Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30. september 2010

Óvissa hjá starfsmönnum málefna fatlaðra á Egilsstöðum

Egilsstadir malefni fatladra okt2010Nú stendur yfir fundur starfsfólks málefna fatlaðra á Egilsstöðum þar sem fyrirhugaður flutningur málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga er ræddur. Mikil óánægja og óvissa er í röðum starfsfólks og rödd þeirra sem kalla eftir skýrum svörum um réttindi starfsfólk verður æ háværari. Starfsfólk svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Egilsstöðum hefur eins og annað starfsfólk málaflokksins beðið eftir upplýsingum og lausn sinna mála síðustu vikur og mánuði.

Flutningur málaflokksins er fyrirhugaður nú um áramót en enn hefur ekkert samkomulag náðst sem tryggir réttindi starfsmanna. Kröfur starfsmanna eru þær að fá það sjálfsagða val um að halda áfram stéttarfélagsaðild í sínu félagi að verða ekki þvingað í önnur félög.

30. september 2010

Samkomulag um bætur vegna loftmengunar á vinnustað

Nýlega náðist samkomulag við íslenska ríkið um greiðslur skaðabóta fyrir starfsmann sem starfaði hjá tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum að Keldum. Viðkomandi starfsmaður starfaði hjá tilraunastöðinni í 20 ár og rekja mátti líkamstjónið til loftmengunar og meðferð efna á vinnustaðnum, sem höfðu skaðandi áhrif á öndunarfæri og hendur starfsmannsins. Málið hefur verið lengi til umfjöllunar, eða frá því árið 2005, en samkomulag náðist nýlega um fullnaðarbætur sem hafa nú verið greiddar vegna varanlegs líkamstjóns sem starfsmaðurinn hlaut.

30. september 2010

Samningsrétturinn í höndum félaganna

Síðast liðinn föstudag funduðu fulltrúar frá aðildarfélögum BSRB um mögulegt samstarf vegna komandi kjarasamninga. Á fundinum var tekin ákvörðun um að fela BSRB að fjalla um sameiginleg réttindamál félaganna en samningsrétturinn verður í höndum hvers félags sem gerðu gerðu hvert um sig viðræðuáætlanir við sína viðsemjendur.

29. september 2010

Stjórn Kjalar lýsir yfir fullum stuðningi

Stjórn KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu lýsir yfir fullum stuðningi við SFR stéttarfélag í almannaþjónustu í deilum við Samband íslenskra sveitarfélaga um stéttarfélagsaðild þeirra starfsmanna sem vinna að málefnum fatlaðra sem flytja á frá ríkinu til sveitarfélaganna nú um áramótin.

Við verkaskipti ríkis og sveitarfélaga árin 1989 og 1990 þá var lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna breytt svo að bæjarstarfsmannafélögin þ.á.m KJÖLUR stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, hefðu áfram samningsrétt fyrir sína félagsmenn sem unnu á þeim stofnunum sem fluttar voru frá sveitarfélögum til ríkisins.

22. september 2010

Kjör munu ekki rýrna við yfirfærsluna

Við afhendingu undirskriftalista sem Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa stóð fyrir í Félagsmálaráðuneytinu í gær, sagði Guðbjartur Hannesson félags- og tryggingamálaráðherra að kjör starfsmanna myndu ekki rýrna við yfirfærsluna. Þetta kom fram í sjónvarpsfréttum RÚV í gærkvöldi. Sjá fréttina hér. Formaður SFR, Árni Stefán Jónsson, og framkvæmdastjóri, Þórarinn Eyfjörð, áttu síðan fund með ráðherra í morgun þar sem farið var vandlega yfir stöðu mála.

21. september 2010

Ráðherra afhentar undirskriftir

Undirskriftir afhentar sept 2010Síðdegis afhentu fulltrúar úr stjórn ráðgjafa og stuðningsfulltrúa Guðbjarti Hannessyni félags- og tryggingamálaráðherra undirskriftir tæplega 800 starfsmanna málefna fatlaðra. Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa er fagdeild innan SFR en málið snertir 1200 félagsmenn sem starfa að málefnum fatlaðra um land allt.
Mikil óvissa ríkir um starfsöryggi félagsmanna SFR innan málaflokksins, yfirfærslan á að fara fram um áramótin  og enn hefur ekki náðst samkomulag á milli samningsaðila. Með undirskriftunum vilja félagsmenn krefjast þess að þeir njóti sömu réttinda og aðrir starfsmenn og fái að halda félagsaðild sinni að SFR stéttarfélagi við flutning málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga sem fyrirhugaður er nú um áramótin.

21. september 2010

BSRB ítrekar stuðning sinn

Á heimasíðu BSRB er ítrekuð sú afstaða bandalagsins að starfsmenn eigi að geta valið um hvort þeir verði áfram í SFR eða viðkomandi bæjarstarfsmannafélagi við flutning málaflokks fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Í fréttinni er birtur úrdráttur úr bréfi sem Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB sendi stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þar segir m.a.: " Við verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga skal það vera meginregla að það stéttarfélag sem hefur samningsréttinn fyrir þau störf sem um ræðir haldi réttinum til kjarasamningagerðar áfram, ásamt því bæjarstarfsmannafélagi sem er fyrir á þeim vettvangi.

21. september 2010

Stuðningur frá Kennarasambandi Íslands

Stjórn Kennarasambands Íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem sambandið lýsir yfir fullum stuðningi við forystu SFR í deilum okkar við forystu Sambands íslenskra sveitarfélaga um stéttarfélagsaðild þeirra starfsmanna sem vinna að málefnum fatlaðra. Í ályktuninni kemur fram að stjórn KÍ telur það afar óeðlilegt að vinnuveitendur beiti fólk þvingunum varðandi stéttarfélagsaðild þó störf þeirra séu færð frá einum vinnuveitanda til annars. Við flutning á rekstri grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga hafi aldrei komið til álita að félagsmenn KÍ skiptu um stéttarfélag.

16. september 2010

Trúnaðarmannaráð krefst þess að réttindi séu virt

A fyrsta trúnaðarmannaráðsfundi haustsins sem haldinn var í vikunni samþykkti fundurinn eftirfarandi ályktun:
Trúnaðarmannaráð SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu mótmælir þeirri kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga að starfsfólk svæðisskrifstofa málefna fatlaðra verði skyldað til að skipta um stéttarfélag við yfirfærslu málaflokksins frá ríki til sveitarfélaganna. Það er sjálfsagður réttur starfsmanna að halda stéttarfélagsaðild sinni. Lagabreyting hefur áður verið gerð til að tryggja réttindi starfsfólks við yfirfærslu málaflokka milli ríkis og sveitarfélaga. Þegar yfirfærsla heilbrigðisstofnana frá sveitarfélögum til ríkis átti sér stað árið 1989-90, fengu starfsmenn að velja hvort þeir héldu aðild sinni að þáverandi stéttarfélagi eða flyttu sig. Lagabreytingu þarf til en réttindi fólks eru í húfi, því án hennar er einfaldlega verið að iðka gamaldags vinnubrögð með því að flytja fólk nauðungarflutningum milli félaga. Mikil óvissa ríkir um starfsöryggi félagsmanna SFR innan málaflokksins, yfirfærslan á að fara fram nú um áramótin  og enn hefur ekki náðst samkomulag á milli samningsaðila. Skýr vilji meirihluta félagsmanna SFR liggur þegar fyrir en þeir vilja vera áfram félagar í SFR. Trúnaðarmannaráð SFR krefst þess að ríkið taki ábyrgð á að tryggja réttindi og kjör liðlega 1200 félagsmanna SFR innan málaflokksins með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Fundurinn telur það einnig vera eðlilega kröfu að samsvarandi breyting verði nú gerð á samningsréttarlögunum og gerð var 1990 og að starfsmenn við málefni fatlaðra geti átt áframhaldandi aðild að SFR, þrátt fyrir yfirfærslu málaflokksins, og að nýir starfsmenn geti valið sér stéttarfélag.

16. september 2010

"Þjóðfundur" SFR í Borgarnesi

tjodfundur borgarnesiFyrsti "þjóðfundur" SFR af tíu var haldinn í Borgarnesi í dag. Þar hittust félagsmenn og ræddu um kjara- og vinnutengd málefni og notuðu til þess aðferðafræði sem  kennd hefur verið við þjóðfundinn. Markmiðið með þjóðfundunum er að safna saman upplýsingum um markmið og áherslur félagsmanna m.a. í launa- og kjaramálum til undirbúnings vegna kjarasamningsviðræðnanna framundan. Borgarnesfundurinn var afar gagnlegur og ánægjulegur og er þeim félagsmönnum sem þátt tóku á Vesturlandi þakkaðar góðar móttökur. Fundirnir verða haldnir hver að öðrum næstu vikur í Reykjavík og víða um landið. Sá síðasti verður haldinn í samvinnu við St.Rv. í lok október með trúnaðarmönnum, launamálaráði auk fulltrúa St.Rv.

13. september 2010

Fjölmennur trúnaðarmannaráðsfundur

Fyrsti trúnaðarmannaráðsfundur haustsins var haldinn í dag. Tómas Bjarnason, frá Capacent kynnti niðurstöðu nýrrar launakönnunar SFR þar sem m.a. kom fram vaxandi starfsóöryggi og versnandi kjör félagsmanna. Þá var kosið í launamálaráð félagsins, en launamálaráð kýs m.a. fulltrúa í samninganefnd félagsins. Einnig var kosin uppstillingarnefnd sem ætlað er að koma með tillögur um fulltrúa í ritnefnd SFR blaðsins, laganefnd, jafnréttisnefnd og menningar- og skemmtinefnd á næsta trúnaðarmannaráðsfundi. Olga Gunnarsdóttir kynnti félag næringarrekstrarfræðinga við góðar undirtektir og að lokum samþykkti fundurinn ályktun þar sem kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga að starfsfólk svæðisskrifstofu fatlaðra verði skyldað til að skipta um stéttarfélag við yfirfærslu málaflokksins frá ríki til sveitarfélaganna var mótmælt. 

13. september 2010

Launakönnun SFR - Enn þrengir að starfsmönnum í almannaþjónustu

Í nýrri launakönnun SFR stéttarfélags í almannaþjónustu kemur fram að launabilið á milli starfsmanna í almannaþjónustu og starfsmanna á almennum vinnumarkaði í sambærilegum starfsgreinum hefur aukist á milli ára og er nú 18%, almenna vinnumarkaðnum í vil. SFR hefur nú fjórða árið í röð, í samstarfi við VR, fengið Capacent Gallup til að vinna launakönnun fyrir félagið. Niðurstöður könnunarinnar sýna að launamunur á milli starfsmanna í almannaþjónustu og starfsmanna á almennum vinnumarkaði hefur eykst á milli ára. Þegar tekið hefur verið tillit til kyns, aldurs, starfsstéttar, starfsaldurs, vinnutíma, vaktaálags og menntunar, er munurinn á heildarlaunum félagsmanna SFR og VR 18%, VR félögum í vil. Í könnuninni í fyrra var munurinn 15% og 20% árið þar á undan.

10. september 2010

SFR blaðið er komið út

Nýjasta hefti SFR blaðsins er komið út og hefur verið dreift til félagsmanna. Í blaðinu birtast niðurstöður launakönnunar SFR en opnað verður fyrir heildarniðurstöður hennar á www.sfr.is kl. 11:30 mánudaginn 13. septembmer. Þá er þar einnig að finna dagskrá Gott að vita og geta félagsmenn notað helgina til að skoða dagskrá haustsins því opnað verður fyrir skráningu á námskeiðin kl. 9 á mánudag.

9. september 2010

Nýr samningur við Veðurstofuna

Nýr stofnanasamningur Veðurstofu íslands og SFR hefur verið gerður og er kominn á netið.

9. september 2010

Sveppanámskeið í Heiðmörk

sveppir10Nú í byrjun september var haldið stórskemmtilegt sveppatínslunámskeið á vegum Gott að vita. Námskeiðið var fullbókað og gott betur og létu þátttakendur vel að. Leiðbeinandi var Ása Margrét Ásgrímsdóttir. Ekki var einungis kennt á bókina heldur fór hópurinn í vettvangsferð upp í Heiðmörk á síðasta laugardag og æfði sig í að finna og tína réttu sveppina. Enda eins gott að læra listina áður en farið er að tína þar sem einungis brot af öllum þeim sveppategundum sem finnast á Íslandi eru matsveppir.

9. september 2010

Laust orlofshús í Húsafelli um helgina

husafelluti4Mikil aðsókn hefur verið í orlofshús SFR nú síðsumars. Einungis eru laus hús á Eiðum um næstu helgi og svo eitt hús í Húsafelli sem var að losna. Þar gildir eins og annars staðar, fyrstur bókar fyrstur fær.

6. september 2010

Fátækt á Íslandi - borgarafundur

Næstkomandi miðvikudag, þann  8. septemberkl. 20:00 verður haldinn borgarafundur í Ráðhúsi Reykjavíkur um fátækt á Íslandi. Frummælendur verða talsmenn öryrkja, aldraðra, atvinnuleitenda, félagsbóta- og láglaunaþega, ásamt fulltrúum hjálparsamtaka.Formaður BSRB verður í pallborði, ásamt ráðherrum, forseta ASÍ og fleirum. Nánar um fundinn hér

6. september 2010

Maíkórinn hefur upp raust sína að nýju

Maíkórinn er blandaður kór BSRB félaga sem tók formlega til starfa haustið 2009. Í vetur mun kórinn æfa á mánudögum kl. 19:30-21:30 á Grettisgötu 89. Lagaval er fjölbreytt og andinn góður. Kórinn getur bætt í allar raddir og þá sérstaklega karlaröddum, en í kórnum er bæði vant söngfólk og óvant. Allir velkomnir. Stjórnandi er Svava Kristín Ingólfsdóttir og undirleikari Hörður Bragason. Nánari upplýsingar hjá svavaki@simnet.is, s. 867 7882.

3. september 2010

Starfsmenn verða ekki þvingaðir

Í Fréttablaðinu í gær var haft eftir Halldóri Halldórssyni, formanni Sambands sveitarfélaga að ekki komi til greina að félagsmenn SFR haldi aðild sinni að félaginu við yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga þar sem SFR sé einungis félag ríkisstarfsmanna, og því myndi aðkoma þess gjörbreyta kjarasamningsumhverfi sveitastjórnarstigsins. Þessi fullyrðing Halldórs er algjörlega úr lausu lofti gripin, SFR hefur um árabil gert kjarasamninga við sjálfseignarstofnanir, hlutafélög á opinberum markaði og Reykjavíkurborg, auk samninga við ríki og þjónar því sannarlega öðrum og stærri hópum en ríkisstarfsmönnum, eins og flestir vita.

2. september 2010

Úttekt á lífeyrissjóðunum hafin

Á vef BSRB kemur fram að úttektarnefnd Landsamtaka lífeyrissjóðanna sé nú tekin til starfa. Nefndinni er ætlað að gera útekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins í nóvember 2008. Formaður nefndarinnar er Hrafn Bragason lögfræðingur og fyrrum hæstaréttardómari, en auk hans sitja þau Guðmundur Heiðar Frímannsson, siðfræðingur og prófessor við Háskólann á Akureyri, og Katrín Ólafsdóttir, hagfræðingur og lektor við Háskólann í Reykjavík, í nefndinni. Í fréttinni kemur fram að starfsmaður nefndarinnar, Kristján Geir Pétursson lögfræðingur muni á næstu dögum setja sig í samband við lífeyrissjóðina og safna gögnum.

1. september 2010

Sneisafullt SFR blað í vinnslu

Fyrsta SFR blað haustsins kemur út rétt um miðjan september, en blaðið er sneisafullt af efni að venju. Í því má finna m.a. niðurstöður úr launakönnun SFR, en SFR ásamt VR standa fyrir einni stærstu vinnumarkaðskönnun landsins ár hvert, þar sem fylgjast má með þróun launamála hjá félögunum ásamt fleiru. Þá verður í blaðinu dagskrá Gott að vita, en þar verða kynnt fjölmörg spennandi námskeið sem standa félagsmönnum SFR til boða nú í haust og í vetur, þeim að kostnaðarlausu. Þess má geta að skráning í Gott að vita námskeiðin hefst ekki fyrr en 13. september um það leyti sem blaðið kemur út. Að lokum eru ljósmyndir úr ljósmyndasamkeppni SFR birtar í blaðinu og greint verður frá hverjir hlutu vinningana góðu, en þátttaka í keppninni var mjög góð og margar myndirnar glæsilegar.

 

1. september 2010

FRS krefst þess að mannréttindi séu virt

Stjórn FRS, Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa fundaði í gær um  yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Félagsmenn FRS eru áhyggjufullir vegna stöðu mála, en mikil óvissa ríkir um starfsöryggi og áframhaldandi stéttarfélagsaðild þeirra sem starfa hjá svæðisskrifstofum málefna fatlaðra. Þrátt fyrir að yfirfærsla málaflokksins eigi að fara fram nú um áramótin hefur ekki náðst samkomulag á milli samningsaðila. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sett sig upp á móti því að starfsmenn haldi stéttarfélagsaðildinni og vinnur þannig þvert á vilja þeirra. Skýr vilji félagsmanna SFR liggur þegar fyrir en þeir vilja vera áfram félagar í SFR og krefjast þess að njóta sömu réttinda og starfsmenn héldu við yfirfærslu heilbrigðisstofnana frá sveitarfélögum til ríkis árið 1989-90, en þá fengu starfsmenn að velja hvort þeir héldu aðild sinni í þáverandi stéttarfélagi eða flyttu sig.

1. september 2010

Orlofshús í desember

Skorradalur klassikÍ morgun var opnað fyrir bókanir í orlofshús SFR fram til 3. janúar 2011. Venjulega er bókunarvefurinn fyrir orlofshús innanlands opnaður fjóra mánuði fram í tímann og ætti því aðeins að vera hægt að bóka til 31. des. en þar sem gamlársdagur (31. des.) lendir á föstudegi er líklegt að einhver vilji bóka þá helgi tímanlega og því var ákveðið að opna fyrir bókanir fram til 3. janúar að þessu sinni. Bókanir fara fram hér á vefnum. Vert er að benda á að mörg þeirra orlofshúsa sem við höfum boðið upp á í sumar verða ekki í boði nema fram í byrjun september. Í vetur verða orlofshúsin í Vaðnesi, Munaðarnesi, Arnarstapa, Skorradal og Húsafelli auk íbúða félagsins í Reykjavík, á Akureyri og í Kaupmannahöfn í boði fyrir félagsmenn. Nánari upplýsingar og bókanir eru á orlofsvefnum.


Slóðin þín:

Fréttir