Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

30. september 2008

Frjóar umrćđur á morgunverđarfundi

Morgunvf_Rvk_2309_lSíðast liðinn þriðjudag áttu Árni St. Jónsson, formaður SFR, Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri , félagsins, stjórnarmenn og starfsfólk skrifstofu SFR mjög góðan morgunverðarfund með félagsmönnum. Farið var yfir þjónustu og starfsemi SFR, og hugmyndir að nýjungum. Markmið með þessum fundum er að auka tengsl milli stjórnar SFR og félagsmanna, ásamt því að stuðla að meiri samheldni og virkni innan félagsins. Á fundinum sköpuðust góðar umræður.

26. september 2008

SFR og Matís skrifa undir nýjan kjarasamning

SFR og Matís hafa skrifað undir nýjan kjarasamning. Matís varð að opinberu hlutafélagi 1. janúar 2007 með sérstökum lögum og heyrði fyrirtækið því ekki lengur undir þau lög sem opinberar stofnanir og starfsmenn þeirra heyra undir. Matís er aðili að Samtökum atvinnulífsins og því var nauðsynlegt að gera nýjan kjarasamning við fyrirtækið í þessu breytta umhverfi. Samningurinn gildir frá 1. maí 2008 til 31. desember 2010 með endurskoðunarákvæði sambærilegum þeim sem samnið var um á almennum markaði í byrjun árs.

19. september 2008

Vika símenntunar 22. - 28. september

Vika símenntunar verður 22.-28. september 2008. Markmið viku símenntunar er að auka símenntun í atvinnulífinu og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi. Í viku símenntunar 2008 er lögð áhersla á fræðslu í fyrirtækjum og sem fyrr að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun.

18. september 2008

Málţing um eldri starfsmenn

50+litil.jpgGeta eldri starfsmenn verið lykillinn að velgengni fyrirtækja? Þessi spurning verður rædd og reifuð á málþingi á vegum Verkefnisstjórnar 50+ sem haldið verður í Ketilshúsi á Akureyri fimmtudaginn 25. september milli klukkan 13 og 16.

16. september 2008

SFR blađiđ, 6. tbl.

SFRblad_forsida.jpgÍ 6. tbl. SFR blaðsins á þessu ári er fjallað um niðurstöður úr nýrri launakönnun SFR. Dagskrá Gott að vita námskeiðanna er kynnt og minnt á fjölbreytt námsframboð hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt en hvoru tveggja er án endurgjalds fyrir SFR félaga. Ný launatafla SFR og ríkisins er birt og fjallað um hvaða kjarasamningum er lokið og hvað er framundan í þeim málum. Þá er sagt frá því að ritnefnd SFR stendur fyrir smásagnasamkeppni og að BSRB stendur fyrir starfslokanámskeiði.

12. september 2008

Ekki bara launamunur kynja

Trmfundur_2008_0912_Alma.jpg- einnig 20% launamunur milli starfsmanna ríkisins og starfsmanna á almennum markaði

Á fundi trúnaðarmanna, sem haldinn var í dag, voru niðurstöður úr nýrri launakönnun SFR kynntar. Einnig var kynntur samanburður milli SFR og VR félaga. Þegar félagsmenn þessara stéttarfélaga eru skoðaðir þá kemur fram að starfsmenn ríkisins eru að meðaltali með 20% lægri laun en starfsmenn almenna markaðarins þegar sambærilegar stéttir eru skoðaðar. Trúnaðarmannaráð SFR gerir þá sjálfssögðu kröfu, að launamunur milli starfsmanna ríkisins og starfsmanna á almennum markaði verði leiðréttur. Nálgast má glærur af kynningunni HÉR.

11. september 2008

Launamunur kynjanna eykst um 3% milli ára!

Launakonnun_mynd_08_litil.jpgSFR birtir í annað sinn launakönnun félagsins meðal félagsmanna SFR. Launakönnunin miðaðist við 1. febrúar 2008. Launakönnunin gefur ítarlegar upplýsingar um kaup og kjör ríkisstarfsmanna og mögulegt er nú  í fyrsta sinn að gera samanburð á milli ára á launaþróun félagsmanna SFR. Niðurstaða könnunarinnar er sláandi þegar kemur að launamuni kynjanna sem eykst um 3% milli ára. Grunnlaun félagsmanna SFR hafa hækkað um 14% og heildarlaun hafa hækkað um 11% á milli áranna 2007 og 2008.  Á sama tíma hefur launavísitala Hagstofunnar fyrir opinbera starfsmenn hækkað um 6,1%.  Hækkunin hjá félagsmönnum SFR er því töluvert meiri en almennt hjá opinberum starfsmönnum á tímabilinu.

10. september 2008

Jól og áramót í orlofshúsum

Þeir félagsmenn sem hug hafa á að dvelja í orlofshúsum SFR yfir jól og áramót þurfa að huga að bókun orloshúsa fljótlega, en búið er að opna fyrir bókanir fram yfir áramót.

9. september 2008

Helmingur félagsmanna fór í launa-/starfsmannaviđtöl

- niðurstöður úr launakönnun SFR 2008 verða birtar 11. september

SFR-forsida_04_f.-vef.jpgRúmur helmingur félagsmanna eða 50,7% fór í starfsmannasamtal og/eða launaviðtal á síðasta ári og er það um 7% aukning frá árinu þar á undan, sem er mjög ánægjulegt. Þriðjungur þeirra sem fóru í starfsmanna- og/eða launviðtal sögðu að kjör sín og/eða starf hefði breyst til hins betra í kjölfarið og einungis tæp 20% undirbjuggu sig fyrir viðtalið með því að skoða launakannanir og nota upplýsingar úr þeim.

9. september 2008

Orlosfhús ađ vetri til

Nokkuð hefur borið á því að félagsmenn sem eru að bóka orlofshús núna í haust hringja vegna þess að húsin séu uppbókuð fram að áramótum. Best er að velja Skoða allar eignir til að fá yfirsýn yfir hvar er laust. Þar sem hluti húsanna dettur út yfir vetrartímann þá eru þau hús með rauðri línu fram að áramótum.

4. september 2008

Fréttabréf trúnađarmanna fariđ í póst

Fréttabréf trúnaðarmanna fór í póst í gær en þar er kynnt dagskrá fundar þann 12. september, ásamt þeirri fræðslu sem trúnaðarmönnum býðst nú á haustönn.

4. september 2008

Heilbrigđisţjónustan - á vegferđ til einkavćđingar

AllysonPollockBSRB hefur gefið út erindi sem Allyson Pollock, prófessor við háskólann í Edinborg, hélt á vegum bandalagsins sl. vor. Yfirskrift erindisins er Heilbrigðisþjónustan - á vegferð til einkavæðingar. Bæklingurinn er mikilvægt innlegg í umræðuna um frumvarp ríkisstjórnarinnar um sjúkratryggingar sem er til umræðu nú á haustþingi.

3. september 2008

Morgunverđarfundir međ félagsmönnum

2006_09_28_Morgunverdarfundur_litilÍ haust verða haldnir morgunverðarfundir / hádegisverðarfundir með félagsmönnum SFR. Hugmyndin á bak við fundina er að auka tengsl milli stjórnar SFR og félagsmanna, ásamt því að stuðla að meiri samheldni og virkni innan félagsins. Rætt er um núverandi þjónustu og starfsemi SFR, þjónustu sem SFR býður upp á en er ekki mikið notuð og hugmyndir að nýjungum. Áhugasamir geta skráð sig á fundina ...


Slóđin ţín:

Fréttir