Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

17. desember 2010

Samkomulag um launasetningu

SFR og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa gengið frá samkomulagi um launasetningu starfsmanna málefna fatlaðra við yfirfærslu málaflokksins. Samkomulagið gengur út á að starfsmönnum verði raðað inn í starfsmatslaunakerfi sveitarfélaganna, þó með þeim fyrirvara að þeir sem myndu lækka við röðunina halda sínum launum en þeir sem hækka njóta þess. Að öðru leyti er kjarasamningurinn óbreyttur þar til að nýr heildarsamningur verður gerður, en viðræður um nýjan kjarasamning standa nú yfir. Þetta samkomulag á ekki við starfsmenn málefna fatlaðra í Reykjavík.

15. desember 2010

Evrópuár 2010 gegn fátækt og félagslegri einangrun - Lokaráðstefna

Berjumst fatæktEvrópuárið 2010 var tileinkað baráttunni gegn  fátækt og félagslegri einangrun. Ísland hefur tekið fullan þátt í verkefninu með ýmsum móti. Árinu fer nú senn að ljúka en vinnan heldur áfram. Á föstudaginn 17. desember verður haldin ráðstefna í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem kynnt verða mörg þeirra verkefna og rannsókna sem hefur verið ýtt úr vör á árinu, en fjöldi styrkja var veittur til baráttunnar. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.

14. desember 2010

Samningaviðræður við Samband íslenskra sveitarfélaga hafnar

Hafnar eru samningaviðræður við Samband íslenskra sveitarfélaga vegna þeirra félagsmanna sem færast munu frá ríki til sveitarfélaga við yfirfærslu málefna fatlaðra nú um áramótin. Þó lög um flutninginn hafi enn ekki verið samþykkt frá Alþingi hafa fulltrúar í samninganefnd SFR, sem kosnir voru úr hópi trúnaðarmanna stuðningsfulltrúa og félagsliða, þegar hitt samninganefnd Sambandsins á fundi. Ekki er gert ráð fyrir að mikið muni þokast í samningaviðræðum fyrr en lögin hafi verið samþykkt, og því er niðurstöðu ekki að vænta fyrr en eftir áramót.

13. desember 2010

SFR blaðið er komið út

SFR desforsida 2010SFR blaðið er komið út og er væntanlega í póstpokum póstburðarmanna. Blaðið er fullt af efni að venju. Þar má m.a. lesa um markmið og kröfur SFR í yfirstandandi kajrasamningsviðræðunum, þá eru kynntar þar niðurstöður úr úttekt á jafnrétti félagsmanna á heimilinu, kynjabókhald BSRB kynnt, greinar um íslenska velferðarkerfið, yfirfærslu málefni fatlaðra, skort á sérþekkingu stjórnenda o.fl.

13. desember 2010

Frábær vinna félagsmanna

Kjarasamningsvidraedur2010Eins og félagmönnum er kunnugt hélt SFR nokkurs konar þjóðfundi eða púlsfundi víða um land haustmánuðum. Þar gafst félagsmönnum kostur á að koma fram með hugmynd-ir um ýmsa vinnutengda þætti og eins áherslur sem þeir vildu setja á launa- og kjaraþáttinn í yfirstandandi kjarasamningsgerð. Afrakstur vinnunnar ásamt hugmyndum trúnaðarmanna frá sameiginlegum starfsdegi trúnaðarmanna SFR og St.Rv. hafa nú verið birtar hér á vefnum.

10. desember 2010

Verjum velferðina

Stjórn BSRB samþykkti rétt í þessu áskorun til Alþingismanna vegna fjárlagafrumvarpsins, þetta kemur fram á vef BSRB. Stjórnin hvetur þingmenn til þess að sjá til þess að niðurskurðartillögur frumvarpsins höggvi ekki að rótum velferðarkerfisins og til að verja velferðina. Í yfirferð hagfræðings BSRB, Hilmars Ögmundssonar, á frumvarpinu, hefur komið fram að forsendur frumvarpsins eru mjög hæpnar, svo ekki sé meira sagt. Sjá nánar á vef BSRB.

9. desember 2010

Grænni skógar hlutu starfsmenntaverðlaunin 2010

Starfsmenntaverðlaun 2010Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Starfsmenntaverðlaunin við hátíðlega athöfn í BSRB húsinu í gær. Verðlaunin eru veitt þeim aðilum sem vinna að framúrskarandi verkefnum í fræðslumálum og starfsmenntun.

8. desember 2010

Jólafundur lífeyrisþega

JolafundurLif1  JolafundurLif6 JolafundurLif2
Jólafundur lífeyrisþegadeildar SFR var haldinn í vikunni og var hann vel sóttur. Dagskrá fundarins var glæsileg að vanda Guðrún Ögmundsdóttir las valda kafla upp úr nýútkominni bók sinni og tvær ungar stúlkur spiluðu á klarinett. Þá voru sungin jólalög og dregið úr happdrætti þar sem margir góðir vinningar voru afhentir. Kaffihlaðborðið sveik heldur engan og gerðu fundarmenn því góð skil eins og vera bar í jólaaðventunni.

8. desember 2010

Starfsmenntaverðlaun afhent í dag

Starfsmenntaverðlaunin 2010 verða afhent í dag, 8. desember kl. 16:30 – 18:00 í BSRB salnum, Grettisgötu 89, Reykjavík, 1. hæð.  Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhendir verðlaunin. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim aðilum sem vinna að framúrskarandi verkefnum í fræðslumálum og starfsmenntun. Sérstök dómnefnd fer yfir tilnefningar og velur verðlaunahafa. Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum; fyrirtæki, skólar og fræðsluaðilar, félagasamtök og einstaklingar

 

8. desember 2010

Opinberum starfsmönnum fækkar

Á vef BSRB kemur fram að opinberum starfsmönnum hefur fækkað um 6,3% á síðustu tveimur árum. Þetta er fækkun sem nemur um 1.156 stöðugildum á tveimur árum. Í október 2008 voru stöðugildi í dagvinnu 18.394 hjá stofnunum ríkisins. Miðað við sama mánuð árið 2010 var fjöldi stöðugilda í dagvinnu 17.239. Þetta jafngildir 6,3% fækkun.

 

Þetta er þveröfugt við það sem ýmsir, svo sem Samtök iðnaðarins, hafa haldið fram og sumir fréttamenn haft gagnrýnislaust eftir. Á tímabilinu hafa orðið skipulagsbreytingar, stofnanir hafa sameinast eða verkefni falin opinberum hlutafélögum o.fl. Sjá nánar á vef BSRB.

8. desember 2010

Fræðslunefnd BSRB ályktar

Fræðsla - abstraktÁ ályktun sem Fræðslunefnd BSRB hefur sent frá sér er lýst þungum áhyggjum af fyrirhuguðum niðurskurði til framhaldsskóla. Ljóst er að ef fjárlagafrumvarpið verði samþykkt óbreytt munu framhaldsskólarnir ekki tekið við öllu því unga fólki sem vill leggja stund á nám.

Í ályktuninni segir að ungt fólk á framhaldsskólaaldri þurfi hvatningu til þess að stunda nám og niðurskurðurinn nú muni leiða til mismununar milli kynslóða.

6. desember 2010

Jólafundur trúnaðarmanna

Trm6des2010_7Trm6des2010_9 

 

 

 

 

 

 

 

Fjölmennur jólafundur trúnaðarmanna var haldinn í dag að Grettisgötu 89. Dagskrá fundarins var í léttari dúr en oft áður, þar kom Héðinn Unnsteinsson og hélt fyrirlestur um lífsorðin 14, en hann telur þau endurspegla vel það andlega ferðalag sem Íslendingar sem þjóð standa frammi fyrir og eru lagðir af stað í. Þá sagði Guðni Th. Jóhannesson frá magnaðri og einlægri frásögn af lífshlaupi Gunnarss Thoroddsen, en hann hefur skráð endurminningar hans sem byggðar eru  að mestu á einkaheimildum Gunnar, dagbókum o.fl.

 

Að lokum sagði Árni Stefán fundarmönnum frá gangi mála í kjarasamningsviðræðum og stöðunni í málefnum fatlaðra, en fundur trúnaðarmanna stuðningsfulltrúa og félagsliða fundaði í hádeginu og sendi frá sér harðorða ályktun sem lesa má um hér á vefnum.

6. desember 2010

Stuðningsfulltrúar og félagsliðar ósáttir við frumvarp

Trunadarmenn fatlada 6des2010 2trunadarmenn fatlada 6des2010 1Trunadarmenn fatlaða 6des2010 3

 

 

 

 

 

 

 

 

Þann 6. desember 2010 var haldinn fundur trúnaðarmanna stuðningsfulltrúa og félagsliða, sem eru félagsmenn SFR stéttarfélags og starfa hjá svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra.  Fundurinn sendir frá sér eftirfarandi ályktun vegna framlagðs frumvarps fjármálaráðherra um breytingu á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna (þskj. 354):

 

Í frumvarpi fjármálaráðherra um breytingar á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna, lagt fram vegna flutnings málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga, kemur fram að núverandi starfsmenn og félagsmenn SFR geta valið um að vera áfram í SFR stéttarfélagi eða flytja sig yfir í viðkomandi bæjarstarfsmannafélag. Nýir starfsmenn skulu hins vegar settir í viðkomandi bæjarstarfsmannafélag en fá ekki sama val um stéttarfélagsaðild og núverandi starfsmenn.

3. desember 2010

Fulltrúar Nordiska statstjänstemannaorganisationen (NSO) staddir hér á landi

NSOdes1NSOdes2NSOdes3

 

 

 

 

 

 

 

Hér á landi er nú staddur hópur góðra gesta. Þar eru á ferð samstarfsfólk í systrafélögum SFR á norðurlöndunum sem starfar saman innan NSO samtakanna, en SFR hefur nýlega tekið við forystu þeirra og mun sitja þar í forsæti næsta ár. Í morgun fundaði hópurinn með formanni, framkvæmdastjóra og umboðsmanni trúnaðarmanna hjá SFR þar sem m.a. var undirrituð endurnýjun á samkomulagi landanna um samstarf en breytingar hafa orðið hjá fulltrúum Danmerkur þar sem HK kom inn í stað CO II. 

2. desember 2010

Laus orlofshús um helgina

KjarnaskogurNú líður senn að jólum og hvað er betra en að njóta aðventunnar í orlofshúsi með fjölskyldu og góðum vinum? Um helgina eru laus hús í Munaðarnesi, Vaðnesi, á Eiðum og einnig í Kjarnaskógi. Bókanir eru á orlofsvefnum, um vetrarleigu gildr ekki punktastaða heldur er reglan; fyrstur bókar fyrstur fær.

2. desember 2010

Jólaball SFR og St.Rv.

jolaball6 2009Hin árlega jólatrésskemmtun SFR og St.Rv. verður haldin  í Gullhömrum, Þórhildarstíg 2, 113 Reykjavík, 29. desember, kl. 17-19. Hljómsveit mun spila jólalögin og jólasveinar dansa með börnunum. Gestum verður boðið upp á kökuhlaðborð og börnin fá nammipoka með heim.

Miðinn kostar 600 kr. en þeir eru seldir á skrifstofu félagsins, Grettisgötu 89 , frá og með 1. desember (opið alla virka daga kl. 9-16).

2. desember 2010

Jólafundur lífeyrisþegadeildar

jolasveinn webJólafundur lífeyrisþegadeildar SFR verður haldinn þriðjudaginn 7. desember næstkomandi. Dagskrá fundarins er glæsileg að vanda. Þar mun Guðrún Ögmundsdóttir lesa upp úr nýútkominni bók sinni, sungin verða jólalög og boðið upp á kaffi og meðlæti. Aðgangsmiðinn kostar 1.000,- kr. Hann gildir einnig sem happdrættismiði, en verðlaunin eru fjölmörg og girnileg. Jólafundurinn hefst kl. 15:00 að Grettisgötu 89, 1. hæð, skráning fer fram á skrifstofu SFR, s. 525 8340.

2. desember 2010

Nýr starfsmaður hjá SFR

berglind_magnusdottir_1Guðlaug Hreinsdóttir hefur nú látið af störfum hjá SFR eftir 10 ára starf. Í hennar stað hefur verið raðin Berglind Magnúsdóttir og hóf hun störf þann 15. nóvember siðastliðinn. Berglind starfaði áður sem launafulltrúi hjá Byggingafélagi Gylfa og Gunnars hf. Um leid og við bjóðum hana velkomna til starfa þakkar SFR Guðlaugu afar gott og ánægjulegt samstarf á liðnum árum og óskar henni góðs gengis á nýjum starfsvettvangi, en hún tekur nú í desember við starfi skrifstofustjóra hjá Landssambandi lögreglumanna.

1. desember 2010

Vel heppnað jólaföndur SFR

jolafondur1jolafondur3Árlegt jólaföndur félagsins var haldið í gærkvöld og var það vel sótt að venju. Þar leiðbeindi Hjördís Reykdal félagsmönnum að gera fallega hurða- og aðventukransa. Jólastemmningin var allsráðandi og fóru þátttakendur heim með vel heppnað jólaföndur.

1. desember 2010

Alþjóðlegi alnæmisdagurinn í dag

AIDS borðinnÍ dag, 1. desember er alþjóðlegi alnæmisdagurinn. Tæp 30 ár eru síðan alnæmisfaraldurinn braust út. Síðan þá hefur margt áunnist í baráttunni. Fleiri hafa aðgang að HIV meðferð og fordómar hafa vikið hægt en örugglega. Á heimsvísu hefur smitum fækkað undanfarin ár en hér á landi hafa aldrei fleiri greinst HIV-jákvæðir og í ár.

30. nóvember 2010

Kjarasamningar renna út í dag

Samninganefnd 1fundur 2010Stærstur hluti kjarasamninga á vinnumarkaði eru lausir frá og með deginum í dag, bæði hjá opinberum starfsmönnum og á almennum markaði. Þetta á einnig við um kjarasamninga SFR en samninganefnd félagsins átti sinn fyrsta fund með samninganefnd ríkisins þann 23. nóvember siðastliðinn, í húsnæði sáttasemjara.

30. nóvember 2010

Starfslokanámskeið á höfuðborgarsvæðinu

Næsta starfslokanámskeið á höfuðborgarsvæðinu verður haldið í janúar. Félagsmálaskóli alþýðu stendur fyrir námskeiðinu, sem verður haldið haldið dagana 31. janúar til 2. febrúar. Námskeiðið verður frá kl. 16.30 til kl. 19.00 hvert kvöld og er haldið í húsnæði BSRB Grettisgötu 89, 1. hæð. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum í BSRB sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og mökum þeirra.


Sjá nánar á vef BSRB. 

25. nóvember 2010

Aðventan í orlofshúsi

strakar i pottiNokkur hús í eigu félagsins á Eiðum, Munaðarnesi og á Arnarstapa eru laus nú um helgina. Nú er um að gera að skella jólaföndrinu í poka og taka með sér í bústaðinn, njóta þar friðar og útiveru þessa fyrstu helgi í aðventunni. Það má líka minna á að Kaffi Munaðarnes býður upp á glæsilegt jólahlaðborð á laugardagskvöldum í nóvember og desember. Kíkið á bókunarvefinn.

25. nóvember 2010

SFR blað í vinnslu

SFR hausNæsta SFR blað er í vinnslu og verður sent til félagsmanna í byrjun desember. Blaðið er yfirfullt af spennandi efni eins og vanalega. Þar má m.a. lesa um kröfugerð félagsins í yfirstandandi kjarasamningum, niðurstöður úr jafnréttishluta launakönnunarinnar sem kynnt var í haust, samantekt frá púlsfundum félagsins og starfsdegi trúnaðarmanna og umfjöllun um yfirfærslu málefna fatlaðra, svo eitthvað sé nefnt. Sú breyting verður á að í stað haust og jólablaðs sem áður voru gefin úr í október og lok desember kemur nú út eitt blað, nú í byrjun desember.

25. nóvember 2010

Samstarfsyfirlýsing um framhaldsfræðslu

ArniStJonsson_2006Samstarfsyfirlýsing um framhaldsfræðslu var undirrituð í gær í Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Þetta kemur fram á vefsíðu BSRB. Það var Árni Stefán Jónsson, formaður SFR og fyrsti varaformaður BSRB sem undirritaði yfirlýsinguna fyrir hönd BSRB. Auk bandalagsins standa mennta- og menningarmálaráðuneyti, fjármálaráðuneyti, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband íslenskra sveitarfélaga að samstarfsyfirlýsingunni. En þessir aðilar hafa það sameiginlega markmið að efla samstarf sitt um að hækka menntunarstig íslensku þjóðarinnar til aukinnar vikrni í atvinnulífi og samfélaginu í heild.

24. nóvember 2010

Samkomulag undirritað

Undirritað hefur verið samkomulag um faglegt og fjárhagslegt fyrirkomulag á tilfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaganna. Á næstu dögum mun frumvarp til laga um tilfærsluna á grundvelli samkomulagsins verða lagt fyrir Alþingi, en það hefur verið til umfjöllunar hjá þingflokkum. Við yfirfærsluna skipta um 1500 starfsmenn um vinnuveitanda á grundvelli aðilaskiptalaga, 1200 þeirra eru félagsmenn SFR. 

23. nóvember 2010

Fyrsti fundur samninganefnda

samningar 2010 1fundur2Samninganefnd SFR hittist á fyrsta formlega fundi sínum í morgun og fór þaðan á fund samninganefndar ríkisins í húsnæði sáttasemjara, Borgartúni 21. Samningsferlið er því formlega hafið.

 

Á fimmtudaginn hafa fulltrúar samtaka á opinberum og almennum vinnumarkaði, auk fulltrúar ríkisins og samtaka atvinnurekanda verið boðaðir á sameiginlegan fund þar sem kanna á hvort vilji sé til víðtæks samráðs.

Hingað til hafa samtök launafólks ekki lýst sig reiðubúin til slíks samstarfs, nema að takmörkuðu leyti, en væntanlega mun sá fundur leiða í ljós þau markmið og væntingar sem í loftinu eru.

23. nóvember 2010

Þjóðhagsspá

Á vef BSRB kemur fram að í endurskoðaðri þjóðhagsspá 2010 til 2015, sem Hagstofa Íslands gaf út í dag, kemur fram að útlit sé fyrir að landsframleiðsla dragist saman um 3% árið 2010, en vaxi um tæp 2% árið 2011. Þá segir að samdráttur í einkaneyslu virðist lítill 2010, en einkaneysla muni vaxa næstu árin. Hagstofan spáir því að fjárfesting taki að vaxa árið 2011 en sé enn lág í sögulegu samhengi. Þá muni samdráttur í samneyslu halda áfram næstu ár. Verðbólga hefur hjaðnað árið 2010 og verður við verðbólgumarkmið Seðlabankans í upphafi árs 2011, segir á vef Hagstofunnar.

22. nóvember 2010

BSRB leggur til nýtt leigukerfi

Á vef BSRB kemur fram að skrifstofa BSRB hefur unnið tillögur um að komið verði á fót nýju leigukerfi hér á landi í anda almenna leigukerfisins í Danmörku. Tillögurnar hafa verið sendar efnahags- og skattanefnd og félags- og tryggingamálanefnda, sem hluti af umsögn um tvö lagafrumvörp. Þá hafa tillögurnar ferið kynntar stjórn BSRB auk þess sem Elín Björg Jónsdóttir formaður og Hilmar Ögmundsson hagfræðingur skrifuðu grein um þær í Fréttablaðið.

19. nóvember 2010

Yfirfærsla málefna fatlaðra

fatlada parkingÞórarinn Eyfjörð framkvæmdastjóri SFR starfar í samráðsnefnd um starfsmannamál vegna yfirfærslu málaflokks fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Í starfi nefndarinnar hefur verið tekið á mörgum erfiðum álitamálum, en nefndin sér fram á að ljúka störfum á allra næstu vikum.

 

Fulltrúar í samráðsnefndinni koma frá stéttarfélögum starfsmanna, Félags- og tryggingarráðuneytinu, Fjármálaráðuneytinu, Reykjavíkurborg og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Ákveðið hefur verið að boða til kynningarfunda með starfsmönnum um land allt, til að kynna stöðuna í málum er varða stöðu þeirra og rétt.

 

Tveir fundir hafa verið haldnir í Reykjavík, og var sá síðari í gær á Höfðatorgi. Þar greindi formaður verkefnastjórnar og samráðshópsins, Einar Njálsson frá vinnu verkefnastjórnarinnar, en fyrir þingi liggur nú frumvarp um breytingar á lögum um málefni fatlaðra.

18. nóvember 2010

Upplestur úr jólabókum og tónlist

Einar karasonLara bjorg BjornsdottirSFR stéttarfélag og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar bjóða félagsmönnum og vinum þeirra upp á kvöldstund með upplestri úr jólabókum og tónlistar-atriði á miðvikudagskvöldið 24. nóv. kl. 20  að Grettisgötu 89, 1. hæð.

Einar Kárason les upp úr bók sinni Mér er skemmt og Lára Björg Björnsdóttir les upp úr bók sinni Takk útrásarvíkingar. Boðið verður upp á súkkulaði með rjóma og smákökur.

18. nóvember 2010

Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað

ThorarinnEyfjord_fyrir_vef_110Í Fréttablaðinu í gær og á Vísir.is var grein eftir Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóra SFR, þar sem hann fjallar um viðhorf forstöðumanna ríkisstofnana til mannauðsmál. Á vegum Félags forstöðumanna ríkisstofnana, Ríkisendurskoðunar og Stofnunar stjórnsýslufræða var haldinn morgunverðarfundur þann 10. nóvember síðastliðinn. Yfirskrift fundarins var „Starfsmannamál ríkisins - er breytinga þörf?".

 

Á fundinum kom meðal annars fram að alvarlegar vísbendingar eru, í könnun á vegum Ríkisendurskoðunar, um takmarkaða þekkingu og getu forstöðumanna ríkisstofnana í mannauðsmálum. Styrkur þeirra virðist sannarlega ekki liggja í mannauðsstjórnun heldur á fagsviði viðkomandi forstöðumanns. Hvernig er þá ástandið í starfsmannamálum?

17. nóvember 2010

Framhaldsfræðslu stefnt í hættu

Læra [1600x1200]Á vef BSRB kemur fram að ríkisstjórnin hefur vegið verulega að framhaldsfræðslu og ef fyrirhugaður niðurskurður í þeim málaflokki verður að veruleika er hætta á því að náms-brautir verði lagðar af.

 

Fræðslunefnd BSRB hefur samþykkt ályktun þar sem varað er við afleiðingum niðurskurðarins. Kannanir sýna að Íslendingar standa þeim þjóðum sem þeir bera sig reglulega við að baki menntunarlega séð og niðurskurðurinn vinnur gegn markmiðum um betur menntaða þjóð.

17. nóvember 2010

Til hamingju með daginn SFR félagar

1mai2002SFR stéttarfélag í almannaþjónustu er 71 árs í dag. SFR eða starfsmannafélag ríkisstofnana, eins og félagið hét þar til nafnbreyting var samþykkt á aðalfundi 2004, var stofnað í Alþýðuhúsinu í Reykjavík 17. nóvember árið 1939. Stofnendur voru 142 og störfuðu á rúmlega 20 ríkisstofnunum í bænum. Fyrsti formaður var kjörinn Guðjón B. Baldvinsson, starfsmaður Tryggingastofnunar ríkisins, en hann var á meðal helstu hvatamanna að stofnun félagsins. Í  dag eru félagsmenn þess rúmlega 7000 manns, sem sinna fjölbreyttum störfum í almannaþjónustu um land allt.

16. nóvember 2010

Geðrækt - 101 ráð til að viðhalda geðheilsu og lifa í sátt

Síðasti skráningardagur á námskeiðið Geðrækt - 101 ráð til að viðhalda geðheilsu og lifa í sátt  er 18. nóv. nk. Á námskeiðinu er fjallað um vellíðan okkar sem byggir á því að hugsa vel um líkama og sál. Að rækta geðið helst í hendur við ræktun líkamans.

16. nóvember 2010

Lífið eftir þjóðfund

Til þess að vera á þjóðlegu nótunum minnum við á fyrirlestur Lárusar Ýmis Óskarssonar, Lífið eftir þjóðfundinn sem hefst  kl. 17-18:30 á Grettisgötu 89. Þar mun Lárus fjalla um það sem er að gerast í samfélaginu eftir hrunið svokallaða og hverju þjóðfundurinn skilar okkur. Ýmsir frjóangar dafna um þessar mundir og skapa vaxtarskilyrði fyrir íslenskt samfélag sem getur leitt okkur inn í óhemju spennandi tíma ef rétt er á haldið, segir í kynningunni um fyrirlesturinn. Skráning er hér á síðunni. 

16. nóvember 2010

Dagur íslenskrar tungu

Degi íslenskrar tungu er fagnað í dag, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar skálds. Viðamikil dagskrá er víða í tilefni dagsins.  Borgarbókasafnið í Reykjavík stendur fyrir lestrarmaraþoni, þar verður uppáhaldsorðið valið og heimildamynd um Jónas Hallgrímsson sýnd í aðalsafninu. Í Bókasafni Kópavogs heldur Bjarni E. Sigurðsson erindi um Njálu og Þjóðmenningarhús heldur Jónasarvöku með fjölbreyttum erindum.

 

12. nóvember 2010

Forstöðumenn ríkisstofnana skortir skilvirka mannauðsstjórnun

Á vef BSRB kemur fram að stjórn BSRB hefur rétt í þessu samþykkt ályktun vegna niðurstaðna könnunar á meðal forstöðumanna ríkisstofnana. Í könnuninni kemur fram að aðeins um helmingur forstöðumanna lætur fara fram reglulegt mat á frammistöðu starfsmanna. Þá telur aðeins lítill hluti þeirra styrk sinn liggja í mannauðsstjórnun. Ljóst er að slíkt þarf að breytast eigi að ná fram skilvirkari ríkisrekstri.

10. nóvember 2010

Undirbúningur komandi kjarasamninga

Trm_fundur_nov2010_a_litil

Í gær fundaði launamálaráð SFR um hvaða markmið og kröfur SFR setur á oddinn fyrir komandi kjarasamninga og kaus samninganefnd. Í dag kom síðan trúnaðarmannaráð SFR saman m.a. til að fara yfir tillögur launamálaráðs um markmið næstu kjarasamninga.

 

Miklar umræður urðu um markmiðin og samþykkti trúnaðarmannaráð meginmarkmið og kröfur sem eru að auka kaupmátt launa og verja hann, að tryggja störf starfsmanna, að koma á sérstökum jafnréttislaunapottum, að endurskoða stofnanasamninga...

9. nóvember 2010

Kyrr! - Sittu! - Leggstu!

ArniStJonsson_2006_a„SÍS ætti að vita að vænlegasta leiðin til árangurs er að vera í góðu samráði við starfsmenn. Það kann ekki góðri lukku að stýra ef koma á fram við þá eins og hunda.“ Þetta kemur fram í grein eftir Árna St. Jónsson, formann SFR, sem birtist í Morgunblaðinu í gær þar sem hann fjallar um stöðuna í starfsmannamálum við yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.

5. nóvember 2010

Sveitarfélög kljúfa sig út úr samstarfsnefnd um málefni fatlaðra

Framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga sýnir fordæmalausa framkomu. Lýsir því yfir á fundi samstarfsnefndar um starfsmannamál að starf nefndarinnar hafi enga þýðingu og að ekkert tillit verði tekið til sjónarmiða starfsmanna í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga, né í lagasetningu Alþingis. Tilraun til valdníðslu sem á sér ekki hliðstæðu.

5. nóvember 2010

Réttur til atvinnuleysisbóta og vinnumarkaðsaðgerðir

Síðasti skráningardagur á námskeiðið "Réttur til atvinnuleysisbóta og vinnumarkaðsaðgerðir" er á mánudaginn, 8. nóvember. Á námskeiðinu verður leitast við að gefa yfirsýn yfir þann hugmyndagrunn sem lög um upplýsingaskyldu og samráð í fyrirtækjum, hópuppsagnir, atvinnuleysistryggingar, aðilaskipti að fyrirtækjum og gjaldþrot  byggja á og framkvæmd laganna. Sjá nánar á vef BSRB.

5. nóvember 2010

Jólaföndrið árið 2010 er jólakransar

2010-NOV-1-Jólakransar-014Skráning er hafin á jólaföndrið sem fer fram þriðjudaginn 30. nóvember 2010 kl. 16.30. Föndrið er eingöngu fyrir félagsmenn og geta þeir valið á milli þess að gera hurðakrans og aðventukrans. Þá er hægt að velja um rauðan eða hvítan lit. Verðið er kr. 4.500 fyrir aðventukransinn en 3.000 fyrir hurðakransinn. Þátttakendur þurfa að panta hvaða krans og lit þeir vilja gera og taka með sér klippur.

4. nóvember 2010

Mikið prjónað...

Prjon_haust_10_2010Í gær lauk prjónanámskeiði SFR og St.Rv. sem hófst í byrjun október. Á námskeiðinu leiðbeindi Hulda Hákonardóttir um aðferðir við að fitja upp, lykkja saman, munsturprjón og ýmislegt fleira sem nauðsynlegt er að kunna varðandi fallegan frágang á prjónaflík. Gaman var að sjá hvað útkoman getur verið mismunandi þegar sama uppskriftin er notuð.

2. nóvember 2010

Jólahlaðborð á Kaffi Munaðarnesi

Á kaffi Munaðarnesi er nú boðið upp á dýrindis jólahlaðborð á laugardagskvöldum fram til jóla. Hlaðborðið verður krásum hlaðið eins og vant er með slík borð. Þar verður m.a. boðið upp smjörsteiktan kalkún, rifjasteik með pöru, hangikjöt og villikryddað lambalæri ásamt dýrindis meðlæti. Þá verður kalda borðið með síldarsalötunum, laxinum, bæði þeim reykta og grafna, hreindýrapatéinu, gæsabringunni og nautatungunni. Í eftirrétt er hægt að velja möndlugraut og eða gómsæta súkkulaðiköku með ferskum ávöxtum. Verðið er 4.900,- fyrir manninn, nema þann 4. desember, en þá mun Raggi Bjarna syngja fyrir matargesti. Þá kostar máltíðin með skemmtiatriðum 6.900,-. Ráðlegt að panta sem allra fyrst í símum 525 8440 eða 525 8441 hjá Stefaníu í Kaffi Munaðarnesi. Ef pantað er fyrir hópa er hægt að velja um fleiri daga en laugardaga.

2. nóvember 2010

Starfsdagur trúnaðarmanna - myndir

Starfsdagur trunadarmanna 29okt2010rosTrúnaðarmenn SFR, ásamt fulltrúum St.Rv. eyddu saman föstudeginum á afar skemmtilegum starfsdegi. Markmið starfsdagsins var að vinna áherslur félaganna í komandi kjarasamningum og móta stefnuna til framtíðar. Þar var notast við aðferðafræði þjóðfundanna sem reyndist afar vel. Mikil stemmning var í hópnum sem skilaði hreint út sagt frábærri vinnu. Niðurstöður og hugmyndir fundarins verða síðan unnar áfram af samninganefndum og launamálaráði félaganna og munu endurspeglast í kröfugerð félaganna.

1. nóvember 2010

Jólafundur lífeyrisþegadeildar

jolasveinn webJólafundur lífeyrisþegadeildar SFR verður haldinn þriðjudaginn 7. desember næstkomandi. Dagskrá fundarins er glæsileg að vanda. Þar mun Guðrún Ögmundsdóttir lesa upp úr nýútkominni bók sinni, sungin verða jólalög og boðið upp á kaffi og meðlæti. Aðgangsmiðinn kostar 1.000,- kr. Hann gildir einnig sem happdrættismiði, en verðlaunin eru fjölmörg og girnileg. Jólafundurinn hefst kl. 15:00 að Grettisgötu 89, 1. hæð, skráning fer fram á skrifstofu SFR, s. 525 8340.

29. október 2010

Trúnaðarmenn SFR og StRv í stefnumótun vegna kjarasaminga

Þjóðfundur-1Mikil stemmning á "þjóðfundi" trúnaðarmannaráða SFR og StRv. 170 trúnaðarmenn eru að móta stefnuna í komandi kjarasamningum.

26. október 2010

Kynjabókhald BSRB

Jafnréttisnefnd BSRB hefur tekið saman kynjabókhald fyrir bandalagið, en það var gert opinbert í gær. Á vef BSRB segir að samkvæmt ályktun um jafnréttismál 42. þings BSRB sem haldið var í október 2009 sé eitt af hlutverkum BSRB að gæta þess og fylgja því eftir að gætt sé að mannréttindum. Hugtakið felur í sér að allir eiga rétt á að njóta mannréttinda án mismununar, eins og til að mynda vegna kynferðis, kynhneigðar, kynþáttar, litarháttar, aldurs, trúar, tungumáls, búsetu, stjórnmálaskoðana, þjóðernis, félagslegrar stöðu, fötlunar eða efnahags.

22. október 2010

Baráttudagur kvenna - kvennafrí

Þrjátíu og fimm ár eru nú liðin síðan þúsundir íslenskra kvenna lögðu niður störf og söfnuðust saman á fundum um land allt, hrópuðu: Áfram stelpur.Yfirskrift kvennafrídagsins 2010 er: Konur gegn kynferðisofbeldi. Samtök launafólks fordæma kynbundið ofbeldi og áreiti á vinnustöðum og í samfélaginu öllu og hvetja aðila vinnumarkaðarins, stjórnvöld og almenning allan til markvissra aðgerða gegn því. Samtök launafólks hvetja félagsmenn aðildarfélaga sinna um land allt til virkrar þátttöku í viðburðum í tilefni Kvennafrídagsins mánudaginn 25. október. Stelpur höfum hátt; við þorum, getum og viljum! Dagskrána má sjá hér.

21. október 2010

Kvennafrí!

Kvennafrídagurinn á 35 ára afmæli í ár. Þar sem daginn ber upp á sunnudag í ár, var ákveðið að kvennafríið yrði mánudaginn 25. október. Konur um land allt eru hvattar til að yfirgefa vinnustaði sína þegar 66% vinnudagsins er lokið 25. október, eða kl. 14:25. Er það í samræmi við tölur frá Hagstofu Íslands sem sýna að konur voru með 66% af heildartekjum karla á síðasta ári. Í Reykjavík verður hist á Skólavörðuholtinu.

21. október 2010

Púlsfundirnir vel sóttir

Tjodfundur_isafj_19okt2010Tjodfundur_Reykjavik_21okt2010Hinir síðustu af svokölluðum púlsfundum sem SFR hefur haldið um land allt í september og október voru vel sóttir, en fundirnir hafa allir tekist sérlega vel. Á þriðjudag var fundur á Ísafirði þar sem mikill hugur var í fólki og sá síðasti var á Grettisgötunni í Reykjavík í morgun, en þar tókst fundurinn einnig mjög vel, þátttakendur voru mjög virkir og margar góðar hugmyndir komu fram.

20. október 2010

Vinnuverndarvika

Vinnuverndarvikan 2010 er haldin dagana 25. - 29. október, en hún er árlegur viðburður í löndum Evrópu. Í ár er áhersla lögð á mikilvægi þess að huga vel að öllu skipulagi og framkvæmd verka við viðhaldsvinnu. Til að vekja athygli og umræðu um öryggi við slíka vinnu hefur Vinnueftirlitið gefið út sérstakan bækling þar sem fjallað er um öryggi við viðhaldsvinnu.

18. október 2010

Endurbætur í orlofskerfinu og breytingar á vetrarleigu

Eidar smidir mars 2010Á þessu ári hafa verulegar endurbætur sett svip sinn á orlofskerfi SFR. Viðhaldsverkefnin hafa verið mörg eins og eðlilegt er í stóru kerfi.
Allar þessar endurbætur og framkvæmdir hafa mælst vel fyrir. Nú er vetrarleigan komin á fullt og er góð aðsókn í húsin okkar. Gjaldið fyrir vetrarleiguna hefur verið óbreytt í nokkur ár og er nú nauðsynlegt að gera breytingar á því.

15. október 2010

Aðalfundur BSRB ítrekar afstöðu sína

Stefan_Olafsson_Adalfundur_BSRBNú er nýlokið aðalfundi BSRB þar sem fulltrúar SFR auk fulltrúa annarra aðildarfélaga sátu. Fundurinn hófst í morgun á áhugaverðum fyrirlestri Stefáns Ólafssonar um mikilvægi íslenska velferðarkerfisins. Samkvæmt því sem Stefán sagði hefur íslenska velferðarkerfið síður en svo blásið út eins og haldið hefur verið fram, heldur hefur stærð þess algjörlega haldist í hendur við aðra þróun. 

15. október 2010

Samkomulag um viðræðuáætlun

SFR stéttarfélag og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs hafa gert með sér samkomulag um viðræðuáætlun vegna endurnýjunar kjarasamninga aðila sem renna út 30. nóvember næstkomandi.  

15. október 2010

Nú er hægt að sækja rafrænt um styrki

Rafrænar umsóknir um styrki í starfsmenntunarsjóð og styrktar- og sjúkrasjóð eru komnar í lag. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið félagsmönnum 

15. október 2010

Hörður Torfa með tónleika á Kaffi Munaðarnesi um helgina

hordur torfason af netiHörður Torfason, trúbador með meiru heldur tónleika á Kaffi Munaðarnesi laugardaginn 16. október, en tónleikarnir hefjast kl. 21:00. Hægt er að eiga þar góða stund og snæða ljúffengan kvöldverð frá kl. 19-21. Borðapantanir í síma 525 8440 og 525 8441. Þeir sem vilja geta einnig pantað sér orlofshús í Munaðarnesi, en tvö hús eru enn laus þessa helgi. Pantanir eru á orlofsvefnum.

14. október 2010

Sviðaveisla lífeyrisþegadeildar SFR

Haustfagnaður Lífeyrisþegadeildar SFR  verður haldinn laugardaginn 23. október næstkomandi að Grettisgötu 89, 1. hæð. Boðið verður upp á sviðaveislu og eftirrétt. Þá verða skemmtiatriði, en veislan hefst kl. 12 og stendur fram eftir degi.  Þátttökugjald er 2.000 kr. og eru gestir velkomnir með félagsmönnum. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á skrifstofu félagsins (s. 525 8340) í síðasta lagi mánudaginn 19. október.

14. október 2010

Ályktun frá starfsfólki málefna fatlaðra á Vesturlandi

Fundur starfsfólks málefna fatlaðra á Vesturlandi var haldinn á Akranesi í vikunni. Þar hittust starfsmenn og fóru yfir stöðu mála varðandi málefni starfsmanna við yfirfærslu málaflokksins nú um áramótin. Hiti var í fundarfólki og á fundinum kom fram að óvissa og órói ríkir á vinnustöðum starfsfólksins.

13. október 2010

Villa í ræfrænum umsóknum um styrki

Því miður er ekki enn búið að komast fyrir villu í ræfræna umskóknarkerfinu þegar sótt er um styrki í sjóðina. Vonir standa til að þetta lagist með uppfærslu á vefnum sem fer í gang seinnipartinn.

13. október 2010

Púlsfundur á Akureyri

Akureyri_thjodfundur2Akureyri_tjodfundur1Meðfylgjandi myndir eru frá fjölmennum fundi félags-manna SFR á Akureyri. Þar var um að ræða svokallaðan púlsfund sem félagið heldur um land allt um þessar mundir. Þar er notast við hið vinsæla þjóðfundarform til að komast að því m.a. hvar áherslur félagsmanna í kjaramálum liggja um þessar mundir. Fundirnar hafa verið sérlega vel heppnaðir og mikil ánægja með þá vinnu sem þar fer fram. Síðustu fundirnir verða haldnir í Reykjavík og á Ísafirði á næstu vikum.

11. október 2010

Rafrænar umsóknir um styrki enn í ólagi

Vefurinn er enn að stríða okkur, það er ekki hægt að skrá rafrænar umsóknir um styrki í starfsmenntunarsjóð og styrktar- og sjúkrasjóð. Unnið er að því að koma þessu í lag.

11. október 2010

Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa mótmælir hástöfum

Stjórn félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa sendir frá sér eftirfarandi ályktun vegna niðurskurðar:

Samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi ætlar norræna velferðarstjórnin í stórfelldan og sársaukafullan niðurskurð sem mun bitna alvarlega á heilbrigðisþjónustu og velferð, og koma verst niður á byggðum utan höfuðborgarsvæðisins. Í þessum niðurskurði felst líka mikil fækkun starfsfólks við heilbrigðisstofnanir og við velferðarþjónustu. Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa mótmælir þessari ráðagerð hástöfum!

7. október 2010

Mikill hiti í stuðningsfulltrúum og félagsliðum vegna yfirfærslu

studningsfulltruarrvk1Um hundrað manna hópur stuðningsfulltrúa og félagsliða á höfuðborgarsvæðinu mætti á fund á Grettisgötunni seinnipartinn í gær. Fundarefnið var réttindi starfsmanna við yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Mikil reiði og óvissa ríkir meðal 1200 félagsmanna SFR sem starfa hjá málefnum fatlaðra um land allt vegna yfirfærslu málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga, enda eru réttindi þeirra og stéttarfélagsaðild enn óljós og ótrygg þrátt fyrir að yfirfærslan eigi að fara fram nú um áramótin. Á fundinum töluðu þau Guðjón Bjarki Sverrisson fyrir hönd stuðningsfulltrúa og Sjöfn Sigurgeirsdóttir fyrir hönd félagsliða, auk framkvæmdastjóra og formanns SFR.

5. október 2010

Hlífum láglaunafjölskyldum en hækkum fjármagnstekjuskatt

Stjórn BSRB leggur til að fjármagnstekjuskattur verði hækkaður í 23%, í stað 20% líkt og lagt er til í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011. Með því skapast auknar tekjur og svigrúm til þess að láta af fyrirhugaðri skerðingu til fæðingarorlofssjóðs, á barnabótum og vaxtabótum. Sjá nánar vef BSRB.

5. október 2010

Fjölmennum á fund

Stuðningsfulltrúar og félagsliðar í Reykjavík og nágrenni, fjölmennum á fund um réttindi starfsmanna málefna fatlaðra við yfirfærslu málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga. Fundurinn verður haldinn  miðvikudaginn 6. október, kl. 17:00, Grettisgötu 89.

5. október 2010

Fundað á Selfossi

Formaður SFR og starfsmenn hafa í dag fundað með félagsmönnum á Selfossi. Morguninn byrjaði á þjóðfundi með um 30 félagsmönnum þar sem lagðar voru m.a.  línur fyrir kjarasamningsgerðina framundan, þá var tengslanetsfundur trúnaðarmanna þar skömmu á eftir og nú stendur yfir fundur stuðningsfulltrúa og félagsliða sem starfa að málefnum fatlaðra á svæðinu. Á milli funda hefur formaðurinn okkar, Árni Stefán tekið á móti félagsmönnum í viðtöl en mikil eftirspurn var eftir því að þessu sinni, enda eflaust margt sem hvílir á fólki á Suðurlandi sem annars staðar.

1. október 2010

Réttindi stuðningsfulltrúa og félagsliða í lausu lofti

- kröfufundir um allt land! 

Þrátt fyrir að málefni fatlaðra eigi að flytjast yfir til sveitarfélaganna frá ríkinu um næstu áramót, eru réttindi og kjör starfsmanna algerlega í lausu lofti. Sveitarfélögin hafa ekki komið að neinni sameiginlegri undirbúningsvinnu með starfsmönnum í tæpt ár og engar upplýsingar hafa borist starfsmönnum um fyrirhugaðar breytingar af hálfu sveitarfélaganna. Í ljósi þessa ástands boðar SFR til fundar með félagsmönnum sínum sem starfa við málefni fatlaðra. Efni fundanna er staða starfsmannamálanna við yfirfærsluna og hvað ber að gera nú þegar svo skammur tími er til stefnu. SFR minnir á að sú krafa hefur verið gerð að stuðningsfulltrúar og félagsliðar njóti sömu réttinda og starfsmenn höfðu við yfirflutning verkefna milli ríkis og sveitarfélaga 1989 og 1990 og fest var lögum.

Félagar! Fjölmennum á fundina og höfum áhrif á hvernig réttindi okkar verða tryggð!

Fundarstaðir eru:

  • Egilsstaðir, Hótel Hérað, 30. september, kl. 9:30
  • Selfoss, Hótel Selfoss, 5. október, kl. 13:00
  • Reykjavík, Grettisgata 89, 6. október, kl. 17:00
  • Akranes, Fjölbrautarskóla Vesturlands, stofa B207, 12. október, kl. 13:00.
  • Ísafjörður, Edinborgarhúsið, 19. október, kl. 9:30

30. september 2010

Óvissa hjá starfsmönnum málefna fatlaðra á Egilsstöðum

Egilsstadir malefni fatladra okt2010Nú stendur yfir fundur starfsfólks málefna fatlaðra á Egilsstöðum þar sem fyrirhugaður flutningur málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga er ræddur. Mikil óánægja og óvissa er í röðum starfsfólks og rödd þeirra sem kalla eftir skýrum svörum um réttindi starfsfólk verður æ háværari. Starfsfólk svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Egilsstöðum hefur eins og annað starfsfólk málaflokksins beðið eftir upplýsingum og lausn sinna mála síðustu vikur og mánuði.

Flutningur málaflokksins er fyrirhugaður nú um áramót en enn hefur ekkert samkomulag náðst sem tryggir réttindi starfsmanna. Kröfur starfsmanna eru þær að fá það sjálfsagða val um að halda áfram stéttarfélagsaðild í sínu félagi að verða ekki þvingað í önnur félög.

30. september 2010

Samkomulag um bætur vegna loftmengunar á vinnustað

Nýlega náðist samkomulag við íslenska ríkið um greiðslur skaðabóta fyrir starfsmann sem starfaði hjá tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum að Keldum. Viðkomandi starfsmaður starfaði hjá tilraunastöðinni í 20 ár og rekja mátti líkamstjónið til loftmengunar og meðferð efna á vinnustaðnum, sem höfðu skaðandi áhrif á öndunarfæri og hendur starfsmannsins. Málið hefur verið lengi til umfjöllunar, eða frá því árið 2005, en samkomulag náðist nýlega um fullnaðarbætur sem hafa nú verið greiddar vegna varanlegs líkamstjóns sem starfsmaðurinn hlaut.

30. september 2010

Samningsrétturinn í höndum félaganna

Síðast liðinn föstudag funduðu fulltrúar frá aðildarfélögum BSRB um mögulegt samstarf vegna komandi kjarasamninga. Á fundinum var tekin ákvörðun um að fela BSRB að fjalla um sameiginleg réttindamál félaganna en samningsrétturinn verður í höndum hvers félags sem gerðu gerðu hvert um sig viðræðuáætlanir við sína viðsemjendur.

29. september 2010

Stjórn Kjalar lýsir yfir fullum stuðningi

Stjórn KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu lýsir yfir fullum stuðningi við SFR stéttarfélag í almannaþjónustu í deilum við Samband íslenskra sveitarfélaga um stéttarfélagsaðild þeirra starfsmanna sem vinna að málefnum fatlaðra sem flytja á frá ríkinu til sveitarfélaganna nú um áramótin.

Við verkaskipti ríkis og sveitarfélaga árin 1989 og 1990 þá var lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna breytt svo að bæjarstarfsmannafélögin þ.á.m KJÖLUR stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, hefðu áfram samningsrétt fyrir sína félagsmenn sem unnu á þeim stofnunum sem fluttar voru frá sveitarfélögum til ríkisins.

22. september 2010

Kjör munu ekki rýrna við yfirfærsluna

Við afhendingu undirskriftalista sem Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa stóð fyrir í Félagsmálaráðuneytinu í gær, sagði Guðbjartur Hannesson félags- og tryggingamálaráðherra að kjör starfsmanna myndu ekki rýrna við yfirfærsluna. Þetta kom fram í sjónvarpsfréttum RÚV í gærkvöldi. Sjá fréttina hér. Formaður SFR, Árni Stefán Jónsson, og framkvæmdastjóri, Þórarinn Eyfjörð, áttu síðan fund með ráðherra í morgun þar sem farið var vandlega yfir stöðu mála.

21. september 2010

Ráðherra afhentar undirskriftir

Undirskriftir afhentar sept 2010Síðdegis afhentu fulltrúar úr stjórn ráðgjafa og stuðningsfulltrúa Guðbjarti Hannessyni félags- og tryggingamálaráðherra undirskriftir tæplega 800 starfsmanna málefna fatlaðra. Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa er fagdeild innan SFR en málið snertir 1200 félagsmenn sem starfa að málefnum fatlaðra um land allt.
Mikil óvissa ríkir um starfsöryggi félagsmanna SFR innan málaflokksins, yfirfærslan á að fara fram um áramótin  og enn hefur ekki náðst samkomulag á milli samningsaðila. Með undirskriftunum vilja félagsmenn krefjast þess að þeir njóti sömu réttinda og aðrir starfsmenn og fái að halda félagsaðild sinni að SFR stéttarfélagi við flutning málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga sem fyrirhugaður er nú um áramótin.

21. september 2010

BSRB ítrekar stuðning sinn

Á heimasíðu BSRB er ítrekuð sú afstaða bandalagsins að starfsmenn eigi að geta valið um hvort þeir verði áfram í SFR eða viðkomandi bæjarstarfsmannafélagi við flutning málaflokks fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Í fréttinni er birtur úrdráttur úr bréfi sem Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB sendi stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þar segir m.a.: " Við verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga skal það vera meginregla að það stéttarfélag sem hefur samningsréttinn fyrir þau störf sem um ræðir haldi réttinum til kjarasamningagerðar áfram, ásamt því bæjarstarfsmannafélagi sem er fyrir á þeim vettvangi.

21. september 2010

Stuðningur frá Kennarasambandi Íslands

Stjórn Kennarasambands Íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem sambandið lýsir yfir fullum stuðningi við forystu SFR í deilum okkar við forystu Sambands íslenskra sveitarfélaga um stéttarfélagsaðild þeirra starfsmanna sem vinna að málefnum fatlaðra. Í ályktuninni kemur fram að stjórn KÍ telur það afar óeðlilegt að vinnuveitendur beiti fólk þvingunum varðandi stéttarfélagsaðild þó störf þeirra séu færð frá einum vinnuveitanda til annars. Við flutning á rekstri grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga hafi aldrei komið til álita að félagsmenn KÍ skiptu um stéttarfélag.

16. september 2010

Trúnaðarmannaráð krefst þess að réttindi séu virt

A fyrsta trúnaðarmannaráðsfundi haustsins sem haldinn var í vikunni samþykkti fundurinn eftirfarandi ályktun:
Trúnaðarmannaráð SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu mótmælir þeirri kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga að starfsfólk svæðisskrifstofa málefna fatlaðra verði skyldað til að skipta um stéttarfélag við yfirfærslu málaflokksins frá ríki til sveitarfélaganna. Það er sjálfsagður réttur starfsmanna að halda stéttarfélagsaðild sinni. Lagabreyting hefur áður verið gerð til að tryggja réttindi starfsfólks við yfirfærslu málaflokka milli ríkis og sveitarfélaga. Þegar yfirfærsla heilbrigðisstofnana frá sveitarfélögum til ríkis átti sér stað árið 1989-90, fengu starfsmenn að velja hvort þeir héldu aðild sinni að þáverandi stéttarfélagi eða flyttu sig. Lagabreytingu þarf til en réttindi fólks eru í húfi, því án hennar er einfaldlega verið að iðka gamaldags vinnubrögð með því að flytja fólk nauðungarflutningum milli félaga. Mikil óvissa ríkir um starfsöryggi félagsmanna SFR innan málaflokksins, yfirfærslan á að fara fram nú um áramótin  og enn hefur ekki náðst samkomulag á milli samningsaðila. Skýr vilji meirihluta félagsmanna SFR liggur þegar fyrir en þeir vilja vera áfram félagar í SFR. Trúnaðarmannaráð SFR krefst þess að ríkið taki ábyrgð á að tryggja réttindi og kjör liðlega 1200 félagsmanna SFR innan málaflokksins með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Fundurinn telur það einnig vera eðlilega kröfu að samsvarandi breyting verði nú gerð á samningsréttarlögunum og gerð var 1990 og að starfsmenn við málefni fatlaðra geti átt áframhaldandi aðild að SFR, þrátt fyrir yfirfærslu málaflokksins, og að nýir starfsmenn geti valið sér stéttarfélag.

16. september 2010

"Þjóðfundur" SFR í Borgarnesi

tjodfundur borgarnesiFyrsti "þjóðfundur" SFR af tíu var haldinn í Borgarnesi í dag. Þar hittust félagsmenn og ræddu um kjara- og vinnutengd málefni og notuðu til þess aðferðafræði sem  kennd hefur verið við þjóðfundinn. Markmiðið með þjóðfundunum er að safna saman upplýsingum um markmið og áherslur félagsmanna m.a. í launa- og kjaramálum til undirbúnings vegna kjarasamningsviðræðnanna framundan. Borgarnesfundurinn var afar gagnlegur og ánægjulegur og er þeim félagsmönnum sem þátt tóku á Vesturlandi þakkaðar góðar móttökur. Fundirnir verða haldnir hver að öðrum næstu vikur í Reykjavík og víða um landið. Sá síðasti verður haldinn í samvinnu við St.Rv. í lok október með trúnaðarmönnum, launamálaráði auk fulltrúa St.Rv.

13. september 2010

Fjölmennur trúnaðarmannaráðsfundur

Fyrsti trúnaðarmannaráðsfundur haustsins var haldinn í dag. Tómas Bjarnason, frá Capacent kynnti niðurstöðu nýrrar launakönnunar SFR þar sem m.a. kom fram vaxandi starfsóöryggi og versnandi kjör félagsmanna. Þá var kosið í launamálaráð félagsins, en launamálaráð kýs m.a. fulltrúa í samninganefnd félagsins. Einnig var kosin uppstillingarnefnd sem ætlað er að koma með tillögur um fulltrúa í ritnefnd SFR blaðsins, laganefnd, jafnréttisnefnd og menningar- og skemmtinefnd á næsta trúnaðarmannaráðsfundi. Olga Gunnarsdóttir kynnti félag næringarrekstrarfræðinga við góðar undirtektir og að lokum samþykkti fundurinn ályktun þar sem kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga að starfsfólk svæðisskrifstofu fatlaðra verði skyldað til að skipta um stéttarfélag við yfirfærslu málaflokksins frá ríki til sveitarfélaganna var mótmælt. 

13. september 2010

Launakönnun SFR - Enn þrengir að starfsmönnum í almannaþjónustu

Í nýrri launakönnun SFR stéttarfélags í almannaþjónustu kemur fram að launabilið á milli starfsmanna í almannaþjónustu og starfsmanna á almennum vinnumarkaði í sambærilegum starfsgreinum hefur aukist á milli ára og er nú 18%, almenna vinnumarkaðnum í vil. SFR hefur nú fjórða árið í röð, í samstarfi við VR, fengið Capacent Gallup til að vinna launakönnun fyrir félagið. Niðurstöður könnunarinnar sýna að launamunur á milli starfsmanna í almannaþjónustu og starfsmanna á almennum vinnumarkaði hefur eykst á milli ára. Þegar tekið hefur verið tillit til kyns, aldurs, starfsstéttar, starfsaldurs, vinnutíma, vaktaálags og menntunar, er munurinn á heildarlaunum félagsmanna SFR og VR 18%, VR félögum í vil. Í könnuninni í fyrra var munurinn 15% og 20% árið þar á undan.

10. september 2010

SFR blaðið er komið út

Nýjasta hefti SFR blaðsins er komið út og hefur verið dreift til félagsmanna. Í blaðinu birtast niðurstöður launakönnunar SFR en opnað verður fyrir heildarniðurstöður hennar á www.sfr.is kl. 11:30 mánudaginn 13. septembmer. Þá er þar einnig að finna dagskrá Gott að vita og geta félagsmenn notað helgina til að skoða dagskrá haustsins því opnað verður fyrir skráningu á námskeiðin kl. 9 á mánudag.

9. september 2010

Nýr samningur við Veðurstofuna

Nýr stofnanasamningur Veðurstofu íslands og SFR hefur verið gerður og er kominn á netið.

9. september 2010

Sveppanámskeið í Heiðmörk

sveppir10Nú í byrjun september var haldið stórskemmtilegt sveppatínslunámskeið á vegum Gott að vita. Námskeiðið var fullbókað og gott betur og létu þátttakendur vel að. Leiðbeinandi var Ása Margrét Ásgrímsdóttir. Ekki var einungis kennt á bókina heldur fór hópurinn í vettvangsferð upp í Heiðmörk á síðasta laugardag og æfði sig í að finna og tína réttu sveppina. Enda eins gott að læra listina áður en farið er að tína þar sem einungis brot af öllum þeim sveppategundum sem finnast á Íslandi eru matsveppir.

9. september 2010

Laust orlofshús í Húsafelli um helgina

husafelluti4Mikil aðsókn hefur verið í orlofshús SFR nú síðsumars. Einungis eru laus hús á Eiðum um næstu helgi og svo eitt hús í Húsafelli sem var að losna. Þar gildir eins og annars staðar, fyrstur bókar fyrstur fær.

6. september 2010

Fátækt á Íslandi - borgarafundur

Næstkomandi miðvikudag, þann  8. septemberkl. 20:00 verður haldinn borgarafundur í Ráðhúsi Reykjavíkur um fátækt á Íslandi. Frummælendur verða talsmenn öryrkja, aldraðra, atvinnuleitenda, félagsbóta- og láglaunaþega, ásamt fulltrúum hjálparsamtaka.Formaður BSRB verður í pallborði, ásamt ráðherrum, forseta ASÍ og fleirum. Nánar um fundinn hér

6. september 2010

Maíkórinn hefur upp raust sína að nýju

Maíkórinn er blandaður kór BSRB félaga sem tók formlega til starfa haustið 2009. Í vetur mun kórinn æfa á mánudögum kl. 19:30-21:30 á Grettisgötu 89. Lagaval er fjölbreytt og andinn góður. Kórinn getur bætt í allar raddir og þá sérstaklega karlaröddum, en í kórnum er bæði vant söngfólk og óvant. Allir velkomnir. Stjórnandi er Svava Kristín Ingólfsdóttir og undirleikari Hörður Bragason. Nánari upplýsingar hjá svavaki@simnet.is, s. 867 7882.

3. september 2010

Starfsmenn verða ekki þvingaðir

Í Fréttablaðinu í gær var haft eftir Halldóri Halldórssyni, formanni Sambands sveitarfélaga að ekki komi til greina að félagsmenn SFR haldi aðild sinni að félaginu við yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga þar sem SFR sé einungis félag ríkisstarfsmanna, og því myndi aðkoma þess gjörbreyta kjarasamningsumhverfi sveitastjórnarstigsins. Þessi fullyrðing Halldórs er algjörlega úr lausu lofti gripin, SFR hefur um árabil gert kjarasamninga við sjálfseignarstofnanir, hlutafélög á opinberum markaði og Reykjavíkurborg, auk samninga við ríki og þjónar því sannarlega öðrum og stærri hópum en ríkisstarfsmönnum, eins og flestir vita.

2. september 2010

Úttekt á lífeyrissjóðunum hafin

Á vef BSRB kemur fram að úttektarnefnd Landsamtaka lífeyrissjóðanna sé nú tekin til starfa. Nefndinni er ætlað að gera útekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins í nóvember 2008. Formaður nefndarinnar er Hrafn Bragason lögfræðingur og fyrrum hæstaréttardómari, en auk hans sitja þau Guðmundur Heiðar Frímannsson, siðfræðingur og prófessor við Háskólann á Akureyri, og Katrín Ólafsdóttir, hagfræðingur og lektor við Háskólann í Reykjavík, í nefndinni. Í fréttinni kemur fram að starfsmaður nefndarinnar, Kristján Geir Pétursson lögfræðingur muni á næstu dögum setja sig í samband við lífeyrissjóðina og safna gögnum.

1. september 2010

Sneisafullt SFR blað í vinnslu

Fyrsta SFR blað haustsins kemur út rétt um miðjan september, en blaðið er sneisafullt af efni að venju. Í því má finna m.a. niðurstöður úr launakönnun SFR, en SFR ásamt VR standa fyrir einni stærstu vinnumarkaðskönnun landsins ár hvert, þar sem fylgjast má með þróun launamála hjá félögunum ásamt fleiru. Þá verður í blaðinu dagskrá Gott að vita, en þar verða kynnt fjölmörg spennandi námskeið sem standa félagsmönnum SFR til boða nú í haust og í vetur, þeim að kostnaðarlausu. Þess má geta að skráning í Gott að vita námskeiðin hefst ekki fyrr en 13. september um það leyti sem blaðið kemur út. Að lokum eru ljósmyndir úr ljósmyndasamkeppni SFR birtar í blaðinu og greint verður frá hverjir hlutu vinningana góðu, en þátttaka í keppninni var mjög góð og margar myndirnar glæsilegar.

 

1. september 2010

FRS krefst þess að mannréttindi séu virt

Stjórn FRS, Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa fundaði í gær um  yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Félagsmenn FRS eru áhyggjufullir vegna stöðu mála, en mikil óvissa ríkir um starfsöryggi og áframhaldandi stéttarfélagsaðild þeirra sem starfa hjá svæðisskrifstofum málefna fatlaðra. Þrátt fyrir að yfirfærsla málaflokksins eigi að fara fram nú um áramótin hefur ekki náðst samkomulag á milli samningsaðila. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sett sig upp á móti því að starfsmenn haldi stéttarfélagsaðildinni og vinnur þannig þvert á vilja þeirra. Skýr vilji félagsmanna SFR liggur þegar fyrir en þeir vilja vera áfram félagar í SFR og krefjast þess að njóta sömu réttinda og starfsmenn héldu við yfirfærslu heilbrigðisstofnana frá sveitarfélögum til ríkis árið 1989-90, en þá fengu starfsmenn að velja hvort þeir héldu aðild sinni í þáverandi stéttarfélagi eða flyttu sig.

1. september 2010

Orlofshús í desember

Skorradalur klassikÍ morgun var opnað fyrir bókanir í orlofshús SFR fram til 3. janúar 2011. Venjulega er bókunarvefurinn fyrir orlofshús innanlands opnaður fjóra mánuði fram í tímann og ætti því aðeins að vera hægt að bóka til 31. des. en þar sem gamlársdagur (31. des.) lendir á föstudegi er líklegt að einhver vilji bóka þá helgi tímanlega og því var ákveðið að opna fyrir bókanir fram til 3. janúar að þessu sinni. Bókanir fara fram hér á vefnum. Vert er að benda á að mörg þeirra orlofshúsa sem við höfum boðið upp á í sumar verða ekki í boði nema fram í byrjun september. Í vetur verða orlofshúsin í Vaðnesi, Munaðarnesi, Arnarstapa, Skorradal og Húsafelli auk íbúða félagsins í Reykjavík, á Akureyri og í Kaupmannahöfn í boði fyrir félagsmenn. Nánari upplýsingar og bókanir eru á orlofsvefnum.

26. ágúst 2010

FRS gefur út bækling um yfirfærslu málefna fatlaðra

FRS, Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa, hefur gefið út bækling um yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Í bæklingnum er meðal annars fjallað um að mikil óvissa ríkir um hvernig farið verður með réttindi starfsfólks við yfirfærsluna. Sjá nánar í bæklingnum

26. ágúst 2010

SFR tekur við formennsku í NSO

NSO Arni i færeyjumÁrleg ráðstefna NSO (Nordiska statstjånstemannaorganisationen), sem SFR er aðili að, stendur núna yfir í Færeyjum. Á vettvangi NSO vinna stéttarfélög á Norðurlöndunum saman að þeim málefnum sem snerta félagsmenn og baráttuna fyrir betri kjörum. Færeyingar hafa nýverið gerst aðilar að þessu samstarfi og eru gestgjafar að þessu sinni og er ráðstefnan haldin í Þórshöfn. Í ár eru fjölmörg áhugaverð mál á dagskrá ráðstefnunnar. Má þar meðal annars nefna: Vinnuaðstæður og umhverfi ríkisstarfsmanna, ríkisstofnanir sem aðlaðandi vinnustaðir, sýn stéttarfélaganna á hvernig starfsaðstæður ríkisstarfsmanna eigi að vera, launajafnrétti kynjanna og margt fleira. Atvinnurekendur hafa um langa hríð verið gestir á ráðstefnum NSO og  oft eiga sér stað snarpar umræður um kjör og réttindi ríkisstarfsmanna milli aðila. 
Á næsta ári mun SFR taka við formennsku í samtökunum og verður ráðstefnan þá haldin á Íslandi. Þá má búast við að okkur sæki heim gestir frá öllum Norðurlöndunum. Dagskrá fyrir þá ráðstefnu verður sett saman næsta vor og mun efalítið taka mið af því hvað staða veður uppi í rekstri stofnana.

25. ágúst 2010

Laus hús um helgina

Nokkur orlofshús eru laus nú helgina bæði í Munaðarnesi og Vaðnesi, auk þess er einnig laust hús á Eiðum. Þó sumri sé nú tekið að halla er enn frábært að njóta góða veðursins og útiverunnar í orlofshverfum félagsins. Til að tryggja sér gott hús um helgina þarf að fara inn á orlofsvefinn okkar, bóka og borga. Góða helgi.

24. ágúst 2010

Skráning á námskeið Starfsmenntar hafin

Starfsmennt hefur sent frá sér nýtt veffréttarit þar sem m.a. er sagt frá því að námsvísir haustsins er um það bil að berast félagsmönnum og stofnunum. Þar er framboð námskeiða í haust kynnt og er fjölbreytnin mikil að vanda. Bent er á að námskeið Starfsmenntar eru félagsmönnum SFR að kostnaðarlausu. Skráning stendur nú yfir á www.smennt.is

20. ágúst 2010

Launafólki að þakka

Í grein sem birtist í Fréttablaðinu, segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB að vissulega megi sjá ákveðinn efnahagsbata í þjóðfélaginu. Stýravaxtalækkun Seðlabankans hafi verið meiri en búist hafði verið við, fjárfestingar í atvinnulífinu séu meiri o.s.frv.. Hún minnir á það að þó botninum sé kannski náð hafi kaupmáttur fólks rýrnað töluvert og atvinnuleysi sé enn alltof mikið. Efnahagsbatann segir hún fyrst og fremst launafólki í landinu að þakka því það sé launafólkið sem hafi borið byrðarnar í kjölfar efnahagshrunsins. Jafnframt varar hún við því að það sé ekki víst að launafólk sé tilbúið til að taka stærstu skerðingarnar. Kjarasamningar tveggja aðildarfélaga BSRB eru þegar lausir og samningar hafa ekki náðst þar, og samningar annarra eru lausir í lok nóvember.

19. ágúst 2010

Kynbundinn launamunur hjá Reykjavíkurborg minnkar

Kynbundinn launaumunur minnkar hjá Reykjavíkurborg og er nú 8,3 % ef borin eru saman heildarlaun karla og kvenna sem vinna hjá borginni. Þetta kemur fram á heimasíðu BSRB og  Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, en nýleg úttekt á vegum Reykjavíkurborgar sýnir þessar niðurstöður. Þar segir m.a. að kynbundinn launamunur sé enn til staðar þó úr honum hafi dregið á síðustu tíu árum. Konur eru að meðaltali með 98% af dagvinnulaunum karla meðal starfsfólks í fullu starfi hjá Reykjavíkurborg. Munurinn er hins vegar mun meiri þegar heildarlaunin eru skoðuð, en konur eru aðeins með 87% af heildarlaunum karla í fullu starfi. Karlar fá hærri akstursgreiðslur og meiri yfirvinnu greidda.

18. ágúst 2010

Fræðsla fyrir félagsmenn í vetur

Að sumarfríum loknum fara margir að huga að vetrinum, börnin byrja að týnast inn í skólana og margir fullorðnir eru þegar farnir að svipast um eftir spennandi símenntunartækifærum. SFR býður félagsmönnum sínum nú sem endranær upp á námskeið undir heitinu Gott að vita. Dagskrá vetrarins er fjölbreytt og spennandi að venju en hún verður kynnt í næsta SFR blaði, sem kemur eftir aðra vikuna í september. Á sama tíma mun dagskráin verða sett upp hér á vefsíðuna og þá opnað verður fyrir skráningar. Ekki verður hægt að skrá sig fyrr. Nú síðsumars var boðið upp á sveppatínslunámskeið í fyrsta sinn og virðist það hafa mælst vel fyrir því það er löngu uppbókað og biðlistinn er langur. Í haust verður m.a. boðið upp á ljósmyndanámskeið, skapandi skrif, prjónanámskeið, skrifnámskeið í ensku og hádegisfróðleik af ýmsu tagi einu sinni í mánuði.

17. ágúst 2010

Ánægjuleg þróun

Verulega hefur hægt á fjölgun örorkuþega á þessu ári miðað við síðasta ár. Fjöldi örorkulífeyrisþega var 15.677 í ársbyrjun 2010 og 15.842 þann 1. júlí síðastliðinn. Fjölgunin á árinu er því einungis um 165 einstaklinga fyrri hluta ársins.  Á árunum 2004-2009 fjölgaði örorkulífeyrisþegum hins vegar um 500-1300 árlega og því er hér um að ræða mikla breytingu. Mun færri fá einnig úrskurð um 75% örorku á fyrri hluta þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Þessi þróun er afar athyglisverð, sérstaklega nú þegar atvinnuleysi hefur verið vaxandi um nokkurt skeið, því venjan er að í slíku árferði fjölgi örorkuþegum frekar en fækki.

12. ágúst 2010

Ljósmyndasamkeppnin framlengd

Ákveðið hefur verið að framlengja lítillega frestinn sem þátttakendur hafa til að skila inn myndum vegna ljósmyndasamkeppni SFR blaðsins. Fresturinn er nú til 23. ágúst. Þema keppninnar er sumarfríið og myndin þarf á einhvern hátt að tengjast sumarorlofsmöguleikum SFR. Hægt er að skila ljósmyndum hvort heldur sem er rafrænt eða á pappír. Ljósmyndir á pappír skal senda í pósti á SFR, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík, og merkja „Ljósmyndasamkeppni" eða senda í rafrænu formi á solveig@sfr.is. Veglegir vinningar eru í boði.

11. ágúst 2010

Stjórn BSRB ályktar í tilefni kjaradeilu LSS

Í ályktun stjórnar BSRB vegna kjaradeilu LSS, er áréttað verkfallsréttur stéttarfélaga sé neyðarréttur þeirra og því sé mikilvægt að hann sé virtur af öllum sem hlut eiga að máli. Þennan rétt þurfi verkalýðshreyfingin að verja og fara með af skynsemi og samkvæmt lögum. 
Stjórn BSRB bendir á að aðgerðir Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflugningamanna séu löglega boðaðar aðgerðir og öll inngrip þar í séu  ólíðandi. Þá hvetur stjórnin deiluaðila til að setjast aftur að samningaborði og leysa málin, því það sé eina færa leiðin fyrir samningsaðila. Ályktunina í heild sinni má lesa á vef BSRB.

11. ágúst 2010

Sumarhús laus frá 20. ágúst

Orlofshús SFR hafa verið afar vinsæl í sumar, en þau hafa langflest verið upppbókuð mestan part sumars. Eftir 20. ágúst eða síðsumars virðast hins vegar færri vera á ferðinni. Dvöl í góðu orlofshúsi er þó alls  ekki síðri seinnipartinn í ágúst  en um hásumarið. Þá bætist við rómantískt rökkrið og berin sem nóg er af alls staðar um þessar mundir. Eftirtalin hús SFR eru laus til útleigu vikuna 20. - 27. águst: Eiðar, Lindarbakki við Höfn í Hornafirði, Illlugastaðir, Raufarhöfn og í Munaðarnesi. Þá eru tjaldvagnar einnig lausir til útleigu.  Bókanir orlofshúsa fara fram á Bókunarvefnum.

9. ágúst 2010

Trúnaðarmannanámskeið BSRB og FA

Skráning á trúnaðarmannanámskeið BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu í haust er hafin. Námskeiðið er í 6 þrepum eins og verið hefur og stendur hvert þrep í þrjá daga. Hægt er að taka eitt þrep eða fleiri, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Fyrsta þrepið er dagana 14. til 16. september. Annað þrepið er dagana 20. til 22. september og síðan koll af kolli vikulega þar til sjötta þrepið sem stendur einungis í tvo daga er 18. og 19. október. Skráning fer fram í gegnum heimasíðu BSRB.

 

13. júlí 2010

Nýr stofnanasamningur

Skrifað hefur verið undir nýjan stofnanasamning á milli Héraðsdómstólana og SFR stéttarfélags og tekur hann gildi frá og með 1. júlí 2010. Samninginn má sjá hér en hann tekur við af eldri stofnanasamningi aðila frá 2006.

7. júlí 2010

Málaflokkur fatlaðra flyst frá ríki til sveitarfélaga

Málaflokkur fatlaðra til sveitarfélaganna. Varðar 2500 þjónustuþega og 1500 starfsmenn svæðisskrifstofanna sem flestir eru í SFR – stéttarfélagi. Starfsmannamálin í vinnslu með hagsmunaaðilum og stefnan tekin á farsæla lausn.

1. júlí 2010

Nýir umsjónarmenn

SFR hefur ráðið nýja umsjónarmenn í Vaðnesi og fyrir íbúðirnar í Reykjavík. Guðmundur Sigurðsson er umsjónarmaður í Vaðnesi og ISS hefur tekið að sér umsjón með íbúðum félagsins í Reykjavík. Þeim sem eiga bókað á þessum stöðum er bent á að sömu símanúmer og fram koma á kvittununum þeirra gilda, þó nöfn umsjónarmannanna hafi breyst.
Að gefnu tilefni er þeim sem er á leið í orlofshús félagsins bent á að virða þann fjölda sem gefinn er upp fyrir húsin. Ekki er leyfilegt að að fylla húsin af fólki, umfram það sem gefið er upp. Þá þarf einnig að hafa samráð hjá umsjónarmönnum og fá leyfi hjá þeim ef ætlunin er að tjalda eða leggja tjaldögnum og fellihýsum hjá orlofshúsunum.

29. júní 2010

Bústaðir í Skaftárhreppi - lausar gistinætur

IMG_1719Töluvert er hringt til SFR og spurt um laus orlofshús. Allt er uppbókað um þessar mundir. Á skrifstofu SFR kom póstur um eitthvað af lausum dögum í sumar og haust í 2 bústöðum í Skaftárhreppi og er því hér með komið á framfæri. Nánari upplýsingar í síma: 487 8870 / 892 5070 / 862 6606.

29. júní 2010

Tjaldvagn laus frá fimmtudeginum 1. júlí

Eins og margir vita er leiga á tjaldvögnum einn af fjölmörgum orlofsmöguleikum SFR. Nánast fullbókað er í allt sumar en vegna sérstakra ástæðna losnaði ein vika frá og með 1. - 7. júlí. Þeir sem hafa áhuga á að hengja tjaldvagn aftan í bílinn og bruna í sumarfrí er bent á að kíkja inn á Orlofsvef SFR og bóka þar. Verðið er 14 þúsund fyrir vikuna.

 

24. júní 2010

Kátt á hjalla í árlegri Jónsmessuferð lífeyrisþega

SFR.2012 100Um 150 lífeyrisþegar fóru í hina árlegu Jónsmessuferð til Stykkishólms í góðu veðri á þriðjudaginn síðastliðinn. Kátt var á hjalla og fóru 95 þeirra í ævintýrasiglingu um eyjarnar óteljandi á Breiðafirðinum, skyggndust inn í iðandi fulgalífið og brögðuðu á fersku skeljasmakki. Á meðan fóru hinir í skoðunarferð um Stykkishólm og nágrenni. Þá var snæddur kvöldverður á Hótel Stykkishólmi.

21. júní 2010

FRS mótmælir harðlega hugmyndum um launafrystingu

Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa mótmælir harðlega hugmyndum félagsmálaráðherra um launafrystingu opinberra starfsmanna. Ráðgjafar og stuðningsfulltrúar eru fjölmenn stétt þar sem konur eru í miklum meirihluta og launin óásættanlega lág fyrir, þótt þau séu ekki fryst. Umönnun er ekki afgangsstærð í þjóðfélaginu og þegar hefur verið farið yfir sársaukamörk í niðurskurði.

21. júní 2010

Verklokahátíð á Eiðum

Eiðar_verklok_2010_2Verklokahátið var haldin á Eiðum 11. júní sl. og því fagnað að búið var að endurnýja og stækka palla kringum húsin, ásamt því að gera við húsin að utan og að byggja bryggjur og bátalægi en vinna við geymslur til að geyma aukahluti fyrir siglingar á Lagarfljóti stóð enn yfir.

15. júní 2010

Kjarasamningur SFR og Isavia samþykktur

Kjarasamningur SFR og Isavia ohf sem undirritaður var 3. júní síðastliðinn hefur verið samþykktur.
Á kjörskrá voru 44. Atkvæði greiddu 31 eða 70.4%.
Af þeim sem kusu sögðu 30 eða 97% já, nei sagði 1 eða 3% og enginn skilaði auðu.

14. júní 2010

ASÍ og SFR takast á

ArniStJonsson_2006_a

Fréttir af fjárlagagerð fyrir árið 2011 eru engin gleðitíðindi fyrir ríkisstarfsmenn. SFR leggur megin áherslu á að verja störfin, standa vörð um velfarðarkerfið og hagsmuni félagsmanna í þeirri baráttu sem framundan er.

 

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ), sá í s.l. viku ástæðu til þess að svara leiðara formanns SFR í SFR blaðinu þar sem Árni Stefán Jónsson ræðir uppsagnir og sparnað hjá ríkinu. Á heimasíðu ASÍ kemur fram í svarbréfi Gylfa Arnbjörnssonar að hann er afar ósáttur við hvernig formaður SFR stillir málum upp.

11. júní 2010

Frysting launa mun auka misrétti

Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar verður lagt fram á næstu dögum og er nú komið fram að skorið verður niður um 32 milljarða króna á næsta ári. Einnig leggur ríkisstjórnin til að frysta laun opinberra starfsmanna í eitt ár en áætlað er að það spari fimm milljarða króna.

Eins og fram hefur komið hefur formaður SFR, Árni Stefán Jónsson, alfarið lagst gegn frystingu launa.

8. júní 2010

Ætlar félagsmálaráðherra í stríð við opinbera starfsmenn?

Í viðtali við Fréttablaðið í morgun lýsir Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra því yfir að ein aðferðin til sparnaðar fyrir ríkið sé að frysta laun opinberra starfsmanna í þrjú ár. Hann gengur svo langt að segja að slík aðferð sé jafnvel nauðsynleg til að verja velferðarkerfið; þjónustuna við aldraða, fatlaða o.s.frv.  Gerir félagsmálaráðherra sér grein fyrir því hverjir það eru sem starfa við það dagsdaglega að verja velferðarkerfið? Það eru einmitt opinberir starfsmenn sem þiggja fyrir það laun á bilinu 190-250 þúsund.

8. júní 2010

Kynningarfundir um kjarasamning við Isavia ohf

Þann 3. júní var skrifað undir kjarasamning við Isavia ohf. (áður Keflavíkurflugvöllur ohf) en samningaviðræður hafa staðið yfir alllengi. Á tímabilinu urðu miklar breytingar á rekstrarumhverfi atvinnurekandans þar sem meðal annars Keflavíkurflugvöllur ohf og Flugstoðir ohf runnu inn í nýja félagið Isavia ohf. Félag flugmálastarfsmanna ríkisins gekk frá sínum kjarasamningi fyrir skömmu en samningur þeirra nær til hluta starfsmanna Isavia sem gegna sömu og svipuðum störfum og okkar félagsmenn hjá fyrirtækinu. Samningar þessara félaga er að stærstum hluta samhljóða. Samningurinn okkar er birtur á vefsíðu SFR,  http://sfr.is/kaup-og-kjor/kjarasamningar/isavia-ohf/ og við hvetjum alla hlutaðeigandi til að kynna sér hann. Haldnir verða kynningarfundir um efni samningsins í næstu viku á tveimur fundum og verða þeir haldnir í flugstöðinni. Kynningarfundirnir verða sem hér segir; miðvikudaginn 9. júní kl 10:00 og á föstudaginn 11. júní kl 10:00. Kosið verður um samninginn að kynningu lokinni og hvetjum við alla til að mæta.

 

8. júní 2010

Örfá sæti laus í fjallgöngu fimmtudaginn 10. júní

SFR býður félagsmönnum sínum að ganga með skemmtilegum hópi frá Botni í Botnsdal inn í Lundareykjadal þann 10. júní og heitir sú ferð því skemmtilega nafni „Langleiðin til Englands“ og hentar jafnt óvönum sem vönum. Brottför er frá Grettisgötu 89, kl. 9:30, þann 10. júní og komið heim að kvöldi sama dag. Gengið er í ca 6 klst eða u.þ.b. 16 km. Verðið er 5.000 kr. Innifalið er rútuferð og fararstjórn, en hver og einn sér sjálfur um að nesta sig fyrir daginn. Aðeins örfá sæti eru laus í ferðina og því um að gera að skrá sig sem fyrst. Félagsmenn mega taka með sér gest. Skráning hér.

4. júní 2010

SFR semur við Isavia ohf

Skrifað hefur verið undir kjarasamning milli SFR - stéttarfélags og Isavia ohf, sem áður var m.a. Keflavíkurflugvöllur ohf.

2. júní 2010

Tilboð fyrir SFR félaga

SFR hefur borist tilboð frá Tjaldvagnaleigunni Pálshúsi en hún býður félagsmönnum SFR að leigja tjaldvagna og fellinýsi nú næstu viku (3.-9. júní). Félagsmenn þurfa að láta vita að þeir séu SFR félagar (t.d. með því að sýna félagsskírteinin) en tilboðið er svohljóðandi: Fellihýsi 35 þúsund fyrir helgina og tjaldvagn 27.500 fyrir vikuna. Áhugasamir hafið samband beint við Tjaldvagnaleiguna Pálshús, Einarsnesi 58, í síma 848 1488.

2. júní 2010

Laus orlofshús

treNú eru orlofshús félagsins óðum að fyllast af félagsfólki í sumarfríi en aðsóknin hefur verið góð hingað til. Enn eru þó lausar 2 vikur á Lindarbakka við Höfn í Hornafirði, þar sem félagið leigir fallegan sumarbústað aðeins 10 km vestan Hafnar í Hornafirði. Húsið er í stórbrotnu umhverfi með óviðjafnanlegu útsýni yfir Hornafjörð og skriðjökla Vatnajökuls allt til Öræfajökuls. Stutt er í alla þjónustu á Höfn, bæði veitingastaði, verslanir og sundlaug. Þá leigir félagið einbýlishús á Raufarhöfn fyrir félagsmenn sína og þar er einnig nokkrar lausar vikur þar í sumar. Þar er svefnpláss fyrir 8 manns með uppbúnum rúmum, og öll þægindi til staðar. Raufarhöfn er tilvalinn kostur fyrir fjölskyldufólk sem langar að skoða norður- og austurland nánar. Að lokum eru nokkrir dagar lausir í Munaðarnesi í næstu viku, þar gildir eins og annars staðar, fyrstu bókar fyrstur fær. Bókanir eru hér á vefnum.

31. maí 2010

Þurfum að efla stjórnsýsluna

Gunnar HelgiÁ trúnaðarmannaráðsfundi í dag fjallaði Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði um niðurstöðu starfshóps forsætisráðherra um viðbrögð stjórnsýslunnar við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Góður rómur var gerður að máli Gunnars og hann var spurður fjölda spurninga. Meðal annars sagði hann að starfshópurinn hefði komist að þeirri niðurstöðu að samhæfingu vantaði milli ráðuneyta, ráðherra og stofnana. Fækkun ráðuneyta kæmi til greina en þau þyrfti jafnframt að styrkja og stækka. Hann taldi hins vegar ekki vera ráðlegt að leggja út í slíkar breytingar með sparnaðaráform í huga, það myndi ekki skila sér. Sameining ráðuneyta myndi hins vegar auðvelda samhæfingu og gæfi kost á betri nýtingu þekkingar og mannafla.

 

31. maí 2010

Sala hótelmiða hefst 1. júní

Sala hótelmiða hefst þann 1. júní á bókunarvef SFR. Um er að ræða gistimiða sem veita ákveðinn afslátt á Edduhótelin og Fosshótelin. Tekið skal fram að félagsmenn sjá sjálfir um bókanir á hótelunum og við pöntun þarf að taka fram að greitt verði með gistimiða.

31. maí 2010

Sumaropnun skrifstofu 1. júní

Frá og með morgundeginum 1. júní verður skrifstofa SFR, Grettisgötu 89, 4. hæð, opin frá kl. 8:30-16:00 alla virka daga vikunnar.

28. maí 2010

Kýst þú utankjörstaðar og horfir á Evrovision í orlofshúsi?

Það er nokkuð um laus orlofshús þessa helgina og því kjörið að taka þátt í utankjör-staða atkvæðagreiðslu og njóta þess síðan að horfa á Evrovision söngvakeppnina í orlofshúsum SFR. Það er laust í Varmahlíð, Munaðarnesi, Stykkishólmi, Vaðnesi og einnig hafa tjaldvagnarnir ekki gengið út fyrir þessa helgi. Sjá nánar á bókunarvef SFR.

28. maí 2010

Fréttabréf Alþjóðasamtaka opinberra starfsmanna

Bottled_water_mynd_minniAlþjóðasamtök opinberra starfsmanna (PSI), halda úti öflugri vefsíðu á sex tungumálum og senda út veffréttabréf einu sinni í mánuði. Í nýjasta fréttabréfi þeirra er m. a. sagt frá því að alþjóðleg ráðstefna um gæði í opinberri þjón-ustu verður haldin 12. - 14. okt. í Sviss. Þá er sagt frá því að PSI tekur þátt í uppbyggingar-starfinu á Haiti, mikilli skerðingu á lífeyris-greiðslum í Grikklandi og frá stuttu myndbandi sem segir sögu flöskuvatnsins og hvernig fólki er selt það að betra sé að kaupa vatn á flösku en að drekka það sem kemur úr krananum. 

27. maí 2010

Fjallgöngur á vegum SFR - skráning

Í sumar býður SFR félögum sínum í fyrsta sinn að taka þátt í skemmtilegum göngum um hálendi Íslands, bæði er um að ræða dagsferðir og einnig lengri ferð (4 daga). Gengið verður með vönum leiðsögumönnum frá Útivist og Ferðafélagi Íslands, en ferðirnar eru skipulagðar í samvinnu við félögin. Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig en skráning fer fram hér á vefnum.

25. maí 2010

Orlofsuppbót 1. júní

Við bendum félagsmönnum á það að orlofsuppbót er greidd út með launum 1. júní næstkomandi. Orlofsuppbótin er kr. 25.800, miðað við fullt starf og fullan starfstíma hjá þeim sem taka laun samkvæmt samningi SFR og flestra viðsemjenda. Hjá Fríhöfninni ehf er orlofsuppbótin 19.500.

20. maí 2010

Hvítasunnan á Höfn í Hornafirði

Lindarbakki_uti_litilÞað er ánægjulegt að segja frá því að það hefur verið mikil ásókn í orlofshús SFR í vor. Nú fyrir Hvítasunnuhelgina er aðeins eitt hús laust, en það er Lindarbakki við Höfn í Hornafirði. Flest húsanna eru uppbókuð í sumar vegna úthlutunar en þó er eitt hús í Vaðnesi og annað í Munaðarnesi sem við höfum haft í svokallaðri dagleigu en það gefur fólki kost á að bóka færri daga en viku og með skemmri fyrirvara. Auk orlofshúsana býður SFR félagsmönnum sínum upp á fleiri spennandi orlofskosti, s.s. veiði- og útilegukort á afslætti, fjallgönguferða, leigu á tjaldvögnum o.fl. Áhugasamir kíkið á Orlofsvefinn.

18. maí 2010

Heimsókn frá Starvsmannafelagi Færeyja

Starvsmannafelag Færeyinga 2010Skrifstofa SFR fékk góða heimsókn frá fulltrúum frá systrafélagi okkar í Færeyjum, Starvsmannafelagi Færeyjum. Fulltrúarnir voru áhugasamir um starfssemi SFR samningamál og verkefni félagsins í því umhverfi sem við erum nú.

18. maí 2010

Vel heppnuð vinnuferð í Vaðnes

Vaðnes 2010 vinnuferð1Um síðustu helgi fór vaskur hópur félagsmanna og starfsmanna SFR í vinnuferð á orlofssvæði SFR í Vaðnesi. Veðrið lék við hópinn sem tók vel til hendinni, bar m.a. á grindverk og leiktæki, týndi rusl og grisjaði gróður og var víst engin vanþörf á. Stemmningin var góð eins og myndirnar bera með sér.

 

 

17. maí 2010

Félags íslenskra læknaritara 30 ára

Læknaritarar_stjorn_2010_frettAðalfundur og námsstefna FÍL - Félags íslenskra læknaritara, sem er fagfélag innan SFR, var haldinn 10. apríl sl. og var mjög vel sótt. Yfirskrift námsstefnunnar að þessu sinni var Þekking - gleði - samstaða. Um kvöldið var síðan haldinn afmælisfagnaður í tilefni 30 ára afmælis félagsins en það var stofnað árið 1970. Á aðalfundinum var kosinn ný stjórn og í henni sitja Elín Helga Jóhannesdóttir Sanko formaður, Margrét G. Andrésdóttir gjaldkeri, Svanhvít Ólafsdóttir ritari, Anna Einarsdóttir og Auður Dagný Jónsdóttir.

17. maí 2010

Félag heilbrigðisritara orðið fimm ára

Heilbrigdisrit_april2010_dAðalfundur FHR - Félags heilbrigðisritara, sem er fagfélag innan SFR, var haldinn 15. apríl sl. og var mjög vel sóttur. Á fundinum var stofnanda félagsins og frumkvöðli þess, Sigríði Valgerði Ingimarsdóttur heiðursfélaga, færðar þakkir undir dynjandi lófataki. Eftir fundinn var haldið upp á 5 ára afmæli FHR. Formaður SFR, Árni Stefán Jónsson, færði félaginu blóm og árnaðaróskir og óskaði afmælisbarninu velfarnaðar í framtíðinni.

10. maí 2010

BSRB aðili að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins

BSRB_Fraedslumidstod_undirsBSRB varð aðili að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins 6. maí sl. þegar samningur um það var undir-ritaður á aðalfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnu-lífsins. Þannig mun starfsemi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins héðan í frá einnig ná til opinbera vinnumarkaðarins. Starfsemi hennar nær því til alls vinnumarkaðarins og styrkist með gildistöku laga um fullorðinsfræðslu þann 1. október næstkomandi.

10. maí 2010

Kynning fyrir atvinnuleitendur í Rauðakrosshúsinu

RKI_atvleitendur_kynningSFR tók þátt í kynningu fyrir atvinnuleitendur á starfsemi stéttarfélaga sem fram fór í Rauða-krosshúsinu síðastliðinn föstudag. Atvinnuleit-endur sækja mikið í Rauðakrosshúsið og því gafst þarna tækifæri til að minna á mikilvægi þess að vera áfram í stéttarfélagi ef fólk missir vinn-una. Þannig tryggir atvinnuleitandi aðgang að ýmsum réttindum eins og það að sækja um ...

7. maí 2010

Umferðarstofa og Sýslumaðurinn á Hvolsvelli Stofnanir ársins

stofnun ársins 2010Niðurstöður úr könnuninni á Stofnun ársins 2010 voru kynntar á Nordica í dag 7. maí kl 17:00 en þetta er í fimmta sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins. Sigurvegarar voru Umferðarstofa í hópi stærri stofnana og Sýslumaðurinn á Hvolsvelli í hópi minni stofnana. Könnunin var gerð meðal félagsmanna SFR, þátttakendur voru spurðir um trúverðugleika stjórnenda, vinnuskilyrði, ímynd, sjálfstæði, sveigjanleika, ánægju með launakjör og fleira.

7. maí 2010

Stofnun ársins kynnt í dag á Nordica

stofnun ársins 2010Niðurstöður úr könnuninni um valið á Stofnun ársins 2010 verða kynntar á Nordica hóteli í dag föstudaginn 7. maí, kl. 17, en þetta er í fimmta sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins. Könnunin var gerð meðal félagsmanna SFR á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað. Ennfremur var öllum stofnunum ríkisins gefinn kostur á að allir starfs-menn stofnunarinnar óháð því í hvaða stéttarfélögum þeir væru, gætu tekið þátt og nýta margar þeirra það. Í ár tóku tæplega 200 stofnanir þátt og rúmlega 4000 starfsmenn. Niðurstöður úr könnunni verða birtar hér á vefnum strax að lokinni kynningu á Nordica, síðar í dag.

5. maí 2010

Kynningarfundir fyrir sjóðfélaga LSR

LSR_kynningarfundur2010LSR heldur kynningarfundi fyrir sjóðfélaga sem vilja fræðast um lífeyrismál á Grand Hótel Reykjavík 27. maí. Hægt er að velja um tíma-setningar kl. 8:30-10 eða kl. 16:30-18. Fjallað verður um uppbyggingu réttindakerfisins, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyris-greiðslur. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir 25. maí í síma 510-6100 eða senda tölvupóst á net-fangið lsr@lsr.is og tilgreina nafn, kennitölu og val á tímasetningu. Hægt er að senda spurningar sem óskað er eftir að verði svarað á fundinum.

4. maí 2010

Fyrsti maí í vorveðri

ganga1Kröfuganga stéttarfélag-anna þann fyrsta maí í ár var fjölmenn að vanda. SFR félagar flykktu sér undir fána félagsins í vorveðrinu sem lék við göngufólkið, eins og meðfylgjandi myndir sýna. Þá þáðu margir boð BSRB um kaffi og með því að lokinni göngu. Meðan á kaffinu stóð skemmtu Kvennakór Reykjavíkur og Maí-kór BSRB félaga göngufólki með söng.

 

30. apríl 2010

Fjölmennum á baráttufundi 1. maí

1mai2008_ganga.gifAð venju mun launafólk á Íslandi vekja athygli á kröfum sínum og minnast sigranna á samkomum um allt land á 1. maí, frídegi launafólks. Upp-lýsingar um 1. maí hátíðarhöld á landsbyggðinni má finna hér. Í Reykjavík leggur kröfuganga af stað frá Hlemm kl. 13:30 og útifundur hefst kl. 14:10 á Austurvelli. Að loknum fundinum á Austurvelli kl. 15 eru að venju allir velkomnir í 1. maí kaffi í BSRB húsinu.

29. apríl 2010

Matarkarfan hækkað um 66%

SFR blað 4tbl.2010SFR blaðið er komið út sneisafullt af efni að venju. Þar má m.a. finna viðtal við Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um sameiningu stofnana og flutning málefna fatlaðra til sveitafélaga. Þar segir Jóhanna m.a. að forsætisráðuneytið hafi hvatt til víðtæks samráðs við stéttarfélögin varðandi sameiningarnar og að kappkostað verði að komast hjá uppsögnum við breytingarnar. Þá birtum við niðurstöðu könnunar á matarverði en matarkarfan okkar, sem fyrst var keypt í upphafi árs 2006, hefur hækkað um 66%.

27. apríl 2010

Fjölmenn ráðstefna um jafna stöðu kynjanna

jafnretti reykjavik 6Fjölmenn ráðstefna um jafna stöðu kynjanna var haldin í vikunni í Félagamiðstöðinni, Grettisgötu 89. Ráðstefnan var sú fjórða og síðasta í ráðstefnuröð sem SFR hefur haldið um land allt í tilefni af 70 ára afmæli félagsins á síðasta ári. Efni ráðstefnanna hefur verið afar fjölbreytt en við höfum fengið erindi um Umhverfismál, mannsal, unglinga og kreppuna, allt frá sjónarhóli kynjajafréttis.

27. apríl 2010

Vistvernd í verki - hádegisfróðleikur 29. apríl

Enginn getur gert allt en allir geta gert eitthvað eru einkunnarorð Vistverndar í verki sem er alþjóðlegt samfélagsverkefni sem leiðbeinir þátttakendum í leit þeirra að sjálfbærum lífsstíl og samfélagi. Verkefnið verður kynnt í hádegisfróðleik 29. apríl kl. 12-12:50. Skráning og nánari upplýsingar hér.

23. apríl 2010

Fjórða ráðstefna SFR um jafnrétti haldin í Reykjavík 27. apríl

jafnrettishringurinn 2010Á þriðjudaginn nk. frá kl. 13-16 verður haldin ráðstefna í Reykjavík sem er hluti af ráðstefnuröð SFR um jafna stöðu kynjanna. Fyrirlesarar eru þær Silja Bára Ómarsdóttir, sem kallar erindi sitt Kastljós á kyn: Fjármagn til karla og kvenna í kynjaðri hagstjórn og síðan munu Fríða Rós Valdimarsdóttir, mannfræðingur og höfundur skýrslunnar „Líka á Íslandi, um umfang og eðli mansals", og Kristbjörg Kristjánsdóttir, kynjafræðingur og fyrrum starfskona Stígamóta, fjalla um ofbeldi í skjóli einkalífs. Skráning og nánari upplýsingar hér.

23. apríl 2010

Vinnuvika íslenskra kvenna og norskra karla jafnlöng

ISF_Gestir_3Á jafnréttisráðstefnu SFR á Ísafirði þann 20. apríl fjallaði Kristján Ketill Stefánsson um unglingana okkar og líðan þeirra í skólum. Eftirtektarvert var að svo virðist sem mýtan um að drengjum líði verr í skólum en stúlkum eigi ekki lengur við. Dr. Gyða Margrét Pétursdóttir fjallaði um íslenskar konur og karla á vinnumarkaði. En konur hér á landi vinna að jafnaði 36 stundir á viku sem er sambærilegt vinnutíma norskra karla. Fyrirlestrarnir voru afar áhugaverðir og vel tekið undir orð fyrirlesara.

22. apríl 2010

Vel sótt ráðstefna á Egilsstöðum

EGS_gestirRáðstefna SFR um jafna stöðu kynjanna á Egilsstöðum þann 14. apríl sl. þótti takast sérlega vel. Þar fjallaði Þórdís Þórðardóttir um það hvernig hefðir og vanahugsun hefur áhrif á viðhorf okkar og væntingar til kynjanna. Á eftir henni fjallaði Stefanía Kristinsdóttir um „fordóma" okkar gagnvart hinu kyninu og hvernig við stimplum þá sem synda gegn straumnum t.d. konur á framabraut og karla í kvennastörfum. Góð stemning og mikil áhugi var í salnum.

19. apríl 2010

Skreppur og Pollýanna á Ísafirði

Á morgun verður haldin ráðstefna á Ísafirði í ráðstefnuröðunni um jafna stöðu kynjanna. Fyrirlesarar eru tveir, en það eru þau Dr. Gyða Margrét Pétursdóttir, aðjúnkt í kynjafræði, sem kallar erindi sitt Skreppur og Pollýanna - Samræming fjölskyldulífs og atvinnu, kynhlutverk og eðli starfa og hinn fyrirlesarinn er Kristján Ketill Stefánsson, stundakennari og doktorsnemi við Háskóla Íslands, sem fjallar um Kerfið og kynin: Líðan og virkni á unglingastigi. Ráðstefnan er öllum opin og er þátttakendum að kostnaðarlausu. SFR býður upp á léttan hádegisverð. Skráning hér.

15. apríl 2010

Laus hús í Munaðarnesi um helgina

Um helgina er nú nokkur laus hús í Munaðarnesi, auk þess er íbúðin í Vestmannaeyjum og húsið við Mývatn laust frá föstudegi til sunnudags, nú um helgina. Félagsmenn geta bókað húsin á Orlofsvef SFR.

13. apríl 2010

Kvenrembur og karlrembur á Egilsstöðum

Á morgun verður haldin ráðstefna á Egilsstöðum í ráðstefnuröðunni um jafna stöðu kynjanna. Fyrirlesarar eru tveir, en það eru þær Þórdís Þórðardóttir lektor við HÍ sem mun fjalla um launamismun og hvernig við viðhöldum honum með ákveðnum viðhorfum til karla og kvenna. Þá mun Stefanía Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Þekkingarnets á Austurlandi fjalla um kvenrembur og karlrembur auk þess að velta fyrir sér lagalegu og menningarlegu jafnrétti. Ráðstefnan er öllum opin og er þátttakendum að kostnaðarlausu. SFR býður upp á léttan hádegisverð. Skráning hér.

9. apríl 2010

10 heppnir vinningshafar - Stofnun ársins 2010

Þeim hluta sem snýr að þátttakendum í könnunni Stofnun ársins 2010 er nú lokið. Happdrættismiði fylgdi gögnum hvers og eins og hafa vonandi sem flestir varðveitt hann vel, enda mikið í húfi. Dregnir voru út 10 vinningar sem eru gjafabréf hjá Icelandair að andvirði 50 þúsund krónur hver, og komu vinningar á eftirfarandi númer; 300332, 300747, 302995, 304810, 317072, 325615, 328399, 331853, 332498, 334175.

8. apríl 2010

Stigvaxandi óánægja og óþolinmæði meðal félagsmanna

Morgunvfundur_8apr2010-(4)Á morgunverðarfundi nú í morgun ræddu félagsmenn um þjónstu SFR og kjaramálin. Háværar raddir voru um að launakjör færu versnandi. Fram kom að álag hefur aukist til muna á vinnustöðum og að dagvinnulaunin væru ekkert til þess að lifa af. Félagsmenn lýstu verulegum áhyggjum yfir þessari þróun og gerðu kröfa á að félagið skoðaði þetta betur. Þetta er tíundi morgunverðarfundurinn á þessari vorönn og forystumenn SFR skynja stigvaxandi óánægju og óþolinmæði meðal félagsmanna.  

7. apríl 2010

Ráðstefna SFR á Egilsstöðum 14. apríl

jafnrettishringurinn 2010Ráðstefnuröð SFR um jafna stöðu kynjanna heldur áfram. Næst berum við niður á Egilsstöðum en þar munu þær Þórdís Þórðardóttir, lektor við HÍ og Stefanía Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Austfjarða halda stutta fyrirlestra meðan þátttakendum gefst kostur á að gæða sér á ljúffengri súpu og meðlæti í boði SFR. 
Þórdís mun fjalla um vinnumarkaðinn og þær kynjamyndir sem þar birtast en Stefanía ætlar að velta fyrir sér kvenrembum og karlrembum, að lokum erindunum verða umræður. Ráðstefnan hefst kl. 11:30 og stendur til kl. 14:00. SFR hvetur alla félagsmenn sína til að koma og taka þátt. Ráðstefnan er öllum opin og þátttakendum að kostnaðarlausu. Skráning er hér.

31. mars 2010

Fyrstur bókar - fyrstur fær!

Opnað verður fyrir dag- og helgarleigu í sumar 1. apríl kl. 9 í þremur orlofshúsum/íbúðum. Um er að ræða eitt hús í Vaðnesi, eitt í Munaðarnesi og íbúðina í Vestmannaeyjum. Smella hér til að bóka. Þetta er ekki aprílgabb.

31. mars 2010

Ný stjórn SFR ályktar

Nýkjörin stjórn SFR hélt sinn fyrsta fund í gær og sendi hún að loknum fundi frá sér ályktun vegna þeirrar umræðu sem spunnist hefur síðustu daga um fyrirhugaða fækkun opinberra stofnana:

Stjórn SFR telur mikilvægt að í allri umræðu um hagræðingu og sameiningu ríkisstofnana sé þess gætt að sú góða  almannaþjónusta sem veitt er á Íslandi verði varin og tryggð. Þá er mikilvægt í öllum slíkum ráðagerðum að átta sig á því að sparnaður og hagræðing sem næst fram með sameiningu ríkisstofnana, er hvorki skjót né örugg. Það sýnir bæði reynslan og nýleg skýrsla Fjármálaráðuneytisins.
Góð almannaþjónusta er grunnur að hagsæld og velferð fólksins í landinu. Því mega skammtímasjónarmið, um hagræðingu og sameiningu þegar þrengir að, ekki verða til þess að eyðileggja hana til framtíðar.  Þvert á móti þarf að verja hana og efla enn frekar á erfiðum tímum.
Stjórn SFR leggur áherslu á það að í áætlunum um sameiningu og hagræðingu séu störf ríkisstarfsmanna tryggð. SFR leggur áherslu á að ríkisstarfsmenn verði ekki sendir út í atvinnuleysi. Í slíkum vanhugsuðum aðgerðum felst enginn sparnaður.
SFR frábiður sér málflutning á borð við þann sem Viðskiptaráð stendur fyrir. Svo virðist sem eina lausn þeirra í erfiðu efnahagsástandi, sé að ráðast á almannaþjónustuna og opinbera starfsmenn. Stjórn SFR minnir á að málflutningur þeirra síðustu misseri hefur ekki verið trúverðugur eða  þjóðinni til hagsbóta og ráðleggur þeim að líta í eigin barm. 

30. mars 2010

Ný stjórn lífeyrisþega

Stjórn lífeyrisþega 2010Aðalfundur lífeyrisdeildar SFR var haldinn 23. mars síðastliðinn. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa heiðraði fundurinn minningu Maríasar Þ. Guðmundssonar, fyrrum stjórnarmanns sem lést fyrr í mánuðinum. Á fundinum kvaddi formaður og stjórn deildarinnar til margra ára og ný  stjórn var kjörin. Guðmundur Elvar Eiríksson var kosinn í stól formanns og og meðstjórnendur eru þau  Guðmundur R. Karlsson, Elín Brimdís Einarsdóttir, Kristrún B. Jónsdóttir og Bjarndís R. Júlíusdóttir. Í varastjórn eru Olgeir Möller og Ragnar Ólafsson.

29. mars 2010

SFR um allt land !

sfr og eldgos f. webÞessi skemmtilega mynd var tekin við gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi um helgina en þangað lagði framkvæmdastjóri SFR, Þórarinn Eyfjörð leið sína. 

29. mars 2010

Orlofsúthlutun í fullum gangi

Í dag er verið að vinna úr þeim mikla fjölda umsókna sem borist hafa um orlofshús í sumar. Búast má við því að þeir sem fá úhlutað orlofshúsi fái svar um það seinnipartinn í dag eða á morgun með tölvupósti. Þeir sem sóttu um skriflega (lífeyrisþegar) fá svarbréf í pósti á næstu dögum.
Þeir félagsmenn sem ekki fá úthlutað því sem þeir óskuðu eftir  fara hins vegar á biðlista sem unnið verður úr á næstu tveimur vikum. Eftir að úthlutun er lokið og svör hafa borist um hverjir fengu úthlutað, þarf viðkomandi að ganga frá greiðslu fyrir orlofshúsin fyrir 6. apríl næstkomandi. Ef greiðsla berst ekki fyrir þann tíma þá verður húsinu úthlutað til annarra af biðlistanum.

26. mars 2010

Fjölmennur aðalfundur SFR haldinn í gær

Adalfundur_VedisAðalfundur SFR var haldinn í gær. Á fundinum fóru formaður og framkvæmdastjóri yfir ársskýrslu stjórnar og ársreikninga. Ný stjórn SFR var kosin en hana skipa: Fiðrik Atlason, Guðmundur Garðar Guðmundsson, Ína Halldóra Jónasdóttir, Jóhanna Sóley Gunnarsdóttir, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, Olga Gunnarsdóttir, Ólafur Hallgrímsson, Salóme Berglind Guðmundsdóttir, Sigurður H. Helgason og  Védís Guðjónsdóttir. Árni Jónsson var endurkjörinn formaður félagsins. Þá var einnig kosið í stjórnir Vinnudeilusjóðs, Orlofssjóð, Starfsmenntunarsjóðs og í kjörstjórn. Kynntur var trúnaðarmaður ársins sem að þessu sinni var valinn Sigríður Kristinsdóttir, trúnaðarmaður á Landspítala. Á aðalfundinum voru samþykktar ályktanir um: greiðsluvanda heimilanna, kjara- og efnahagsmál, umhverfismál, lýðræðislega uppbyggingu ásamt framtíðarsýn félagsins.

 

25. mars 2010

Hægt að fylgjast með aðalfundi SFR á netinu

Aðalfundur SFR er sendur út í gegnum netið í beinni útsendingu. Slóðin á beina útsendingu er...

25. mars 2010

Laus orlofshús um helgina í Munaðarnesi og á Mývatni

Mikil ásókn hefur verið í orlofshús félagsins í vetur, en nú um helgina eru nokkur hús laus, m.a. á Mývatni og í Munaðarnes. Þá er íbúð félagsins í Kaupmannahöfn einnig og hús á Spáni laust til útleigu nú um helgina fyrir þá sem hyggjast leggja í langferð. Við viljum minna félagsmenn á að í dag er síðasti dagurinn til að sækja um orlofshús í sumar en umsóknarferlið er rafrænt á orlofsvefnum, undir flipanum Umsóknir og úthlutanir.

25. mars 2010

Það styttist í sumarfríið

Síðasti dagur til að sækja um orlofshús fyrir sumarið er í dag 25. mars, en fresturinn er til kl. 12 á miðnætti. Umsóknarferlið er rafrænt á orlofsvef SFR, nema fyrir þá sem eru í lífeyrisþegadeild, þeir hafa fengið sent umsóknareyðublað sem fylgdi Orlofsblaðinu. Það eyðublað þarf að fylla út og senda skrifstofu félagsins.  

24. mars 2010

Samstaða um áframhaldandi aðild að SFR

Malfundur fatl 5 2010 Fjölmennur fundur stuðningsfulltrúa og félagsliða auk annarra starfsmanna sem starfa að málefnum fatlaðra var haldinn að Grettisgötu 89 í gær. Rúmlega 140 manns sóttu fundinn sem einnig var sendur út sem fjarfundur til Egilsstaða, Vestmannaeyja og Ísafjarðar þar sem félagsmenn fylgdust grannt með og tóku þátt í umræðum. Á fundinum sem ætlaður var til að skýra stöðu mála varðandi fyrirhugaða yfirfærslu málaflokks fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga fluttu Þór G. Þórarinsson skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu erindi um notendastýrða þjónustu og Einar Njálsson verkefnisstjóri, fór yfir áætlun og stöðu mála varðandi yfirfærsluna.

24. mars 2010

Ný stjórn Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa

Stjórn FRS - mars 2010Að loknum fjölmennum málfundi um yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitafélaga var haldinn aðalfundur félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa þar sem kosin var ný stjórn. Vésteinn Valgarðsson var kosinn formaður og stjórnarmenn eru þau Kristín Margrét Vilhjálmsdóttir, Helena Sigurbergsdóttir, Guðjón Bjarki Sverrisson, Jakob Rafnsson, Íris Ingþórsdóttir og Helga Sigríður Árnadóttir.

22. mars 2010

Yfirlýsing frá BSRB vegna villandi umræðu um launaþróun

BSRB hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna villandi umfjöllunar fjölmiðla um launakjör opinberra starfsmanna í kjölfar útgáfu nýrra Hagtíðanda frá Hagstofu Íslands. Eins og segir í yfirlýsingunni er það ansi framandi mynd fyrir félagsmenn BSRB sem dregin er af veruleikanum þegar fullyrt er að opinberir starfsmenn búi við betri kjör en aðrir hópar. Ekki þarf að skoða kjarasamninga, starfsumhverfi eða þróun verðbólgu sérlega grannt til að sjá að þetta stenst engan veginn. Í yfirlýsingunni er einnig tekið fram að einfaldar skýringar séu á því af hverju launavísitala hjá hinu opinbera mælist sterkari milli ára og eru þær tilgreindar þar. Yfirlýsingin má finna í heild sinni á vef BSRB.

19. mars 2010

Langvarandi óvissa hjá starfsmönnum málefna fatlaðra

- Mikill ágreiningur um réttindi starfsmanna
Í yfir áratug hefur staðið til að flytja málefni fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Starfmenn sem vinna við málefni fatlaðra hafa á þessum tíma mátt búa við langvarandi óvissu um starfskjör sín til framtíðar. Nú liggur fyrir áætlun um að flytja málaflokkinn til sveitarfélaganna um næstu áramót. Í þeim undirbúningi er ljóst að mikil ágreiningur er milli stéttarfélaga og sveitarfélaganna um hvernig fer með réttindi starfsmanna við yfirflutninginn. SFR hefur lagt áherslu á að fagþekking og reynsla tapist ekki og að réttindi starfsfólks verði tryggð með lagasetningu...

18. mars 2010

Orlofsmál - umsóknarfrestur til 25. mars

orlofsblad-SFR-2010_lEinhverjar tafir eru á því að hægt sé að kaupa útilegukortið hjá SFR, þar sem þeir aðilar eru enn að bæta við og semja um ný tjaldsvæði. Reikna má með að það verði til sölu á vefnum og á skrifstofu SFR eftir miðja næstu viku. Hótelmiðarnir á Eddu- og Fosshótelin koma hins vegar ekki í sölu á vefnum fyrr en 1 júní eins og undanfarin ár. Um páskana er eitt hús laust í Munaðarnesi og líka húsið á Mývatni. Þá er húsið á Spáni enn laust um páska og vert er að benda áhugasömum á að hafin er sala á Gjafakortunum hjá Icelandair og Iceland Express og að búið er að opna fyrir bókanir í útlöndum. Húsið á Mývatni verður ekki í boði nema til 30. apríl 2010, og því fer hver að verða síðastur að bóka sig.

18. mars 2010

Fundað á Egilsstöðum

Hadegisfundur Egilsstodum 1Félagsmenn SFR á Austurlandi funduðu á Hótel Héraði í hádeginu í gær, 16. mars. Til umræðu á fundinum var þjónusta SFR, fyrirkomulag sjóða og kjaramál félagsmanna. Umræðurnar voru mjög góðar. Félagsmenn voru áhyggjufullir yfir starfsöryggi sínu, kjörum almennt og flutningi á verkefnum milli stofnanna. Einnig var flutningur á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga ræddur og lýstu starfsmenn innan þjónustunnar miklum áhyggjum af því hvernig staðið yrði að honum hvað réttindi starfsmanna varðar.

17. mars 2010

Opnað fyrir bókanir í útlöndum í dag og gjafabréf í flug

Frá og með deginum í dag er hægt að bóka íbúðina í Kaupmannahöfn og húsið á Spáni fyrir tímabilið 14.05.-03.09.2010. Þá er einnig hægt að kaupa gjafabréf í flug. Nánar á bókunarvef. Umsóknarfrestur um orlofshús er til og með 25. mars.

17. mars 2010

Hádegisfróðleikur í fjarfundi - Eyjar og Reykjanesbær

Skráning stendur yfir á hádegisfróðleik 25. mars en að þessu sinni heldur Kristján Ketill Stefánsson, stundakennari og doktorsnemi við Háskóla Íslands, fyrirlestur sem heitir Hvernig líður unglingunum okkar í skólanum - er munur á líðan stúlkna og drengja? Fyrirlesturinn er haldinn í Reykjavík og í fjarfundi í Vestmannaeyjum og í Reykjanesbæ.

17. mars 2010

Uppbygging og viðhald að Eiðum

Eidar smidir mars 2010SFR á 4 orlofshús að Eiðum á Austurlandi. Félagið er þar í sambýli við önnur stéttarfélög innan BSRB og eru þau saman í rekstrarfélgi sem sér um sameiginleg mál og verkefni. Nú standa yfir töluverðar framkvæmdir á svæðinu þar sem meðal annars er verið að endurnýja og stækka palla kringum húsin. Þá standa einnig yfir viðgerðir á húsunum að utan, vegurinn að svæðinu hefur verið byggður upp og á að malbika hann í sumar og smíðavinna er að hefjast við bryggjur og bátalægi.

17. mars 2010

Fjölbreytt námskeið á næstunni

Í nýju veffréttabréfi Starfsmenntar kemur fram að þátttaka í námi á þessari vorönn stendur nú sem hæst í bæði styttri sem lengri námsleiðum hjá Starfsmennt. Fjölbreytt námskeið hefjast í apríl og maí og má þar nefna Framrás I - Ég og starfið, Rekspöl II, Verkefnastjórnun, Nám í mannauðsstjórnun svo eitthvað sé nefnt. Einnig er minnt á röð námskeiða fyrir atvinnuleitendur.

16. mars 2010

SFR á Egilsstöðum

Miðvikudaginn 17. mars verður SFR á Egilsstöðum. Um morguninn verður félgsmönnum á Egilsstöðum gefinn kostur á að panta viðtal við framkvæmdastjóra SFR sem verður á staðnum. Síðan er hádegisverðarfundur með félagsmönnum, en á hann mæta félagsmenn sem hefur verið sérstaklega boðið eftir tilviljanakenndu úrtaki úr félagatalinu. Síðar um daginn verður haldinn tengslanetsfundur með trúnaðarmönnum.
Til að panta viðtal er best að hafa samband við Ölmu í síma 525 8354 eða alma@sfr.is

16. mars 2010

Morgunverdarfundur í Reykjavík

Morgunverdarf1 rvk 16 marsmorgunverdarf2 RVk 16 marsFélagsmenn SFR á höfuðborgarsvæðinu voru mættir snemma í morgun á morgunverðarfund á Grettisgötu 89.

Morgunverðarfundir hafa verið haldnir reglulega í vetur um land allt og hafa gefið góða raun. Til umræðu á fundunum er ma.a. starfsemi félagsins vítt og breitt.

11. mars 2010

Íbúð í Vestmannaeyjum - Fyrstur bókar fyrstur fær

Vestmannaeyjar-020_litilSFR býður nú félagsmönnum upp á íbúð í Vestmannaeyjum. Hægt verður að leigja íbúðina frá og með 1. apríl til 14. maí, en þá hefst sumar-úthlutunartímabil. Íbúðin í Eyjum verður í dags- og helgarleigu í sumar og verður opnað fyrir þær bókanir 1. apríl. Einnig verður eitt orlofshús í Vaðnesi og eitt í Munaðarnesi í dags- og helgarleigu.  Bóka þarf húsið hér. Nýtt orlofs-blað SFR er farið í póst til félagsmanna og er umsóknarfrestur til og með 25. mars.

10. mars 2010

Styrkur til Haiti

Arni og Petur Haiti styrkurStjórn SFR styrkti nýlega starfsemi húmanista á Haiti um 200 þúsund, en þeir eru mjög virkir á svæðinu og hafa tekið myndarlega til við uppbyggingarstarfsins í kjölfar jarðskjálftanna fyrr á árinu. Á Grand Anse svæðinu er Húmanistahreyfingin fjölmenn og þar af leiðindi voru því miður margir úr þeirra röðum sem létust í jarðskjálftanum, eða 369 manns.  Pétur Guðjónsson, sem hefur verið með þróunarstarf á Haiti s.l. 15 ár, veitti fénu viðtöku fyrir hönd húmanista í Samhygð, en það verður notað til ýmissa brýnna verkefna í sveitum Haiti.

9. mars 2010

Hádegisverðarfundur á Ísafirði

Fjölmennur fundur með félagsmönnum var haldinn í hádeginu í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Fjörugar umræður urðu um sjúkrasjóð, starfsmenntunarsjóð og orlofsmál. Þá óskuðu félagsmenn eftir fleiri íbúðum í Reykjavík. Í framhaldinu var svo fundað með tengslaneti trúnaðarmanna á Vestfjörðum. 

9. mars 2010

Kynjasjónarhorn á umhverfismál og kreppuna rætt á Akureyri

Akureyri_gestir_litilFyrsta ráðstefnan í ráðstefnuröð SFR um jafnrétti var haldin á Akureyri í gær, þann 8. mars á baráttudegi kvenna. Fyrirlesarar voru þau Kristín Ástgeirsdóttir og Tryggvi Hallgrímsson frá jafnréttisstofu og fluttu þau afar áhugaverð erindi. Kristin talaði um kynjasjónarhorn á lofslags- og umhverfismálum og fræddi þátttakendur m.a. um að kynin eru mismundi þegar kemur að umhverfismálum. Þannig væru það t.d. karlarnir sem keyrðu bílana og ætu kjötið sem hvort tveggja ýtir undir neikvæðar loftslagsbreytingar en það væru hins vegar konurnar sem stýrðu neyslu heimilanna, og keyptu fötin og snyrtivörunar, made in China sem fluttar væru hingað til lands um langan veg.

8. mars 2010

Alþjóðlegur barátttudagur kvenna 8. mars

8marsjafnrsvunta_740726246BSRB stendur ásamt fleiri félagasamtökum að tveimur fundum sem haldnir verða í dag, 8. mars, en þá er alþjóð-legur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti haldinn í hundraðasta skiptið. Þá stendur SFR að ráðstefnu á Akureyri í dag. Félagið mun halda ráðstefnur um jafnrétt-ismál í öllum landsfjórðungum í mars og apríl. Fullt hús var á fundinum á Grand Hóteli í hádeginu en yfirskrift hans var Frelsi til fjölskyldulífs, samræming fjölskyldu- og atvinnulífs. Þá er dagskrá í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur kl.17 undir yfirskriftinni Við getum betur. Sjá nánar.

4. mars 2010

Ráðstefnuröð SFR um jafnrétti - skráning hafin

SFR - stéttarfélag hefur lagt mikla áherslu á launajafnrétti kynjanna og jafnréttismál í starfi sínu. Á síðustu misserum hafa ýmsir haldið því fram að jafnréttismálin séu síður á dagskrá vegna þeirra erfiðleika í efnahagsmálum sem íslenska þjóðin er að ganga í gegnum. Það er skoðun SFR að ef einhverju sinni hafi verið þörf á að huga sérstaklega að jafnréttismálum, þá sé það nú. Jafnrétti má ekki verða afgangsstærð í uppbyggingu og endurnýjun samfélagsins. Þvert á móti. Jafnrétti kynjanna er mikilvægara en nokkru sinni. Endurreisa þarf íslenskt samfélag þar sem velferð þegnanna, réttsýni og jafnrétti verða þau gildi sem skipað verður í öndvegi.

Skráning og nánari upplýsingar um dagskrá HÉR.

2. mars 2010

Söguleg útskrift

Soguleg utskriftUm 20 trúnaðarmenn á vegum aðildarfélaga BSRB útskrifuðst í dag úr trúnaðarmannanámi BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu. Þetta er fyrsti hópurinn sem útskrifast úr náminu en það hófst á vorönn 2008. Auk þess að styrkja trúnaðarmennina í starfi veitir það þeim 10 einingar á framhaldsskólastig. Um 100 manns hafa verið í trúnaðarmannanáminu nú á vorönn. 12. mars nk. útskrifast annar hópur sem einnig telur hátt í 20 manns.

1. mars 2010

Skilafrestur framlengdur til 8. mars í Stofnun ársins 2010

SFR_Fyrirmyndarstofnun_2010Eitthvað hefur verið um það að póstsíur þjónustuaðila hafi stoppað pósta frá Capacent með könnuninni Stofnun ársins 2010. Capacent hefur verið í sambandi við nokkrar stofnanir og fyrirtæki útaf þessu og einnig við þjónustufyrirtækin, þannig að ítrekun frá Capacent á að vera að berast félagsmönnum í dag. Svarfrestur hefur því verið framlengdur til 8. mars. SFR hvetur félagsmenn til að taka þátt í könnuninni til að hún verði sem best úr garði gerð.

24. febrúar 2010

Heimsókn frá Noregi

StafoheimsóknÍ dag komu góðir gestir í heimsókn til SFR, en það eru þau Ingerid Bjercke, formaður STAFO í Noregi,  Tor Egelien, varaformaður og  Liv Stokke fræðslustjóri. Þau verða hér á landi í 3 daga og munu kynna sér starfsemi SFR og BSRB. Dagskrá þeirra er þéttskipuð en þau munu m.a. kíkja inn á námskeið hjá SFR og eiga fundi með formanni og starfsfólki SFR auk framkvæmdastjóra BSRB. STAFO er systrafélag SFR í Noregi og starfar á landsvísu í Noregi. 

23. febrúar 2010

Hádegisfróðleikur á Akureyri, Ísafirði og í Reykjavík

Hádegisfróðleikurinn Nokkrar staðreyndir um hamingjuna verður haldinn í Reykjavík nk. fimmtudag og einnig sendur í fjarfundi til Akureyrar og á Ísafjarðar. Það er Páll Matthíasson geðlæknir sem mun fjalla um hamingjuna frá ýmsum hliðum. Nauðsynlegt er að skrá sig þar sem boðið er upp á samlokur og kaffi. Nánari upplýsingar og skráning HÉR. AHT! Staðsetning á Akureyri er breytt, verður í Háskólanum á Akureyri, Sólborg, stofu L102.

22. febrúar 2010

Stofnun ársins 2010

Vinna við könnunina Stofnun ársins 2010 er komin í fullan gang og þessa dagana er verið að senda spurningalistann út. Hann fer rafrænt til þeirra sem hafa uppgefin netföng og í pósti til annarra. Skilafrestur er til 1. mars og við hvetjum ykkur félagsmenn til þess að taka þátt í könnuninni en til að könnunin verði sem best úr garði gerð þurfum við á þátttöku félagsmanna að halda.

22. febrúar 2010

Best í Evrópu - Til hamingju starfsfólk á Keflavíkurflugvelli

Keflavíkurflugvöllur hefur verið valinn besti flugvöllur í Evrópu að mati flugfarþega. Þjónustukannanir hafa verið gerðar reglulega síðustu ár en í þeim meta farþegar gæði um 30 þjónustuþátta. SFR vill nota tækifærið og óska öllu starfsfólki á flugvellinum, SFR félögum sem öðrum, innilega til hamingju með árangurinn. Því án framúrskarandi starfsfólks er nokkuð víst að þessum árangri hefði ekki verið náð.

22. febrúar 2010

Páskaútlutun lokið

Búið er að úthluta orlofshúsum SFR um páskana. Greiðslufrestur er til og með 1. mars. Þeir sem sóttu um og fengu ekki úthlugað eru á biðlista. Úthlutað er jafnóðum því sem losnar. SFR á 4 hús á Eiðum og var þeim ekki úthlutað að þessu sinni og geta áhugasamir bókað það HÉR.

12. febrúar 2010

Eldri starfsmenn á Landspítala beðnir um að íhuga starfslok

Forráðamenn á Landspítala hafa sent starfsmönnum sem eru 67 ára eða eldri og þeim sem geta farið á 95 ára regluna bréf. Í bréfinu er talað um að með þessum samtölum geti stofnunin fengið hugmyndir um hvort hægt sé að auka svigrúm fyrir yngra fólk nú og inn í framtíðina.

12. febrúar 2010

Tillaga trúnaðarmannaráðs um formann SFR og stjórnir

Fundur trúnaðarmannaráðs, sem haldinn var í gær, leggur fram eftirfarandi tillögu (sjá í nánar) um formann og stjórn SFR og stjórnir orlofssjóðs, starfsmenntunarsjóðs og kjörstjórn, ásamt tillögu að skoðunarmönnum reikninga, fyrir aðalfund SFR sem verður haldinn 25. mars nk. klukkan 17. Vegna útskiptireglu detta fjórir út úr stjórn SFR að þessu sinni en stjórnarmenn geta mest setið í 6 ár, eða 3 kjörtímabil.    

11. febrúar 2010

Loftslagsmálin rædd á fundi trúnaðarmannaráðs

Trmfundur_feb2010_lÁ fundi trúnaðarmanna SFR, sem stendur yfir, voru loftslagsmálin til umræðu. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra mætti á fundinn og sagði frá loftslagsráðstefnunni sem haldin var í Kaupmannahöfn í desember síðastliðnum.

10. febrúar 2010

Fundað með félagsmönnum á Sauðárkróki

Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, og Alma Lísa Jóhannsdóttir, umboðsmaður trúnaðarmanna, funduðu með félagsmönnum á Norðurlandi vestra í gær. Fyrst var morgunverðarfundur þar sem rætt var m. a. um orlofsmál, kjörin og réttindi starfsmanna. Í framhaldinu var fundað með tengslaneti trúnaðarmanna á svæðinu.

9. febrúar 2010

Könnunin Stofnun ársins 2010 er farin af stað

Stofun arins 2009Vinna við könnunina Stofnun ársins 2010 er komin í fullan gang. Þessa dagana er verið að hringja í félagsmenn og bjóða þeim að taka þátt í könnuninni. Á mánudaginn í næstu viku þann 15. febrúar verður spurningalistinn sendur út. Hann fer rafrænt til þeirra sem hafa uppgefin netföng og í pósti til annarra.

8. febrúar 2010

Þjónusta við atvinnuleitendur

Veidi_a_thinu_faeriFræðslusetrið Starfsmennt skrifaði nýverið undir samstarfssamning við Vinnumálastofnun um að taka að sér tímabundna ráðgjafaþjónustu við þá félagsmenn sem misst hafa vinnuna undanfarið. Samstarfið felur í sér að að bjóða atvinnuleitendum upp á náms- og starfsráðgjöf til að skýra stefnu í námsvali og starfsleit og tryggja þátttöku í virkniúrræðum. Á meðan atvinnuleysi varir er talið mikilvægt að efla og viðhalda starfshæfni og auka þannig möguleika á nýju starfi.

3. febrúar 2010

Mikill áhugi á Gott að vita námskeiðum

kryddjurtirSkráning á námskeið Gott að vita hefur farið vel af stað og mikill áhugi verið á flestum þeirra. Þó er enn laust á námskeið Kristínar Ólafs, Tjáning í töluðu máli, sem stendur í 6 kvöld og hefst á morgun, 4. feb. Þá eru einnig nokkur sæti laus á Skapandi skrif sem hefur verið afar vinsælt. Einnig er boðið upp á ljósmyndanámskeið á Akureyri og námskeið um kryddjurtir á Akranesi.

29. janúar 2010

SFR á Akureyri í gær

Morgvf_Akureyri_jan2010cÞórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR, og Alma Lísa Jóhannsdóttir, umboðsmaður trúnaðar-manna, hittu félagsmenn á Akureyri á morgun-verðarfundi í gær. Í framhaldinu funduðu þau með tengslaneti trúnaðarmanna. Þá var félags-mönnum boðið upp á að panta viðtal við framkv.stj. SFR og mæltist það vel fyrir.

29. janúar 2010

Gott að vita - Reykjavík - Akureyri - Akranes

Skráning er hafin á Gott að vita námskeiðin. Að þessu sinni verða námskeið haldin í Reykjavík, á Akureyri og á Akranesi. Að venju eru vinsæl námskeið endurtekin og ný í boði. Meðal nýjunga eru prjónanámskeið, ræktun kryddjurta og námskeið um göngu og fjallaferðir, svo eitthvað sé nefnt. Skráning HÉR.

28. janúar 2010

Yfirlýsing frá félagsfundi starfsmanna á Keflavíkurflugvelli

Félagsfundur starfsmanna Keflavíkurflugvallar ohf., sem eru félagsmenn í SFR stéttarfélagi, var haldinn í gær, 27. janúar 2010. Fundurinn sendir frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
Starfsmenn Keflavíkurflugvallar ohf, sem eru félagmenn í SFR stéttarfélagi, telja árangur af margra mánaða kjaraviðræðum við Keflavíkurflugvöll ohf allsendis ófullnægjandi. Augljóst er eftir síðasta samningafund SFR, FFR og Keflavíkurflugvallar ohf, að lítill samningsvilji er til staðar af hálfu vinnuveitanda. Samningar hafa dregist úr hófi og þolinmæði starfsmanna á þrotum. Starfsmenn leggja áherslu á að það dragist ekki lengur að gengið sé frá kjarasamningi SFR við Keflavíkurflugvöll ohf.

27. janúar 2010

SFR styrkir Félag heyrnarlausra

felag heyrnarlausra styrkurStjórn SFR hefur ákveðið að styrkja Félag heyrnarlausra vegna afmælishátíðar félagsins. SFR veitir félaginu styrk að upphæð 50.000.-. Félag heyrnarlausra er hagsmunafélag heyrnarlausra og heyrnarskertra á Íslandi og hefur starfað frá því árið 1960. Markmið félagsins era ð standa vörð um réttindi heyrnarlausra og tryggja að þeir njóti jafnræðis hvarvetna í samfélagin á grundvelli táknmáls. Félagið heldur upp á 50 ára afmæli sitt þann 11. feb. næstkomandi.

27. janúar 2010

Fyrirlestri Sigursteins Mássonar frestað til 4. feb.

Vegna leiks Íslands og Noregs í EM í handknattleik hefur verið ákveðið að fresta fyrirlestri Sigursteins Mássonar, formanns Geðhjálpar, um andlega sjálfsvörn sem halda átti í BSRB húsinu kl. 16 á morgun. Fyrirlesturinn verður fimmtudaginn 4. febrúar kl. 16 og er hann í boði BSRB.

27. janúar 2010

Fundað með félagsmönnum á Reykjanesi og Selfossi

Morgunvf_Self_26jan2010_6Morgunverðarfundur var haldinn með félags-mönnum á Reykjanesi 21. jan. sl. og með félagsmönnum á Suðurlandi í gær. Á fundunum var rætt um þjónustu SFR, kjaramál og hvernig félagið geti stutt við félagsmenn.

27. janúar 2010

Hagfræði skynseminnar - spennandi námskeið

Starfsmennt kynnir áhugavert og hagnýtt námskeið fyrir alla þá sem vilja skilja betur ýmis hagfræðihugtök og læra að skipuleggja fjarmál sín með skynsemi í huga. Námskeiðið er opið öllum og er hluti af námleiðinni Nýr vettvangur-breytt starf sem ætluð er þeim sem þurfa að huga að nýjum starfsvettvangi eða eru takast á við breytingar í núverandi starfi.

25. janúar 2010

Nýr stofnanasamningur

Nýr stofnanasamningur hefur verið gerður við Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstakling.  Stofnunin tók til starfa 1. janúar 2009 skv. lögum nr. 160 frá 2008. Stofnanasamningurinn gildir frá 1. janúar 2010.

21. janúar 2010

Vorbæklingur Starfsmenntar kominn út

Námsvísir Fræðslusetursins Starfsmenntar fyrir vorönn 2010 er kominn út þar sem kynnt er fjölbreytt námsframboð. Í boði eru fjölmörg þverfagleg námskeið sem efla starfshæfni á sviði tungumála, stjórnunar, samskipta og leiðtogafræða...

21. janúar 2010

Laus orlofshús um helgina

Langar þig í bústað um helgina. Enn eru óleigð hús í Munaðarnesi, Vaðnesi, á Mývatni og Arnarstapa. Nánari upplýsingar á bókunarvef.

21. janúar 2010

FRESTAÐ til 4. feb. - BSRB býður upp á opinn fyrirlestur um „Andlega sjálfsvörn“

Vegna leiks Íslands og Noregs í EM í handknattleik verður fyrirlestri Sigursteins frestað til 4. feb. kl. 16.
„Andleg sjálfsvörn" nefnist fyrirlestur sem Sigursteinn Másson formaður Geðhjálpar flytur í BSRB - húsinu nk. fimmtudag, 28. janúar kl. 16. Fyrirlesturinn er í boði BSRB og tekur um 35 mínútur. Fyrirlesturinn er hugsaður sem andsvar við tvíhyggju þ.e.a.s. aðgreiningu líkama og sálar. Fjallað er um leiðir til að vernda geðheilbrigði og varnir gegn neikvæðum hugsunum...

19. janúar 2010

Rætt um þjónustu SFR á morgunverðarfundi

morgunverdarfundir4-19jan2010Í morgun mættu félagsmenn á höfuðborgarsvæðinu á morgunverðarfund í BSRB húsið, en SFR mun standa fyrir 9 morgun- og hádegisverðarfundum með félagsmönnum á vorönn, víðsvegar á landinu. SFR hefur reglulega boðið upp á slíka fundi á síðustu misserum og eru félagsmenn boðaðir sérstaklega til þeirra hverju sinni. Góðar umræður urðu á fundinum bæði um þjónustu félagsins og um þær aðstæður sem eru á vinnumarkaði nú á krepputímum.

15. janúar 2010

SFR fundaði með félagsmönnum í Borgarnesi í gær

Tengslanet_jan2010_1_lSFR hélt fund með félagsmönnum á Vesturlandi í gær og eftir þann fund hittist tengslanet trúnaðarmanna á svæðinu. Fundað var í Borgarnesi og var sérstaklega ánægjulegt að félagsmenn frá Snæfellsnesi sáu sér fært að koma. Á fundunum sköpuðust góðar umræður. Um er að ræða morgun-/hádegisverðarfundi sem SFR býður félagsmönnum reglulega á og verða 9 slíkir haldnir á vorönn víðsvegar um landið.

12. janúar 2010

Skattabreytingar kynntar á fundi trúnaðarmannaráðs

Trmfundur_jan10_3_lÁ fundi trúnaðarmannaráðs í dag kynnti Ragnar Ingimundarson, hagfræðingur BSRB, fyrirliggjandi skattabreytingar. Einnig kynnti Katrín Ó. Ástvaldsdóttir, verkefnastjóri SFR, nýjar úthlutunarreglur Styrktar- og sjúkrasjóðs SFR.

7. janúar 2010

Styrkir hækka úr Styrktar- og sjúkrasjóði

Stjórn Styrktar- og sjúkrasjóðs SFR hefur samþykkt að hækka viðmið nokkurra styrkja. Þetta eru áhættumatsskoðun hjá Hjartavernd, dvöl hjá HNLFÍ, líkamsrækt, gleraugnakaup, tannviðgerðir, heyrnartæki og útfararstyrkur.

5. janúar 2010

Skráning á námskeið hjá Starfsmennt í fullum gangi

Smennt_haust_2007_vardanFræðslusetrið Starfsmennt býður upp á margskonar nýtt nám árið 2010 til að mæta erfiðum aðstæðum og brýnni þörf fyrir áframhaldandi uppbyggingu á starfshæfni. Um er að ræða sérhæfðar námsleiðir fyrir einstaka starfsstéttir, almennt þverfaglegt nám, fjarkennt tölvunám og námskeið fyrir þá félagsmenn BSRB sem misst hafa vinnuna. Þjónusta setursins er félagsmönnum SFR að kostnaðarlausu.


Slóðin þín:

Fréttir