Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30. september 2009

SFR hvetur félagsmenn sína til að tilkynna félaginu uppsagnir og fyrirhugaðar breytingar á kjörum

SFR vill vekja athygli á því meðal félagsmanna sinna að allar breytingar á starfshlutfalli eða kjörum starfsmanna þarf að boða með jafnlöngum fyrirvara og uppsagnarfrestur starfsmanns er, annað er brot á kjarasamningi. SFR hvetur félagsmenn sína til að hafa samband við skrifstofuna vegna uppsagna eða fyrirhugaðra breytinga á starfshlutfalli eða kjörum.

30. september 2009

Laus orlofshús um helgina

Eiðar lítilNú er tilvalið að bregða sér bæjarleið og eyða helginni í orlofshúsi og njóta haustlitanna. Orlofshús SFR að Eiðum og við Mývatn eru laus um helgina 2-4 október.  Á morgun 1. okt. verður hægt að bóka janúar mánuð innanlands og febrúar utanlands. Opnað verður fyrir bókanir í nýja orlofshús SFR á föstudag kl. 9:00. Kíkið á bókunarvefinn til að panta.

25. september 2009

Kjarasamningur SFR og SFH samþykktur

Kjarasamningur SFR og SFH – Samtaka fyrirtækja í  heilbrigðisþjónustu vegna Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði, Víðiness, Vífilsstaða, Heilsustofnunar NLFÍ, Skógarbæjar, Sunnuhlíðar, Sjálfsbjargarheimilisins, SÁÁ, og Dvalar og hjúkrunarheimilanna Grundar og Áss sem undirritaður var 9. september síðast liðinn hefur verið samþykktur.
Á kjörskrá voru 207, 133 kusu eða 64,3%. Af þeim sem kusu sögðu 108 eða 81,2% já, nei sögðu 20 eða 15% og auðir og ógildir seðlar voru 5 eða 3,8%.

24. september 2009

Orlofsvefurinn er kominn í lag

22. september 2009

Orlofskerfið liggur niðri

Af óviðráðanlegum orsökum liggur orlofskerfi SFR niðri. Unnið er hörðum höndum að viðgerð. Um leið og kerfið kemst í lag verður það tilkynnt á heimasíðu SFR.

15. september 2009

Launakönnun 2009

Launakönnun SFR lítur nú dagsins ljós þriðja árið í röð, en könnunin sem unnin er af Capacent er í samstarfi við VR. Launakönnun SFR veitir mikilvægar upplýsingar um launaþróun og starfsskilyrði starfsmanna ríkisins, til viðbótar því sem fram kemur í könnuninni Stofnun ársins. Félagsmenn eiga þess nú kost að bera laun og starfskjör sín saman á milli ára og fylgjast með launaþróun. Nú höfum við þriggja ára samanburð á þróun og dreifingu launa og könnunin gefur okkur tækifæri til að fylgjast með áhrifum efnahagssveiflna á laun og starfsskilyrði. Sjá niðurstöður.

14. september 2009

Gott að vita námskeið - skráning hefst á miðvikudag

Nú er SFR blaðið á leið til félagsmanna en þar má finna haustdagskrá Gott að vita námskeiðanna sem SFR og St.Rv. bjóða félagsmönnum sínum upp á í vetur. Námskeiðin eru félagsmönnum að kostnaðarlausu. Kynning og skráning á námskeiðunum hefst hér á vefnum miðvikudagsmorguninn kl. 9:00.

11. september 2009

Breyttur opnunartími á skrifstofu SFR

Frá og með þriðjudeginum 15. september verður skrifstofa SFR opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla mánudaga til fimmtudaga, en á föstudögum verður opið til kl. 16:00

9. september 2009

Skrifað undir kjarasamning við SFH - Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu

Nú áðan var undirritað samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi SFR og SFH .  Samkomulagið er sambærilegt því samkomulagi sem SFR gerði við ríkið og undirritað var 3. júlí sl. Samið var um hækkun lægstu launa í 3 áföngum (sjá launatöflu). Þá var einnig samið um hækkun orlofs- og persónuuppbótar og fatapeninga fyrir starfsmenn sambýla og á heilbrigðisstofnunum þar sem þess er krafist að starfsmenn noti eigin fatnað. Nú að lokinni undirskrift þá fer samningurinn í kynningu meðal félagamanna og síðan í atkvæðagreiðslu. Samninginn má nálgast hér og nýja launatöflu hér.

 

8. september 2009

Vantar kröftugan trúnaðarmann á þinn vinnustað?

Nú stendur yfir kosning trúnaðarmanna á vinnustöðum SFR. Mikilvægt er að hafa trúnaðarmenn á öllum vinnustöðum, en í dag eru trúnaðarmenn 250 talsins. Hlutverk þeirra felst meðal annars í að gæta hagsmuna félagsmanna SFR á vinnustað, miðla upplýsingum á milli félagsmanna og SFR og gæta þess að kjarasamningar séu virtir. Hlutverkið er bæði fjölbreytt og gefandi og felur í sér tækifæri til að bæta við sig þekkingu og reynslu, jafnt á persónulegum grunni sem og starfslega. Allir félagsmenn SFR geta boðið sig fram sem trúnaðarmenn. Kosning fer fram á vinnustöðum til 7. okt.

1. september 2009

Trúnaðarmannaráðsfundur ekki í beinni

Því miður er ekki hægt að senda út í Streymi fund trúnaðarmannaráðs sem nú er að hefjast. En fundurinn verður tekinn upp og verður settur á netið í fyrramálið.

1. september 2009

Trúnaðarmannaráðsfundur

Fyrsti Trúnaðarmannaráðsfundur haustsins verður haldinn í dag kl. 13:00, Grettisgötu 89. Á dagskrá fundarins er m.a. kjaramál, undirbúningur fyrir kosningu trúnaðarmanna, kosning fulltrúa á BSRB þing auk þess sem Tómas Brynjólfsson, frá efnahags- og alþjóðafjármálaskrifstofu forsætisráðuneytisins kemur og gerir grein fyrir hvar við erum stödd í endurreisn samfélagsins. Trúnaðarmenn SFR eru hvattir til að mæta.

Slóðin þín:

Fréttir