Fréttir
29. desember 2011
Lćkkun á iđgjaldi í séreignarlífeyrissparnađ
Frá og með næstu áramótum mun frádráttarbært iðgjald launþega í séreignarlífeyrissparnað lækka úr 4% í 2% af heildarlaunum. Launþegar munu ekki þurfa að breyta núgildandi samningum um séreignarsparnað heldur ber launagreiðendum að tryggja að iðgjaldið lækki niður í 2%.
28. desember 2011
Áramót í sveitinni
Ert þú ein/n af þeim sem gætu hugsað sér að flýja lætin í borg og bæjum yfir áramót? Enn eru nokkur orlofshús laus, m.a. á Eiðum, Ólafsfirði, Munaðarnesi og í Vestmannaeyjum. Þeim sem vilja fara enn lengra má benda á að nýja íbúðin í Kaupmannahöfn er einnig laus um áramót. Kíktu inn á bókunarvefinn.
27. desember 2011
BSRB krefst sambćrilegra leiđréttinga á launum
Á vef BSRB kemur fram að Bandalag starfsmanna ríkis og bæja telur þá ákvörðun kjararáðs að draga til baka launalækkanir hjá ráðherrum, þingmönnum og embættismönnum einnig hljóta að vera fordæmisgefandi fyrir félagsmenn BSRB.
21. desember 2011
Rafrćnar jólakveđjur
SFR ákvað í ár að senda engin jólakort heldur einungis rafrænar jólakveðjur. Þess í stað hefur SFR hins vegar stutt nokkur góð málefni í tilefni hátíðanna.
19. desember 2011
Barnabćtur hafa rýrnađ
Barnabætur hafa rýrnað um tuttugu prósent miðað við verðlag síðustu þriggja ára, segir hagfræðingur BSRB, Hilmar Ögmundsson. Þetta kemur fram á vef BSRB en einnig var fjallað ítarlega um málið í fréttum RÚV í gærkvöld. Þar kom m.a. fram að lágmarkslaun hafa hækkað á síðustu árum en ekki frítekjumark vegna barnabóta og því hafi bætur til foreldra á lágmarsklaunum farið minnkandi.
15. desember 2011
Jólablađ í prentun
Blað stéttarfélaganna sem gefið er út af SFR og St.Rv. er nú í prentun og ætti að berast félagsmönnum fyrir jól. Efni blaðsins er fjölbreytt að venju. Þar má m.a. finna viðtal við Gissur Pétursson forstjóra Vinnumálastofnunar, grein um nýsköpun í opinberum rekstri, jólabókahugleiðingu eftir Úlfhildi Dagsdóttur, heimsókn til trúnaðarmanna á Landspítalanum og margt fleira.
15. desember 2011
Jólandinn ríkjandi á jólafundi LSFR
Lífeyrisþegadeild SFR hélt sinn árlega hátíðar jólafund fös. 9. des. Boðið var upp á heitt súkkulaði ásamt flatbrauði og bakkelsi. Til skemmtunar var hljóðfæra-leikur, en það var Ólafur Ólafsson sem sá um píanóleik og dóttir hans Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sóprankona sem sá um söng. Einnig var Kristján Búason með hugleiðingu um fyrirgefninguna og happdrættið var á sínum stað.
14. desember 2011
Í bústađ fyrir jól !
Þeir sem höfðu hugsað sér að fara í bústað síðustu dagana fyrir jól geta tekið gleði sína, því um helgina er m.a. laust í orlofshúsum SFR á Eiðum, í Vaðnesi, Munaðarnesi, á Arnarstapa og Ólafsfirði. Kíkið inn á orlofsvefinn og bókið sjálf.
14. desember 2011
Jólagjöf trúnađarmanna
Eins og venja er gefur SFR trúnaðarmönnum sínum jólagjöf. Í ár verður hún ekki send í pósti heldur eru þeir trúnaðarmenn sem ekki komust á jólafundinn vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skrifstofu félagsins.
13. desember 2011
Styrktar- og sjúkrasjóđur
Næsti fundur hjá Styrktar og sjúkrasjóði SFR verður á fimmtudaginn 15. desember kl. 12:00.
13. desember 2011
Jólafundur trúnađarmanna
Glatt var á hjalla á jólafundi trúnaðarmanna í gær. Þar lásu rithöfundarnir Hallgrímur Helgason og Oddný Eir Ævarsdóttir upp úr verkum sínum og höfu fundarmenn mikil skemmtun af. Þá hélt Þórhildur Þóhallsdóttir afar fróðlegt og meinfyndið erindi um "kynslóðabil og önnur bil í samskiptum fólks. Boðið var upp á heitt súkkulaði og kökur og síðan tóku trúnaðarmenn við jólagjöf frá félaginu. SFR þakkar öllum trúnaðarmönnum fyrir vel unnin störf á árinu og óskar þeim og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla.
9. desember 2011
Fordćmisgefandi dómur í máli félagsmanns SFR
Í gær féll dómur Hæstaréttar í máli félagsmanns SFR gegn Isavia ohf. Hæstiréttur snéri niðurstöðu héraðsdóms Reykjaness frá 9. febrúar 2011, en áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar í apríl síðast liðnum og krafðist þess að stefnda verði gert að greiða sér rúmar 9 millj. króna með dráttarvöxtum auk málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti.
7. desember 2011
Gönguklúbbur LSFR lét ekki frosthörkur aftra sér í dag
Lífeyrisþegadeild SFR heldur úti gönguhóp sem hittist á miðvikudögum kl. 10:30. Þrátt fyrir frost upp 7°C samkvæmt Veðurstofunni þá tóku þau sinn hring í dag að venju. Öll voru þau þó sammála því að heita súkkulaðið sem tengiliður deildarinnar hjá SFR, Jóhanna Þórdórsdóttir, færði þeim í Laugardalinn á Cafe Flóru hefði yljað þeim.
7. desember 2011
Ađventan í orlofshúsi
Nokkur orlofshús og íbúðir eru laus á eftirfarandi stöðum um helgina; Eiðum, Munaðarnesi, Vaðnesi, H'usafelli, Ólafsfirði, Reykjavík og Vestmannaeyjum. Bókanir fara fram á vefnum.
5. desember 2011
Trúnađarmenn frćđast
Þriggja daga trúnaðarmannanámskeið SFR og St.Rv. var haldið í síðustu viku. Hópur nýrra og eldri trúnaðarmanna beggja félaga tóku þátt og gerðu að námskeiðinu góðan róm. Meðal þess sem farið var yfir á námskeiðinu var kynning á félögunum og lífeyrissjóðunum, þjálfun í kjarasamningum og leiðtogaþjálfun sem þau Þórkatla Aðalsteinsdóttir og Einar Gylfi Jónsson sáu um. Að öðru leyti er kennsla í höndum starfsmanna félaganna.
1. desember 2011
Jólastemmning

Góð stemmning ríkti í Félagamiðstöðinni Grettisgötu í fyrrakvöld þegar rithöfundarnir Jón Kalman Stefánsson og Sigríður Víðis Jónsdóttir lásu upp úr bókum sínum. Það voru Menningar- og skemmtinefndir SFR og St.Rv. sem stóðu fyrir viðburðinum og boðið var upp á heitt súkkulaði og smákökur.
30. nóvember 2011
Austurland sótt heim
Formaður SFR, Árni Stefán Jónsson og Alma Lísa Jóhannsdóttir áttu góðan dag á austurlandi í vikunni. Dagurinn hófst með fundi hjá Ríkisskattstjóra á Egilstöðum og síðan var fundað með starfsmönnum innan málefna fatlaðra hjá Fljótsdalshéraði. Farið var yfir stöðuna eftir flutning málaflokksins.
29. nóvember 2011
Ađventukvöld

Þann 30. nóvember næstkomandi kl. 20 standa Menningar- og skemmtinefndir SFR og St.Rv. fyrir jólakaffi fyrir félagsmenn sína, þar sem lesið verður upp úr tveimur nýjum bókum. Boðið verður upp á smákökur og heitt súkkulaði og rithöfundarnir Sigríður Víðis Jónsdóttir og Jón Kalman Stefánsson koma og lesa upp úr bókum sínum.
28. nóvember 2011
Síđustu forvöđ ! Jólahlađborđ LSFR
Nú eru að verða síðustu forvöð að skrá sig í jólahlaðborð Hótel Arkar fyrir félaga í LSFR, 30 nóvember næstkomandi en fresturinn rennur út á hádegi á morgun 29. nóv. Nokkur pláss eru enn laus, en jólahlaðborðið, gisting og morgunverður kostar kr. 8.500 á mann í tveggja manna herbergi. Aukagjald í einbýli kr. 4.000. Skráning hér
25. nóvember 2011
Snjókast í heita pottinum?
Nú er tíminn til að fara í bústað. Um helgina er laust á Eiðum, Ólafsfirði, í Munaðarnesi ,Vaðnesi og Þúfukoti. Bókanir á vefnum.
21. nóvember 2011
Opinn fundur um verđtryggingu
BSRB efnir til opins fundar um verðtryggingu, miðvikudaginn 23. nóvember kl. 12:00 - 13:20, í BSRB-húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um verðtryggð og óverðtryggð lán, kosti og galla verðtryggingarinnar og hvort raunhæft sé að afnema hana í náinni framtíð.
17. nóvember 2011
Trúnađarmannaráđ fundar
Trúnaðarmannaráð hélt fund í gær, en ráðið fundar mánaðarlega yfir vetrartímann. Til stóð að fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon yrði gestur fundarins en hann forfallaðist á síðustu stundu vegna anna á alþingi. Trúnaðarmenn héldu hins vegar sínu striki og var fundurinn í gær afar góður.
17. nóvember 2011
Uppstillinganefnd vegna stjórnarkosninga á ađalfundi 2012
Uppstillinganefnd auglýsir eftir framboðum og / eða tillögum um félagsmenn í stjórnir. Hlutverk uppstillinganefndar er að leggja fram tillögur um formann og stjórn SFR, auk stjórna orlofssjóðs, starfsmenntunarsjóðs, styrktar- og sjúkrasjóðs, vinnudeilusjóðs, kjörstjórn, ásamt tillögu um félagslega endurskoðendur og endurskoðanda.
17. nóvember 2011
Langar ţig í orlofshús um helgina?
Orlofhús SFR á Eiðum, Akureyri, Vestmannaeyjum og í Munaðarnesi eru laus um helgina. Bókanir á Orlofsvefnum.
11. nóvember 2011
Tengslanet trúnađarmanna funda
Tengslanet um allt land hafa fundað undanfarnar vikur. Í dag var komið að tengslaneti trúnaðarmanna í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði sem fundaði í hádeginu í dag á Grettisgötunni. Í þeim hópi voru nokkrir nýir trúnaðarmenn en rætt var m.a. um hlutverk trúnaðarmanna, tengslanetið og mannauðsmál ríkisins.
11. nóvember 2011
Nýr stofnanasamningur viđ Ríkisskattstjóra
Í dag var undirritaður nýr stofnanasamningur við Ríkisskattstjóra. Samningurinn leysir af hólmi fyrri stofnanasamninga við Ríkisskattstjóra, skattstofurnar og Skattstjórann í Reykjanesumdæmi, en þann 1. janúar 2010 voru skattstofurnar sameinaðar undir Ríkisskattstjóra. Þetta er fyrsti stofnanasamningur á milli SFR og sameinaðrar stofnunar.
10. nóvember 2011
Félagsleg samheldni margborgar sig
Fram kemur á heimasíðu BSRB að Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB skrifar grein í Fréttablaðið í dag undir yfirskriftinni „Félagsleg samheldni skilar meiru en einstaklingshyggja". Þar fjallar hún m.a. um velferðarkerfið og skatta með hliðsjón af því sem Torben M. Andersen, sérstakur gestur á aðalfundi BSRB sagði í erindi sínu þar.
10. nóvember 2011
Vetrarkyrrđ í bústađ
Er ekki ráð að skella sér í bústað og njóta vetrarkyrrðarinnar, og jafnvel hefja jólaföndrið? Nú um helgina eru laus hús bæði í Munaðarnesi og á Eiðum. Fyrstir bóka fyrstir fá - á bókunarvefnum.
9. nóvember 2011
Ljósmyndarar verđlaunađir
Nokkrir vinningshafar í ljósmyndasamkeppni Blaðs stéttarfélaganna komu á skrifstofur félaganna í gær og tóku við verðlaunum sínum. Félögin óska þeim innilega til hamingju með árangurinn. Um 100 ljósmyndir bárust í keppnina og er öllum þeim sem sendu inn myndir þökkuð þátttakan. Á myndinni má sjá þau; Árna Stefán Jónsson, formann SFR, Mary Þorsteinsdóttur, Berglindi Hansen og með henni er Sebastian Tumi, Joanna M. Szczepankiewicz, Anna Gunnhildur Ólafsdóttir og Garðar Hilmarsson, formaður St.Rv.
4. nóvember 2011
Ţjóđarsáttmáli um baráttu gegn einelti
Á vef BSRB kemur fram að verkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að standa að sérstökum degi gegn einelti 8. nóvember 2011. Verkefnisstjórnin samanstendur af fulltrúum fjármálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis, og er hún skipuð í kjölfarið á útgáfu „Greinargerðar um mögulegar aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum" sem kom út í júní 2010.
3. nóvember 2011
Langar ţig í bústađ um helgina?
Nokkur orlofshús eru laus um helgina; á Eiðum, í Munðarnesi og einnig er íbúðin í Vestmannaeyjum laus. Hægt er að bóka hér á vefnum.
28. október 2011
Vinnustađafundir á Akureyri
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR og Alma Lísa Jóhannsdóttir eru nú á Akureyri að funda með trúnaðarmönnum og heimsækja vinnustaði. Þau voru í morgun í Háskólanum á Akureyri og hittu þar félagsmenn. Þar var góður tónn í fólki og margt rætt. Eftir hádegið heimsækja þau skrifstofur Ríkisskattstjóra á Akureyri.
26. október 2011
Launamunur og ljósmyndir
Þess er senn að vænta að Blað stéttarfélaganna detti inn um lúgur félagsmanna. Blaðið er að venju sneisafullt af efni, þar er m.a. farið ítarlegar í launamun kynjanna sem birtist í launakönnun SFR og St.Rv. í haust, viðtal við Elínu Björgu Jónsdóttur, nýjan formann Virk, fjallað er um símenntun eldri starfsmenna þ.e. 45 ára og eldri og síðast en ekki síst má skoða verðlaunamyndirnar úr ljósmyndasamkeppni Blaðsins, en alls bárust um 100 myndir í keppnina.
26. október 2011
Velferđarkerfiđ rćtt á ađalfundi BSRB
Torben M. Andersen, prófessor við hagfræðideild Árósarháskóla, var gestur á aðalfundi BSRB og hélt þar erindi um velferðarkerfi Norðurlandanna. Á heimasíðu bandalagsins má lesa örstutta samantekt um efni erindisins.
25. október 2011
SFR á Vestfjörđum
Árni Stefán Jónsson formaður SFR og Alma Lísa Jóhannsdóttir funduðu með trúnaðarmönnum á Vestfjörðum í dag. Ýmis málefni voru rædd s.s. launakönnun, kjarasamningar, stofnanasamningar, fundir trúnaðarmannaráðs, Stofnun ársins, aðstæður trúnaðarmanna á landsbyggðinni og sitthvað fleira. Þá áttu formaðurinn og Alma einnig góðan fund með félagsmönnum SFR innan málefna fatlaðra sem starfa hjá Ísafjarðarbæ, hjá Ríkisskattstjóra og Sýslumannsembættinu í dag.
20. október 2011
Útrýmum kynbundnum launamun
Í tilefni af 24. október, kvennafrídeginum, hvetur SFR félagskonur sérstaklega til að óska eftir launaviðtali og að afneita launaleynd, en konur eru 70% félagsmanna SFR. Þetta gerir félagið með því að senda öllum konum í félaginu bréf. Þar eru konur hvattar til að óska eftir launaviðtali við sinn yfirmann. Bréfið er sent í kjölfar þess að launakönnun ársins 2011 leiddi í ljós að launamunur kynjanna er að aukast eftir að hafa verið á niðurleið á árunum 2009 og 2010. Könnunin sýnir óútskýrðan kynbundinn launamun upp á 13,2%.
20. október 2011
Velferđarmál í brennidepli á ađalfundi BSRB
Aðalfundur BSRB fer fram þann 21. október næstkomandi í BSRB-húsinu að Grettisgötu 89. Torben M. Andersen, hagfræði prófessor við Árósaháskóla, verður sérstakur gestur á fundinum og verður hann með erindi frá kl. 10 að morgni og fram að hádegi. Torben hefur yfirgripsmikla þekkingu á norræna velferðarkerfinu og vonast BSRB til að sem flestir sjái sér fært að mæta og hlýða á erindið. Fundurinn er öllum opinn og verður túlkað jafnóðum á íslensku.
20. október 2011
,,ÖRUGGT VIĐHALD – ALLRA HAGUR”
Vinnuverndarvikan í ár, 24. - 28. okt., er helguð öryggi við viðhaldsvinnu og er sérstaklega horft til viðhalds véla og tækja. Slagorð vikunnar er: ,,ÖRUGGT VIÐHALD – ALLRA HAGUR”. Í vinnuverndarvikunni er kjörið tækifæri fyrir stjórnendur og starfsmenn að efla það vinnuverndarstarf sem þegar er til staðar. Fyrirtæki eru hvött til að nýta sér upplýsingar um öryggi við viðhaldsvinnu sem er að finna á heimasíðu Vinnueftirlitsins undir flipanum Vinnuverndarvikan 2011. Slóðin er: www.vinnueftirlit.is
19. október 2011
Ađgerđir gegn launamun kynjanna kynntar fyrir áramót
Á vef BSRB kemur fram að ráðherranefnd um jafnrétti kynjanna hafi á föstudag fjallað um launamun kynjanna og mögulegar aðgerðir gegn honum. Samþykkt hafi verið að skipa framkvæmdanefnd um launamun kynja sem skili ráðherranefnd tillögu að framkvæmdaáætlun með tímasettum aðgerðum fyrir árslok. Nefndin mun m.a. eiga samráð við aðila vinnumarkaðins til að vinna að því að draga úr launamun kynjanna. Auk þessa er nú unnið að gerð jafnlaunastaðals sem stefnt er að leggi fyrir á næstunni. BSRB hefur átt virkan þátt í því að koma jafnlaunastaðlinum á laggirnar en miklar vonir eru bundnar við hann.
18. október 2011
Trúnađarmannaráđ ályktar
Fundur trúnaðarmannaráðs SFR stéttarfélags í almannaþjónustu 17. október síðast liðinn mótmælir þeirri aðgerð ríkisstjórnarinnar að þrengja að skattfrelsi lífeyrisiðgjalda í séreignarlífeyrissjóði.
Almenningur hefur átt þess kost undanfarna áratugi að leggja 4% af launum sínum í séreignarlífeyrissparnað án þess að greiða af því tekjuskatt. Nú boða stjórnvöld breytingar á séreignarlífeyrissparnaðarleiðum landsmanna og mun nú einungis helmingur af sparnaðnum verða tekjuskattslaus. Á þau prósent sem eftir standa mun leggjast skattur á bæði inn- og útgreiðsluna sem þýðir í raun að um 60-70% af höfuðstól sparnaðarins munu fara í skatt.
18. október 2011
Trúnađarmannaráđ fundar
Trúnaðarmannaráð kom saman á fundi í gær (17. okt.). Margir sátu fyrirlestur hjá Sonju Þorbergsdóttur lögfræðingi BSRB um morguninn, en hún fræddi trúnaðarmenn um muninn á opinbera og almenna vinnumarkaðnum. Þá komu þeir Tómas Bjarnason og Þórhallur Ólafsson frá Capacent á fund trúnarðamannaráðs eftir hádegið og kynnti vandlega niðurstöður launakönnunar SFR. Fyrir fundinum lá tillaga um endurkjör í Félagsráð, sú tillaga var felld með miklum meirahluta. Þá var rætt stuttlega um vinnu við stofnanasamninga og vinnustaðaheimsóknir framundan voru kynntar ásamt því að trúnaðarmenn voru hvattir til þess að hafa samband við skrifstofu (Ölmu Lísu Jóhannsdóttur) ef þeir óskuðu eftir slíkri heimsókn.
18. október 2011
Bingóiđ vinsćlt - myndir
Síðast liðinn laugardag hittumst félagar úr SFR og St.Rv. og spiluðu saman bingó í Félagamiðstöðinni Grettisgötu 89. Alls mættu um 90 manns og var salurinn þétt setinn og stemningin góð eins og myndirnar sýna. Vinningarnir voru ekki af verri endanum, hótelgistingar, helgar í orlofshúsum, bækur, spil, matarkarfa og margt fleira. Það voru Menningar- og skemmtinefndir félaganna sem skipulöðgu bingóið og stýrðu því af mikilli röggsemi, en bingóstjórar voru þær Olga Gunnarsdóttir og Halldóra Ólafsdóttir.
14. október 2011
Starfsmenn á Sogni álykta um fyrirhugađan flutning
Starfsmenn á Sogni sem eru félagsmenn í SFR funduðu í dag með Árna Stefáni Jónssyni formanni SFR og Ölmu Lísa Jóhannsdóttur. Í lok fundarins ályktuðu starfsmenn vegna þeirra áforma sem uppi eru um að flytja réttargeðdeildina á Sogni að Landspítala háskólasjúkrahúsi, Kleppi. Starfsmenn draga í efa þau faglegu rök sem sögð eru að liggi að baki flutningunum og vísa m.a. í góðan árangur deildarinnar.
14. október 2011
Haustiđ í bústađ
Um helgina eru laus orlofshús á eftirfarandi stöðum; Munaðarnesi, Vaðnesi, Eiðum, Ólafsfirði og Vestmannaeyjum. Athugið að bóka þarf fyrir klukkan þrjú í dag á orlofsvefnum.
11. október 2011
1, 2, 3 og BINGÓ
Laugardaginn 15. október kl. 14 verður Bingó fyrir alla félagsmenn SFR stéttarfélags og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar að Grettisgötu 89 á 1 hæð. Glæsilegir vinningar - allir geta spilað. Öll fjölskyldan velkomin meðan húsrúm leyfir. Spjaldið kostar 250 krónur.
10. október 2011
Launamunur kynjanna - fyrirlestur
6. október 2011
Veffréttabréf Starfsmenntar október 2011
Sí- og endurmenntun er sjálfsagður hluti starfa okkar og starfsframa. Á vinnumarkaði sem tekur stöðugum breytingum, með tækninýjungum og breyttum áherslum, er mikilvægt að leggja áherslu á hverskonar starfstengda menntun til að tryggja stöðu okkar. Síðastliðin tíu ár hefur Fræðslusetrið Starfsmennt mætt starfsmönnum og stjórnendum í þessari vinnu og boðið upp á fjölbreytt úrval námskeiða, bæði þverfagleg og sérsniðin að þörfum hverrar stofnunar. Á næstu vikum fara að stað ýmis námskeið sem gefa fólki færi á að sérhæfa sig til að geta mætt aukinni ábyrgð og tekist á við flóknari verkefni í starfi. Hér í veffréttabréfinu má sjá hluta af þeim námskeiðum sem boðið er upp á.
30. september 2011
Móta ţarf heildarstefnu í mannauđsmálum ríkisins
Í nýútkominni skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis er fjallað um stefnu stjórnvalda og stöðu mannauðsmála ríkisins. Í frétt á vef Ríkisendurskoðunar kemur fram að mannauðsstjórnun hjá ríkinu er almennt ekki eins öflug og hjá einkafyrirtækjum. Ríkisendurskoðun telur að stjórnvöld þurfi að meta veikleika í mannauðsmálum ríkisins og ákveða hvernig bregðast skuli við þeim.
Þá eigi að fela starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins aukið hlutverk á þessu sviði. Mannauðsstjórnun felst m.a. í því að beita markvissum aðferðum til að efla starfsmenn og bæta frammistöðu þeirra.
27. september 2011
Orlofshús um helgina
Nokkur hús á Eiðum, í Munaðarnesi og í Húsafelli eru laus um næstu helgi. Svo þeir sem huga á haustlitaferð út í náttúruna ættu að kíkja á Orlofsvef félagsins sem fyrst.
26. september 2011
Hugleiđing um launaleynd
Eftirfarandi grein birtist í 4. tbl. Blaðs stéttarfélaganna.
Á Jafnréttisstofu fáum við símtöl frá konum sem uppgötva að eftir áralangt starf hjá vinnuveitanda hefur karl á næstu skrifstofu allt að helmingi hærri laun en þær, fyrir sama starf. Baráttan fyrir sömu launum fyrir sama starf hefur staðið í yfir 100 ár og undanfarna áratugi hefur árangurinn látið bíða eftir sér. Lög um sömu laun fyrir sömu störf voru samþykkt á Alþingi 1961 og þá var talið að það yrði frekar létt verk að jafna launin. Í dag vitum við betur.
23. september 2011
Fyrsti fundur Félagsráđs
Nú stendur yfir fyrsti fundur Félagsráðs sem kosið var 1. september síðast liðinn. Á fundinum í dag er fjallað um starfsemi og starfsáætlun SFR og Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Talnakönnunar flytur erindi um hlutverk lífeyrissjóðanna í velferðarkerfinu. Auk þess sem kosið verður í laganefnd, uppstillingarnefnd og fulltrúa í jafnréttisnefnd. Hlutverk Félagsráðs er m.a.að taka fyrir og afgreiða mál sem eru þess eðlis að ekki þurfi afgreiðslu félagsfundar eða stjórnar SFR.
21. september 2011
Afnema óverđtryggđ lán verđtrygginguna?
Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRB, skrifar grein í Fréttablaðið í dag undir yfirskriftinni: Afnema óverðtryggð lán verðtrygginguna? Þar segir hann m.a. að mikilvægt sé að tryggt verði að fjármálastofnanir geti ekki endurskoðað vexti einhliða að ákveðnum árafjölda liðnum. Á meðan fjármálastofnun geti sjö sinnum á 40 ára lánstíma endurskoðað vextina er í raun ekki verið að fjarlægja verðtrygginguna að fullu. Þannig sé lántakanda áfram haldið í óvissu um hvað hann sé í raun að fara að greiða af láninu sem er andstætt höfuðtilgangi óverðtryggðra lána sem er sá að vera að gera lántakanda algerlega ljóst hvað hann er að fara að borga mikið hverju sinni. Greinina má lesa á vef BSRB eða hér í greinasafninu.
20. september 2011
Velferđarráđherra deilir áhyggjum af launamun kynjanna
Á vef BSRB er sagt frá því að Guðbjartur Hannesson, ráðherra velferðarmála, hafi komið á fund framkvæmdanefndar BSRB í gær. Á fundinum var m.a. rætt um um kynbundin launamun, fæðingarorlof, velferðarkerfið og fjárlagagerðina sem framundan er.
Framkvæmdanefnd BSRB mun m.a. hafa lýst áhyggjum sínum af óútskýrðum launamun kynjanna sem m.a. birtist í nýrri launakönnun sem gerð var á vegum SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Ráðherra deildi þessum áhyggjum og rætt var um hugsanlegar ástæður fyrir þessum óútskýra launamun og hvað mætti gera til að uppræta hann.
17. september 2011
Launakönnun SFR stéttarfélags í almannaţjónustu
SFR stéttarfélag í almannaþjónustu birtir nú niðurstöður nýrrar launakönnunar sem unnin er samhliða launakönnun VR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Hér er um að ræða eina viðamesta könnun landsins á vinnuumhverfi í íslenskum stofnunum og fyrirtækjum, sem framkvæmd er í febrúar árlega. .
Niðurstöður launakönnunarinnar sýna m.a. að yfir 60% starfsmanna eru óánægðir með laun sín, launamunur kynjanna eykst, laun starfsfólks á almennum markaði hækka meir en opinberra starfsmanna auk þess sem fjárhagsleg staða heimila þeirra síðarnefndu er mun lakari en annarra. Könnunina má skoða hér á heimasíðunni auk þess sem henni er ítarlega gerð skil í Blaði stéttarfélaganna sem dreift verður á mánudag.
16. september 2011
Launakönnun - Gott ađ vita
Blað stéttarfélaganna er nú í prentun og verður dreift til félagsmanna SFR og St.Rv. strax eftir helgi. Í blaðinu er að finna niðurstöður glænýrrar launakönnunar félaganna og ítarlegum upplýsingum um hana. Þá er þar einnig dagskrá Gott að vita námskeiðanna ásamt spennandi greinum um jafnréttis- og símenntunarmál svo eitthvað sé nefnt. Blaðinu er dreift í yfir 13 þúsund eintökum til félagsmanna SFR og St.Rv. um land allt ásamt og til fjölda stofnana og fyrirtækja.
14. september 2011
Trúnađarmannafrćđsla
Fyrsta trúnaðarmannanámskeið vetrarins verður haldið í næstu viku, dagana 21. - 23. september. Námskeiðið er haldið af Félagsmálaskóla alþýðu og er það fyrsta af sjö fyrir alla talsmenn stéttarfélaga og eru nýir trúnaðarmenn sérstaklegahvattir til að nýta sér námskeiðið.
6. september 2011
Skrifađ undir átakiđ „Nám er vinnandi vegur“
Á vef BSRB kemur fram að ráðherrar velferðar- og menntamála ásamt fulltrúum háskóla og Vinnumálastofnunar skrifuðu í dag undir samkomulag um átakið „Nám er vinnandi vegur" við formlega athöfn í HÍ. Fjármögnun átaksins var tryggð með samráði ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins í tengslum við gerð kjarasamninga síðastliðið vor. Árangur átaksins fram til þessa var einnig kynntur fyrir viðstöddum og þar kom m.a. fram í máli Svandísar Svavarsdóttur, starfandi menntamálaráðherra, að meira en 1000 manns sem áður höfðu verið án atvinnu hefðu nú hafið nám á hinum ýmsu stigum.
1. september 2011
Kosiđ í félagsráđ
Nú stendur yfir trúnaðarmannaráðsfundur SFR, Á fundinum hélt Eyþór Eðvarðsson frá Þekkingarmiðlun erindi um hlutverk trúnaðarmanna, samskipta- og leiðtogafærni, samvinnu og traust. Þá verður farið stuttlega yfir kjarasamninga og Sigurlaug Gröndal frá Félagsmálaskóli alþýðu kynnir trúnaðarmannafræðsluna í vetur. Á fundinum verður einnig kosið í félagsráð.
31. ágúst 2011
Nýbreytni í orlofsmálum í vetur
Í vetur munu félagsmenn geta dvalið í íbúðum á vegum félagsins bæði í Vestmannaeyjum og á Ólafsfirði, en það er nýbreytni frá því sem verið hefur. Báðar íbúðirnar voru í boði fyrir félagsmenn í sumar og voru báðir staðir mjög eftirsóttir.
Náttúrufegurð í Vestmannaeyjum þarf vart að kynna auk þess sem þar er í boði fjölbreytt afþreying. Ólafsfjörður skartar sínu fegursta yfir vetrartímann og er hann tilvalinn áfangastaður fyrir skíðafólk í vetur. Stutt og greiðfært er á Akureyri og fleiri skíðasvæði í nágrenninu. Opið er fyrir bókanir fjóra mánuði fram í tímann á Orlofsvef SFR. Opnað var fyrir desembermánuð kl. 9 í morgun í orlofshús félagsins innanlands.
26. ágúst 2011
Nýr kynningarfulltrúi BSRB
SFR býður nýráðinn kynningarfulltrúa BSRB velkominn til starfa. Sá heitir Ágúst Bogason, en hann hóf störf um miðjan ágúst. Ágúst hefur lokið BA námi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og hefur undanfarin ár starfað sem dagskrárgerðarmaður á Rás 2. Þar áður starfaði hann sem blaða- og fréttamaður, m.a. hjá 365 og DV
25. ágúst 2011
Trúnađarmannanámskeiđ BSRB
Á vef BSRB kemur fram að fyrsta trúnaðarmannanámskeið vetrarins verður haldið dagana 21. - 23. september næstkomandi. SFR hvetur trúnaðarmenn sína til þess að skrá sig á námskeið, en boðið er sérhæfð námskeið fyrir alla talsmenn stéttarfélaga, en það er Félagsmálaskóli alþýður sem skipuleggur þau. Skráning á námskeiðin er á heimasíðu BSRB.
25. ágúst 2011
Tókst ţú ljósmyndir í sumar?
Ákveðið hefur verið að framlengja skilafrest ljósmyndasamkeppni Blaðs stéttarfélaganna sem hrint var af stað í vor til að gefa fleirum kost á að senda inn myndir. Allir félagsmenn SFR og St.Rv. geta sent inn myndir í keppnina.
24. ágúst 2011
Sumarhús og síđsumarsstillur
Í dag var opnað fyrir dagleigu á orlofshúsum félagsins. Þetta þýðir að nú geta félagsmenn farið inn á bókunarvefinn og bókað sér nokkra daga, eða helgi í stað heillar viku áður. Um helgina er laus hús í Vaðnesi, Munaðarnesi, á Eiðum og í Þúfukoti í Biskupstungum, en þar eru gæludýr leyfð.
19. ágúst 2011
Frestur trúnađarmanna til ađ skila inn frambođi í Félagsráđ SFR rennur út í dag
Á aðalfundi sem haldinn var í mars sl. voru samþykktar lagabreytingar sem m. a. fólu í sér að stofnað yrði Félagsráð SFR sem í sitja stjórn félagsins, formenn fagfélaga/deilda og 15 trúnaðarmenn. Félagsráðið skal vinna m.a. að stefnumótun fyrir félagið og annast undirbúning fyrir aðalfund. Kosið verður í félagsráð á fyrsta fundi trúnaðarmannaráðs í haust þann 1. sep., en frestur til að skila inn framboði rennur út í dag, fös. 19. ágúst.
18. ágúst 2011
Laus pláss á námskeiđ um sveppatínslu og stafgöngu
Í lok ágúst og byrjun september er boðið upp á tvö námskeið um svepparíkið. Þar fjallar Ása Margrét Ásgrímsdóttir um hvað er sveppur og greiningu á hinum ýmsu tegundum sveppa. Einnig verður fjallað um eitursveppi og ýmislegt fleira og farið í sveppamó í Heiðmörk.
Stafgöngunámskeiðið er í september og hefst með fyrirlestri og í kjölfarið koma 4 gönguæfingar. Rannsóknir hafa sýnt að hjá fólki sem stundar stafgöngu þá styrkist líkaminn meira og brennslan er meiri en í hefðbundinni göngu. Skráning og nánari upplýsingar hér.
10. ágúst 2011
Ágústfréttir frá Frćđslusetrinu Starfsmennt
Námsvísir Starfsmenntar fyrir haustið 2011 berst félagsmönnum næstu dagana en þar má sjá fjölbreytt úrval starfstengds náms fyrir opinbera starfsmenn. Að venju eru öll námskeið félagsmönnum SFR að kostnaðarlausu sem hluti af kjarasamningsbundum réttindum þeirra til starfsþróunar, en opin öðrum gegn gjaldi.
28. júlí 2011
Afsláttur í flug - fyrir SFR félaga
Mikil eftirspurn hefur verið eftir svokölluðum gjafabréfum í flug í sumar. Gjafabréfin geta SFR félagar keypt á Bókunarvefnum undir liðnum afsláttarávísanir og gefa þau ágætis afslátt á flugmiðum. Bréfin hafa verið uppseld til skamms tíma, en frá og með deginum í dag eru nú aftur til gjafabréf frá Icelandair á vefnum.
12. júlí 2011
Kjarasamningar SFR viđ Rarik, Isavia og SFH samţykktir
Kjarasamningur SFR og Isavia hefur verið samþykktur. Á kjörskrá voru 51. 22 greiddu atkvæði eða 43,14%
Já sögðu 21 eða 95,45%. Nei sagði 1 eða 4,55%
Kjarasamningur SFR og RARIK hefur verið samþykktur. Á kjörskrá voru 40. 22 greiddu atkvæði eða 55%
Já sögðu 22 eða 100%. Enginn sagði nei.
Kjarasamningur SFR og SFH hefur verið samþykktur. Á kjörskrá voru 217. 67 greiddu atkvæði eða 30,88%
Já sögðu 60 eða 89,55%. Nei sögðu 7 eða 10,45%
8. júlí 2011
SFR stéttarfélag semur viđ Matís
Skrifað var undir kjarasamning milli SFR - stéttarfélags og Matís fyrr í dag í húsakynnum sáttasemjara. Samningurinn er á svipuðum nótum varðandi innihald og áherslur og samningurinn sem SFR gerði við ríkið og Reykjavíkurborg nýverið.
7. júlí 2011
Samiđ viđ Samband íslenskra sveitarfélaga
Nýr kjarasamningur SFR og Sambands íslenskra sveitarfélaga var undirritaður í gærkvöld og er hann með svipuðu sniði og þeir samningar sem Sambandið hefur gert við starfsmannafélög sveitarfélaganna. Samningurinn, ásamt kynningarefni verður sett á vefinn síðar í dag. Kynningu á samningnum má nálgast hér.
6. júlí 2011
Blađ stéttarfélaganna kemur út í dag
Þriðja tölublað Blaðs stéttarfélaganna kemur út í dag og verður dreift til félagsmanna SFR og St.Rv. í dag og á morgun. Blaðið er venju samkvæmt sneisafullt af efni. Þar er m.a. að finna ítarlegt viðtal við Skúla Eggert Þórðarson ríkisskattstjóra um starfsmannastjórnun og skattamál, kjarasamningar félaganna eru kynntir ásamt niðurstöðum könnunarinnar um Stofnun ársins. Þá er í blaðinu að finna grein um starf Blátt áfram samtakanna auk þess sem fjallað er um uppsagnir í grunnskólum Reykjavíkur og birt viðtöl við félagsmenn St.Rv. sem starfa þar.
5. júlí 2011
Kjarasamningur SFR og Fríhafnarinnar samţykktur
Kjarasamningur SFR og Fríhafnarinnar sem undirritaður var 28. júní 2011 var samþykktur þriðjudaginn 5. júlí. Á kjörskrá voru 139 félagsmenn og greiddu 98 þeirra atkvæði eða 70,5%. Já sögðu 93,88% eða 92, nei sögðu 5,1% eða 5 og 1 eða 1,02% atkvæði var ógilt. Kjarasamningurinn framlengist til 31. janúar 2014.
4. júlí 2011
Kjarasamningur SFR og Reykjavíkurborgar samţykktur
Kjarasamningur SFR og Reykjavíkurborgar sem undirritaður var 16. júní s. l. var samþykktur mánudaginn 4. júlí. Á kjörskrá voru 427 félagsmenn og greiddu 70 þeirra atkvæði eða 16,39%. Já sögðu 78,57% eða 55, nei sögðu 20,0% eða 14 og 1 eða 1,43% skilaði auðu. Samningurinn tekur gildi frá og með 1. maí síðast liðnum og gildir til 31. mars 2014.
30. júní 2011
SFR og Samtök fyrirtćkja í heilbrigđisţjónustu skrifa undir kjarasamning
SFR og SFH gera með sér kjarasamning. Samningurinn er á svipuðum nótum og aðrir samningar sem verið er að skrifa undir þessa dagana. Samningurinn verður kynntur fyrir félagsmönnum á næstunni og atkvæðagreiðslu um hann verður að vera í síðasta lagi lokið kl. 11 þann12. júlí nk.
30. júní 2011
Yfirlýsing frá SFR og FFR
SFR stéttarfélag og FFR senda frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau harma að í gerð kjarasamninga við Isavia hafi ekki náðs samkomulag um breytingar á starfslokareglum Isavia. Umræddar reglur kveði á um að starfsmenn skuli láta af störfum við lok þess mánaðar er þeir ná 67 ára aldri. Reglan hefur mætt mikilli andstöðu meðal starfsmanna Isavia og hafa stéttarfélögin mótmælt henni frá upphafi. Félögin vilja minna á að langflestir starfsmenn Isavia eiga það sameiginlegt að hafa verið starfsmenn íslenska ríkisins þar til Isavia ohf. var stofnað utanum reksturinn. Vart þarf að benda á að hámarksaldur starfsmanna ríkisins er 70 ára og því hafa starfsmenn Isavia haft réttmætar væntingar til að starfa til þess aldurs óski þeir þess. Félögin líta á þvinguð starfslok þeirra starfsmanna sem orðnir eru 67 ára sem stjórnvaldsaðgerð. FFR og SFR gera því kröfu um að stjórnvöld stigi fram og dragi til baka þessa ákvörðun um skertar atvinnuheimildir eldri starfsmanna ríkisfyrirtækja.
30. júní 2011
SFR og FFR semja viđ Isavia ohf
SFR - stéttarfélag og Félag flugmálastarfsmanna skrifuðu saman undir nýjan kjarasamning við Isavia ohf á miðnætti. Langri samningalotu lokið. Samningurinn er á svipuðum nótum varðandi innihald og áherslur og þeir samningar sem SFR hefur verið að gera undanfarið.
29. júní 2011
Jónsmessuferđ LSFR 2011
Árleg sumarferð Lífeyrisdeildar á Jónsmessu var farin 21. júní sl. í blíðskaparveðri. Að þessu sinni var farið á Þingvelli um Nesjavallaleið, síðan ekið til Laugarvatns og í Skálholt þar sem fræðst var um staðinn. Stoppað var við Hjálparfoss, Stöng og Þjóðveldisbæinn og síðan ekið í Árnes þar sem kvöldverður var borinn fram og dagurinn endaði með því að stiginn var dans við harmonikkuundirspil. Sjá myndagallerí.
28. júní 2011
SFR stéttarfélag semur viđ Fríhöfnina
Samninganefndir SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu og Fríhafnarinnar skrifuðu undir kjarasamning kl. 13.30 í dag. Samningurinn er á svipuðum nótum varðandi innihald og áherslur og þeir samningar sem SFR hefur verið að gera undanfarið.
28. júní 2011
Félagsmenn SFR og FFR lýsa yfir fullum stuđning viđ samninganefndir sínar í kjaradeilunni viđ ISAVIA
Á fjölmennum fundi á Keflavíkurflugvelli í gærkveldi lýstu fundarmenn yfir fullum stuðningi við samninganefndir sínar. Félögin hafa síðustu vikur setið við samningaborðið með fulltrúum frá ISAVIA. Kjaradeilunni var fyrir nokkru vísa til sáttasemjara sem stýrt hefur vinnunni
. 
24. júní 2011
Fundi slitiđ milli SFR/FFR og ISAVIA
Samningafundi milli SFR/FFR og ISAVIA ohf var slitið nú eftir hádegi. Mikið ber á milli og staðan gefur ekki tilefni til bjartsýni. Félögin hitta bakland sitt á mánudag.
24. júní 2011
Samningur SFR og Reykjavíkurborgar kynntur
Tveir kynningarfundir verða haldnir til að kynna nýundirritaðan kjarasamnings SFR og Reykjavíkurborgar. Fyrri fundurinn verður mánudaginn 27. júní kl 12-13 og sá síðari miðvikudaginn 29. júní kl. 16:30.
Félagsmenn sem starfa hjá Reykjavíkurborg eru hvattir til að koma á kynningarfundina og kynna sér samninginn. Rafræn atkvæðagreiðsla verður 27. júní - 4. júlí og munu atkvæðisbærir félagsmenn fá send kjörgögn og leiðbeiningar í pósti á mánudag.
23. júní 2011
SFR stéttarfélag semur viđ RARIK
Skrifað var undir kjarasamning milli SFR - stéttarfélags og RARIK fyrr í dag í húsakynnum sáttasemjara. Samningurinn er á svipuðum nótum varðandi innihald og áherslur og samningurinn sem SFR gerði við ríkið og Reykjavíkurborg nýverið.
21. júní 2011
Kynning á kjarasamningi SFR viđ Reykjavíkurborg
Kynningarfundir vegna kjarasamnings SFR og Reykjavíkurborgar sem undirritaður var 16. júní síðast liðinn verður haldinn að Grettisgötu 89, í hádeginu mánudaginn 27. júni og síðdegis kl. 16:30 miðvikudaginn 29. júní. Starfsmenn Reykjavíkurborgar sem eru félagsmenn SFR eru hvattir til að mæta og kynna sér efni samningsins. Akvæðagreiðsla um samninginn verður kynnt síðar.
20. júní 2011
Kjarasamningur viđ ríkiđ samţykktur
Kjarasamningur SFR og Fjármálaráðherra sem undirritaður var 29. maí síðast liðinn var samþykktur rétt í þessu. Á kjörskrá voru 4213 félagsmenn og greiddu 1521 þeirra atkvæði eða 36,1%. Já sögðu 85,4% eða 1299, nei sögðu 13,0% eða 197 og 26 eða 1,6% skilaði auðu. Samningurinn tekur gildi frá og með 1. maí síðast liðnum og gildir til 31. mars 2014.
17. júní 2011
SFR stéttarfélag semur viđ Reykjavíkurborg
SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu og samninganefnd Reykjavíkurborgar skrifuðu undir kjarasamning rétt fyrir miðnættið þann16. júní síðast liðinn.
16. júní 2011
Margt í bođi hjá Frćđslusetrinu Starfsmennt
Fræðslusetrið Starfsmennt er flutt í nýtt húsnæði að Ofanleiti 2, 5. hæð, 103 Reykjavík og hefur fengið nýtt símanúmer 550-0060 og faxnúmer 550-0069. Setrið heldur áfram að búa til starfstengt nám fyrir stofnanir og starfshópa sem að haldið er í samstarfi við fræðsluaðila um allt land. Ýmislegt verður í boði á haustönn og er um að gera að kynna sér það sem fyrst, þar sem umsóknarfrestur á sumum stöðum gæti runnið út í sumar.
15. júní 2011
Kjaradeilu SFR og FFR viđ Isavia vísađ til ríkissáttasemjara
Á undanförnum vikum hafa staðið yfir kjarasamningsviðræður annars vegar SFR og Isavia og hins vegar FFR og Isavia vegna félagsmanna sem starfa hjá Isavia. Í gærkvöldi var ljóst að samningsaðilar næðu ekki saman. Því ákváðu ofangreind félög að vísa kjaradeilunni við Isavia og Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara.
9. júní 2011
NSO ráđstefna í Stykkishólmi
Nú stendur yfir norræn ráðstefna á vegum SFR stéttarfélags í Stykkishólmi þar sem aðildarfélög Nordiska statstjänstemannaorganisationen (NSO) hittast og ræða málin. NSO eru heildarsamtök systrafélaga SFR á Norðurlöndunum. SFR tók við forystu þeirra á síðasta ári, en félögin skipta með sér forystunni.
7. júní 2011
Kjarasamningsviđrćđur halda áfram
Eins og fram hefur komið gildir kjarasamningurinn sem undirritaður var 29. maí síðast liðinn einungis fyrir starfsmenn ríkisins og sjálfseignarstofnanir. En enn er unnið að samningum við sveitarfélögin og borgina vegna starfsmanna hjá málefnum fatlaðra og við Isavía, Fríhöfnina, Matís, Rarik og SFH.
7. júní 2011
Kynningarfundir um land allt vel sóttir
Alls voru haldnir 6 kynningarfundir víða um land í gær og voru þeir flestir mjög vel sóttir. Þeir sem ekki komust á fundina til að kynna sér efni samningsins er bent á sérstakan tengil með efni kjarasamninganna hér á síðunni. Kjörgögn ásamt leiðbeiningum fyrir rafræna kosningu eru nú á leið í pósti heim til félagsmanna og eru þeir hvattir til að kjósa um efni samningsins. Rafræn kosning verður 8.-20 júní.
3. júní 2011
Nokkur hús laus um helgina
Nokkur orlofshús eru laus um helgina fyrir þá sem vilja flýja skarkala borgar og bæja. Laust er í Munaðarnesi og Vaðnesi, á Eiðum, Súðavík og í Bolungarvík. Hægt er að fara héðan beint inn á bókunarvef til að ganga frá bókun og greiða.
3. júní 2011
Kynningarfundir um kjarasamning SFR og ríkis
Nú stendur yfir kynning á kjarasamningi félagsins við ríkið. Nú þegar hafa verið haldnir tveir kynningarfundir en fimm í viðbót verða haldnir mánudaginn 6. júní á eftirfarandi stöðum; Hótel Ísafirði, Hótel Héraði, Egilsstöðum, Hótel KEA, Akureyri, Flughótelinu Reykjanesi og á Grettisgötunni í Reykjavík. Fundurinn í Reykjavík verður kl. 16:30 en hinir fundirnir eru hádegisfundir þar sem félagsmönnum verður boðið upp á súpu og brauð meðan kynningin fer fram. SFR hvetur alla félagsmenn til þess að koma á fundina og kynna sér efni samningsins sem best. Í næstu viku verða send út kjörgögn vegna rafrænnar kosningar um samninginn en atkvæðagreiðsla mun fara fram 8.-20. júní.
Samninginn má einnig skoða hér.
1. júní 2011
Ađalfundur Félags íslenskra félagsliđa
Aðalfundur Félags íslenskra félagsliða var haldinn fimmtudaginn 26. maí. Félagsliðar í Eyjafirði tóku einnig þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað. Formaður félagsins fór yfir núliðið starfsár og er hægt að lesa ársskýrslu stjórnarinnar inni á vefsíðu félagsins (www.felagslidar.is).
1. júní 2011
Hótelmiđar og bókanir í september
Í sumar verður félagsmönnum boðið að kaupa hótelmiða á góðum afslætti eins og síðastliðin sumur. Á orlofsvefnum er nú hægt að kaupa miða frá Eddu og Fosshótelum undir liðnum afsláttarávísanir „
Í dag var einnig opnað fyrir bókanir fyrir septembermánuð í orlofshús og fyrir Kaupmannahöfn, Gert er ráð fyrir því að SFR verði með íbúðina í Kaupmannahöfn a.m.k. til 1. desember 2011.
31. maí 2011
Kjarasamningur kynntur á trúnađarmannaráđsfundi
Kjarasamningur SFR og ríkisins var kynntur á afar fjölmennum trúnaðarmannaráðsfundi í gær. Miklar umræður sköpuðust um samninginn en kynning á honum hefst á morgun með fundum á Grettisgötunni í Reykjavík kl. 16:30 og á Hótel Selfossi kl. 12 á hádegi. Kynningarfundir verða haldnir víða um land, auk þess sem kynningarefni mun verða sett á vefinn. Félagsmenn um land allt eru hvattir til að kynna sér efni samningsins sem best. Atkvæðagreiðsla mun hefjast næstu daga og verður auglýst síðar.
Kjaramálin tóku eðlilega mikinn tíma á trúnaðarmannaráðsfundinum en trúnaðarmenn gáfu sér þó tíma til að hlusta á erindi Eddu Björgvinsdóttur um húmor og höfðu gaman af.
30. maí 2011
SFR semur viđ ríkiđ
SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu og samninganefnd ríkisins fyrir hönd fjármálaráðherra skrifuðu undir kjarasamning rétt fyrir kl. eitt í nótt.
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR segir samninginn vera á svipuðum nótum varðandi innihald og áherslur og þeir samningar sem önnur félög hafa verið að gera síðustu vikur. “Hins vegar séu nokkur sérmál sem færa okkur önnur réttindi,” segir Árni Stefán. “Þar er helst að nefna góðan árangur varðandi bótarétt og tryggingavernd starfsmanna sem vinna á geðdeildum, sambýlum og fangelsum, eða þeim stöðum þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir líkamlegu tjóni. Slagurinn um þessa réttarbót hefur staðið í fjölmörg ár og því er einkar ánægjulegt að ná þessu nú.”
30. maí 2011
SFR gerir nýjan kjarasamning viđ ríkiđ
SFR og ríkið skrifuðu undir nýjan kjarasamning eftir miðnætti í nótt. Samningurinn tekur mið af samningum sem gerðir hafa verið í sumar og gildir til 2014, með endurskoðunarforsendum 2012 og 2013.
27. maí 2011
Vestfirđir í júní
Í sumar býður SFR félagsmönnum sínum upp á tvo orlofsmöguleika á Vestfjörðum. Í Súðavík leigjum við 4ra herbergja íbúð sem hefur verið mjög vinsæl meðal félagsmanna og nú höfum við bætt við sérlega skemmtilegu 90 fm húsi í Bolungarvík. Þess má geta að með nýju göngunum milli Bolungarvíkur og Hnífsdal er einungis nokkra mínútna keyrsla til Ísafjarðar.
27. maí 2011
Laus orlofshús
Þó nokkuð er um laus orlofshús þessa síðustu daga maímánaðar. Fyrir þá sem vilja vera í nágrenni höfuðborgarsvæðisins eru laus hús í Vaðnesi, Húsafelli og Munaðarnesi, En einnig eru laus hús á Eiðum og á Ólafsfirði. Áhugasömum er bent á bókunarvefinn okkar, þar má finna nánari upplýsingar, bóka, greiða og ganga frá leigu.
26. maí 2011
Fundađ fram á kvöld
Samninganefnd SFR fundar enn í dag hjá ríkissáttasemjana en samningafundir hafa staðið til miðnættis nú tvo daga í röð. Unnið er hörðum höndum að því að ná saman kjarasamningi, launaliðurinn hefur verið til umræðu ásamt ýmsum sérmálum en óvíst er hvenær samningar náist.
24. maí 2011
Samninganefnd fundar um launaliđ kjarasamningsins
Samninganefndir SFR og ríkisins eiga fund síðar í dag þar sem byrjað verður að ræða launalið kjarasamningsins. Samninganefnd SFR mun á þeim fundi leggja fram tilboð sitt sem snýr að launaliðnum og framhald viðræðnannna mun síðan væntanlega ráðast af viðbrögðum við því tilboði.
23. maí 2011
BSRB fundađi međ ráđherrum
Á vef BSRB kemur fram að fulltrúar bandalagsins funduðu með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra fyrir helgi. Þar var farið yfir þætti er lúta að réttindamálum opinberra starfsmanna í aðdraganda kjarasamninga og falla beint undir verksvið ráðherra, svo sem málefni lífeyrissjóða opinberra starfsmanna. Þá var einnig rætt að unnið skyldi að þeirri framtíðarsýn að vinnuvikan verði 36 stundir og að tryggt verði áframhaldandi framboð á námi á framhaldsskólastigi fyrir fullorðna starfsmenn. Jafnframt að tryggt verði að ef samið verði um eingreiðslur í kjarasamningum skuli þær skila sér til lífeyrisþega og foreldra í fæðingar- og foreldraorlofi. Sjá nánar hér.
19. maí 2011
Ársfundur LSR og LH
Ársfundur LSR og LH verður fimmtudaginn 19. maí kl. 15 á Hilton Reykjavík Nordica hóteli. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og launagreiðendum.
18. maí 2011
Fundađ stíft um kjarasamningana
Samninganefndir SFR funda stíft þessa dagana. Fundir með samninganefnd ríkisins hafa verið svo til daglega, en auk þess hafa forystumenn SFR og samninganefndir hitt fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga og stjórnendur Isavía ohf. og Fríhafnarinnar ehf. Á samningaborði ríkisins eru ýmiss sérmál til umfjöllunar nú.
17. maí 2011
Allir í bústađ!
Óvenju mörg orlofshús eru laus um helgina, svo nú er um að gera að skella sér í bústað. Þó veðurspá helgarinnar bjóði kannski ekki upp á sól og hita getur verið ansi notalegt að upplifa vorið út í náttúruinni. Nú um helgina er laust á Eiðum, í Ólafsfirði, Munaðarnesi, Húsafelli, Vaðnesi, Brekkuskógi, Vestmannaeyjum og síðast en ekki síst er hundahúsið okkar í Þúfukoti laust sem vonandi gleður einhverja hundaeigendur. Þá er bara að fara inn á bókunarvefinn, ganga frá pöntun og greiðslu og skella kótilettunum í poka !
16. maí 2011
Niđurstöđur kynntar viđ hátíđlega athöfn
Það var mikið um dýrðir þegar niðurstöður könnunarinnar um Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins voru kynntar á Hótel Nordica á síðast liðinn föstudag. Þangað var boðið starfsfólki og stjórnendum þeirra stofnana og fyrirtækja sem höfðu komist ofarlega á blað auk forstöðumanna, mannauðsstjóra, trúnaðarmanna o.fl. Í flokki stærri stofnana var Sérstakur saksóknari sigurvegari og í flokki minni stofnana var það Sýslumaðurinn í Vík. Hástökkvari ársins var Fjölbrautaskóli Snæfellinga.
Mikil eftirvænting ríkti í salnum og fagnaðarlætin og hamingjan með árangurinn var ósvikin, eins og myndirnar sýna. Allt um niðurstöður könnunarinnar má lesa hér.
16. maí 2011
Orlofsuppbót 2011
Við greiðslu orlofsuppbótar 1. júní næstkomandi verður miðað við fjárhæð orlofsuppbótar eins og hún er tilgreind í síðasta kjarasamningi SFR og ríkisins kr. 25.800. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Ef samið verður um hærri fjárhæð orlofsuppbótar í yfirstandandi viðræðum verður greitt í samræmi við það í næstu reglulegu útborgun eftir undirritun og samþykkt kjarasamninga.
Að því gefnu að samningar náist á næstu dögum verður það annað hvort 1. júní 2011 eða með leiðréttingu 1. júlí 2011 eða síðar.
13. maí 2011
Sérstakur saksóknari og Sýslumađurinn í Vík eru bestu vinnustađirnir

Niðurstöður úr könnuninni á Stofnun ársins 2011 voru kynntar á Nordica í dag 13. maí kl 17:00 en þetta er í sjötta sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins. Sigurvegarar voru Sérstakur saksóknari í hópi stærri stofnana og Sýslumaðurinn í Vík í hópi minni stofnana.
Könnunin var gerð meðal félagsmanna SFR og annarra ríkisstarfsmanna á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað. Umfang könnunarinnar er umtalsvert stærra í ár en verið hefur þar sem starfsmannaskrifstofa fjármálaráðuneytisins er nú í samstarfi við félagið. Könnunin náði til 19 þúsund ríkisstarfsmanna og samtals til um 44 þúsund starfsmanna á almennum og opinberum vinnumarkaði, en SFR hefur verið í samstafi við VR um valið á Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins um árabil. Niðurstöðurnar um Stofnun ársins byggja á þátttöku 170 stofnana, líkt og í fyrra er stofnunum skipt eftir stærð.
13. maí 2011
Stofnun ársins 2011
Niðurstöður úr könnuninni um valið á Stofnun ársins 2011 verða kynntar í dag, föstudaginn 13. maí, en þetta er í sjötta sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins. Könnunin var gerð meðal félagsmanna SFR og annarra ríkisstarfsmanna á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað. Umfang könnunarinnar er umtalsvert stærra í ár en verið hefur þar sem starfsmannaskrifstofa fjármálaráðuneytisins er nú í samstarfi við félagið. Könnunin náði til 19 þúsund ríkisstarfsmanna og samtals til um 44 þúsund starfsmanna á almennum og opinberum vinnumarkaði, en SFR hefur verið í samstafi við VR um valið á Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins um árabil. Niðurstöður könnunarinnar verða birtar á vef SFR kl. 18 í dag.
12. maí 2011
Samningarnefnd fundar
Samninganefnd SFR situr nú á fundi með samninganefnd ríkisins vegna kjarasamninga. Fundað hefur verið stíft þessa viku og eru sérmálin til umfjöllunar nú. Stefnt er að því að ljúka samningum fyrir mánaðarmót, að sögn Árna Stefáns formanns SFR. Hann segir hins vegar að samningar muni ekki vera undirritaðir fyrr en svör frá fjármálaráðuneytinu fáist um það hvenær og hvernig eigi að greiða niður 350 milljarða króna vegna verðtryggingar lífeyrisskuldbindinga B deildar lífeyrissjóðs ríkisstarfsmanna. Skuldbindingarnar séu að vísu til margra ára, en nauðsynlegt sé að setjast niður og gera áætlanir um það hvernig eigi að greiða þær. Hér má sjá viðtal við Árna Stefán á RÚV í gærkvöld.
12. maí 2011
SFR styrkir Samhjálp
Stjórn SFR ákvað það á fundi sínum í vikunni að styrkja kaffistofu Samhjálpar um 100.000 krónur og leggja þannig sitt af mörkum til að aðstoða Samhjálp í því góða starfi sem þar hefur verið unnið í áratugi. Það var Árni Stefán Jónsson, formaður SFR sem afhenti Vilhjálmi Svan styrkinn.
Á síðasta ári urðu heimsóknir á kaffistofu Samhjálpar tæpar 46 þúsund. Aðsóknin hefur vaxið jafnt og þétt síðustu árin en til samanburðar voru 21 þúsund heimsóknir á árinu 2007. Þessi mikla aukning segir meira en mörg orð um þörfina á því að fleiri komi að því verkefni að rétta hjálparhönd þeim sem hafa orðið undir í lífsbaráttunni. SFR vonar að styrkurinn muni nýtast Samhjálp vel.
9. maí 2011
Nám er vinnandi vegur - Opin námskynning í Laugardalshöll
Fimmtudaginn 12. maí frá kl. 11-16 verður opin námskynning í Laugardalshöll. Þar gefst tækifæri til að kynna sér nýja námsmöguleika í framhaldsskólum, frumgreinadeildum, háskólum og fullorðinsfræðslu. Ráðgjafar frá Vinnumálastofnun og skólunum munu aðstoða við að finna heppilegustu leiðirnar til að bæta menntun, auka hæfni og fjölga atvinnumöguleikum. Kynningin er opin öllum.
Með átakin Nám er vinnandi vegur verður mun auðveldara en áður að komast að í framhaldsskóla eftir námshlé en markmiðið er að veita 1000 atvinnuleitendum aðgang að skólakerfinu með óskertum atvinnuleysisbótum í eina önn. Haustið 2011 munu skólarnir taka inn alla umsækjendur undir 25 ára aldri sem uppfylla skilyrði, ásamt eldri umsækjendum sem hafa lokið raunfærnimati vorið 2011. Sjá nánar hér.
9. maí 2011
Kjarasamningsviđrćđur komnar á fullt
Samninganefndir SFR og ríkisins munu hittast hjá sáttasemjara eftir hádegi í dag. Ákveðnir hafa verið þrír fundir í vikunni og vonast er til að viðræður gangi vel.
6. maí 2011
Samninganefndir funda
Samninganefnd SFR hitti samninganefnd ríkisins í morgun á stuttum fundi. Þar var farið yfir stöðu mála í ljósi nýrra samninga ASÍ og SA sem undirritaðir voru í gær. Ákveðið var að halda fund aftur strax í byrjun næstu viku og stefnt er að þéttri samningalotu þá.
5. maí 2011
"Íslenskur almenningur hefur ţegar tekiđ viđ nćgum byrđum"
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR og fyrsti varaformaður BSRB, var ræðumaður dagsins í Borgarnesi á fyrsta maí í ár. Í ræðu sinnu gagnrýndi hann harðlega atvinnurekendur og framgöngu þeirra í kjarasamningaviðræðum hingað til. Hann sagði ljóst að ríkisvaldið þyrði einfaldlega ekki að taka þar forystu. Enn og aftur væru opinberir starfsmenn settir í óþolandi biðstöðu meðan beðið væri eftir línunni frá almenna markaðnum. Þá taldi hann fullvíst að íslenskur almenningur myndi ekki skrifa upp á fleiri víxla í anda útrásarvíkinga til að fjármagna kvótabrask og óarðbærar stórframkvæmdir. Hér má lesa ávarp Árna Stefáns.
5. maí 2011
Endurúthlutun orlofshúsa lokiđ
Endurúthlutun orlofshúsa SFR er nú lokið, hægt er að bóka laus hús sem ekki gengu út á orlofsvef félagsins. Á mánudaginn 9. maí kl. 9:00 verður síðan lausum vikum í Munaðarnesi, Vaðnesi, Eiðum og í Þúfukoti á tímabilinu maí til júniloka breytt í dagleiguhús, þ.e.a.s. þá geta félagsmenn valið að vera í 2-3 daga í húsunum hvort sem það er um helgi eða virka daga, í stað viku áður. Í byrjun júní verður lausum vikum á tímabilinu júlí og ágúst einnig breytt á sama hátt. Við vekjum athygli á því að Þúfukot er gæludýrahús þannig að það er ekki æskilegt fyrir fólk með dýraofnæmi að vera þar.
2. maí 2011
Vantar kröftugan trúnađarmann á ţinn vinnustađ?
Nú stendur yfir kosning trúnaðarmanna á vinnustöðum SFR. Mikilvægt er að hafa trúnaðarmenn á öllum vinnustöðum, en í dag eru trúnaðarmenn 250 talsins. Hlutverk þeirra felst m. a. í að gæta hagsmuna félagsmanna SFR á vinnustað, miðla upplýsingum á milli félagsmanna og SFR og gæta þess að kjarasamningar séu virtir. Hlutverkið er bæði fjölbreytt og gefandi og felur í sér tækifæri til að bæta við sig þekkingu og reynslu, jafnt á persónulegum grunni sem og starfslega. Allir félagsmenn geta boðið sig fram sem trúnaðarmenn. Kosningu á að vera lokið fyrir 31. maí nk.
29. apríl 2011
Trúnađarmannaráđ ályktar
Trúnaðarmenn SFR hittust á fundi eftir hádegi í dag. Þar fór Árni Stefán Jónsson m.a. yfir stöðu mála í kjarasamningsviðræðum, spáð var í skipulag göngunnar 1. maí og kynnt voru ný lög um félagsráð og kosningu trúnaðarmanna sem fara mun fram nú í maí 2011. Þá hélt Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri afar fróðlegt erindi um skattamál. Fundinum lauk síðan með samþykkt ályktunar um stöðu mála í kjaramálum. Þar sem fjármálaráðherra var hvattur til að hefja hið fyrsta viðræður um kjarasamninga og gangast þannig við ábyrgð sinni gagnvart starfsmönnum sínum og fjölskyldum þeirra og koma í veg fyrir aukinn óróa í samfélaginu.
26. apríl 2011
1. maí kröfugöngur um land allt !

Sumarið kemur með 1. maí! Veðurkortin segja okkur að sumarið muni skella á landsmönnum næstu daga. Kröfugöngur 1. maí verða því í hlýindum og bjartviðri um mest allt land. Opinberir starfsmenn taka daginn með krafti og eiga ræðumenn víða. Allir félagsmenn SFR stéttarfélags í almannaþjónustu, vinir þeirra og fjölskyldur, eru hvött til að fylkja sér í kröfugöngu 1. maí og vera sýnilegir í baráttunni, hvar á landi sem þeir eru staddir. Víða er boðið upp á kaffisamsæti eftir gönguna og kröfufundi, m. a. í Reykjavík í BSRB húsinu, Grettisgötu 89 og á Akureyri í Menningarhúsinu Hofi.
26. apríl 2011
1. maí Blađ stéttarfélaganna er komiđ út
Annað tölublað Blaðs stéttarfélaganna er komið út og mun berast til félagsmanna nú í vikunni fyrir 1. maí.
Efni blaðsins er fjölbreytt, þar má m.a. lesa um lífeyrissjóðsmál og samanburð á ævitekjum opinberra starfsmanna og almennra, kíkt er í heimsókn á vinnustaði og starfsfólk tekið talið auk þess sem í blaðinu auk þess má finna þar stutt viðtal við þær Sigríði Kristinsdóttur og Sjöfn Ingólfsdóttur fyrrverandi formenn SFR og St.Rv. og dagskrá 1. maí.
21. apríl 2011
Gleđilega páska - og gleđilegt sumar!
SFR stéttarfélag óskar félagsmönnum sínum gleðilegs sumars, ánægjulegrar páskahelgi og þakkar fyrir veturinn.
18. apríl 2011
Kjaraviđrćđur teygja sig inn í maí
Á fundi samninganefndar SFR og samninganefndar ríkisins síðastliðinn fimmtudag var rætt um framhald samningaviðræðna og skipt í vinnuhópa. Ljóst er að samningaviðræður munu teygja sig inn í maí en samhugur var meðal nefndarfólks að nýta maí vel til að reyna að ná fram niðurstöðu.
15. apríl 2011
Orlofsmál-laust hús í Vađnesi og íbúđ í Eyjum komin í leigu
Íbúðin í Vestmannaeyjum er komin í dagleigu frá og með deginum í dag, þar gildir reglan fyrstur bókar fyrstur fær. Svo er laust hús í Vaðnesi um helgina, svo nú er um að gera að kíkja á bókunarvefinn.
14. apríl 2011
Kjaraviđrćđur halda áfram
Samninganefnd SFR mun hitta samninganefnd ríkisins nú klukkan eitt í dag. Árni Stefán, formaður SFR, segist skynja meiri alvöru nú en áður í að halda vinnunni áfram. Það hafi mögulega sitt að segja að viðræður á almennum markaði séu komnar aftur á stað...
13. apríl 2011
BLAĐ STÉTTARFÉLAGANNA ER KOMIĐ ÚT
Fyrsta tölublað Blaðs stéttarfélaganna sem gefið er út af SFR stéttarfélagi í almannaþjónustu og Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar hefur nú litið dagsins ljós.
Um er að ræða sameiginlega útgáfu þessara tveggja stærstu félaga innan BSRB, en félagsmenn þeirra telja samtals um 11 þúsund. Nýju blaði stéttarfélaganna er ætlað að vera leiðandi í umræðunni um hagsmunamál opinberra starfsmanna og í sameinuðu málgagni verður rödd félagsmanna sterkari og öflugri.
Í þessu fyrsta tölublaði m.a. að finna viðtal við Guðbjart Hannesson, velferðarráðherra og úttekt á tillögum um breytingar á skóla- og frístundamálum í Reykjavík og viðtöl við foreldra og starfsfólk grunn- og leikskóla auk frístundaheimila.
12. apríl 2011
Elín Björg formađur Virk
Á vef BSRB kemur fram að stjórn Virk - starfsendurhæfingarsjóðs, kaus í morgun Elínu Björgu Jónsdóttur, formann BSRB, sem formann sinn. Elín Björg tekur við stöðunni af Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdarstjóri SA, en hann verður áfram meðstjórnandi. Aðilar að sjóðnum skipta formennsku með sér ár og ár í senn og hefur Elín Björg verið varaformaður síðastliðið ár. Við þeirri stöðu tekur Ágústa Hlín Gústafsdóttir, sem starfar í Stjórnarráðinu.
11. apríl 2011
Ađalfundur FRS skorar á Samband íslenskra sveitarfélaga ađ viđurkenna samningsrétt SFR
FRS, Félag ráðgjafa og stuðningsfull-trúa, hélt aðalfund sinn þann 8. apríl síðastliðinn. Fundurinn sendi frá sér ályktun þar sem fram kemur að stétt stuðningsfulltrúa hefur óralengi borið skarðan hlut frá borði í kjaramálum, og líkurnar á kjarabótum minnka verulega við að stuðningstulltrúar tvístrist á milli fjölda félaga. Aðalfundur skorar því á Samband íslenskra sveitarfélaga að viðurkenna samningsrétt SFR - stéttarfélags, fyrir hönd nýráðins starfsfólks í málaflokki fatlaðra, stuðningsfulltrúa og félagsliða, svo þeir geti sjálfir valið sér stéttarfélag.
8. apríl 2011
Sameiginleg útgáfa SFR og St.Rv. - Blađ stéttarfélaganna
Í byrjun árs 2011 var ákveðið að gefa út sameiginlegt blað með Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar sem tilraunaverkefni í eitt ár. Fyrsta sameiginlega blaðið, sem gengur undir nafninu Blað stéttarfélaganna, er nú í prentun og mun berast heim til félagsmanna um miðja næstu viku. Í blaðinu er m.a. viðtal við Guðbjart Hannesson velferðarráðherra, rætt við starfsfólk og foreldra um sameiningu grunnskóla, leikskóla og frístundaheimila. Að sjálfsögðu er krossgátan og SUDOKO á sínum stað og margt fleira.
5. apríl 2011
Akstursgjald ríkisstarfsmanna
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir. Almennt gjald: Fyrstu 10.000 km, kr. 104,00 pr. km. Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 94,00 pr. km. Umfram 20.000 km, kr. 83,50 pr. km. Sjá nánar á http://www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur.
31. mars 2011
Orlofshús í daglegu, veiđikort, útilegukort og fleira gott.
Á morgun 1. apríl kl 9:00 verður opnað fyrir dagleiguhús sumarsins á orlofsvefnum (undir liðnum Bókanir laust). Þetta eru íbúðirnar í Hamratúni á Akureyri og Bárustígur í Vestmannaeyjum. Svo eru það hús 11 í Vörðuáshverfi í Munaðarnesi og hús 1 í Bollagörðum í Vaðnesi. Einnig verður opnað fyrir þær vikur sem ekki fóru í úthlutun annars staðar en þær eignir verða fyrst um sinn bara í vikuleigu. Veiðikortið og Útilegukortið verður einnig hægt að kaupa á vefnum undir liðnum afsláttarávísanir, frá og með morgundeginum.
31. mars 2011
Áunnin lífeyrisréttindi ekki skert
Í frétt á vef BSRB segir að aldrei hafi staðið til að skerða áunnin lífeyrisréttindi opinberra stafsmanna, eða breyta á nokkurn hátt, nema viðhaft verði fullt samráð við heildarsamtök opinberra starfsmanna. Þetta kemur fram í bréfi frá Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra til BSRB, BHM og KÍ. Samtökin fóru fram á skýr svör ráðherra vegna minnisblaðs SA og ASÍ um lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna, en frá því var sagt hér. Heildarsamtökin hafa öll lýst því yfir að ekki komi til greina að skerða áunnin réttindi og þau séu ekki til viðræðna um samstarf í þá veru.
30. mars 2011
Ađalfundur SFR átelur harđlega stöđuna í kjarasamningum
Fjölmennur aðalfundur SFR, sem haldinn var í gær, átelur harðlega þá stöðu sem komin er upp í kjarasamningum. SA hefur sett fram þá fráleitu kröfu að gengið verði frá fyrirkomulagi um stjórn fiskveiða áður en kjarasamningar verði gerðir við launafólk. Ábyrgð SA er rík. Samtökin láta undan hagsmunagæslumönnum útvegsmanna og kæra sig kollótta um hag fyrirtækja í öðrum greinum, hvað þá launafólks í landinu. Eigi að koma efnahagslífinu á rétt ról er runninn upp tími samstilltra aðgerða, ekki sértækrar hagsmunagæslu. Sem betur fer virðast einstakir forystumenn ASÍ loks hafa gert sér grein fyrir því.
28. mars 2011
Fjölmennum á ađalfund SFR 29. mars kl. 17
SFR verður með aðalfund sinn 29. mars kl. 17 að Grettisgötu 89, 1. hæð. Aðalfundur SFR er öllum félagsmönnum opinn og eru þeir hvattir til að fjölmenna. Á dagskrá eru venjubundin aðalfundarstörf. Hér má nálgast Ársskýrslu SFR og fundargerð frá aðalfundi 2010 ásamt þeim lagabreytingum sem leggja á fram. Ársreikningur liggur frammi á skrifstofu SFR.
24. mars 2011
Unniđ úr umsóknum - svör berast í lok dags 25. mars
Hafin er vinna úr umsóknum félagsmanna um orlofshús og mega þeir sem sóttu um búast við að fá send svör í tölvupósti í lok dags á morgun, 25. mars. Frestur til að greiða fyrir úthlutuð orlofshús er til 2. apríl
Þann 1. apríl verður opnað fyrir bókanir á dagleiguhúsum út sumarið. Þau er hægt að bóka undir liðnum BÓKANIR LAUST á Orlofsvefnum. Þar gildir reglan fyrstur bókar, fyrstur fær.
24. mars 2011
Beitum ekki lífeyrisţega óréttlćti
Aðalfundur Lífeyrisþegadeildar SFR, sem haldinn var í gær, mótmælir harðlega því óréttlæti að lífeyrir sé að mestu leyti tekinn frá þeim lífeyrisþegum sem verða að dvelja á dvalar- eða hjúkrunarheimilum. Fundurinn skorar á velferðarráðherra að sjá til þess að lífeyrisþegar verði ekki fyrir slíkri meðferð.
24. mars 2011
Siđareglur ráđherra og ríkisstarfsmanna
Forsætisráðherra hefur gefið út siðareglur ráðherra, en markmið þeirra er að efla traust á stjórnsýslunni og gefa almenningi tækifæri til að bera hegðun ráðherra saman við skráðar og útgefnar reglur. Í þeim er meðal annars fjallað um hagsmunatengsl og hagsmunaárekstra, fjármál og launagreiðslur, háttsemi og framgöngu, samskipti ráðherra við starfslið ráðuneytis, upplýsingagjöf til almennings o.fl.
23. mars 2011
Síđasti dagur í dag (23. mars) til ađ sćkja um orlofshús í sumar
22. mars 2011
Góđir gestir hjá SFR
Skrifstofa SFR fékk góða gesti í heimsókn. Þar voru á ferð 13 nemendur úr 10. bekk í Hörðuvallaskóla í starfsfræðslu ásamt kennaranum sínum, Hjördísi Sveinsdóttur. Þau leystu ýmis verkefni og fræddust um SFR, BSBR og Virk og það hvernig lífið á stéttarfélagsskrifstofum gengur fyrir sig. Þau stóðu sem með miklum sóma og SFR þakkar þeim kærlega fyrir heimsóknina.
22. mars 2011
Tökum upplýsta ákvörđun - Opinn fundur um Icesave
BSRB stendur fyrir opnum fundi um Icesave í BSRB-húsinu, Grettisgötu 89, fimmtudaginn 24. mars klukkan 16.30. Frummælendur á fundinum verða lögfræðingarnir Jóhannes Karl Sveinsson, sem sat í samninganefnd um Icesave, og Reimar Pétursson, sem er einn þeirra sem kvatt hafa til þess að lögin um Icesave verði felld. Fundurinn er öllum opinn.
21. mars 2011
FRESTUR TIL AĐ SĆKJA UM ORLOFSHÚS Í SUMAR ER TIL OG MEĐ MIĐVIKUDEGINUM 23. MARS
18. mars 2011
Minnisblađi ASÍ og SA hafnađ
Á heimasíðu BSRB kemur fram að stjórn BSRB mótmælir harðlega innihaldi minnisblaðs ASÍ og SA um stöðu lífeyrismála, dagsettu 25. febrúar 2011. Á minnisblaðinu koma fram hugmyndir um skerðingu lífeyrisréttinda opinberra starfsmanna. Stjórnin samþykkti rétt í þessu ályktun þar sem þessum áherslum er hafnað og ASÍ átalið fyrir að einbeita sér ekki að hagsmunabaráttu fyrir eigin félaga frekar en að berjast fyrir réttindaskerðingu hjá félögum annarra launþegasamtaka. Það er umhugsunarefni á hvaða vegferð launabaráttan er þegar slík vinnubrögð eru viðhöfð..
18. mars 2011
Mikil ánćgja međ bridgenámskeiđ
Undir hatti Gott að vita námskeiðanna læra SFR og St.Rv. félagar þessa dagana að spila Bridge. Þátttakendur mæta í fimm skipti og fara hægt og rólega yfir grunnsagnirnar í Standard-kerfinu og æfa sig í góðum félagsskap. Fyrsta kvöldið var í gærkvöldi og var mikil ánægja með það. Leiðbeinandi er Guðmunudur Páll Arnarson en samkvæmt honum eiga allir að geta lært Bridge. Nú bíðum við bara eftir að félögin eignist Íslandsmeistara í Bridge á næstu árum.
17. mars 2011
Ćtlar ţú ađ sćkja um orlofshús/orlofsávísun fyrir sumariđ?
Ef svarið er já þá skaltu smella hér til að fylla út umsókn. Umsóknarfrestur er til og með 23. mars næstkomandi. Júlí og fyrsta vika í ágúst er vinsælasti tíminn. Ef félagsmenn merkja við fleiri staði og tímasetningar aukast möguleikar á úthlutun. Sjá nánar um möguleikana hér á vefnum eða hér í SFR blaðinu.
17. mars 2011
Bingóiđ sló í gegn!
Um hundrað manns skemmtu sér konunglega í Félagamiðstöðinni Grettisgötu 89 í gærkvöld og komumst færri að en vildu. Þar voru komnir saman félagsmenn SFR og St.Rv. ásamt vinum og fjölskyldumeðlimum og spiluðu bingó eins og þau ættu lífið að leysa. Spilararnir voru á öllum aldri og virtust allir kunna vel að meta þessa skemmtun sem Menningar- og skemmtinefndir félaganna buðu upp á. Miðað við áhuga félagsmanna og aðsóknina má telja nokkuð víst að þessi leikur verður endurtekinn.
16. mars 2011
Ekki missa af ferđavinningi!
Yfir helmingur SFR félaga hefur nú valið Stofnun árs og svarað launakönnuninni, en betur má ef duga skal því áreiðanleiki og gæði könnunarinnar eykst með hverjum þátttakanda. Þeim sem ekki hafa skilað inn svörum er bent á að fresturinn til að senda inn svar hefur verið framlengdur til 18. mars.
14. mars 2011
BINGÓ BINGÓ BINGÓ fyrir alla !
Menningar- og skemmtinefndir SFR og St.Rv. bjóða félagsmönnum að koma og spila BINGÓ á miðvikudaginn 16. mars kl. 20-22, Grettisgötu 89, 1. hæð.
Bingóið er opið öllum félagsmönnum SFR stéttarfélags og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, sem einnig mega gjarnan taka með gesti, vini og vandamenn sem gætu haft gaman af smá leik. Í boði eru glæsilegir alvöru vinningar. Leikurinn er einfaldur, spila má með eitt spjald eða fleiri og allir geta spilað með. (Hvert spjald kostar 150 kr).
14. mars 2011
Námskeiđiđ Skattframtal í Reykjavík - í fjarfundi á Akureyri
Skráning stendur yfir á námskeiðið Skattframtal sem verður haldið mið. 16. mars kl. 16:30-19 á Grettisgötu 89 og einnig sent út í fjarfundabúnaði til Akureyrar. Fjallað verður um hvernig fylla á út skattframtal á netinu og veittar upplýsingar um hver er réttur til frádráttar, afsláttar og bóta, samanber t.d. frétt hér um frádrátt vegna styrkja til símenntunar og líkamsræktar.
9. mars 2011
Hvert ćtlar ţú í sumarfríinu? Nýtt orlofsblađ á leiđinni
Nýtt orlofsblað SFR ætti að vera að berast félagsmönnum inn um póstlúguna í dag og á morgun. Félagsmenn geta valið úr fjölmörgum kostum í sumar, en auk húsa í eigu orlofssjóðs SFR hefur verið bætt við húsum á nýjum stöðum á landinu til að auka fjölbreytileikann. Umsóknarfrestur er til og með 23. mars. ATH! Opnað verður fyrir bókanir til útlanda fös. 11. mars kl. 9. Einnig verður boðið upp á hús í dagleigu á 4 stöðum og er opnað fyrir bókanir í þau 1. apríl kl. 9. Þá bjóðast ýmsir aðrir kostir eins og orlofsávísanir, gjafabréf í flug, hótelmiðar, veiðikort ...
7. mars 2011
Baráttudagur kvenna 8. mars
Í Reykjavík verður haldinn fundur klukkan 11.45 til 13 á Grand Hótel Reykjavík undir yfirskriftinni: Staða konunnar er laus til umsóknar - Jafnrétti úr viðjum vanans. Dagskrá þess fundar má sjá á myndinni hér til hliðar.
Klukkan fimm hefst síðan dagskrá í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur undir yfirskriftinni: Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti - 8. mars í 100 ár. Dagskráin hefst á ávarpi Frú Vigdísar Finnbogadóttur. Að því loknu flytur Elín Björg Jónsdóttir ávarp og fleiri í kjölfarið.
Á Akureyri er einnig boðað til hádegisfundar í tilefni dagsins. Þar mun Jafnréttisstofa ásamt Akureyrarbæ, ASÍ, BHM, KÍ og BSRB efna til hádegisfundar um launamun kynjanna, aðgerðir Akureyrarbæjar til að afnema launamisrétti og hvernig mögulegt er að viðhalda góðum árangri.
4. mars 2011
Frestur til ađ svara Stofnun ársins framlengdur til 8. mars
Ákveðið hefur verið að gefa félagsmönnum kost á að svara hinni árlegu spurningakönnun um Stofnun ársins og Launakönnun fram til 8. mars. Við hvetjum félagsmenn til þess að taka þátt í könnuninni en til að könnunin verði sem best úr garði gerð þurfum við á þátttöku félagsmanna að halda.
2. mars 2011
SFR á ferđ á Suđurlandi
Í gær heimsóttu Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, og Alma Jóhannsdóttir, umboðsmaður trúnaðarmanna, félagsmenn sem starfa á Bitru, Litla Hrauni og Réttargeðdeildinni að Sogni. Þetta voru óformlegir fundir þar sem rætt var um stöðuna í kjaraviðræðum og ýmislegt fleira.
25. febrúar 2011
Hćgt miđar í kjaraviđrćđum
Eins og kunnugt er var SFR komið á skrið með kjarasamningsviðræður við ríkið í byrjun mánaðarins þegar í ljós kom að ríkið treysti sér ekki til að taka forystu í kjarasamningsviðræðunum og vildi bíða og sjá hvað gerðist á almenna markaðnum, þrátt fyrir yfirlýsingar SFR um að vilja ljúka kjarasamningum sem fyrst.
24. febrúar 2011
Ađalfundur SFR og tillögur ađ lagabreytingum
Aðalfundur SFR verður haldinn þri. 29. mars nk. kl. 17. Á fundinum eru venju-bundin aðalfundarstörf þar sem meðal annars verða teknar fyrir tillögur til laga-breytinga. Tillögurnar má nálgast hér. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á aðalfundinn. Boðið verður upp á léttan kvöldverð.
24. febrúar 2011
Neysluviđmiđin kynningarfundur
BSRB stendur fyrir opnum fundi um nýkynnt neysluviðmið með Guðbjarti Hannessyni velferðarráðherra. Fundurinn verður haldinn á fyrstu hæð BSRB-hússins að Grettisgötu 89, fimmtudaginn 24. febrúar og hefst klukkan 16.30.
21. febrúar 2011
Orlofshús í Stóru skógum til sölu
BSRB auglýsir til sölu 17 orlofshús í Stóru skógum í Borgarbyggð. Svæðið er staðsett vestan við þjóðveg 1, á móts við Munaðarnes sem Norðurá rennur austan við. Gljúfurá liggur vestan við svæðið. Orlofssvæðið er að stórum hluta vaxið birkikjarri og er þekkt fyrir heita sumardaga og mikla veðursæld. Að auki eru til leigu tvær auðar lóðir á svæðinu, sem reisa á orlofshús á. Sjá nánar hér.
21. febrúar 2011
Hádegisfróđleik frestađ
Hádegisfróðleik um Netnotkun og netöryggi barna sem vera átti 24. feb. næstkomandi er frestað vegna ónægrar þátttöku. Ný dagsetning auglýst síðar.
18. febrúar 2011
BSRB átelur launahćkkun dómara
17. febrúar 2011
Könnunin Stofnun ársins ćtti ađ hafa borist öllum 22. feb.
Könnunin um Stofnun ársins og Launakönnun ætti að vera að berast félagsmönnum í þessari viku. Ef félagsmaður hefur ekki fengið könnunina fyrir 22. febrúar þá er um að gera að láta vita í s. 525-8340 eða senda póst á johanna@sfr.is, var áður miðað við 15. febrúar.
16. febrúar 2011
Flottar undirtektir viđ Gott ađ vita námskeiđunum
Mjög góð skráning hefur verið á námskeið og fyrirlestra á vegum SFR og St.Rv. Á eftir eru um 60 manns að fara að hlýða á hvernig rækta eigi kryddjurtir og þar af er helmingur á Akureyri, en fræðslan er send í fjarfundi norður. Enn er laust pláss á hádegisfróðleikinn sem er í næstu viku um Netnotkun og netöryggi barna sem og námskeiðin Skattframtal, Réttindi og skyldur, Réttlæti og sáttargjörð, Íslenskar bókmenntir síðustu ára og fleiri.
15. febrúar 2011
Sókn er besta vörnin!
Í erfiðu árferði getur símenntun verið ómetanlegur þáttur í því að efla sjálfstraust og þol starfsmanna undir álagi. Fræðslusetrið Starfsmenntbýður upp á fjölbreytt úrval námsleiða, bæði þverfagleg námskeið sem eru öllum opin, sem og sérsniðið nám fyrir einstaka stofnanir þar sem fræðslan er samofin störfunum. Að auki býður Starfsmennt stofnunum uppá ýmsa sérhæfða þjónustu.
15. febrúar 2011
Páskaúthlutun - frestur rennur út á miđnćtti
Umsóknarfrestur um orlofshús fyrir páskana rennur út á miðnætti í kvöld. Úthlutað verður frá miðvikudagi til miðvikudags, þ.e. frá 20. - 27. aprí 2011l. Umsóknir á Orlofsvefnum.
10. febrúar 2011
Samvinna félaga
Sameiginlegur trúnaðarmannafundur SFR og St.Rv. var haldinn á Grand Hótel í gær. Þar mættu trúnaðarmenn og fulltrúar SFR og St.Rv. og veltu fyrir sér kostum og göllum aukins samstarfs félaganna.
9. febrúar 2011
Ný neysluviđmiđ
Velferðarráðherra lagði nýlega fram skýrslu sérfræðingahóps um neysluviðmið fyrir heimili á Íslandi. Skýrslan var lögð fram til kynningar og umræðu og hana má nálgast á vef ráðuneytisins ásamt reiknivél þar sem einstaklingar geta mátað sig að neysluviðmiðunum í samræmi við eigin aðstæður.
9. febrúar 2011
Kjararáđstefna félagsmanna hjá Isavia og Fríhöfninni
Kjarasamningar eru lausir hjá ISAVIA (áður Keflavíkurflugvöllur) og Fríhöfninni, og stóð SFR fyrir kjararáðstefnu félagsmanna í gær. Félagsmenn tilheyra ólíkum starfshópum hjá ISAVIA, en þeir vinna bæði í öryggisvörslu og á skrifstofu. Hjá Fríhöfninni starfa félagsmenn við sölustörf og lagervinnu. Kjararáðstefnan var haldin í Reykjanesbæ og var vel sótt.
9. febrúar 2011
Ríkiđ ţorir ekki
SFR hefur lagt fram ramma að kjarasamningi, en á fundi samninganefndanna í gær var hugmyndunum tekið fálega. SFR hefur lagt áherslu á að klára kjarasamninga sem fyrst og semja til 18-24 mánaða. Ríkið treystir sér ekki til þess að vera í forystu í samningaviðræðunum og styður þannig Samtök atvinnulífsins sem tekið hafa kjarasamningsviðræður í gíslingu með kröfu um lausn í kvótamálum."Ríkið þorir ekki að semja við okkur á undan öðrum, það er algjörlega óþolandi, " sagði Árni Stefán Jónsson, formaður SFR í kvöldfréttum RÚV í gær.
7. febrúar 2011
Samninganefndin fundar
Samninganefnd SFR mun funda með samninganefnd ríkisins á morgun þriðjudag. Á fundinum má gera ráð fyrir viðbrögðum við þeim kröfum sem félagið hefur lagt fram. Í kröfugerðinni hefur SFR m.a. farið fram á samning til 18-24 mánaða. Þá leggur félagið einnig til að farin verði svokölluð blönduð leið í launahækkunum, þ.e. bæði krónutölu- og prósentuhækkun og að samið um sérstaka jafnréttislaunapotta til að jafna launamun kynjanna.
1. febrúar 2011
Skráning á Gott ađ vita
Ýmsir fyrirlestrar og námskeið verða í boði þessa vorönnina. Meðal sígíldra námskeiða eru ljós-myndanámskeið fyrir litlar vélar, skattframtal og prjónanámskeið. Ýmislegt nýtt er á dagskrá eins og námskeið um íslenskar bókmenntir síðustu ára, bridgenámskeið... Skráning hér.
1. febrúar 2011
Fundur međ atvinnuleitendum
Félagsmönnum í atvinnuleit innan SFR auk St.Rv. félaga í sömu stöðu var boðið á fund félaganna í síðustu viku. Margir þeirra sem boðsbréfið fengu þáðu boðið sem var afar ánægjulegt. Á fundinum voru atvinnuleitendur fræddir um réttindi sín og möguleika innan félaganna.
31. janúar 2011
SFR blađiđ á leiđ til félagsmanna
SFR blaðið mun berast félagsmönnum á næstu dögum. Þar má meðal annars finna upplýsingar um öll námskeið Gott að vita, sem boðið verður upp á nú á vorönninni. Þau eru félagsmönnum að kostnaðarlausu og mun verða opnað fyrir skráningu kl. 9:00 á miðvikudaginn 2. feb. Þá er að finna í blaðinu upplýsingar um páskaúthlutun orlofshúsa SFR.
31. janúar 2011
Jafnréttisţing 2011
Í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla boða velferðarráðherra og Jafnréttisráð til jafnréttisþings 4. febrúar næstkomandi að Nordica Hilton Reykjavík kl. 9 til 16. Þingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis.
31. janúar 2011
Vinna viđ könunina Stofnun ársins 2011 hafin
Vinna við könnunina Stofnun ársins 2011 er komin í fullan gang. Um þessar mundir er verið að hringja í félagsmenn og bjóða þeim að taka þátt í könnuninni. Spurningalistinn verður sendur út í annarri viku febrúar. Hann fer rafrænt til þeirra sem hafa uppgefin netföng og í pósti til annarra.
28. janúar 2011
Kröfur um 18 til 24 mánađa samning
Samninganefnd SFR og samninganefnd ríkisins funduðu í gær. Einn af áhersluþáttur SFR sem félagið lagði fram er að samningar verði gerðir til 18 til 24 mánaða. Með þeim hætti væri hægt að vinna að nauðsynlegum stöðugleika til hæfilegs tíma, en binda kjarasamninga ekki of langt inn í framtíðina í því óvissa ástandi sem nú ríkir í rekstrarumhverfi ríkisins. Einnig telur samninganefnd SFR það ekki þjóna hagsmunum launþega að gera skemmri samninga en til 18 mánaða.
28. janúar 2011
Laus hús um helgina
Nokkur orlofshús SFR að Eiðum, í Munaðarnesi og í Vaðnesi eru laus um helgina. Þeir sem vilja eiga notalega stund með fjölskyldu og vinum fjarri skarkala borgar og bæja er bent á bókunarvef félagsins.
28. janúar 2011
Ráđstefna um kynjađa hagstjórn
Jafnréttisstofa býður til ráðstefnu um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð mánudaginn 14. febrúar kl. 13:00 á Hilton Hótel Nordica. Ráðstefnan ber yfirskriftina Nýir tímar - breytt hagstjórn. Aðal fyrirlesari verður Diane Elson einn helsti sérfræðingur heims á þessu sviði auk þess mun verkefnastjórn um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð kynna starf sitt og tvö tilraunaverkefni á hennar vegum verða kynnt. Sjá nánar.
25. janúar 2011
BSRB fundar međ ráđherrum
24. janúar 2011
Vćri ekki nokkuđ til vinnandi?
"Það liggur í augum uppi að ríkið á að bjóða upp á öfluga þjálfun fyrir stjórnendur sína á sviði starfsmannastjórnunar og mannauðsmála. Þó ekki væri nema fyrir það að með þjálfun stjórnenda á þessu sviði væri ríkið að tryggja eftir bestu getu að það sjálft verði eftirsóttur atvinnuveitandi, sem þekktur væri af framsækni, árangri í rekstri og góðum vinnuanda."
Þetta segir Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR í grein sem birtist í Fréttablaðinu um helgina.
21. janúar 2011
Ekkert sem heitir „viđ" og „ţiđ"
Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB ritar grein í Fréttablaðinu í dag þar sem hún bregst við ályktun Ríkisendurskoðunar um að einfalda þurfi uppsagnarferli opinberra starfsmanna. Í greininni segir hún m.a. að opinber stjórnsýsla sé okkar allra. "Hún er tækið sem við höfum til að reka samfélagið. Um það tæki verða að gilda skýrar reglur og gagnsæjar, ráða verður faglega í stöður og nýta þarf starfsmannamat. Hvað opinbera stjórnsýslu varðar er ekkert sem heitir „við" og „þið". Fólkið í henni er af heilindum að vinna að betri umgjörð um lýðræðislegt stjórnkerfi þjóðarinnar." Greinina í heild sinni má lesa hér.
20. janúar 2011
Laus orlofshús um helgina
Nokkur orlofshús SFR eru laus um næstu helgi í Munaðarnesi, Húsafelli, Vaðnesi, á Eiðum og Arnarstapa Snæfellsnesi. Auk þess er íbúðin okkar í Kaupmannahöfn laus um næstu helgi. Bókið beint á orlofsvefnum hér.
19. janúar 2011
Stjórnendur eru vandamáliđ
"Þekkingarskortur yfirmanna hjá ríkinu á mannauðsmálum er aðalvandamálið en ekki flókin lög um málsmeðferð við uppsagnir ríkisstarfsmanna." Þetta segir Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR í viðtali við mbl.is í dag.
Ríkisendurskoðun leggur til að lögin verði einfölduð og ákvæði um áminningu endurskoðuð. „Það er trú þessara forstöðumanna að stórum hluta að ef þeir hefðu heimild til að reka fólk á morgun og ráða nýtt inn í staðinn þá trúa þeir því að þeir gætu veitt betri þjónustu. Þetta er það alvitlausasta sem maður hefur heyrt og lýsir fyrst og fremst vankunnáttu þeirra,“ segir Þórarinn.
19. janúar 2011
Svo skal böl bćta ađ benda á eitthvađ annađ!
Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar er lagt til að málsmeðferð við uppsögn ríkisstarfsmanna verði einfölduð og ákvæði starfsmannalaga um áminningu verði endurskoðað. Lagt er til að áminningarskyldan verði felld brott þar sem sú regla tryggi opinberum starfsmönnum meira starfsöryggi en öðrum. Haft er eftir Helgu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra BSRB á Eyjunni í dagð að það sé ekki áminningarferlið sem sé íþyngjandi heldur sé það til staðar svo tryggja megi vandaðri stjórnsýslu. Stjórnendur séu ekki að nýta sér þau tæki sem þeir hafi yfir að ráða.
19. janúar 2011
SFR óskar eftir orlofsbúđ á vesturlandi
SFR stéttarfélag óskar eftir að taka á leigu íbúð, einbýli eða orlofshús fyrir félagsmenn sína næsta sumar (júní, júlí og ágúst 2011). Íbúðin eða húsið þarf að vera fullfrágengið að utan og innan og fullbúið með húsgögnum og almennum búnaði. Sérstaklega er óskað eftir húsum í Stykkishólmi, Ólafsvík eða Flatey. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda greinargóða lýsingu ásamt myndum á netfangið dora@sfr.is
19. janúar 2011
Mikilvćgt ađ óvissu sé eytt
14. janúar 2011
Nám fyrir trúnađarmenn - skráning stendur yfir
Vilt þú efla færni þína til að vinna af fagmennsku sem trúnaðarmaður á vinnustað? Eða kannski efla samskiptafærni þína og færni til að vinna skipulega? Þá átt þú erindi í trúnaðarmannafræðslu BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu. Námið er í sjö þrepum og má meta til allt að 11 einingum á framhaldsskólastigi.
13. janúar 2011
Opinberir starfsmenn vilja fjölskylduvćnna samfélag
Í samtali við Fréttablaðið í dag segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB að með styttri vinnuviku skapist fjölskylduvænna samfélag. Þetta segir á vef BSRB, en opinberir starfsmenn með Bandalagið í brjósti fylkingar berjast fyrir styttingu vinnuvikunnar í 36 stundir í dagvinnu til að skapa fjölskylduvænna vinnuumhverfi.
13. janúar 2011
Fjölbreytt úrval námskeiđa
Nýr námsvísir Fræðslusetursins Starfsmenntar er kominn út. Þar er að finna námsleiðir sem í boði eru vorið 2011. Fjölbreytt úrval starfstengdra námsleiða og margskonar mannauðsþjónustu er þar í boði fyrir opinbera starfsmenn. Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér efni námsvísisins, en hann má m.a. nálgast hér.
12. janúar 2011
Samstarf eflt til hagsbóta fyrir lífeyrisţega
Á vef BSRB kemur fram að í samkomulagi ríkisstjórnar Íslands og Landssambands lífeyrissjóða um víxlverkum bóta að samstarf Tryggingarstofnunar ríkisins og lífeyrssjóðanna verði eflt til einföldunar og hagsbóta fyrir lílfeyrisþega. Þá er stefnt að því að fundin verði lausn til framtíðar á víxlverkun bóta almannatrygginga og lífeyrissjóðanna. Þetta er þetta í fullu í samræmi við baráttumál BSRB, sem meðal annars má sjá stað í samþykktum 42. þings bandalagsins.
11. janúar 2011
SFR opnar nýjan vef
Á trúnaðarmannafundi í dag var opnaður nýr vefur félagsins. Unnið hefur verið að breytingum og endurbótum á vefnum undanfarnar vikur og er það von skrifstofu SFR að nýi vefurinn muni þjóna félagsmönnum vel. Auk þess var á fundinum fjallað um leigumarkaðinn á Íslandi og Gísli Örn Bjarnhéðinsson framkvæmdastjóri Búseta kynnti félagið.
4. janúar 2011
Laust í orlofshús SFR
Hvað getur verið meira tilvalið en að hefja nýtt ár með hollari lífsstíl út í náttúrunni miðri? Það vill svo til að þess dagana og nokkrar helgar framundan eru óvenju mörg orlofshús laus hjá félaginu. Til að bóka þarf einfaldlega að fara inn á Orlofsvefinn og þaðan á bókunarvefinn.
4. janúar 2011
Starfslokanámskeiđ
Næsta starfslokanámskeið á höfuðborgarsvæðinu verður haldið nú í lok janúar. Félagsmálaskóli alþýðu stendur fyrir námskeiðinu, sem verður haldið haldið dagana 31. janúar til 2. febrúar. Námskeiðið verður frá kl. 16.30 til kl. 19.00 hvert kvöld og er haldið í húsnæði BSRB Grettisgötu 89, 1. hæð. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum í BSRB sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og mökum þeirra.
Sjá nánar á vef BSRB.




