Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30. desember 2009

Fjölmenni á jólaballi

jolaball6 2009Fjölmenni var á jólaballi SFR og St.Rv. sem haldið var í gær á hótel Sögu. Þar mættu stórir og smáir spariklæddir í hátíðarskapi og dönsuðu kringum jólatré við undirleik hljómsveitar hússins. Börnin þáðu nammipoka frá jólasveinunum þeim Gluggagægi og Gáttaþef, sem eins og myndirnar sýna brugðu á leik og göldruðu fram mikla kátínu og skemmtileg svipbrigði hjá börnunum.

30. desember 2009

Samningar langt komnir

Samningar við Keflavíkurflugvöll ohf eru langt komnir að sögn Árna Stefáns, formanns SFR, en rætt var við hann í fréttum RÚV í morgun. Ekki er er einungis verið að semja um beinar launahækkanir að sögn Árna, heldur snúast samningar að þessu sinni einnig um mikilvæg réttindamál starfsmanna. Keflavíkurflugvöllur ohf er í Samtökum atvinnulífsins (SA) og koma samtökin því að samningagerðinni. SFR leggur því áherslu á að félagsmenn búi áfram að þeim réttindum sem þeir höfðu þegar þeir voru ríkisstarfsmenn. Það gengur misvel, segir Árni, en hann segir að aðallega sé tekist á um stórmál eins og lífeyrisréttindi viðkomandi starfsmanna og þeirra starfsmanna sem komi til með að ráðast til þessara fyrirtækja.

23. desember 2009

Bestu óskir um...

Rafraen_jolakv_vefur

16. desember 2009

Jólaball SFR - miðasala hafin

jolasveinn webHið árlega jólaball SFR og St.Rv. verður haldið þriðjudaginn 29. desember kl. 16 í Súlnasal Hótel Sögu. Hljómsveitin Saga Klass spilar jólalögin og jólasveinar kíkja í bæinn. Hægt er að kaupa miða á skrifstofu SFR, Grettisgötu 89. Hægt er að kaupa miða á skrifstofu SFR, Grettisgötu 89, fram til kl. 16 á Þorláksmessu og á milli jóla og nýárs. En skrifstofa SFR er opin virka daga frá kl. 9-16:30 nema föstudaga 9-16. . Miðinn kostar 600 kr., sem er sama verð og í fyrra.

15. desember 2009

Starfsmenn SFR í stefnumótunarvinnu

Kriunes

Starfsmenn SFR og formaður hafa setið á starfsdegi í Kríunesi í dag og unnið að stefnumótun skrifstofunnar næstu misseri. Dagurinn var bæði árangusríkur og ánægjulegur og skilar sér vonandi í enn betri vinnu á skrifstofunni í vetur. Skrifstofan var þó opin sem endranær, því þar hlupu í skarðið fyrrverandi starfsmenn, þær Guðlaug og Berglind sem sinntu þjónustu við félagsmenn.

11. desember 2009

Jólafundur trúnaðarmannaráðs SFR

2009-12-11_a_l.jpgJólafundur trúnaðarmannaráðs var haldinn að Grettisgötu 89 í dag. Á fundinum fjallaði Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR, um ýmis mál sem eru í vinnslu hjá félaginu og Alma Lísa Jóhanns-dóttir, umboðsmaður trúnaðarmanna, um ýmislegt sem snýr að þróun trúnaðarmanna-kerfisins.  Rithöfundarnir Vilborg Davíðsdóttir og Þórarinn Eldjárn lásu upp úr bókum sínum og Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur fjallaði um mikilvægi hvatningar á óvissutímum.

10. desember 2009

Vafasamar breytingar á rekstri Landbúnaðarháskólans

LHÍ

Í uppsiglingu eru deilur milli SFR og Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri vegna aðgerða  sem SFR telur að skólinn hafi staðið ólöglega að. Breytingarnar hafa m.a. haft í för með sér uppsagnir SFR félaga en þannig er að Landbúnaðarháskólinn hefur m.a. sinnt þeim skyldum að reka hefðbundin býli til að skapa skilyrði fyrir verklegri kennslu bústarfa við skólann. Nú hefur skólinn tekið sér það vald að færa þann búrekstur út úr hefðbundnum rekstri og stofna um hann sérstakt einkahlutafélag. Í kjölfar þessa var öllum starfsmönnum sem komu að búrekstrinum sagt upp og einungis hluti þeirra var endurráðinn og þá á allt öðrum og lakari starfskjörum.

10. desember 2009

Vonarhöfn

treVonarhöfn (Hopenhagen) er hreyfing félaga, fyrirtækja og einstaklinga sem stofnuð var í tengslum við loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í Kaupmannahöfn. Markmiðið með stofnun hennar er að tengja saman ólíka aðila og vinna gegn neikvæðum áhrifum hlýnun jarðar. Meðal þeirra sem að verkefninu koma eru ITUC, Alþjóðasamband verkalýðsfélaga, en þau hvetja launafólk um allan heim að senda leiðtogum heims áskorun um að fundurinn skili jákvæðri niðurstöðu.

8. desember 2009

SFR styrkir Rauða Kross Íslands

RKI_SFR_styrkur_l.jpgNú stendur yfir árlegur jólafundur stjórnar SFR en hann hófst með því að formaðurinn afhenti fulltrúa innanlandsdeildar Rauða kross Íslands styrkt upp á 250.000. Þannig vill stjórn félagsins leggja sitt af mörkum til að hjálpa bágstöddum innanlands fyrir jólin. Rauði krossinn hefur unnið gífurlega mikið og gott starf jafnt innanlands sem utan og það er með stolti að SFR afhendir styrkinn, fullviss að hann muni vera nýttur til góðra hluta.

8. desember 2009

Jólafundur Lífeyrisþegadeildar vel sóttur

LSFR_jol2009_3_l.jpgMikil og góð aðsókn var á árlegan jólafund Lífeyrisþegadeildar SFR sem haldinn var 7. desember síðast liðinn. Boðið var upp á glæsilegar kaffiveitingar og heitt súkkulaði og gestum til skemmtunar koma tveir rithöfundar og lesa upp úr verkum sínum.

1. desember 2009

Réttindi og skyldur - hádegisfyrirlestur

Nokkur pláss eru laus á hádegisfyrirlestur um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, föstudaginn 4. desember kl. 12-12:50. Fyrirlesari er Sigurður Friðþjófsson, upplýsingafulltrúi BSRB. Boðið verður upp á samlokur og safa, því er mikilvægt að skrá sig á hér.

1. desember 2009

SFR, St.Rv, SLFÍ og Efling fundar með trúnaðarmönnum á LSH

fundur 30 nov 2009Í gær héldu SFR-stéttarfélag, Starfsmannafélag Reykjavíkur, Sjúkraliðafélag Íslands og Efling, sameiginlegan fund með trúnaðarmönnum félaganna á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi. Í starfsumhverfi félagsmanna þessara félaga hafa orðið miklar breytingar að undanförnu og meiri breytingar eru boðaðar. Markmiðið með fundinum var að fá upplýsingar beint frá trúnaðarmönnum um hvernig ástandið væri í þeirra vinnuumhverfi og hvað þeir sæju gerast í nánustu framtíð.


Slóðin þín:

Fréttir