Fréttir
30. desember 2009
Fjölmenni á jólaballi
Fjölmenni var á jólaballi SFR og St.Rv. sem haldið var í gær á hótel Sögu. Þar mættu stórir og smáir spariklæddir í hátíðarskapi og dönsuðu kringum jólatré við undirleik hljómsveitar hússins. Börnin þáðu nammipoka frá jólasveinunum þeim Gluggagægi og Gáttaþef, sem eins og myndirnar sýna brugðu á leik og göldruðu fram mikla kátínu og skemmtileg svipbrigði hjá börnunum.
30. desember 2009
Samningar langt komnir
Samningar við Keflavíkurflugvöll ohf eru langt komnir að sögn Árna Stefáns, formanns SFR, en rætt var við hann í fréttum RÚV í morgun. Ekki er er einungis verið að semja um beinar launahækkanir að sögn Árna, heldur snúast samningar að þessu sinni einnig um mikilvæg réttindamál starfsmanna. Keflavíkurflugvöllur ohf er í Samtökum atvinnulífsins (SA) og koma samtökin því að samningagerðinni. SFR leggur því áherslu á að félagsmenn búi áfram að þeim réttindum sem þeir höfðu þegar þeir voru ríkisstarfsmenn. Það gengur misvel, segir Árni, en hann segir að aðallega sé tekist á um stórmál eins og lífeyrisréttindi viðkomandi starfsmanna og þeirra starfsmanna sem komi til með að ráðast til þessara fyrirtækja.
23. desember 2009
Bestu óskir um...
16. desember 2009
Jólaball SFR - miđasala hafin
Hið árlega jólaball SFR og St.Rv. verður haldið þriðjudaginn 29. desember kl. 16 í Súlnasal Hótel Sögu. Hljómsveitin Saga Klass spilar jólalögin og jólasveinar kíkja í bæinn. Hægt er að kaupa miða á skrifstofu SFR, Grettisgötu 89. Hægt er að kaupa miða á skrifstofu SFR, Grettisgötu 89, fram til kl. 16 á Þorláksmessu og á milli jóla og nýárs. En skrifstofa SFR er opin virka daga frá kl. 9-16:30 nema föstudaga 9-16. . Miðinn kostar 600 kr., sem er sama verð og í fyrra.
15. desember 2009
Starfsmenn SFR í stefnumótunarvinnu
Starfsmenn SFR og formaður hafa setið á starfsdegi í Kríunesi í dag og unnið að stefnumótun skrifstofunnar næstu misseri. Dagurinn var bæði árangusríkur og ánægjulegur og skilar sér vonandi í enn betri vinnu á skrifstofunni í vetur. Skrifstofan var þó opin sem endranær, því þar hlupu í skarðið fyrrverandi starfsmenn, þær Guðlaug og Berglind sem sinntu þjónustu við félagsmenn.
11. desember 2009
Jólafundur trúnađarmannaráđs SFR
Jólafundur trúnaðarmannaráðs var haldinn að Grettisgötu 89 í dag. Á fundinum fjallaði Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR, um ýmis mál sem eru í vinnslu hjá félaginu og Alma Lísa Jóhanns-dóttir, umboðsmaður trúnaðarmanna, um ýmislegt sem snýr að þróun trúnaðarmanna-kerfisins. Rithöfundarnir Vilborg Davíðsdóttir og Þórarinn Eldjárn lásu upp úr bókum sínum og Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur fjallaði um mikilvægi hvatningar á óvissutímum.
10. desember 2009
Vafasamar breytingar á rekstri Landbúnađarháskólans
Í uppsiglingu eru deilur milli SFR og Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri vegna aðgerða sem SFR telur að skólinn hafi staðið ólöglega að. Breytingarnar hafa m.a. haft í för með sér uppsagnir SFR félaga en þannig er að Landbúnaðarháskólinn hefur m.a. sinnt þeim skyldum að reka hefðbundin býli til að skapa skilyrði fyrir verklegri kennslu bústarfa við skólann. Nú hefur skólinn tekið sér það vald að færa þann búrekstur út úr hefðbundnum rekstri og stofna um hann sérstakt einkahlutafélag. Í kjölfar þessa var öllum starfsmönnum sem komu að búrekstrinum sagt upp og einungis hluti þeirra var endurráðinn og þá á allt öðrum og lakari starfskjörum.
10. desember 2009
Vonarhöfn
Vonarhöfn (Hopenhagen) er hreyfing félaga, fyrirtækja og einstaklinga sem stofnuð var í tengslum við loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í Kaupmannahöfn. Markmiðið með stofnun hennar er að tengja saman ólíka aðila og vinna gegn neikvæðum áhrifum hlýnun jarðar. Meðal þeirra sem að verkefninu koma eru ITUC, Alþjóðasamband verkalýðsfélaga, en þau hvetja launafólk um allan heim að senda leiðtogum heims áskorun um að fundurinn skili jákvæðri niðurstöðu.
8. desember 2009
SFR styrkir Rauđa Kross Íslands
Nú stendur yfir árlegur jólafundur stjórnar SFR en hann hófst með því að formaðurinn afhenti fulltrúa innanlandsdeildar Rauða kross Íslands styrkt upp á 250.000. Þannig vill stjórn félagsins leggja sitt af mörkum til að hjálpa bágstöddum innanlands fyrir jólin. Rauði krossinn hefur unnið gífurlega mikið og gott starf jafnt innanlands sem utan og það er með stolti að SFR afhendir styrkinn, fullviss að hann muni vera nýttur til góðra hluta.
8. desember 2009
Jólafundur Lífeyrisţegadeildar vel sóttur
Mikil og góð aðsókn var á árlegan jólafund Lífeyrisþegadeildar SFR sem haldinn var 7. desember síðast liðinn. Boðið var upp á glæsilegar kaffiveitingar og heitt súkkulaði og gestum til skemmtunar koma tveir rithöfundar og lesa upp úr verkum sínum.
1. desember 2009
Réttindi og skyldur - hádegisfyrirlestur
Nokkur pláss eru laus á hádegisfyrirlestur um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, föstudaginn 4. desember kl. 12-12:50. Fyrirlesari er Sigurður Friðþjófsson, upplýsingafulltrúi BSRB. Boðið verður upp á samlokur og safa, því er mikilvægt að skrá sig á hér.
1. desember 2009
SFR, St.Rv, SLFÍ og Efling fundar međ trúnađarmönnum á LSH
Í gær héldu SFR-stéttarfélag, Starfsmannafélag Reykjavíkur, Sjúkraliðafélag Íslands og Efling, sameiginlegan fund með trúnaðarmönnum félaganna á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi. Í starfsumhverfi félagsmanna þessara félaga hafa orðið miklar breytingar að undanförnu og meiri breytingar eru boðaðar. Markmiðið með fundinum var að fá upplýsingar beint frá trúnaðarmönnum um hvernig ástandið væri í þeirra vinnuumhverfi og hvað þeir sæju gerast í nánustu framtíð.
30. nóvember 2009
Starfsmenntaverđlaunin afhent
Síðasliðinn föstudag afhenti forseti Íslands Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs hér á Grettisgötu 89, en verðlaunin eru veitt árlega þeim sem vinna framúrskarandi starf í starfsmenntun. Starfsmennt hlaut verðlaunin í fyrra, en í ár hlaut Iðan fræðslusetur verðlaun í flokki skóla og fræðsluaðila. Stjórnvís hlaut verðlaun í flokki félagasamtaka og einstaklinga og Securitas hlaut verðlaun Í flokki fyrirtækja. Tilgangur Starfsmenntaverðlauna Starfsmenntaráðs er að styðja við nýsköpun og framþróun starfsmenntunar á Íslandi ásamt því að vekja athygli á málefninu. Verðlaunin eiga að vera verðlaunahöfum hvatning til áframhaldandi starfa og öðrum til fyrirmyndar á þessu sviði.
27. nóvember 2009
Fyrirhugađar breytingar á LSH gagnrýndar harđlega
Á fölmennum fundi Félags læknaritara sem haldinn var í húsi BSRB og SFR var framkvæmdastjórn Landspítala Háskólasjúkrahúss gagnrýnd harðlega vegna fyrirhugaðra breytinga á starfi læknaritara. Breytingarnar sem um ræðir er stofnun Ritaramiðstöðvar á vegum spítalans þar sem hluta af læknariturum er ætlað að starfa í framtíðinni.
27. nóvember 2009
BSRB mómćlir skerđingu greiđslna í fćđingarorlofi
"BSRB krefst þess að sparnaðarkrafa sem hefur verið lögð á fæðingarorlofssjóð verði endurskoðuð. Íslenska fæðingarorlofskerfið hefur vakið mikla athygli hjá öðrum þjóðum og hefur verið horft til þess sem fyrirmynd. Ef sparnaðarkröfunni verður haldið til streitu er verið að hverfa áratugi aftur í tímann og vega að þeirri jafnréttishugsun sem í kerfinu felst," segir í ályktun stjórnar BSRB um skerðingu greiðslna í fæðingarorlofi. Sjá nánar á vef BSRB.
26. nóvember 2009
Jólaföndur SFR
Menningar- og skemmtinefnd SFR stendur fyrir árlegu jólaföndri fimmtudaginn 3. des. kl . 17. Hægt verður að velja á milli þess að gera karamellukrans sem kostar 700 eða súkkulaðikrans sem kostar 1000. Súkkulaðikransinn yrði þá blár og gylltur með gylltri slaufu. Karamellukransinn má sjá hér á myndinni til hliðar. Panta þarf fyrir miðvikudaginn 2. des. gulla@sfr.is eða 525-8340
26. nóvember 2009
Samstíga til framtíđar - námskeiđ fyrir trúnađarmenn
Nú stendur yfir námskeið fyrir trúnaðarmenn SFR og fulltrúa St.Rv. Um er að ræða 3ja daga grunnnámskeið en farið er í helstu atriði kjarasamnings, lífeyrissjóðsmál og starfsemi félaganna almennt. Þá er leiðtogaþjálfun í reynsluboltunum Þórkötlu Aðalsteinsdóttur og Einars Gylfa Jónssonar.
24. nóvember 2009
Afmćlishátíđ SFR í Háskólabíói
Afmælishátíð í Háskólabíói; trúðar, leiklist, söngur og sirkus. 900 manns skemmtu sér hið besta á 70 ára afmælishátíð SFR.
24. nóvember 2009
Hátíđarfundur trúnađarmannaráđs 17. nóvember 2009.
Trúnaðarmannaráð hélt hátíðarfund sinn á afmælisdegi félagsins þann 17. nóvember síðastliðinn.
23. nóvember 2009
Jólafundur Lífeyrisţegadeildar SFR
Árlegur jólafundur Lífeyrisþegadeildar SFR verður haldinn 7. desember kl. 15:00 á Grettisgötu 89, 1. hæð. Gestum til skemmtunar lesa þau Kristín Marja Baldursdóttir og Bjarni Harðarson upp úr verkum sínum. Einnig verður glæsilegt happdrætti með glæsilegum vinningum og góður gestur, Unnur Birna Björnsdóttir, flytur tónlist. Þá verða að venju kaffiveitingar og heitt súkkulaði. Tilkynna þarf þátttöku á skrifstofu SFR í síma 525 8340 í síðasta lagi fimmtudaginn 3. desember. Miðinn á jólafundinn kostar kr. 1.000,- á mann, eins og í fyrra.
19. nóvember 2009
Allir miđar farnir út
17. nóvember 2009
Til hamingju SFR félagar!
SFR fagnar 70 ára afmæli sínu í dag, en félagið var stofnað 17. nóvember 1939. Eins og fram kemur hér á síðunni var SFR blaðið gefið út á landsvísu í dag af því tilefni, og Trúnaðarmannaráð heldur nú sérstakan afmælisfund á Grettisgötunni þar sem félagið er til húsa. Þar ávarpar Árni Páll Árnason ávarpar fundinn og spjallborð trúnaðarmanna verður formlega tekið í notkun. Á laugardag er félagsmönnum boðið til fjölskylduhátíðar í Háskólabíói eins og einnig má lesa um hér á vefnum, miða þarf að nálgast á skrifstofu félagsins fyrir 19. nóvember. Í vetur er síðan áætlað að blása til ráðstefnuraðar og fleira skemmtilegt verður gert í tilefni afmælisársins.
16. nóvember 2009
SFR blađiđ á landsvísu
Í tilefni af 70 afmæli SFR er útgáfa og dreifing SFR blaðsins með öðru sniði en vanalega. Félagsmenn og raunar landsmenn flestir munu finna SFR blaðið inn í Fréttablaðinu sínu á morgun, þriðjudaginn 17. nóvember, afmælisdaginn sjálfan. Þar sem Fréttablaðinu er ekki dreift munu félagsmen hins vegar fá blaðið sent til sín í pósti eins og venjulega. Með þessu viljum við vekja athygli á okkar góða félagi á þessum tímamótum, og við vonum að SFR félagar sem aðrir njóti blaðsins með okkur nú sem endranær.
12. nóvember 2009
Áhugaverđur hádegisfyrirlestur
Áhugaverður hádegisfyrirlestur um kreppuna og kynin verður haldinn föstudaginn 13. nóvember kl. 12-12:50 á Grettisgötu 89, 1. hæð. Bent hefur verið á að í kreppum aukist líkurnar á því að staða kvenna á vinnumarkaði veikist. Konur fari frekar inn á heimilið og sinni þar án launa störfum sem annars eru unnin innan velferðarkerfisins. Samfélagsmynstrið breytist og erfiðara verði að viðhalda þeim áfangasigrum sem náðst hafa í jafnréttisbaráttunni. Þá veikist staða og sjálfsmynd kvenna. En hvað verður þá um karlana? Hvaða áhrif hefur það á þá að vera settir í hlutverk "skaffara"? Er eitthvað jákvætt við væntanlega fylgifiska kreppunnar? Í fyrirlestrinum er farið yfir ýmsa möguleika hvað það varðar. Við óskum eftir því að fólk skrái sig því boðið er upp á samloku og safa.
Skráning hér.
2. nóvember 2009
Ný launatafla SFR frá og međ 1. nóvember
Laun félagsmanna SFR hjá ríkinu, sjálfseignastofnunum og Samtökum fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu hækkuðu nú um mánaðarmótin.
29. október 2009
Laus orlofshús í Munađarnesi
Í orlofsbyggðum félagsins í Munaðarnesi eru laus hús um helgina. Nánari upplýsingar á bókunarvef.
27. október 2009
Skáknámskeiđ fellt niđur vegna drćmrar ţátttöku
23. október 2009
Elín Björg Jónsdóttir nýr formađur BSRB
Elín Björg Jónsdóttir, formaður FOSS er nýkjörin formaður BSRB. Kosið var milli þriggja frambjóðanda og hlaut hún meirihluta atkvæða á BSRB þingi í dag eða 52,5%. Atkvæði féllu á eftirfarandi hátt. Elín Björg hlaut 132 atkvæði, eða 52,5%, Árni Stefán 82 atkvæði eða 32,5% og Arna Jakobína 38 atkvæði eða 15%.
23. október 2009
Kosning milli ţriggja
Nú stendur yfir kosning til formanns BSRB á þingi BSRB. Einn frambjóðandanna Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna dró fram framboð sitt samkvæmt tilkynningu frá kjörnefndar nú nokkrum mínútum fyrir kosningu. Því er kosið milli þriggja, Árna Stefáns Jónssonar, formanns SFR, Elínu Bjargar Jónsdóttur, formanns FOSS og Örnu Jakobínu Björndóttur, formanns Kjalar.
23. október 2009
Formannskosning á BSRB ţingi í dag
Síðasti dagur þings BSRB er í dag og lýkur því á kosningu til formanns bandalagsins. Fjórir frambjóðendur hafa boðið sig fram, en til þess að vera réttkjörinn formaður þarf stuðnings meira en helmings þingfulltrúa. Frambjóðendur eru þau Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, Arna Jakobína Björndóttir, formaður Kjalar, Árni Stefán Jónsson, formaður SFR og Elín Björg Jónsdóttir, formaður FOSS.
22. október 2009
Skrifstofa SFR lokar kl. 14 föstudag
21. október 2009
Ţing BSRB hafiđ
Þing BSRB hófst í morgun með setningaræðu Ögmundar Jónassonar fráfarandi formanns BSRB. Á þinginu sitja fulltrúar allra aðildarfélaga BSRB. Mikil stemmning var á Grand hótel í morgun enda þrír spennandi þingdagar framundan.
20. október 2009
Laus orlofshús í Munađarnesi
19. október 2009
Laust á námskeiđ í október
16. október 2009
Trúnađarmannakosning - enn hćgt ađ kjósa!
Þó formlegur frestur til að kjósa trúnaðarmann hafi verið til 7. október en ennþá hægt að framkvæma kosningu, en einhverjir vinnustaðir eiga eftir að skila inn tilkynningu.
Mikilvægt er að hafa trúnaðarmann inn á vinnustað, en hlutverk hans felst meðal annars í að gæta hagsmuna félagsmanna SFR á vinnustað, miðla upplýsingum milli félagsmanna og SFR, koma að gerð stofnanasamninga þar sem samið er um launasetningu og gæta þess að kjarasamningar séu virtir. Heimilt er að kjósa trúnaðarmann á vinnustað þar sem 5 eða fleiri félagsmenn starfa.
SFR félagar sem ekki hafa starfandi trúnaðarmann geta sent póst á alma@sfr.is eða sett sig í samband við skrifstofu SFR í síma 525-8340 til að fá leiðbeiningar um framkvæmd kosninga.
15. október 2009
Teflum saman - skáknámskeiđ
SFR býður félagsmönnum sínum að koma og tefla saman og læra skák á miðvikudagskvöldum í haust, Grettisgötu 89. Við byrjum 28. október kl. 18:00-21:00 og teflum fjögur næstu miðvikudagskvöld. Á staðnum verða skákkennarar frá Skákakademíunni sem kenna og tefla við þáttakendur. Allir félagsmenn SFR velkomnir, jafnt byrjendur sem lengra komnir. Skráning á skáknámskeiðið fer fram hér á vefnum.
14. október 2009
Prjónanámskeiđ - Lćrđu ađ prjóna lopapeysu
SFR býður félagsmönnum sínum upp á skemmtilegt prjónanámskeið á Grettisgötu 89. Námskeiðið hefst 28. október kl. 18:00-21:00 og er einu sinni í viku í fjórar vikur. Leiðbeinandi er Hulda Hákonardóttir sem kennir þátttakendur að prjóna lopapeysu, fer yfir mismunandi aðferðir við uppfitjun og frágang enda, kennir að lykkja saman undir höndum og ýmislegt fleira sem nauðsynlegt er að kunna varðandi fallegan frágang á prjónaflík. Námskeiðið er ætlað bæði byrjendum sem lengra komnum.
Við vekjum athygli á því að samhliða skáknámskeiðinu fer fram skáknámskeið á vegum SFR í húsinu og vonumst við þannig til að sjá fjölbreyttan hóp SFR félaga njóta tímans saman.
14. október 2009
Flottur fundur trúnađarmanna

Trúnaðarmannaráð SFR fundaði 13. október síðastliðinn. Á fundinum var meðal annars erindi um launakönnun SFR sem Tómas Bjarnason frá Capacent kynnti. Einnig voru Soffía Eiríksdóttir og Karen Björnsdóttir ráðgjafar VIRK hjá BSRB, með kynningu á starfi þeirra og hvernig trúnaðarmenn geta nýtt sér ráðgjafaþjónustuna í hlutverki sínum sem trúnaðarmenn. Þá var einnig rætt um komandi þing BSRB og afmæli SFR.
Fundur trúnaðarmannaráðs var afar fjölmennur að þessu sinni og fagnar félagið því hversu margir nýir trúnaðarmenn mættu og tóku þátt.
Uppöku af fundinum og glærur fyrirlesara má finna hér.
14. október 2009
Notađu tćkifćriđ og hćttu ađ reykja !
SFR og St.Rv. bjóða félagsmönnum sínum upp á fyrirlesturinn "Hættu fyrir lífið" á morgun 15. okt. kl. 16:30. Þar verður fjallað um mikilvægi þess að hætta að reykja, hvers vegna það er svona erfitt, hvað lagast við að hætta og að lokum hvað er hægt að gera vilji maður hætta. Fyrirlesturinn hentar öllum þeim sem reykja hvort sem þeir eru að hugsa um að hætta eða ekki auk þess getur hann líka verið fróðlegur fyrir þá sem ekki reykja. Aðgangur ókeypis, skráning hér.
13. október 2009
Íbúđ á Akureyri laus um helgina
Orlofshús SFR hafa verið vel nýtt það sem af er hausti en nú ber svo við að íbúðin okkar við Skálatún á Akureyri er laus um helgina, ásamt orlofshúsum á Eiðum og Mývatni. Vinsamlegast bókið hér á bókunarvefnum.
13. október 2009
Árni Stefán Jónsson býđur sig fram til formanns
Árni Stefán Jónsson formaður SFR – stéttarfélags tilkynnti nú rétt eftir hádegið á fundi Trúnaðarmannaráðs að hann bjóði sig fram til formanns BSRB en kosið verður um nýjan formann á þingi bandalagsins, sem haldið verður 21. til 23. október næstkomandi í Reykjavík. Árni Stefán er formaður SFR – stéttarfélags og 1. varaformaður BSRB.
9. október 2009
Vinnuverndarvika 19.-23. október
Vinnuverndarvika Evrópsku vinnuverndarstofnunarinnar árið 2009 verður 19.-23. október næstkomandi. Hún mun fjalla um áhættumat eins og vinnuverndarvikan seinasta ár. Í vinnuverndarátakinu verður sjónum beint að mikilvægi þess að gert sé áhættumat fyrir alla vinnustaði. Engin vinnustaður er í raun undanskilinn.
9. október 2009
Hláturjóga í hádeginu
Lyftum okkur nú aðeins upp í rokinu og rigningunni og hittumst á Grettisgötu 89 og hlæjum saman í hádeginu. Hláturjóga er sambland æfinga og jógaöndunar. Að stunda hláturjóga er því hollt fyrir líkama, huga og sál og er hin besta skemmtun um leið. Hláturjóga er aðferð sem þróuð er af indverska lækninum Dr. Madan Kataria. Í hláturklúbbi er hlegið í hópi, án tilefnis, án þess að brandarar séu sagðir eða fyndnar sögur. Hláturinn er kallaður fram með skemmtilegum leikrænum æfingum og með því að horfast í augu verður hláturinn fljótt eðlilegur. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
30. september 2009
SFR hvetur félagsmenn sína til ađ tilkynna félaginu uppsagnir og fyrirhugađar breytingar á kjörum
30. september 2009
Laus orlofshús um helgina
Nú er tilvalið að bregða sér bæjarleið og eyða helginni í orlofshúsi og njóta haustlitanna. Orlofshús SFR að Eiðum og við Mývatn eru laus um helgina 2-4 október. Á morgun 1. okt. verður hægt að bóka janúar mánuð innanlands og febrúar utanlands. Opnað verður fyrir bókanir í nýja orlofshús SFR á föstudag kl. 9:00. Kíkið á bókunarvefinn til að panta.
25. september 2009
Kjarasamningur SFR og SFH samţykktur
Kjarasamningur SFR og SFH – Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu vegna Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði, Víðiness, Vífilsstaða, Heilsustofnunar NLFÍ, Skógarbæjar, Sunnuhlíðar, Sjálfsbjargarheimilisins, SÁÁ, og Dvalar og hjúkrunarheimilanna Grundar og Áss sem undirritaður var 9. september síðast liðinn hefur verið samþykktur.
Á kjörskrá voru 207, 133 kusu eða 64,3%. Af þeim sem kusu sögðu 108 eða 81,2% já, nei sögðu 20 eða 15% og auðir og ógildir seðlar voru 5 eða 3,8%.
24. september 2009
Orlofsvefurinn er kominn í lag
22. september 2009
Orlofskerfiđ liggur niđri
15. september 2009
Launakönnun 2009
Launakönnun SFR lítur nú dagsins ljós þriðja árið í röð, en könnunin sem unnin er af Capacent er í samstarfi við VR. Launakönnun SFR veitir mikilvægar upplýsingar um launaþróun og starfsskilyrði starfsmanna ríkisins, til viðbótar því sem fram kemur í könnuninni Stofnun ársins. Félagsmenn eiga þess nú kost að bera laun og starfskjör sín saman á milli ára og fylgjast með launaþróun. Nú höfum við þriggja ára samanburð á þróun og dreifingu launa og könnunin gefur okkur tækifæri til að fylgjast með áhrifum efnahagssveiflna á laun og starfsskilyrði. Sjá niðurstöður.
14. september 2009
Gott ađ vita námskeiđ - skráning hefst á miđvikudag
Nú er SFR blaðið á leið til félagsmanna en þar má finna haustdagskrá Gott að vita námskeiðanna sem SFR og St.Rv. bjóða félagsmönnum sínum upp á í vetur. Námskeiðin eru félagsmönnum að kostnaðarlausu. Kynning og skráning á námskeiðunum hefst hér á vefnum miðvikudagsmorguninn kl. 9:00.
11. september 2009
Breyttur opnunartími á skrifstofu SFR
9. september 2009
Skrifađ undir kjarasamning viđ SFH - Samtök fyrirtćkja í heilbrigđisţjónustu
Nú áðan var undirritað samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi SFR og SFH . Samkomulagið er sambærilegt því samkomulagi sem SFR gerði við ríkið og undirritað var 3. júlí sl. Samið var um hækkun lægstu launa í 3 áföngum (sjá launatöflu). Þá var einnig samið um hækkun orlofs- og persónuuppbótar og fatapeninga fyrir starfsmenn sambýla og á heilbrigðisstofnunum þar sem þess er krafist að starfsmenn noti eigin fatnað. Nú að lokinni undirskrift þá fer samningurinn í kynningu meðal félagamanna og síðan í atkvæðagreiðslu. Samninginn má nálgast hér og nýja launatöflu hér.
8. september 2009
Vantar kröftugan trúnađarmann á ţinn vinnustađ?
Nú stendur yfir kosning trúnaðarmanna á vinnustöðum SFR. Mikilvægt er að hafa trúnaðarmenn á öllum vinnustöðum, en í dag eru trúnaðarmenn 250 talsins. Hlutverk þeirra felst meðal annars í að gæta hagsmuna félagsmanna SFR á vinnustað, miðla upplýsingum á milli félagsmanna og SFR og gæta þess að kjarasamningar séu virtir. Hlutverkið er bæði fjölbreytt og gefandi og felur í sér tækifæri til að bæta við sig þekkingu og reynslu, jafnt á persónulegum grunni sem og starfslega. Allir félagsmenn SFR geta boðið sig fram sem trúnaðarmenn. Kosning fer fram á vinnustöðum til 7. okt.
1. september 2009
Trúnađarmannaráđsfundur ekki í beinni
1. september 2009
Trúnađarmannaráđsfundur
27. ágúst 2009
Fulltrúar SFR í Finnlandi
Fulltúar úr stjórn SFR ásamt formanni og framkvæmdastjóra eru nú staddur í Jyväskylä í Finnlandi, en þar stendur nú yfir árleg tveggja daga ráðstefna NSO(Nordiska statstjänstemannarorganisationen). Umfjöllunarefni ráðstefnunnar eru tvö; Efnahagskreppan og loftslagsmál og hvaða áhrif hefur staða þessara mála á rekstur ríkisins.
27. ágúst 2009
Suđrćn stemmning í Munađarnesi
Er ekki tilvalið að fullnýta nú sumarið og skreppa úr bænum um helgina og leigja sér orlofshús. Nokkur hús eru laus m.a. í Vaðnesi, Mývatni, Brekkuskógi og í Munaðarnesi. Spáin fyrir helgina er ágæt og tilvalið að skreppa í berjamó enda berjaspretta með besta móti í ár. Í Kaffi Munaðarnesi verður suðræn stemming á laugardagskvöldið þar sem Delizie Italiane skemmta gestum auk þess sem tilvalið er að snæða góðan kvöldverð fyrir dansinn.
25. ágúst 2009
Kórstarf hefst 1. september
Nú er kórstarf BSRB að hefjast fyrir alvöru og fyrsta æfing vetrarins verður þriðjudaginn 1. september kl. 20:00 í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, 1. hæð. Æft verður einu sinni í viku í vetur, á þriðjudagskvöldum, kl. 20:00. Vonandi geta sem flestir mætt á þessa fyrstu æfingu og ekki er verra ef þið bjóðið áhugasömum með ykkur. Kórinn er ætlaður BSRB félögum, vinum og velunnurum. Kórstjóri er Svava Kristín Ingólfsdóttir.
24. ágúst 2009
Fjölbreytt námsframbođ hjá Framvegis
21. ágúst 2009
Kórstarf BSRB ađ hefjast
21. ágúst 2009
Laust orlofshús um helgina
Í Brekkuskógi er laust orlofshús frá og með deginum í dag og um helgina. Um er að ræða A-hús, 46 fm að grunnfleti auk 25 fm svefnlofts. Svefnaðstaða er fyrir 4-5 í tveimur svefnherbergjum, auk þess eru aukadýnur á svefnloftinu. Gengið er frá bókunum á Orlofsvef SFR.
20. ágúst 2009
Nýtt orlofshús í Skorradal
Á liðnu vori ákváðu stjórn SFR og stjórn Orlofssjóðs að auka fjölbreytni í orlofskerfi félagsins og kaupa orlofshús í Skorradal. Húsið var keypt tilbúið undir tréverk. Það stendur í landi Vatnsenda á afar fallegum útsýnisstað í dalnum, þar sem horft er yfir vatnið og upp til Skarðsheiðar.
19. ágúst 2009
Námskeiđ hjá Frćđslusetrinu Starfsmennt
14. ágúst 2009
Kjarasamningur samţykktur
14. ágúst 2009
Atkvćđagreiđslu lokiđ
Lokað hefur verið atkvæðagreiðslu um kjarasamning, talning stendur nú yfir og úrslit verða tilkynnt von bráðar.
12. ágúst 2009
Atkvćđagreiđsla stendur fram á hádegi föstudag
11. ágúst 2009
Kynningarfundur um kjarasamning í dag
Jafnframt eru kynningafundir í dag á Sauðárkróki, Blönduósi, Akureyri og Selfossi. Sjá nánar hér.
5. ágúst 2009
Kynningarfundir um allt land
4. ágúst 2009
Atkvćđagreiđsla um kjarasamning hefst í dag
9. júlí 2009
Kjarasamningur kynntur
Trúnaðarmenn SFR, samninganefnd og launamálaráð komu saman í gær, 8. júlí til að hlusta á fyrstu kynningu á nýgerðum kjarasamningi félagsins við Fjármálaráðherra. Þrátt fyrir að nú séu sumarleyfi í hámarki var fundurinn ágætlega sóttur. Atkvæðagreiðsla um samninginn verður dagana 4.-14. ágúst. Kynningarfundir um efni samningsins verða síðan haldnir í byrjun ágúst og verða nánar auglýsir síðar.
8. júlí 2009
Vinnureglur um helgidagafrí
Í gær 7. júlí var undirritað samkomulag við ríkið um vinnureglur um ávinnslu, töku og fyrningu helgidagafrís. Vinnureglurnar fela m.a. það í sér að taka frísins miðast við næsta almanaksár eftir ávinnsluár. Heimilt er þó að framlengja tökutímabili um 2 mánuði vegna veikinda eða sérstakra aðstæðna á stofnun. Nái starfsmaður ekki að taka fríið innan 14 mánaða skal greiða eftirstöðvar út 1. apríl ár hvert. Einnig kemur fram í samkomulaginu að helgidagafrí fyrnist ekki. Sjá samkomulagið
8. júlí 2009
SFR semur viđ Reykjavíkurborg
Í gær, 7. júlí, var undirritaður kjarasamningur milli Reykjavíkurborgar og SFR. Samningurinn er á svipuðum nótum og samningur SFR við ríkið og felur í sér hækkun lægstu launa. Laun undir 180 þúsund krónum munu hækka um 6.750 1. júlí og 1. nóvember og um 6.500 1. júní 2010. Laun upp að 210.000 krónum hækka árið 2009 en launahækkanir fara stiglækkandi eftir því sem launatalan hækkar. Árið 2010 munu laun upp að 225 þúsund krónum hækka. Laun fyrir ofan það munu ekki breytast. Samningurinn verður kynntur og sendur til félagsmanna SFR hjá Reykjavíkurborg. Atkvæðagreiðsla um samninginn mund fara fram á skrifstofu SFR þann 13. ágúst næstkomandi .
6. júlí 2009
Kjarasamningur kynntur trúnađarmönnum
Trúnaðarmenn SFR ásamt fulltrúum í samninganefnd og launamálaráði hafa verið boðaðir til sameiginlegs fundar næstkomandi miðvikudag 8. júlí, kl. 15, Grettisgötu 89. Á dagskrá fundarins er kynning á nýjum kjarasamningi félagsins við Fjármálaráðherra og eru trúnaðarmenn og fulltrúar hvattir til að mæta.
6. júlí 2009
Nýr samningur SFR
Samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi samningsaðila innan BSRB var undirritað síðastliðinn föstudag. Gildistími samningsins er frá 1. júlí 2009 til 30. nóvember 2010. Samið var um hækkun lægstu launa í 3 áföngum (sjá launatöflu). Þá var einnig samið um hækkun orlofs- og persónuuppbótar og fatapeninga fyrir starfsmenn sambýla og á heilbrigðisstofnunum þar sem þess er krafist að starfsmenn noti eigin fatnað. Ákvæðið um starfsendurhæfingarsjóð var einnig fært inni í samninginn sem grein en það fylgdi eldri samningi sem bókun.
3. júlí 2009
Skrifađ undir nýjan kjarasamning
Samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi samningsaðila innan BSRB við íslenska ríkið hefur verið undirritað. Samningsviðræður hafa staðið sleitulítið frá því í síðustu viku. Í samkomulaginu koma fram launabreytingar sem miðast við lægstu laun, eins og stöðugleikasáttmáli aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnar Íslands frá 25. júní gerir ráð fyrir. Sáttmálinn er að hluta til grunnurinn að kjarasamningnum og þau atriði sem koma fram í honum eru forsenda fyrir samningum núna.
3. júlí 2009
Samningar komnir á fullt skriđ
Samningafundir við viðsemjendur hafa staðið sleitulítið undanfarna daga. Samningsgerðin er undir forystu BSRB og formenn og samningahópar aðildarfélaganna hafa verið að störfum alla vikuna. Er bæði verið að vinna að samningagerð við ríki, borg og sveitarfélög. Kl. 13 í dag var samninganefnd SFR kölluð til verka því líkur standa til þess að samningar við ríkið verði undirritaðir í dag. Búið er að mestu leyti að ná samkomulagi um launabreytingar og verða þær í samræmi við Stöðuleikasáttmálann sem undirritaður var á milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnar Íslands þann 25. júní síðastliðinn. Þar var gert samkomulag um að verja og bæta allra lægstu laun á vinnumarkaði og mun það ganga eftir. Að öðru leyti þá er verið að vinna að samkomulagi um þætti er vinnuumhverfi og vinnuaðstæður.
3. júlí 2009
Minnum á: Ćvintýraferđir á jökul - tilbođ fyrir SFR félaga
Snowmobile á Langjökli býður SFR félögum upp á ódýrar snjósleðaferðir á jökul um helgina, 8.000 kr fyrir fullorðna, 50% afsláttur fyrir 12-16 ára og frítt fyrir yngri en 12 ára. Tilboðið gildir nú um helgina (frá fimmtudegi til sunnudags). Farið er upp frá Skálpanesi (ca 25 mín frá Gullfossi). Allur búnað og fatnað útvegar Snowmobile. Hafið samband við Gylfa í síma 618 7720 til að bóka ferðir og takið með félagsskírteinin.
2. júlí 2009
Fáar lausar vikur í orlofshúsum
Mikil ásókn hefur verið í orlofshús félagsins í sumar og er aðeins laus ein vika á Eiðum frá 24. til 31. júlí, en síðan er hvergi laust hús fyrr en seinnipart ágúst mánaðar. Ein vika er þó laus í íbúð á Akureyri í ágúst og örfáar í íbúðum félagsins í Reykjavík. Tjaldvagnar eru lausir til leigu frá 13. ágúst. Í orlofshúsnum sem SFR býður félögum sínum að leigja í Quesada á Spáni eru tvær vikur enn lausar á tímabilinu frá 15.-29. júlí (hús 385). Félagsmenn eru hvattir til að kíkja inn á orlofsvefinn ef þeir vilja nánari upplýsingar eða til að bóka. Við minnum fólk á að prenta út kvittun áður en það leggur af stað.Þá bað félagsmaður skrifstofu SFR um að koma því á framfæri fyrir sig að vegna sérstakra aðstæðna vill hann selja 2 vikur á Spáni sem hann hafði áður keypt, frá 21. júlí til 4. ágúst (hús 190). Upplýsingar um þær vikur gefur félagsmaðurinn sjálfur í addy.sim@hotmail.com
30. júní 2009
Gengiđ ađ samningaborđi
Nú stendur yfir fundur samningseininga opinberra starfsmanna en samningaviðræður eru að komast á fullan skrið. En öll aðildarfélög BSRB sem semja við ríkið eru aðilar að þessum viðræðum utan Sjúkraliðafélags Íslands. Búast má við því að áhersla verð lögð á lægstu laun og mið tekið af því sem gerist á almenna vinnumarkaðnum. Þá verður sérstaklega horft til félagslegra réttinda s.s. styttingu vinnutímans o.fl. Stefnt er að því að ljúka viðræðum sem fyrst.
25. júní 2009
Stöđugleikasáttmáli milli ađila vinnumarkađarins og ríkisstjórnar Íslands
Samtök opinberra starfsmanna, BHM, KÍ og BSRB hafa tekið þátt í samráði aðila vinnumarkaðarins um kjarasamningagerð og forsendur hennar í ljósi efnahagsþrenginga í landinu. Myndin af umfangi fjárhagsvandans er fyrst nú að skýrast og er mun dekkri en lá fyrir við upphaf vinnunnar. Samtökin hafa lagt áherslu á að verja störf og kjaraumhverfi félagsmanna. Stöðugleikasáttmáli er mikilvægur grundvöllur uppbyggingar og endurreisnar í landinu jafnframt því að mynda umgjörð fyrir vinnu við gerð kjarasamninga til ársloka 2010. Samtök opinberra starfsmanna telja nauðsynlegt að mynda enn breiðari grundvöll undir áframhaldandi vinnu með stjórnvöldum við uppbyggingu efnahags, atvinnulífs og kjara í landinu og að í þeirri vinnu verði jafnræði allra aðila tryggt.
F.h. BHM, BSRB og KÍ
Guðlaug Kristjánsdóttir, Árni Stefán Jónsson og Eiríkur Jónsson.
25. júní 2009
Stöđugleikasáttmáli undirritađur
Skrifað hefur undir stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar. Markmið sáttmálans er að stuðla að endurreisn efnahagslífsins. Opinberir starfsmenn munu nú halda áfram samningaviðræðum við ríki og sveitarfélög um nýja kjarasamninga en aðilar vinnumarkaðarins hafa náð samkomulagi um framlengingu kjarasamninga til haustsins 2010. Sjá stöðugleikasáttmálann hér
25. júní 2009
Sćttir ađ nást
22. júní 2009
Séđ fyrir endann á vinnu viđ stöđugleikasáttmála
Í gær áttu fulltrúar BSRB og aðila vinnumarkaðarins fund með ríkisstjórninni þar sem haldið var áfram með umræður um stöðugleikasáttmáli. Þessir aðilar hittust svo aftur í morgun og í kjölfar þess fundar mun stóra samninganefndin hittast strax í dag. Þá er fyrirhugaður nýr fundur með ríkisstjórninni þar sem stefnt er að því að ganga frá stöðugleikasáttmálanum. Í framhaldi af þeirri vinnu munu svo hefjast viðræður fulltrúar ríkis og sveitarfélaga við BSRB og önnur samtök opinberra starfsmanna um kjarasamninga og er stefnt að því að ljúka þeim viðræðum fyrir mánaðamót.
22. júní 2009
Trúnađarmannafrćđsla
Trúnaðarmannafræðsla BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu hefst aftur í september. Annað þrep verður haldið 14. - 16. september, þriðja þrep 21. - 23. september og fjórða þrep 28. - 30. september. Fyrsta þrep er kennt dagana 2. - 4. nóvember, en þá er trúnaðarmannakjöri lokið hjá flestum aðildarfélögum BSRB. Námskeiðin eru í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og eru frá kl. 9 til 16 alla dagana.
15. júní 2009
Jónsmessuferđ LSFR
Árleg sumarferð deildarinnar, verður farin þriðjudaginn 23. júní nk. og er mæting kl. 8:00. Lagt verður af stað stundvíslega kl. 8:30 frá Félagamiðstöðinni, Grettisgötu 89. Áætluð heimkoma er um kl. 23. Að þessi sinni er förinni heitið um Reykjanes og Suðurstrandarveg. Tilkynna þarf þátttöku á skrifstofu SFR í síma 525-8340 í síðasta lagi fimmtudaginn 18. júní. Takmarkaður sætafjöldi. Þátttökugjald er kr. 3.000 á hvern mann, sama verð og í fyrra! Tekið verður við greiðslu í rútunni, ekki er hægt að greiða með kortum.
15. júní 2009
Menningarhátíđ í Munađarnesi
10. júní 2009
Áfram er haldiđ međ ţríhliđa stöđugleikasáttmála
Viðræður um þríhliða stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisins hafa haldið áfram síðustu daga og eru málefnahópar um ríkisfjármál, efnahags- og atvinnumál nú að skila áfangaskýrslum. Á heimasíðu BSRB kemur fram að stefnt sé að því að ríkisstjórnin leggi fram bandorm um ríkisfjármálin í lok vikunnar þar sem kynntar verða aðgerðir til að ná fram 20 milljarða króna sparnaði á fjárlögum þessa árs.
8. júní 2009
Viđrćđur enn í gangi
Setið var við samningaborðið í dag og haldið áfram að ræða þríhliða sáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar. Hluti hópsins hitti ríkisstjórnina í morgun þar sem m.a. var verið að kynna stjórnarandstöðunni þá vinnu sem þegar hefur farið fram. Annar hópur á fund með félagsmálaráðráðherra seinna í dag þar sem nánar verður farið í þær hugmyndir sem félagsmálaráðuneytið hefur um væntanlegan niðurskurð í málaflokknum.
8. júní 2009
Breyttur opnunartími skrifstofu SFR
Í tilefni sumarsins er skrifstofa félagsins opin frá kl. 9:00 til 16:00, alla daga.
5. júní 2009
Viđrćđur um stöđugleikasáttmála halda áfram
Á fundi samtaka launafólks og atvinnurekenda sem fram fór í Karphúsinu í morgun var ákveðið að halda áfram viðræðum um stöðugleikasáttmálann. Að sögn Árna Stefáns formanns SFR og varaformanns BSRB er gert ráð fyrir að spýta í lófana og vinna að málinu yfir helgina. Þá verður lögð áhersla á að setjast niður með ríkisvaldinu og fá fram upplýsingar um áætlanir um tekjuöflun og niðurskurð.
Þá var einnig ákveðið að opinberir aðilar munu halda áfram að ræða við viðsemjendur sína um gerð kjarasamnings. Næsti fundur viðsemjenda verður í dag kl 13:00.
4. júní 2009
Viđrćđur um launaliđ opinberra starfsmanna halda áfram
Viðræður um þríhliða samkomulag samtaka launafólks, atvinnurekenda og ríkisins eru í óvissu eftir að Seðlabankinn tilkynnti um 1% lækkun stýrivaxta. Vinna í efnahagsnefnd samningsaðila hélt þó áfram eftir hádegi í dag og á morgun hafa verið boðaðir fundir í viðræðunefndinni sem fjallar um launalið opinberra starfsmanna. Þótt viðræður ASÍ og SA séu í uppnámi halda viðræður um launalið kjarasamninga opinberra starfsmanna áfram. Á vef BSRB er haft eftir Árna Stefáni Jónssyni, formanni SFR og varaformanni BSRB, að opinberir starfsmenn væru í talsvert annarri stöðu en ASÍ og SA. Á almenna vinnumarkaðinum snúist málið um framkvæmd kjarasamnings en opinberir starfsmenn standi frammi fyrir því að gera nýjan kjarasamning þar sem samningurinn við ríkið hafi runnið út í mars sl. og samningur við Launanefnd sveitarfélaga renni út í haust. Árni segir að sú staða sem komin er upp núna hamli því ekki að opinberir starfsmenn freisti þess að gera kjarasamning við ríki og sveitarfélög.
3. júní 2009
Ferđalangar athugiđ
Þeir sem eru að leggja af stað í sumarhús á vegum SFR eru vinsamlegast beðnir um að athuga það að upplýsingar um sumarhús gætu hafa breyst frá bókunardegi, t.d. getur hafa orðið breyting á umsjón, símanúmerum ofl. Það er því mjög góð regla að kíkja alltaf inn á vefinn áður en lagt er af stað. Þar sem breytingar uppfærast á kvittunum inn í kerfinu er gott að bóka sig inn á orlofsvefinn og fara undir liðinn „Kvittanir“, ýta á bókunarnúmer þá opnast kvittunin sem hægt er að prenta út. Vegna mistaka þá víxluðust komu- og brottfarartímar í nokkrum húsum SFR á vefnum. Þannig urðu komutímar óvart kl. 12 á hádegi en brottför kl. 16. Við biðjumst velvirðingar á þessu en komutímar eiga að sjálfsögðu að vera kl. 16 og brottför á hádegi.
3. júní 2009
Skorradalur bćtist viđ í sumar
SFR hefur nýlega fest kaup á nýju orlofshús í Skorradal. Um er að ræða 3ja svefnherbergja hús, sem er u.þ.b. 90 fm að stærð. Húsið var keypt tilbúið undir tréverk, en framkvæmdir standa nú yfir og mun húsið verða allt hið glæsilegasta með stórum gluggum og fögru útsýni. Áætluð verklok eru í byrjun júlí næstkomandi.
3. júní 2009
Launamálaráđ fundar
Eins og félagsmenn vita þá hefur vinna verið í gangi í húsakynnum sáttasemjara um kjarasamninga og kjarasamningsgerð. Þessi vinna er hluti af stærra verkefni þar sem undir liggja efnahagsmál og fjármál og rekstur ríkisins. Þessi staða er sprottin upp úr efnahagshruninu og er markmiðið að sameinast um stöðuleikasáttmál, þar sem velferðarþjónustan og grunnstoðir eru varðar. Launamálaráð SFR fundaði í gærdag um þessi mál. Þar fór Árni Stefán formaður SFR og starfandi formaður BSRB yfir stöðu mála í viðræðunum og stöðunni í þríhliða stöðugleikasáttmálanum. Miklar umræður spunnust í kjölfarið enda kalla viðfangsefnin fram sterk viðbrögð og skoðanir. Næsti fundur samningseininga innan BSRB er á föstudag þar sem áhersluþættir félaganna verða enn brýndar. Fram að því verður áfram fundað með heildarsamtökum og atvinnurekendum.
28. maí 2009
Áfram rćtt um stöđugleikasáttmála.
22. maí 2009
Stjórn BSRB ályktar
22. maí 2009
Vinnuhelgi í Vađnesi
Vaskur hópur starfsfólks og félagsmanna SFR eyddi síðustu helgi í Vaðnesi. Þar var ekki legið í leti heldur svæðið tekið í gegn, rúsli safnað í poka og borið á í glaðasólskini og hita.
20. maí 2009
Sálarstyrkjandi sýning
Trúnaðarmannaráðfundurinn síðasti var með óvenjulegu sniði, þar var boðið upp fyrirlestra og fyrirspurnir en einnig skemmtun. Sýningin Spliing - sálarstyrkjandi dagskrá með kryppu var sýnd strax í kjölfar fundarins sem haldinn var í Iðnó. Góður rómur var gerður að sýningunni og mikið hlegið. Þar var gert grín gert að mörgum af háalvarlegustu málefnum dagsins í dag.
18. maí 2009
Trúnađarmannaráđsfundur SFR í dag haldinn í Iđnó
Trúnaðarmannafundur SFR verður haldinn í dag í Iðnó við Tjörnina í Reykjavík og hefst hefst kl. 13. Trúnaðarmenn eru hvattir til að mæta enda dagskráin bæði áhugaverð og skemmtileg.
Kynntar verða niðurstöður úr könnunni um Stofnun ársins. Farið verður yfir samstarfssáttmála ríkisstjórnarinnar og spáð í hvað hann þýðir í raun fyrir okkur. Að lokum verður boðið upp á leikna dagskrá sem hefur fengið nafnið Spliing - sálarstyrkjandi dagskrá með kryppu. Þar verður fjallað, bæði af gamni og alvöru, um háalvarleg málefni samtímans. Bráðskemmtleg sýning sem fær áhorfandann til að sjá broslegu hliðarnar á þjóðfélagsástandinu, - og ekki veitir af.
17. maí 2009
Málţing um flutning ţjónustu viđ fatlađa frá ríki til sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga, samgönguráðuneytið og félags- og tryggingamálaráðuneytið standa að málþingi um flutning þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga miðvikudaginn 20. maí 2009. Fundarstaður er Hilton Hótel Nordica og fundartími er frá kl. 10:00 til kl. 15:30. Markmið málþingsins er að leiða saman faghópa, sveitarstjórnarmenn, aðra hagsmunaaðila og áhugafólk um þjónustu við fatlaða og félagsþjónustu almennt og skapa vettvang til skoðanaskipta um framkvæmd tilfærslu á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga í samræmi við viljayfirlýsingu aðila frá 13. mars. 2009.
12. maí 2009
Ný íbúđ á Akureyri
SFR býður nú félagsmönnum sínum að leigja íbúð á Akureyri til viðbótar þeim tveimur sem félagið á þar nú þegar. Íbúðin er 4ra herbergja (96 fm) endaíbúð á 2. hæð í svalablokk, í Hrísalundi. Íbúðin er afar vel staðsett, nálægt matvöruverslun, bakarí og sundlaug. Þá er leikvöllur við húsið og golfvöllur í næsta nágrenni. Íbúðin verður leigð út fram á haust, bæði í dag- og helgarleigu. Hér gildir reglan fyrstur kemur fyrstu fær. Opnað verður fyrir bókanir hér á vefnum 13. maí kl. 16:00. Þá verður bætt við nokkrum lausum vikum í sumar á orlofsvefnum, auk þess sem breytt verður í helgarleigu því sem er laust nú um helgina.
11. maí 2009
Ársfundur LSR
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) verður haldinn þriðjudaginn 19. maí á Hilton Reykjavík Nordica hóteli Suðurlandsbraut 2 og hefst kl. 15. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og launagreiðendum.
11. maí 2009
Opinn borgarafundur í kvöld
Boðað hefur verið til Opins borgarafundar í Borgartúni 3 í kvöld milli kl. 20-22. Yfirskrift fundarins er : „Skuldir heimilanna og aðgerðir.“ Frummælendur verða Marínó G. Njálsson, frá Hagsmunasamtökum heimilanna sem mun tala um hinar ýmsu aðgerðir í þágu heimilanna sem ríkistjórnin hefur boðað, og Sveinn Aðalsteinsson, sem mun fjalla um skuldir og stöðu þjóðarinnar og heimilanna. Öllum þingmönnum hefur verið boðið sérstaklega á fundinn.
8. maí 2009
Umferđarstofa og Sýslumađurinn í Vík eru Stofnanir ársins 2009
Niðurstöður úr könnuninni á Stofnun ársins 2009 voru kynntar á Nordica í dag 8. maí kl 17:00 en þetta er í fjórða sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins. Í hópi minni stofnana fékk Sýslumaðurinn í Vík hæstu einkunn, eða 4,75 í heildareinkunn af 5 mögulegum. Í öðru sæti var Biskupsstofa og í því þriðja sæti var Skattrannsóknarstjóri ríkisins. Í hópi stærri stofnana fékk Umferðarstofa hæstu einkunn, 4,56 í heildareinkunn af 5 mögulegum. Í öðru sæti var Ríkisskattstjóri og í því þriðja var Sjálfsbjargarheimilið. Hástökkvarinn í ár var Siglingastofnun Íslands, en stofnunin bætti sig um 82 sæti á milli ára. Þetta er afar góður árangur hjá Siglingastofnun og það er ánægjuleg að sjá þetta stóra stökk. SFR óskar sigurvegurum og fyrirmyndarstofnunum til hamingju með árangurinn og þakkar um leið öllum góða þátttöku í könnunni.
7. maí 2009
Stofnun ársins 2009
Niðurstöður úr könnuninni um valið á Stofnun ársins 2009 verða kynntar á Nordica hóteli föstudaginn 8. maí, kl. 17:00, en þetta er í fjórða sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins. Könnunin var gerð meðal félagsmanna SFR á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað. Ennfremur var öllum stofnunum ríkisins gefinn kostur á að allir starfsmenn stofnunarinnar óháð því í hvaða stéttarfélögum þeir væru, gætu tekið þátt og nýta margar þeirra það. Alls tóku tæplega 200 stofnanir þátt í ár og 3500 starfsmenn.
5. maí 2009
Trú Íslendinga á virkni markađarins hefur minnkađ
Svo virðist sem efnahagshrunið hafi dregið nokkuð úr trú fólks á virkni markaðarins í samfélaginu. Þetta kemur fram í könnun sem Þjóðmálastofnun Háskóla Íslands hefur gert á viðhorfum fólks til velferðarmála í kjölfar fjármálahrunsins.
Sjá nánar á www.bsrb.is/um-bsrb/frettir/nr/1509/
4. maí 2009
Orlofsuppbót 2009
SFR hefur gert samkomulag við ríkið um að orlofsuppbót 2009 verði 25.200 kr.
Orlofsuppbót er greidd í út 1. júní og er 25.200 kr. miðað við fullt ársstarf. Ef starfsmaður hefur ekki verið í 100% starfi síðasta orlofsár reiknast upphæðin út frá starfshlutfalli og starfstíma á umræddu tímabili.
4. maí 2009
Fyrsti maí í Reykjavík
1. maí hátíðarhöldin í ár voru afar fjölmenn. Gengið var niður Laugaveginn að þessu sinnni og fékk göngufólk að hlýða á örræður í bland við hefðbundinn lúðrahljóm. Meðan á göngunni stóð dreifðu SFR félagar Slönguspilinu góða til göngufólks og fengu mikla og jákvæða athygli fyrir. Að loknum ræðuhöldin á Austurvelli fjölmenntu SFR félagar og aðrir BSRB félagar í kaffi og meðlæti upp á Grettisgötu, þar sem var húsfyllir að venju. Þar var mál manna að stemmningin í göngunni hefði verið góð og mikil ánægja var með þátttökuna.
30. apríl 2009
Trúnađarmannaráđfundur í dag
29. apríl 2009
Allir á útifund 1. maí !
Langur og erfiður vetur er nú að syngja sitt síðasta. Alþjóðlegur baráttudagur launafólks þann 1. maí markar tímamót, nú er vorið og sumarið að ganga í garð með bjartari og hlýrri dögum. Nú að loknum kosningum til Alþingis skiptir verulegu máli að launamenn sýni verðandi valdhöfum að almenningur á Íslandi mun ekki sætta sig við neitt hálfkák í endurskipulagningu samfélagsins. Almenningur og launafólk sýndi samtakamátt sinn á liðnum vetri og þann 1. maí eigum við að sýna að við erum tilbúin til fjölmennra aðgerða um land allt ef þörf krefur. Mætum því öll á baráttufundina í okkar byggðalagi og tryggjum að nýir valdhafar geri sér ljóst að ekki verður gengið fram hjá almenningi í endurskipulagningu á Íslensku samfélagi.
24. apríl 2009
Kórćfing BSRB kórsins
21. apríl 2009
Morgunverđarfundur um starfendurhćfingu
Við viljum vekja athygli á morgunverðarfundi í boði Starfsendurhæfingarsjóðs þriðjudaginn 28. apríl nk. kl. 8:15 – 10:00 á Grand Hótel Reykjavík. Sérstakur gestur okkar á fundinum verður Gail Kovacs en hún er sérfræðingur á sviði starfsendurhæfingar og hefur starfað sem alþjóðlegur ráðgjafi á því sviði um áratuga skeið í Bretlandi, Kanada og Bandaríkjunum. Fundurinn er öllum opinn og hvetjum við alla áhugasama um starfsendurhæfingu til að koma og hlusta á áhugaverða fyrirlestra.
21. apríl 2009
Allt á einum stađ - upplýsingar um ókeypis frćđslu, ráđgjöf og frístundir
Sjálfboðaliðar Rauða krossins hafa í samstarfi við SÍBS og Háskóla Íslands unnið að því undanfarnar vikur að kortleggja upplýsingar um frístundir, ráðgjöf og námskeið sem kosta lítið eða ekkert. Markmiðið er að safna upplýsingum í gagnabanka á einn stað til að auðvelda fólki að nýta þau tækifæri til afþreyingar og fræðslu sem standa landsmönnum til boða.
20. apríl 2009
Vinnuferđ SFR í Munađarnes
Það var vaskur hópur sem tók til í Munaðarnesi um helgina. Margt og mikið var á verkefnalistnum; skipt var um rúm í nokkrum húsum, settir upp flatskjáir, tré söguð og rusl týnt. Hópurinn var samstilltur með eindæmum og naut útiverunnar og árangurins í hvívetna, bæði stórir og smáir.
15. apríl 2009
Minnum á spennandi hádegisfróđleik
14. apríl 2009
Söngelsk í BSRB sameinumst!
Ákveðið hefur verið að stofna kór BSRB félaga. Um verður að ræða blandaðan kór og stjórnandi verður Svava Kristín Ingólfsdóttir. Fyrsta æfing nýja kórsins verður fimmtudaginn 16. apríl kl. 20:00, Grettisgötu 89, 1. hæð.Allir félagar í aðildarfélögum BSRB eru hjartanlega velkomnir og hvattir til að mæta. Nánari upplýsingar veita Guðmundur Garðar, s. 869-8110 eða gumgar@simnet.is og Sólveig solveig@sfr.is.
14. apríl 2009
LSR og fjármálakreppan
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins boðar til fundar með sjóðfélögum, miðvikudaginn 15. apríl. Fundurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica hóteli, Suðurlandsbraut 2 og hefst hann kl. 16.30. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum.
7. apríl 2009
Velferđarmál eru líka atvinnumál
Fjölmennt var á fundi sem Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra hélt með trúnaðarmönnum verkalýðsfélaga innan heilbrigðisþjónustunnar. Til umræðu var staða mála og framtíðarhorfur. Í máli hans kom fram að aldrei hefur verið mikilvægara að standa vörð um heilbrigðisþjónustuna en nú og til þess þurfi samstöðu allra sem innan hennar vinna.
2. apríl 2009
Úthlutun lokiđ
Þeir sem ekki fengu úthlutað að þessu sinni eru enn sjálfkrafa á biðlista og af honum verður úthlutað eftir sömu reglu næstu daga.
Þær vikur sem ekki gengu út við úthlutun verða settar á Orlofsvefinn síðar í dag og þá gildir reglan fyrstur kemur fyrstu fær.
1. apríl 2009
Styrkur eldra fólks á erfiđum tímum
Ráðstefna um styrk eldra fólks á erfiðum tímum verður haldin í Salnum Kópavogi, þann 3. apríl kl. 13:00. Ráðstefnan er öllum opin.
1. apríl 2009
Yfirlýsing LSR
Mikil umræða hefur verið undanfarið í þjóðfélaginu um rekstrarkostnað og afkomu lífeyrissjóðanna. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) hefur brugðist við þessari umræðu með yfirlýsingu á heimasíðu sinni www.lsr.is.
31. mars 2009
Ađalfundur ályktar gegn skerđingu launa hjá LSH
Aðalfundur SFR haldinn þann 28. mars 2009 mótmælir harðlega þeim aðgerðum stjórnenda Landspítala Háskólasjúkrahúss, sem miðar að því að skerða laun félagsmanna og annarra starfsmanna sjúkrahússins, sem eru með heildarlaun undir 300 þúsund króna á mánuði.
28. mars 2009
Ađalfundur SFR. Rćtt um starfskjör stjórnenda og stýringu á sjóđum félagsins.
Aðalfundur SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu var haldinn í dag laugardaginn 28. mars 2009. Í skýrslu stjórnar fjallaði formaður félagsins meðal annars um þær hræringar sem hafa verið í samfélaginu og hvernig þær hafa verið hvati að umræðu um starfsemi, starfshætti og stjórnun stéttarfélaga. Eitt af því sem hefur verið ofarlega á baugi í því efni er umræða um starfskjör stjórnenda stéttarfélaga og hvernig sjóðir félaganna hafa verið starfræktir og þeim stýrt. Formaður gerði síðan ítarlega grein fyrir launakjörum stjórnar og framkvæmdastjóra, en kjör framkvæmdastjóra og formanns taka mið af kjörum félagsmanna SFR, sem eru í sambærilegum störfum hjá ríkinu.
28. mars 2009
Ađalfundur SFR ályktar
AðlfundurSFR var haldinn laugardaginn 28. mars og var fundurinn venju fremur fjölmennur. Á fundinum fóru formaður og framkvæmdastjóri yfir ársskýrslu stjórnar og ársreikninga. Kosið var í stjórn styrktar- og sjúkrasjóðs og samþykkti fundurinn að iðgjald félagsins yrði óbreytt. Kynntur var trúnaðarmaður ársins sem að þessu sinni var valinn Hafdís Björnsdóttir, trúnaðarmaður á Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Suðurlandi.
28. mars 2009
Ađalfundur SFR verđur sendur út í Streymi
Hægt verður að fylgjast með aðalfundi SFR, sem hefst kl. 13, á netinu. Leiðbeiningar má finna hér.
Trúnaðarmannaráðsfundur SFR fór fram í morgun. Mæting var afar góð og unnu trúnaðarmenn í málstofum með málefni sem snerta starfsemi félagsins. Farið var yfir málefni sjóðanna, framtíðarsýn og ályktanir, fjármál og hlutverk og stefnu stéttarfélagsins. SFR er mjög stolt af trúnaðarmannahópi sínum, sem er afar sterkur, og því mikla starfi sem fer fram í trúnaðarmannakerfi félagsins. Á aðalfundi SFR verður trúnaðarmaður ársins 2009 valinn.
26. mars 2009
Ađalfundur SFR - laugardaginn 28. mars
Aðalfundur SFR verður haldinn laugardaginn 28. mars kl. 13:00, Grettisgötu 89. Á dagskránni verða venjuleg aðalfundarstörf og boðið verður upp á kaffiveitingar. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
26. mars 2009
Nokkur sćti laus
Námskeið - Að takast á við breytingar
Flest erum við bundin í viðjum vanans og sjáum oft ekki út fyrir rammann - greinum ekki með jákvæðum hætti hvers við erum í raun megnug og hvernig við getum breytt aðstæðum okkur í hag. Á námskeiðinu lærum við að takast á við þær miklu breytingar sem nú eiga sér stað í íslensku þjóðfélagi.
26. mars 2009
Nýtt á vef
Hér á vef SFR má nú finna sérstakan tengil með upplýsingum fyrir launagreiðendur. Tengilinn er að finna undir Kaup og kjör en þar eru einnig kjarasamningar, launatöflur og fleira. Hann má einnig finna undir Flýtileiðir. Launagreiðendur leita oft eftir upplýsingum hjá skrifstofu SFR og vonum við að þessi viðbót við upplýsingar á vefnum muni auðvelda þeim vinnu við launaútreikningana í framtíðinni.
25. mars 2009
Tengslanet trúnađarmanna Landspítala
Tengslanet trúnaðarmanna á Landspítalanum fundaði þann 24. mars síðast liðinn. Á fundinum var farið yfir stöðuna á stofnuninni og hvernig sparnaður í heilbrigðiskerfinu snertir félagsmenn SFR hjá Landspítalanum. Forsvarsmenn SFR funda með yfirmönnum Landspítala næstkomandi föstudag og er samráðið við tengslanetið innan LSH afar mikilvægur þáttur í því að fá heildarsýn yfir þær sparnaðaraðgerðir sem gripið hefur verið til á spítalanum.
25. mars 2009
Engir styrkir til stjórnmálaflokka
Nokkur umræða hefur átt sér stað í samfélaginu um styrkveitingar stéttarfélaga til stjórnmálaflokka. SFR hafa borist fyrirspurnir um hvort félagið hafi stutt einstaka stjórnmálaflokka í þeirra starfi. Því vill stjórn SFR koma því á framfæri til sinna félagsmanna að SFR stéttarfélag í almannaþjónustu hefur aldrei styrkt stjórnmálaflokka og engin áform eru uppi um slíkt.
25. mars 2009
Umsóknarfrestur fyrir orlofshús
Við minnum á að umsóknarfrestur fyrir orlofshús rennur út 29. mars næstkomandi. Rafrænar umsóknir eru hér á orlofsvefnum okkar.
24. mars 2009
Fundur launamálaráđs
Fundur launamálaráðs var haldinn 23. mars síðast liðinn. Á fundinum var rætt um stöðuna í kjaramálum og um sameiginlegar viðræður aðila vinnumarkaðarins og ríkisins. Kynnt var frestun á kjarasamningsviðræðum en þeim mun verða frestað fram á sumar þar sem gert er ráð fyrir aðkomu nýrrar ríkisstjórnar að komandi kjarasamningum.
23. mars 2009
Námsstefna
Námsstefna á vegum nefndar félags- og tryggingamálaráðuneytis er vinnur að vinnumarkaðsúrræðum, verður haldin 3. apríl næstkomandi, kl. 9.00–12.00 á Hótel Sögu. Þar verður m.a. fjallað um tækifæri og úrræði fyrir einstaklinga sem hafa misst atvinnuna, ásamt breytingar á löggjöfinni og hvaða möguleikar felast í þeim. Christer Gustafsson, stofnandi og stjórnarmeðlimur Hallander-verkefnisins sem gaf góða raun í Svíþjóð í byrjun níunda áratugarins, mun flytja fyrirlestur um verkefnið. Verkefnið fólst í því að kenna atvinnulausum iðnaðarmönnum handbragð við að varðveita gömul hús.
20. mars 2009
Ađstođ viđ skattframtal
SFR býður félagsmönnum sínum upp á aðstoð við skattframtal, miðvikudaginn 25. mars, milli kl. 12:30 og 16:30 á skrifstofu SFR, Grettisgötu 89, 4.hæð. Félagsmenn eru beðnir um að panta tíma hjá skrifstofu SFR í síma 5258340, og muna eftir að taka með sér veflykilinn og önnur gögn. Þeir sem óska eftir túlki eða aðstoð vegna tungumálaörðugleika geta óskað eftir slíku.
20. mars 2009
Viđrćđum um nýjan kjarasamning frestađ
18. mars 2009
Ţátttaka verđlaunuđ međ ferđavinningum
Nú stendur yfir úrvinnsla úr könnuninni um Stofnun ársins 2009 og munu niðurstöður verða birtar 8. maí næstkomandi. Þeim hluta sem snýr að þátttakendum í könnunni er hins vegar lokið og eru starfsmenn sem svöruðu könnuninni fljótt og vel verðlaunaðir með möguleika á glæsilegum ferðavinningi.
18. mars 2009
Ísland og Evrópusambandiđ
11. mars 2009
Skýrsla Seđlabanka um áhrif fjármálakreppu á efnahag heimila kynnt
Seðlabanki Íslands birti bráðabirgðaniðurstöður starfshóps Seðlabanka Íslands um áhrif fjármálakreppu á efnahag heimilanna. Greining starfshópsins byggir á gagnagrunni með fjárhagslegum upplýsingum um heimili sem Seðlabankinn hefur aflað í samstarfi við fjármálafyrirtæki á grundvelli leyfis Persónuverndar.
11. mars 2009
Áhugavert námskeiđ - nokkur sćti laus
Vekjum athygli á því að það eru nokkur sæti laus á námskeið um fjármál fjölskyldunnar sem Garðar Björgvinsson fjármálaráðgjafi verður með fimm eftirmiðdaga. Námskeiðið hefst 17. mars og hægt er að skrá sig hér.
10. mars 2009
Orlofsblađ SFR komiđ út
Orlofsblað SFR er komið út og sneisafullt af efni að venju. Þar má finna allar upplýsingar um orlofsmöguleika félagsmanna fyrir sumarið, en opnað verður fyrir umsóknir og bókanir á orlofsvef SFR, fimmtudaginn 12. mars kl. 9:00.
8. mars 2009
Međ jafnrétti ađ leiđarljósi - uppbygging í allra ţágu
Fundur um jafnréttismál verður haldinn á Grand Hótel í Reykjavík mánudaginn 9. mars kl. 11.45 - 13.00. Fundurinn er haldinn í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna 8. mars. Að fundinum standa ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, SSF, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa.
5. mars 2009
Menntatorg fyrir atvinnulausa
Föstudaginn 6. mars verður opið hús í Skeifunni 8 frá kl. 14-18 en þar munu ýmsir fræðsluaðilar kynna nám og ýmis úrræði fyrir atvinnulausa einstaklinga. Þessi viðburður, sem hefur fengið nafnið Menntatorg, fer nú fram í fyrsta skipti en breyttar aðstæður í íslensku efnahagslífi hafa orðið til þess að atvinnuleysi hefur aukist gríðarlega á síðustu mánuðum. Atvinnuleysi hefur aukist einna mest hjá þeim sem hafa stutta skólagöngu og á Menntatorginu munu fjölmargir fræðsluaðilar kynna hversu fjölbreytt úrræði standa þessum hópi til boða. Boðið verður upp fjölbreytta dagskrá eins og t.d. örnámskeið, kynningar á námi, ráðgjöf og margvíslega þjónustu við atvinnuleitendur.
5. mars 2009
Orlofsblađiđ eftir helgi
Orlofsblað SFR kemur út eftir helgina. Þar má að venju finna ítarlega úttekt á orlofsmöguleikum sumarsins. Umsóknarfrestur um orlofshúsin er til og með 29. mars og úthlutun verður lokið 1. apríl. Opnað verður fyrir umsóknir á netinu fimmtudaginn 12. mars kl. 9:00.
Allar umsóknir um orlofshús eru unnar með rafrænum hætti og félagsmenn sækja því um á vef SFR, nema lífeyrisþegar sem eiga sérskilgreindan rétt. Þeirra eintökum af blaðinu fylgir umsókn.
5. mars 2009
Breytt samfélag – aukinn jöfnuđ!
Dagskrá í tilefni Alþjóðlegs baráttudags kvenna í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur, sunnudaginn 8. mars 2009 kl.14
4. mars 2009
Fulltrúaráđfundur NOFS
Árlegur fulltrúaráðsfundur NOFS (Nordens Offentliganställdas Fackliga Samorganisation) var haldinn í BSRB húsinu í dag. Á fundinum flutti Kristian Weise hagfræðingur LO í Danmörku erindi um afleiðingar heimskreppunnar og Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra um áhrif hennar hér á landi. Fundinn sátu á fjórða tug manna frá öllum Norðurlöndunum. NOFS eru samtök stéttarfélaga opinberra starfsmanna á Norðurlöndum. Sjá nánar á heimasíðu BSRB.
3. mars 2009
Hádegisfróđleikur um jafnréttismál
Enn eru laus pláss á hádegisfróðleik um jafnréttismál, 13. mars næstkomandi, á Grettisgötu 89. En þar mun Gyða Margrét Pétursdóttir doktorsnemi kynna umfangsmikla rannsókn á vinnumenningu, kynjatengslum og fjölskylduábyrgð sem hún vinnur nú að. Í rannsókninni beinir hún m.a. sjónum að fjölskyldu- og jafnréttisstefnu fyrirtækja í ljósi breytinga á vinnumarkaði, auk þess sem hún skoðar eru þau öfl sem áhrif hafa á úrræði til samræmingar fjölskylduábyrgðar og atvinnulífs. Hægt er að skrá sig hér, og munið, að fyrstir fá sem fyrstir skrá.
2. mars 2009
Fundur trúnađarmannaráđs SFR
Trúnaðarmannaráð SFR fundaði 26. febrúar síðastliðinn. Á fundinn kom meðal annars fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon og fór yfir stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahags- og kjaramálunum. Trúnaðarmenn fengu tækifæri til að spyrja ráðherran spurninga og voru umræðurnar mjög góðar.
23. febrúar 2009
Framlengdur skilafrestur - Stofnun ársins & launin ţín
23. febrúar 2009
Tvö spennandi námskeiđ í vikunni
Í vikunni er boðið upp á tvö Gott að vita námskeið, Hagfræði á mannamáli þann 25. feb. og Að eiga við reiði, sorg og pirring viðskiptavina þann 26. feb.
19. febrúar 2009
Seinkun á páskaúthlutun af tćknilegum orsökum
Því miður kom upp örlítil bilun í úthlutunarkerfinu okkar og því getum við ekki lokið við að úthluta í kvöld eins og til stóð. Viðgerð stendur yfir og svör ættu að berast ekki seinna en eftir lokun á morgun, föstudaginn 20. feb.
18. febrúar 2009
Páskaúthlutun
Páskaúthlutun sem fer fram á morgun verður með þeim hætti að þeir sem sóttu um á netinu fá svar í tölvupósti EFTIR lokum skrifstofunnar á morgun, 19. feb. Aðrar umsóknir verða afgreiddar með sama hætti.
17. febrúar 2009
Galvaskur stafgönguhópur
Það voru hraustir félagsmenn í SFR og St.Rv. sem skálmuðu um Laugardalinn í síðdegisrökkrinu í gær. Þarna var á ferð Stafgönguhópurinn og Halldór leiðbeinandi sem hittast reglulega á mánudögum milli kl 18 og 19 til að ganga um Laugardalinn. Í gær fengu þau örlitla hressingu áður en lagt var í hann og létu ekki rigningarúðann á sig fá meðan þau gæddu sér á heitu kakói í boði félaganna.
Lagt er að stað frá anddyri Skautahallarinnar alla mánudaga stundvíslega kl. 18:00 og eru allir velkomnir með.
13. febrúar 2009
Stafganga
Stafgönguhópi SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar er boðið upp á kakó og leiðsögn frá stafgönguleiðbeinandanum Halldóri í Laugardalnum mánudaginn 16. febrúar nk. milli kl. 18-19. Allir sem hafa tekið þátt í stafgöngunámskeiðunum síðastliðin ár er hvattir til þess að mæta klukkan 18 við skautahöllina í Laugardalnum.
12. febrúar 2009
VIRK - Starfsendurhćfingarsjóđur
Á heimasíðu Starfsendurhæfingarsjóðs má finna margvíslegar upplýsingar bæði fyrir launþega og launagreiðendur.
10. febrúar 2009
Hressandi hláturjóga í hádeginu
Enn eru nokkur pláss laus í Hláturjóga sem efnt er til í BSRB húsinu, Grettisgötu 89 í hádeginu föstudaginn 13. febrúar. Skráning er hér á vefnum.
9. febrúar 2009
Trúnađarmannanám BSRB og Félagsmálaskóla alţýđu
Í síðustu viku lauk fyrsta þrepi trúnaðarmannafræðslu BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu sem haldið var í BSRB húsinu, Grettisgötu 89. Námskeiðið var ágætlega sótt og átti SFR þar 4 fulltrúa. Í næstu viku hefst síðan kennsla á þrepi tvö og um miðjan mars verður boðið upp á þriðja þrep trúnarmannafræðslunnar. SFR hvetur áhugasama trúnaðarmenn til að skrá sig sem fyrst. Nánari upplýsingar má finna hér.
5. febrúar 2009
Átak gegn einelti
Svæðisskrifstofur málefna fatlaðra í Reykjavík og á Reykjanesi hafa sett af stað átak gegn einelti á starfsstöðum sínum. Að því tilefni var efnt til kynningarfundar þar sem meðal annarra voru boðaðir fulltrúar SFR, Sjúkraliðafélagsins, Félags þroskaþjálfa, fulltrúi Félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Vinnueftirlitsins.
30. janúar 2009
Starfslokanámskeiđ BRSB
Starfslokanámskeið BSRB sem haldið var í byrjun vikunnar var sérlega vel sótt, alls tæplega 200 manns, og komust færri að en vildu. Ákveðið hefur verið að halda fljótlega annað námsskeið og mun það verða auglýst síðar.
30. janúar 2009
Gott ađ vita
SFR og St.Rv. munu nú sem fyrr bjóða sameiginlega upp á námskeið og fyrirlestra fyrir félagsmenn á höfuðborgarsvæðinu nú á vorönn 2009.
Yfirlit yfir námskeið og skráning fyrir vorönn 2009 hefst mánudaginn 2. febrúar kl. 9:00 hér á vefnum.
27. janúar 2009
Stofnun ársins 2009 og launakönnun SFR
Niðurstöðurnar munu veita stjórnendum mikilvægar upplýsingar um það hvað vel er gert og hvað má betur fara og í henni fá starfsmenn stofnana tækifæri til að tjá sig um vinnustaðinn og vinnuumhverfið. Upplýsingar úr launakönnuninni eru einnig öflugt tæki fyrir félagsmenn til viðmiðunar í launaviðtölum.
23. janúar 2009
Kjarasamningar samţykktir
Kjarasamningur SFR og Fríhafnarinnar ehf. hefur verið samþykktur.
Á kjörskrá voru 112. Atkvæði greiddu 88 og þátttaka því 79%. Já sögðu 83 eða 94%. Auðir og ógildir voru 5, eða 5,7%, enginn greiddi atkvæði á móti samningnum.
Þá hefur kjarasamningur SFR og Keflavíkurflugvallar ohf. fyrir hönd þeirra félagsmanna SFR sem voru í starfi hjá Flugstöð Leifs Eiríkssonar ohf. fyrir stofnun Keflavíkurflugvallar ohf. einnig verið samþykktur.
Á kjörskrá voru 21. Atkvæði greiddu 17 og þátttaka því 81%. Já sögðu 16 eða 94%. Nei sögðu 1 eða 6%.
22. janúar 2009
Ný íbúđ á Akureyri
Það hefur lengi verið í undirbúningi hjá SFR að kaupa aðra íbúð á Akureyri, slík hefur aðsóknin í orlofshús SFR í höfuðstað Norðurlands verið. Þar hafa færri komist að en viljað. Félagsmenn hafa hingað til geta leigt sér sumarhús í Kjarnabyggð og svo íbúð í Hamratúni 26. Þessar tvær hafa lengi vel verið með allra vinsælustu eignum orlofssjóðs; alltaf í notkun og alltaf biðlistar. Nú hefur SFR ákveðið að mæta þessari ásókn og hefur keypt nýja íbúð fyrir félagsmenn. Íbúðin er að Skálatúni 35 á annari hæð.
21. janúar 2009
Uppsagnir hjá Landhelgisgćslunni dregnar til baka
Fyrirhugaðar uppsagnir hjá Landhelgisgæslu Íslands hafa verið dregnar til baka. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að unnið hafi verið að því í samstarfi við starfsmenn og stéttarfélög að endurskipuleggja störf, breyta starfshlutfalli, leita tímabundinna starfa á sérsviði starfsmanna erlendis og fleira.
21. janúar 2009
Fyrsta námskeiđ vorannar fyrir félagsliđa verđur 29. janúar
Fyrsta námskeið vorannar fyrir félagsliða: Þunglyndi, kvíðaraskanir og lausnamiðuð meðferð byrjar 29. janúar. Skráning á www.framvegis.is
20. janúar 2009
SFR mótmćlir fyrirhuguđum uppsögnum hjá Landhelgisgćslunni
16. janúar 2009
Ţjóđarsamstađa gegn fjöldamorđunum á Gaza
Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza er yfirskrift mótmælafundar sem haldinn verður í Háskólabíói á sunnudag kl. 15. Að fundinum standa fjölmörg félagasamtök og eru BSRB og ASÍ meðal þeirra. Fundarstjóri er Arnar Jónsson leikari og ræður flytja Guðfríður Lilja Grétarsdóttir stjórnmálafræðingur, Jóhanna K. Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur.
15. janúar 2009
Nýir Kjarasamningar
Í gær 14. janúar voru undirritaðir tveir kjarasamn-ingar. Annars vegar var undirritaður Kjarasamningur SFR við Keflavíkurflugvöll ohf, fyrir hönd starfsmanna Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar sem voru í starfi við stofnun Keflavíkurflugvallar ohf, og hins vegar var undirritaður Kjarasamningur SFR og Fríhafnarinnar ehf.
14. janúar 2009
Starfslokanámskeiđ sent um fjarfundarbúnađ
Starfslokanámskeið BSRB sem haldið verður 26. - 28. janúar verður sent um fjarfundarbúnað til eftirtalinna staða: Ísafjarðar, Sauðárkróks, Akureyrar, Egilsstaða, Hafnar á Hornafirði og Vestmannaeyja.
13. janúar 2009
Aukin úrrćđi til ađ sporna viđ atvinnuleysi
Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur sett reglugerð um fjölbreytt vinnumarkaðsúrræði sem atvinnuleitendur geta tekið þátt í samhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur, svo sem þátttöku í sérstökum átaksverkefnum, frumkvöðlastörfum og sjálfboðaliðastörfum.
12. janúar 2009
Trúnađarmannafrćđsla BSRB og Félagsmálaskólans ađ hefjast
Trúnaðarmannafræðsla BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu hefst í febrúar. Fyrsta þrep verður kennt dagana 4. - 6. febrúar. Annað þrep verður síðan haldið 16. - 18. febrúar og þriðja þrep 16. - 18. mars. Námskeiðin eru í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og eru frá kl. 9 til 16 alla dagana.
9. janúar 2009
Jafnréttisţing 16. janúar
Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð boða til jafnréttisþings 16. janúar næstkomandi að Hótel Nordica klukkan 9 til 17. Þetta er gert í samræmi við nýsamþykkt lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þingið er öllum opið en þáttakendur verða að skrá sig fyrirfram og lýkur skráningu 13. janúar.
8. janúar 2009
Starfslokanámskeiđ BSRB í lok janúar
Skráning stendur yfir á starfslokanámskeið BSRB á höfuðborgarsvæðinu, en undanfarna vetur hefur BSRB staðið fyrir slíkum námskeiðum við góðan orðstír. Námskeiðið verður haldið í BSRB húsinu dagana 26. - 28. janúar. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 fyrir 23. janúar 2009. Einnig er hægt að tilkynna þátttöku í netfangið bsrb@bsrb.is
7. janúar 2009
Nýjar úthlutunarreglur starfsmenntunarsjóđs
Nýjar reglur starfsmenntunarsjóðs tóku gildi 1. janúar 2009. Helstu breytingar eru þær að hámarksstyrkur hækkar úr 80 í 100 þúsund, þeir sem hafa verið lengur geta fengið allt að 120 þúsund króna styrk. Þá hækkar styrkur til kynnisferða erlendis úr 40 í 50 þúsund, lífsleiknistyrkur hækkar úr 15 í 20 þúsund og við bætist nýr liður sem er kynnisferðir innanlands, með styrk upp á 25 þúsund.
7. janúar 2009
Vel sótt jólaball SFR og St.Rv.
Jólaball SFR og St.Rv. sem haldið var þriðjudaginn 30. desember í Súlnasal Hótel Sögu var sérlega vel sótt að þessu sinni. Hljómsveit hússins spilaði fyrir dansi og jólasveinar komu í heimsókn.

