Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

23. desember 2008

Átt ţú von á barni?

- Eingreiðsla til félagsmanna vegna fæðingar barns
Sú breyting verður nú um áramótin að Styrktar- og sjúkrasjóður SFR greiðir út styrk til félagsmanna sinna vegna fæðingar barns sem Fjölskyldu- og styrktarsjóður BSRB hefur séð um fram til þessa. Um er að ræða fæðingarstyrki til foreldra og eru styrkirnir jafnháir til karla og kvenna en hliðsjón höfð af starfshlutfalli.

19. desember 2008

Afnemum forréttindiin

Afnemum_forrettindi_litil.jpgAlþýðusamband Íslands og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja lýsa yfir algerri andstöðu við þær tillögur sem forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa sett fram um breytingar á eftirlaunum ráðamanna. Eftirlaunafrumvarpið olli miklu ósætti og djúpstæðri reiði meðal íslensku þjóðarinnar þegar það var sett fram árið 2003. ASÍ og BSRB krefjast þess að Alþingi afnemi þegar forréttindi ráðherra, alþingismanna og æðstu embættismanna í lífeyrismálum og að sett verði lög um að þau verði þau sömu og hjá öðrum opinberum starfsmönnum.

17. desember 2008

Jólablađ SFR blađsins er á leiđinni ásamt vinnutímabók

SFRblad8tbl_forsida_lit.jpgJólablað SFR blaðsins er í pökkun þessa stundina þar sem vinnutímabók fylgir með að venju, en blaðið verður sent út jafnóðum og það er tilbúið og ætti að berast í þessari viku. Í blaðinu fjallar Árni St. Jónsson, formaður SFR, um kjarabaráttuna framundan og samstarf aðila vinnu-markaðarins. Einnig er grein eftir Einar Árnason um skattamál og Þorbjörn Broddason skrifar um stöðu fjölmiðla. Þá er bóka- og hljómdiskaumfjöllun og sagt frá úrslitum í smásögusamkeppninni svo eitthvað sé nefnt.

16. desember 2008

Sagan Í rökkrinu sigrađi í smásögusamkeppni SFR

Smasogusamkeppni_litil.jpgSFR stóð fyrir smásögusamkeppni meðal félags-manna nú á haustdögum sem auglýst var í SFR blaðinu. Alls bárust 18 sögur í samkeppnina en það var samdóma álit dómnefndar að 1. sætið hlyti sagan Í rökkrinu, sem Þorgerður Mattía Kristiansen, starfsmaður Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra í Reykjavík, skrifaði. Þá ákvað dómnefndin að sagan Þessar hendur, eftir Kristínu R. Gunnarsdóttur, starfsmann Fangelsismálastofnunar, skyldi hljóta 2. sætið.

16. desember 2008

Launamálaráđ SFR fundađi um samráđ verkalýđshreyfingarinnar

Launamalarad_des08_l.jpgLaunamálaráð hittist 10. desember sl. til að fara yfir stöðu mála varðandi kjarasamninga. Árni St. Jónsson, formaður SFR, fór yfir helstu forsendur þess að nú er kallað eftir samráði verkalýðs-hreyfingarinnar um þjóðarsátt. Margir tóku til máls þegar að umræðum kom.

12. desember 2008

Atvinnuleysistryggingasjóđur tćmist nćsta haust

BSRB_atvleysi_litil.jpgAtvinnuleysistryggingasjóður tæmist í október á næsta ári gangi spár Vinnumálastofnunar eftir. Þetta kom fram í erindi Gissurar Péturssonar forstjóra Vinnumálastofnunar á opnum fundi sem BSRB hélt í gær. Auk Gissurar flutti Gylfi Dalmann dósent við Háskóla Íslands erindi um íslenska vinnumarkaðinn.

10. desember 2008

Vinnumarkađurinn og atvinnuhorfur framundan

Opinn fundur verður á vegum BSRB á morgun, 11. desember, kl. 16:30 - 18:00 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Yfirskrift fundarins er „Vinnumarkaðurinn og atvinnuhorfur framundan." Framsögur hafa Gylfi Dalmann dósent við Háskóla Íslands og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar.

8. desember 2008

Jafnrétti í kreppu og kjarasamningar á fundi trúnađarmanna

Trmfundur12-04_lit.jpgÁ fund trúnaðarmannaráðs SFR, 4. des. sl., mætti Silja Bára Ómarsdóttir og fjallaði um jafnrétti í kreppu. Þá var einnig til umfjöllunar nýleg skýrsla um skattbyrði, tengslanet trúnaðarmanna og þeir kjarasamningar sem framundan eru.

5. desember 2008

Hvert stefnir í efnahagsmálum ţjóđarinnar?

BSRB_Gylfi-+-JonThor_l.jpgOpinn fundur BSRB um framtíðarþróun efnahagsmála á Íslandi var afar fróðlegur. Gylfi Zoëga prófessor við Háskóla Íslands og Jón Þór Sturluson aðstoðarmaður viðskiptaráðherra ræddu aðdraganda kreppunnar og þá kosti sem væru í stöðunni til að vinna sig út úr henni en þar skiptir peningastefnan höfuðmáli.

3. desember 2008

Framtíđin - međ eđa án krónu

Opinn fundur verður á vegum BSRB á morgun fimmtudag 4. desember kl. 16:00 - 17:30 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Yfirskrift fundarins er Framtíðin - með eða án krónu. Framsögu hafa Gylfi Zoëga, prófessor við Háskóla Íslands, og Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra.

1. desember 2008

Hádegisfróđleikur - Gildi samfélagsins og orđspor

Skráning er hafin á hádegisfróðleik fyrir félagsmenn þann 4. des. nk. kl. 12-12:50. Það er Gunnar Hersveinn, rithöfundur og heimspekingur, sem heldur fyrirlestur sem hann byggir á nýútkominni bók sinni Orðspor-gildin í samfélaginu, en þar fjallar hann um hvernig einstaklingar geta lagt öðrum lið og tekið þátt í að bæta samfélag sitt. Nauð-synlegt er að áhugasamir skrái sig HÉR þar sem boðið er upp á samloku og drykk.

1. desember 2008

SFR skrifađi undir samkomulag viđ Reykjavíkurborg

Í gær skrifaði SFR undir samkomulag við Reykjavíkurborg um breytingu og framlengingu á kjarasamningi aðila, fyrir þá félagsmenn sem starfa hjá Reykjavíkurborg. Meginatriði samkomulagsins er að frá 1. nóvember sl. hækka dagvinnulaun allra um 20.300 krónur.

Slóđin ţín:

Fréttir