Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30. janúar 2009

Starfslokanámskeið BRSB

Starfslokanamskeið BSRBStarfslokanámskeið BSRB sem haldið var í byrjun vikunnar var sérlega vel sótt, alls tæplega 200 manns, og komust færri að en vildu. Ákveðið hefur verið að halda fljótlega annað námsskeið og mun það verða auglýst síðar.

30. janúar 2009

Gott að vita

Gott að vita beinSFR og St.Rv. munu nú sem fyrr bjóða sameiginlega upp á námskeið og fyrirlestra fyrir félagsmenn á höfuðborgarsvæðinu nú á vorönn 2009.
Yfirlit yfir námskeið og skráning fyrir vorönn 2009 hefst mánudaginn 2. febrúar kl. 9:00 hér á vefnum. 

27. janúar 2009

Stofnun ársins 2009 og launakönnun SFR

Vinnu við launakönnun SFR og val á Stofnun ársins hefur verið hrundið af stað. Sú vinna mun standa næstu vikurnar, enda er könnunin ein viðamesta sem gerð er á vinnuumhverfi hér á landi. Þetta er í fjórða sinn sem valið á Stofnun ársins fer fram og þriðja sinn sem launakönnun er framkvæmd meðal SFR félagsmanna.
Niðurstöðurnar munu veita stjórnendum mikilvægar upplýsingar um það hvað vel er gert og hvað má betur fara og í henni fá starfsmenn stofnana tækifæri til að tjá sig um vinnustaðinn og vinnuumhverfið. Upplýsingar úr launakönnuninni eru einnig öflugt tæki fyrir félagsmenn til viðmiðunar í launaviðtölum.

23. janúar 2009

Kjarasamningar samþykktir

atkvædagreidsla jan 2009Kjarasamningur SFR og Fríhafnarinnar ehf. hefur verið samþykktur.
Á kjörskrá voru 112.  Atkvæði greiddu 88 og þátttaka því 79%. Já sögðu 83 eða 94%.  Auðir og ógildir voru 5, eða 5,7%, enginn greiddi atkvæði á móti samningnum.

 

Þá hefur kjarasamningur SFR og Keflavíkurflugvallar ohf. fyrir hönd þeirra félagsmanna SFR sem voru í starfi hjá Flugstöð Leifs Eiríkssonar ohf. fyrir stofnun Keflavíkurflugvallar ohf.  einnig verið samþykktur.
Á kjörskrá voru 21.  Atkvæði greiddu 17 og þátttaka því 81%. Já sögðu 16 eða 94%.  Nei sögðu 1 eða 6%.

22. janúar 2009

Ný íbúð á Akureyri

Skálatún 35 BÞað hefur lengi verið í undirbúningi hjá SFR að kaupa aðra íbúð á Akureyri, slík hefur aðsóknin í orlofshús SFR í höfuðstað Norðurlands verið. Þar hafa færri komist að en viljað. Félagsmenn hafa hingað til geta leigt sér sumarhús í Kjarnabyggð og svo íbúð í Hamratúni 26. Þessar tvær hafa lengi vel verið með allra vinsælustu eignum orlofssjóðs; alltaf í notkun og alltaf biðlistar. Nú  hefur SFR ákveðið að mæta þessari ásókn og hefur keypt nýja íbúð fyrir félagsmenn. Íbúðin er að Skálatúni 35 á annari hæð.

21. janúar 2009

Uppsagnir hjá Landhelgisgæslunni dregnar til baka

Fyrirhugaðar uppsagnir hjá Landhelgisgæslu Íslands hafa verið dregnar til baka. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að unnið hafi verið að því í samstarfi við starfsmenn og stéttarfélög að endurskipuleggja störf, breyta starfshlutfalli, leita tímabundinna starfa á sérsviði starfsmanna erlendis og fleira.

21. janúar 2009

Fyrsta námskeið vorannar fyrir félagsliða verður 29. janúar

Fyrsta námskeið vorannar fyrir félagsliða: Þunglyndi, kvíðaraskanir og lausnamiðuð meðferð byrjar 29. janúar. Skráning á www.framvegis.is 

20. janúar 2009

SFR mótmælir fyrirhuguðum uppsögnum hjá Landhelgisgæslunni

Trúnaðarmannaráð SFR fundaði í dag og sendir frá sér ályktun þar sem það mótmælir harðlega niðurskurði hjá opinberum stofnunum og fyrirtækjum. Á krepputímum á að efla innviði samfélagsins, styrkja velferðar- og heilbrigðiskerfið og tryggja að fólk hafi atvinnu. Á tímum samdráttar eru  ráðstafanir sem auka á atvinnuleysi fráleitar og sýna fyrirhugaðar uppsagnir 20-30 starfsmanna hjá Landhelgisgæslu Íslands glöggt skammsýni og skilningsleysi á þeirri samfélagslegu ábyrgð sem stjórnvöld eiga að axla í erfiðu árferði.

16. janúar 2009

Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza

gazafor_903028907_litil.jpgÞjóðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza er yfirskrift mótmælafundar sem haldinn verður í Háskólabíói á sunnudag kl. 15. Að fundinum standa fjölmörg félagasamtök og eru BSRB og ASÍ meðal þeirra. Fundarstjóri er Arnar Jónsson leikari og ræður flytja Guðfríður Lilja Grétarsdóttir stjórnmálafræðingur, Jóhanna K. Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur.

15. janúar 2009

Nýir Kjarasamningar

Frihofn_kjarasamnÍ gær 14. janúar voru undirritaðir tveir kjarasamn-ingar. Annars vegar var undirritaður Kjarasamningur SFR  við Keflavíkurflugvöll ohf, fyrir hönd starfsmanna Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar sem voru í starfi við stofnun Keflavíkurflugvallar ohf, og hins vegar var undirritaður Kjarasamningur SFR og Fríhafnarinnar ehf. 

14. janúar 2009

Starfslokanámskeið sent um fjarfundarbúnað

Starfslokanámskeið BSRB sem haldið verður 26. - 28. janúar verður sent um fjarfundarbúnað til eftirtalinna staða: Ísafjarðar, Sauðárkróks, Akureyrar, Egilsstaða, Hafnar á Hornafirði og Vestmannaeyja.

13. janúar 2009

Aukin úrræði til að sporna við atvinnuleysi

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur sett reglugerð um fjölbreytt vinnumarkaðsúrræði sem atvinnuleitendur geta tekið þátt í samhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur, svo sem þátttöku í sérstökum átaksverkefnum, frumkvöðlastörfum og sjálfboðaliðastörfum.

12. janúar 2009

Trúnaðarmannafræðsla BSRB og Félagsmálaskólans að hefjast

Trúnaðarmannafræðsla BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu hefst í febrúar.  Fyrsta þrep verður kennt dagana 4. - 6. febrúar. Annað þrep verður síðan haldið 16. - 18. febrúar og þriðja þrep 16. - 18. mars. Námskeiðin eru í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og eru frá kl. 9 til 16 alla dagana.

9. janúar 2009

Jafnréttisþing 16. janúar

Jafnrétti merkiFélags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð boða til jafnréttisþings 16. janúar næstkomandi að Hótel Nordica klukkan 9 til 17. Þetta er gert í samræmi við nýsamþykkt lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þingið er öllum opið en þáttakendur verða að skrá sig fyrirfram og lýkur skráningu 13. janúar.

8. janúar 2009

Starfslokanámskeið BSRB í lok janúar

Skráning stendur yfir á starfslokanámskeið BSRB á höfuðborgarsvæðinu, en undanfarna vetur hefur BSRB staðið fyrir slíkum námskeiðum við góðan orðstír. Námskeiðið verður haldið í BSRB húsinu dagana 26. - 28. janúar. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 fyrir 23. janúar 2009. Einnig er hægt að tilkynna þátttöku í netfangið bsrb@bsrb.is

7. janúar 2009

Nýjar úthlutunarreglur starfsmenntunarsjóðs

Nýjar reglur starfsmenntunarsjóðs  tóku gildi 1. janúar 2009. Helstu breytingar eru þær að hámarksstyrkur hækkar úr 80 í 100 þúsund, þeir sem hafa verið lengur geta fengið allt að 120 þúsund króna styrk. Þá hækkar styrkur til kynnisferða erlendis úr 40 í 50 þúsund, lífsleiknistyrkur hækkar úr 15 í 20 þúsund og við bætist nýr liður sem er kynnisferðir innanlands, með styrk upp á 25 þúsund.

7. janúar 2009

Vel sótt jólaball SFR og St.Rv.

Jolaball2008_ThOforsida-(38.jpgJólaball SFR og St.Rv. sem haldið var þriðjudaginn 30. desember í Súlnasal Hótel Sögu var sérlega vel sótt að þessu sinni. Hljómsveit hússins spilaði fyrir dansi og jólasveinar komu í heimsókn.

Slóðin þín:

Fréttir