

Barnabćtur hafa rýrnađ

Barnabætur hafa rýrnað um tuttugu prósent miðað við verðlag síðustu þriggja ára, segir hagfræðingur BSRB, Hilmar Ögmundsson. Þetta kemur fram á vef BSRB en einnig var fjallað ítarlega um málið í fréttum RÚV í gærkvöld. Þar kom m.a. fram að lágmarkslaun hafa hækkað á síðustu árum en ekki frítekjumark vegna barnabóta og því hafi bætur til foreldra á lágmarsklaunum farið minnkandi.

15. desember 2011

Jólablađ í prentun

forsida-blad-des-2011Blað stéttarfélaganna sem gefið er út af SFR og St.Rv. er nú í prentun og ætti að berast félagsmönnum fyrir jól. Efni blaðsins er fjölbreytt að venju. Þar má m.a. finna viðtal við Gissur Pétursson forstjóra Vinnumálastofnunar, grein um nýsköpun í opinberum rekstri, jólabókahugleiðingu eftir Úlfhildi Dagsdóttur, heimsókn til trúnaðarmanna á Landspítalanum og margt fleira.

15. desember 2011

Jólandinn ríkjandi á jólafundi LSFR

LSFR_jol5Lífeyrisþegadeild SFR hélt sinn árlega hátíðar jólafund fös. 9. des. Boðið var upp á heitt súkkulaði ásamt flatbrauði og bakkelsi. Til skemmtunar var hljóðfæra-leikur, en það var Ólafur Ólafsson sem sá um píanóleik og dóttir hans Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sóprankona sem sá um söng. Einnig var Kristján Búason með hugleiðingu um fyrirgefninguna og happdrættið var á sínum stað.

14. desember 2011

Í bústađ fyrir jól !

Þeir sem höfðu hugsað sér að fara í bústað síðustu dagana fyrir jól geta tekið gleði sína, því um helgina er m.a. laust í orlofshúsum SFR á Eiðum, í Vaðnesi, Munaðarnesi, á Arnarstapa og Ólafsfirði. Kíkið inn á orlofsvefinn og bókið sjálf.

14. desember 2011

Jólagjöf trúnađarmanna

jolagjof-trunoEins og venja er gefur SFR trúnaðarmönnum sínum jólagjöf. Í ár verður hún ekki send í pósti heldur eru þeir trúnaðarmenn sem ekki komust á jólafundinn vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skrifstofu félagsins.

13. desember 2011

Styrktar- og sjúkrasjóđur

Næsti fundur hjá Styrktar og sjúkrasjóði SFR verður á fimmtudaginn 15. desember kl. 12:00.

13. desember 2011

Jólafundur trúnađarmanna

trunadarmannafundur-des3Glatt var á hjalla á jólafundi trúnaðarmanna í gær. Þar lásu rithöfundarnir Hallgrímur Helgason og Oddný Eir Ævarsdóttir upp úr verkum sínum og höfu fundarmenn mikil skemmtun af.  Þá hélt Þórhildur Þóhallsdóttir afar fróðlegt og meinfyndið erindi um "kynslóðabil og önnur bil í samskiptum fólks. Boðið var upp á heitt súkkulaði og kökur og síðan tóku trúnaðarmenn við jólagjöf frá félaginu. SFR þakkar öllum trúnaðarmönnum fyrir vel unnin störf á árinu og óskar þeim og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla.

9. desember 2011

Fordćmisgefandi dómur í máli félagsmanns SFR

Í gær féll dómur Hæstaréttar í máli félagsmanns SFR gegn Isavia ohf. Hæstiréttur snéri niðurstöðu héraðsdóms Reykjaness frá 9. febrúar 2011, en áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar í apríl síðast liðnum og krafðist þess að stefnda verði gert að greiða sér rúmar 9 millj. króna með dráttarvöxtum auk málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti.

7. desember 2011

Gönguklúbbur LSFR lét ekki frosthörkur aftra sér í dag

2011_des_gongukl_LSFR-LLífeyrisþegadeild SFR heldur úti gönguhóp sem hittist á miðvikudögum kl. 10:30. Þrátt fyrir frost upp 7°C  samkvæmt Veðurstofunni þá tóku þau sinn hring í dag að venju. Öll voru þau þó sammála því að heita súkkulaðið sem tengiliður deildarinnar hjá SFR, Jóhanna Þórdórsdóttir, færði þeim í Laugardalinn á Cafe Flóru hefði yljað þeim. 

7. desember 2011

Ađventan í orlofshúsi

Nokkur orlofshús og íbúðir eru laus á eftirfarandi stöðum um helgina; Eiðum, Munaðarnesi, Vaðnesi, H'usafelli, Ólafsfirði, Reykjavík og Vestmannaeyjum. Bókanir fara fram á vefnum.

5. desember 2011

Trúnađarmenn frćđast

trunadarmannafr-nov2011Þriggja daga trúnaðarmannanámskeið SFR og St.Rv. var haldið í síðustu viku. Hópur nýrra og eldri trúnaðarmanna beggja félaga  tóku þátt og gerðu að námskeiðinu góðan róm.  Meðal þess sem farið var yfir á námskeiðinu var kynning á félögunum og lífeyrissjóðunum, þjálfun í kjarasamningum og leiðtogaþjálfun sem þau Þórkatla Aðalsteinsdóttir og Einar Gylfi Jónsson sáu um. Að öðru leyti er kennsla í höndum starfsmanna félaganna.

1. desember 2011

Jólastemmning

adventan1

Góð stemmning ríkti í Félagamiðstöðinni Grettisgötu í fyrrakvöld þegar rithöfundarnir Jón Kalman Stefánsson og Sigríður Víðis Jónsdóttir lásu upp úr bókum sínum. Það voru Menningar- og skemmtinefndir SFR og St.Rv. sem stóðu fyrir viðburðinum og boðið var upp á heitt súkkulaði og smákökur.


Slóđin ţín:

Fréttir