Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

31. janúar 2011

SFR blaðið á leið til félagsmanna

sfr-blað-forsida-januar-201SFR blaðið mun berast félagsmönnum á næstu dögum. Þar má meðal annars finna upplýsingar um öll námskeið Gott að vita, sem boðið verður upp á nú á vorönninni. Þau eru félagsmönnum að kostnaðarlausu og mun verða opnað fyrir skráningu kl. 9:00 á miðvikudaginn 2. feb. Þá er að finna í blaðinu upplýsingar um páskaúthlutun orlofshúsa SFR.

31. janúar 2011

Jafnréttisþing 2011

jafnrettisþingÍ samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla boða velferðarráðherra og Jafnréttisráð til jafnréttisþings 4. febrúar næstkomandi að Nordica Hilton Reykjavík kl. 9 til 16.  Þingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis.

31. janúar 2011

Vinna við könunina Stofnun ársins 2011 hafin

umferdarstofaVinna við könnunina Stofnun ársins 2011 er komin í fullan gang. Um þessar mundir er verið að hringja í félagsmenn og bjóða þeim að taka þátt í könnuninni. Spurningalistinn verður sendur út í annarri viku febrúar. Hann fer rafrænt til þeirra sem hafa uppgefin netföng og í pósti til annarra.

28. janúar 2011

Kröfur um 18 til 24 mánaða samning

Samninganefnd SFR og samninganefnd ríkisins funduðu í gær. Einn af áhersluþáttur SFR sem félagið lagði fram er að samningar verði gerðir til 18 til 24 mánaða. Með þeim hætti væri hægt að vinna að nauðsynlegum stöðugleika til hæfilegs tíma, en binda kjarasamninga ekki of langt inn í framtíðina í því óvissa ástandi sem nú ríkir í rekstrarumhverfi ríkisins. Einnig telur samninganefnd SFR það ekki þjóna hagsmunum launþega að gera skemmri samninga en til 18 mánaða.

28. janúar 2011

Laus hús um helgina

Vadnes-vinnuferd4Nokkur orlofshús SFR að Eiðum, í Munaðarnesi og í Vaðnesi eru laus um helgina. Þeir sem vilja eiga notalega stund með fjölskyldu og vinum fjarri skarkala borgar og bæja er bent á bókunarvef félagsins.

28. janúar 2011

Ráðstefna um kynjaða hagstjórn

Jafnrétti merkiJafnréttisstofa býður til ráðstefnu um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð mánudaginn 14. febrúar kl. 13:00 á Hilton Hótel Nordica. Ráðstefnan ber yfirskriftina Nýir tímar - breytt hagstjórn. Aðal fyrirlesari verður Diane Elson einn helsti sérfræðingur heims á þessu sviði auk þess mun verkefnastjórn um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð kynna starf sitt og tvö tilraunaverkefni á hennar vegum verða kynnt. Sjá nánar.

25. janúar 2011

BSRB fundar með ráðherrum

Forsvarsmenn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja funda með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra í fyrramálið. Þar verður ráðherrum kynntar þær kröfur sem bandalagið leggur áherslu á í komandi kjarasamningum.

24. janúar 2011

Væri ekki nokkuð til vinnandi?

Þórarinn Eyfjörð framkvæmdastjóri SFR"Það liggur í augum uppi að ríkið á að bjóða upp á öfluga þjálfun fyrir stjórnendur sína á sviði starfsmannastjórnunar og mannauðsmála. Þó ekki væri nema fyrir það að með þjálfun stjórnenda á þessu sviði væri ríkið að tryggja eftir bestu getu að það sjálft verði eftirsóttur atvinnuveitandi, sem þekktur væri af framsækni, árangri í rekstri og góðum vinnuanda."

Þetta segir Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR í grein sem birtist í Fréttablaðinu um helgina.

21. janúar 2011

Ekkert sem heitir „við" og „þið"

Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRBHelga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB ritar grein í Fréttablaðinu í dag þar sem hún bregst við ályktun Ríkisendurskoðunar um að einfalda þurfi uppsagnarferli opinberra starfsmanna. Í greininni segir hún m.a. að opinber stjórnsýsla sé okkar allra. "Hún er tækið sem við höfum til að reka samfélagið. Um það tæki verða að gilda skýrar reglur og gagnsæjar, ráða verður faglega í stöður og nýta þarf starfsmannamat. Hvað opinbera stjórnsýslu varðar er ekkert sem heitir „við" og „þið". Fólkið í henni er af heilindum að vinna að betri umgjörð um lýðræðislegt stjórnkerfi þjóðarinnar." Greinina í heild sinni má lesa hér.

20. janúar 2011

Laus orlofshús um helgina

Vaðnes 2010 vinnuferð7Nokkur orlofshús SFR eru laus um næstu helgi í Munaðarnesi, Húsafelli, Vaðnesi, á  Eiðum og Arnarstapa Snæfellsnesi. Auk þess er íbúðin okkar í Kaupmannahöfn laus um næstu helgi. Bókið beint á orlofsvefnum hér.

19. janúar 2011

Stjórnendur eru vandamálið

"Þekkingarskortur yfirmanna hjá ríkinu á mannauðsmálum er aðalvandamálið en ekki flókin lög um málsmeðferð við uppsagnir ríkisstarfsmanna." Þetta segir Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR í viðtali við mbl.is í dag.

Ríkisendurskoðun leggur til að lögin verði einfölduð og ákvæði um áminningu endurskoðuð. „Það er trú þessara forstöðumanna að stórum hluta að ef þeir hefðu heimild til að reka fólk á morgun og ráða nýtt inn í staðinn þá trúa þeir því að þeir gætu veitt betri þjónustu. Þetta er það alvitlausasta sem maður hefur heyrt og lýsir fyrst og fremst vankunnáttu þeirra,“ segir Þórarinn.

19. janúar 2011

Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað!

Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar er lagt til að málsmeðferð við uppsögn ríkisstarfsmanna verði einfölduð og ákvæði starfsmannalaga um áminningu verði endurskoðað. Lagt er til að áminningarskyldan verði felld brott þar sem sú regla tryggi opinberum starfsmönnum meira starfsöryggi en öðrum. Haft er eftir Helgu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra BSRB á Eyjunni í dagð að það sé ekki áminningarferlið sem sé íþyngjandi heldur sé það til staðar svo tryggja megi vandaðri stjórnsýslu. Stjórnendur séu ekki að nýta sér þau tæki sem þeir hafi yfir að ráða.

19. janúar 2011

SFR óskar eftir orlofsbúð á vesturlandi

SFR stéttarfélag óskar eftir að taka á leigu íbúð, einbýli eða orlofshús fyrir félagsmenn sína næsta sumar (júní, júlí og ágúst 2011). Íbúðin eða húsið þarf að vera fullfrágengið að utan og innan og fullbúið með húsgögnum og almennum búnaði. Sérstaklega er óskað eftir húsum í Stykkishólmi,  Ólafsvík eða Flatey. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda greinargóða lýsingu ásamt myndum á netfangið dora@sfr.is

19. janúar 2011

Mikilvægt að óvissu sé eytt

Á heimasíðu BSRB kemur fram að Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, telur nú vera lag að ná kjarasamningum sem séu þjóðinni til heilla. Í grein sem hún birti í Fréttablaðinu á síðast liðinn mánudag segir hún mikilvægt að semja sem fyrst.

14. janúar 2011

Nám fyrir trúnaðarmenn - skráning stendur yfir

Trm_fundur_nov2010_a_litilVilt þú efla færni þína til að vinna af fagmennsku sem trúnaðarmaður á vinnustað? Eða kannski efla samskiptafærni þína og færni til að vinna skipulega? Þá átt þú erindi í trúnaðarmannafræðslu BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu. Námið er í sjö þrepum og má meta til allt að 11 einingum á framhaldsskólastigi.

13. janúar 2011

Opinberir starfsmenn vilja fjölskylduvænna samfélag

Í samtali við Fréttablaðið í dag segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB að með styttri vinnuviku skapist fjölskylduvænna samfélag. Þetta segir á vef BSRB, en opinberir starfsmenn með Bandalagið í brjósti fylkingar berjast fyrir styttingu vinnuvikunnar í 36 stundir í dagvinnu til að skapa fjölskylduvænna vinnuumhverfi.

13. janúar 2011

Fjölbreytt úrval námskeiða

Starfsmennt-fiskarNýr námsvísir Fræðslusetursins Starfsmenntar er kominn út. Þar er að finna námsleiðir sem í boði eru vorið 2011. Fjölbreytt úrval starfstengdra námsleiða og margskonar mannauðsþjónustu er þar í boði fyrir opinbera starfsmenn. Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér efni námsvísisins, en hann má m.a. nálgast hér.

12. janúar 2011

Samstarf eflt til hagsbóta fyrir lífeyrisþega

Á vef BSRB kemur fram að í samkomulagi ríkisstjórnar Íslands og Landssambands lífeyrissjóða um víxlverkum bóta að samstarf Tryggingarstofnunar ríkisins og lífeyrssjóðanna verði eflt til einföldunar og hagsbóta fyrir lílfeyrisþega. Þá er stefnt að því að fundin verði lausn til framtíðar á víxlverkun bóta almannatrygginga og lífeyrissjóðanna. Þetta er þetta í fullu í samræmi við baráttumál BSRB, sem meðal annars má sjá stað í samþykktum 42. þings bandalagsins.

11. janúar 2011

SFR opnar nýjan vef

Trunmannarad-jan-2011-4Á trúnaðarmannafundi í dag var opnaður nýr vefur félagsins. Unnið hefur verið að breytingum og endurbótum á vefnum undanfarnar vikur og er það von skrifstofu SFR að nýi vefurinn muni þjóna félagsmönnum vel. Auk þess var á fundinum fjallað um leigumarkaðinn á Íslandi og Gísli Örn Bjarnhéðinsson framkvæmdastjóri Búseta kynnti félagið.

4. janúar 2011

Laust í orlofshús SFR

Vaðnes - myrkurHvað getur verið meira tilvalið en að hefja nýtt ár með hollari lífsstíl út í náttúrunni miðri? Það vill svo til að þess dagana og nokkrar helgar framundan eru óvenju mörg orlofshús laus hjá félaginu. Til að bóka þarf einfaldlega að fara inn á Orlofsvefinn og þaðan á bókunarvefinn.   

4. janúar 2011

Starfslokanámskeið

Næsta starfslokanámskeið á höfuðborgarsvæðinu verður haldið nú í lok janúar. Félagsmálaskóli alþýðu stendur fyrir námskeiðinu, sem verður haldið haldið dagana 31. janúar til 2. febrúar. Námskeiðið verður frá kl. 16.30 til kl. 19.00 hvert kvöld og er haldið í húsnæði BSRB Grettisgötu 89, 1. hæð. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum í BSRB sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og mökum þeirra.
Sjá nánar á vef BSRB. 


Slóðin þín:

Fréttir